Stefnur á sviði upplýsingatækni
Ríki og sveitarfélög hafa unnið, sameiginlega eða á eigin vegum, að ólíkum stefnum sem snerta upplýsingatækni, stafræna umbreytingu og þjónustu. Stefnurnar eru leiðandi fyrir opinbera aðila og styðja þá í þeirri stafrænu umbreytingu sem nútíma þjónusta krefst.
Stefna um opinbera þjónustu
Stefnan var gefin út í október 2026.
Hún tekur við af fyrri stefnu (Stafræn stefna ríkis og sveitarfélag um opinbera þjónustu) frá 2021.
Stefna um skýjalausnir
Öryggis- og þjónustustefna um hýsingarumhverfi var gefin út í júní 2022. Samhliða henni var gefin út aðgerðaáætlun. Öryggisflokkun gagna ríkisins styður jafnframt við aukna notkun skýjalausna. Helstu markmið stefnunnar eru.
- Aukið öryggi
- Betri þjónusta sem er skilvirk og hröð
- Meiri nýsköpun
Öryggis- og þjónustustefna um hýsingarumhverfi (skýjastefna) á Ísland.is
Strategic cloud policies of the Icelandic government á Ísland.is
Netöryggisstefna
Netöryggisstefna Íslands fyrir árin 2021-2036 var gefin út í nóvember 2021. Helstu markmið stefnunnar eru:
- Afburða hæfni og nýting á netöryggistækni
- Öruggt netumhverfi
Gervigreind
Stefna Íslands um gervigreind var gefin út í apríl 2021. Helstu markmið stefnunnar eru að stuðla að því að Ísland hafi sterkan og sameiginlegan siðferðislegan grundvöll fyrir þróun og nýtingu gervigreindar, byggðan á góðri þekkingu á tækninni og þeim öryggisáskorunum sem henni fylgja.
Gagnastefna
Unnið er að heildstæðri gagnastefnu fyrir Ísland. Fyrsta skrefið var birting öryggisflokkunar gagna ríkisins (e. Data Security Classification).
Upplýsingatæknimál ríkisins
Var efnið hjálplegt?