Jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins 2027-2029

Leiðarljós

Stjórnarráðið skal vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði kynjanna er virt í hvívetna. Allt starfsfólk skal eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína og þróast í starfi. Unnið skal markvisst að því að skapa menningu virðingar og inngildingar innan allra ráðuneyta í samræmi við mannauðsstefnu Stjórnarráðsins.

Jafnréttisáætlun þessi tekur til allra ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki þeirra öll þau réttindi sem kveðið er á um í lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Við framkvæmd aðgerða í Jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins skal tekið mið af lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 og banni við fjölþættri mismunun skv. 16. gr. jafnréttislaga. Þá skal einnig taka mið af mannauðsstefnu Stjórnarráðsins og stefnu Stjórnarráðsins vegna EKKO (einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni, ofbeldi) ásamt forvarnar- og viðbragðsáætlun.

Sérhvert ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands ber ábyrgð á að framfylgja jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins í störfum sínum.

I. Launajafnrétti

Ráðuneytin greiða laun eftir umfangi og eðli starfa og taka mið af þeim kröfum sem störf gera til starfsfólks í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga. Þess skal sérstaklega gætt að þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar launaákvörðunum séu málefnalegar og byggi á kynhlutlausum viðmiðum sem tryggja að starfsfólk af öllum kynjum njóti sömu launa og kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Starfsfólki Stjórnarráðsins er ávallt frjálst að skýra frá launakjörum sínum.

 

MarkmiðAðgerðÁbyrgðTímarammi
Að kynbundinn launamunur mælist ekki innan Stjórnarráðsins

#1: Áfram verði tryggt að jöfn laun séu greidd fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og að launaákvarðanir séu teknar út
frá kynhlutlausum viðmiðum. Gögnum, sem sýna fram á að launakerfi ráðuneyta tryggi jöfn laun fyrir sömu eða
jafnverðmæt störf og að launaákvarðanir séu teknar út frá kynhlutlausum viðmiðum sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun á grundvelli kyns, verði skilað til Jafnréttisstofu á þriggja ára fresti sbr. 8. gr l. nr. 150/2020.

Yfirstjórn hvers ráðuneytis2027 og svo á þriggja ára fresti
Að kynbundinn launamunur mælist ekki innan Stjórnarráðsins

#2: Árlega skal kannað hvort kynbundinn munur sé á launum og starfskjörum og gripið til viðeigandi ráðstafana ef kynbundinn
launamunur mælist umfram viðmið stjórnvalda.

Yfirstjórn hvers ráðuneytisÁrlega

II. Laus störf og framgangur í starfi, starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun

Starf sem laust er til umsóknar skal standa opið jafnt konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns. Jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar. Stefnt er að því að halda sem jöfnustu hlutfalli kynjanna í störfum innan ráðuneytanna. Sérstök áhersla er lögð á að jafna stöðu kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum. Þá skal tekið tillit til laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði og tryggt að málefnaleg sjónarmið ráði ávallt för við ráðningar.

 

MarkmiðAðgerðÁbyrgðTímarammi

Að öll kyn eigi jafna möguleika á
ráðningu í störf hjá Stjórnarráðinu

#3: Í auglýsingum eru störf ókyngreind. Hvetja skal fólk
af öllum kynjum til að sækja um auglýst störf.

Ábyrgðaraðili ráðningaAlltaf

Að öll kyn eigi jöfn tækifæri til
framgangs í starfi

#4: Taka skal saman upplýsingar um kynjahlutföll í ráðuneytunum.

Yfirstjórn/ þau sem fara með
mannauðsmál

Árlega

Að öll kyn eigi jöfn tækifæri til
framgangs í starfi

#5: Þar sem hallar á konur eða karla ber að gæta sérstaklega að jafnréttissjónarmiðum við nýráðningar eða tilfærslur í störfum innan ráðuneyta. Sé um jafnhæfa einstaklinga að ræða skal nýta tækifærið til að rétta hlut þess kyns sem á hefur hallað.

Ráðuneytisstjórar og
skrifstofustjórar

Alltaf

Að öll kyn eigi jöfn tækifæri til
framgangs í starfi

#6: Í árlegri starfsmannakönnun skal kanna viðhorf starfsfólks til þess hvernig framgangi starfsfólks í starfi innan ráðuneytisins sé háttað. Komi í ljós að starfsfólki finnist vera kynbundinn munur þar á eða ef kynin hafa ólík viðhorf til stöðunnar ber að gera frekari greiningar og grípa til ráðstafana ef þörf krefur. Gæta skal sérstaklega að stöðu starfsfólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá.

Yfirstjórn/ þau sem
fara með mannauðsmál

Árlega

Að öll kyn hafi jafnan aðgang að símenntun,
endurmenntun og starfsþróun

#7: Í árlegri starfsmannakönnun skal kanna hvort starfsfólk hafi fengið hvatningu og tækifæri til að sækja sér sí- og endurmenntun. Komi í ljós að starfsfólki finnist vera kynbundinn munur þar á eða ef kynin hafa ólík viðhorf til stöðunnar ber að gera frekari greiningar og grípa til ráðstafana. Gæta skal sérstaklega að stöðu starfsfólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá.

Yfirstjórn/ þau sem fara með
mannauðsmál

Árlega

III. Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs

Starfsfólki skal gert kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu óháð kyni. Tilhögun vinnutíma og sveigjanleiki í starfi skal gagnast starfsfólki til að njóta frítíma síns. Óheimilt er að láta fæðingar- og foreldraorlof eða aðrar aðstæður tengdar meðgöngu og barnsburði hafa neikvæð áhrif á ákvarðanir um framgang í starfi, endurmenntun, uppsögn, vinnuaðstæður og fleiri slíka þætti. Þá skal leitast við að halda yfirvinnu starfsfólks innan eðlilegra marka.

 

MarkmiðAðgerðÁbyrgðTímarammi

Að starfsfólk geti samræmt
starfsskyldur og fjölskyldulíf

#8: Starfsfólki skal kynnt viðverustefna Stjórnarráðsins auk þeirra úrræða sem í boði eru til að auðvelda samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs, s.s. jafn réttur til fæðingarorlofs og fjarveru vegna veikinda barna, sveigjanlegur vinnutími, fjarvinna og aðrar einstaklingsbundnar lausnir.

Yfirstjórn/ þau sem fara með
mannauðsmál

Árlega á starfsmannafundi

Að starfsfólk geti samræmt
starfsskyldur og fjölskyldulíf

#9: Í árlegri starfsmannakönnun skal kanna viðhorf og reynslu starfsfólks af samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Komi í ljós að fyrirkomulag betri vinnutíma hafi ekki náð markmiðum sínum eða að reynsla kynjanna sé ólík skal gera frekari greiningar og grípa til ráðstafana.

Yfirstjórn/ þau sem fara með
mannauðsmál

Árlega eftir starfsmanna
kannanir

Að yfirvinna starfsfólks sé innan
hóflegra marka og uppræta kynbundinn mun þar á

#10: Reglulega skal kanna hvort yfirvinnuálag starfsfólks sé innan hóflegra marka. Hafi yfirvinna óvenju mikil neikvæð áhrif á fjölskyldulíf skal bregðast við með endurskipulagningu verkefna eða annarri vinnuhagræðingu.Yfirstjórn ráðuneytaÁrlega

IV. Kynbundið ofbeldi, kynbundin og kynferðisleg áreitni

Allt starfsfólk á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það sæti ekki áreitni eða ofbeldi af kynbundnum eða kynferðislegum toga í starfsumhverfi sínu og stafrænum samskiptum. Áreitni vegna kynhneigðar, kynvitundar eða kyntjáningar skal heldur ekki liðin.

Í gildi er stefna, forvarnar- og viðbragðsáætlun Stjórnarráðsins sem tryggja skal að úrræði séu til staðar og stuðlað sé að forvörnum og verkferlum í samræmi við ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum (EKKO).

Stjórnarráðið leitast við að sýna gott fordæmi og vera leiðandi í forvörnum og aðgerðum gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni.

 

MarkmiðAðgerðÁbyrgðTímarammi

Að kynbundið ofbeldi og áreitni og
kynferðisleg áreitni sé ekki liðin á vinnustaðnum

#11: Í árlegri starfsmannakönnun skal kanna hvort að starfsfólk hafi orðið fyrir kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og/eða áreitni. Komi í ljós að einhver hafi upplifað slíkt ofbeldi skal gera frekari greiningar og grípa til ráðstafana.Þau sem fara með mannauðsmálÁrlega

Að allt starfsfólk þekki þær
leiðir sem eru til staðar á vinnustaðnum ef fólk verður fyrir kynferðislegu
og kynbundnu ofbeldi og áreitni

#12: Starfsfólk Stjórnarráðsins fái fræðslu um forvarnir og viðbrögð við kynbundnu ofbeldi, kynbundinni og kynferðislegri áreitni, ásamt fræðslu um EKKO stefnu Stjórnarráðsins á tveggja ára fresti. EKKO stefna Stjórnarráðsins skal vera hluti af nýliðakynningu Stjórnarráðsins.

Þau sem fara með mannauðsmál og
Stjórnarráðsskólinn

2027 og svo á tveggja ára fresti

Stjórnendur þekki hlutverk sín og
ábyrgð samkvæmt stefnu, forvarnar- og viðbragðsáætlun Stjórnarráðsins vegna
EKKO mála.

#13: Stjórnendur ráðuneyta og mannauðsstjórar fái fræðslu um forvarnir og viðbrögð við kynbundnu ofbeldi, kynbundinni og kynferðislegri áreitni, ásamt fræðslu um EKKO stefnu Stjórnarráðsins.

Þau sem fara með mannauðsmál og
Stjórnarráðsskólinn

2027 og svo á tveggja ára fresti

V. Þátttaka í nefndum, ráðum og stjórnum

Unnið skal markvisst að því að jafna hlut kvenna og karla í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera. Við skipan í nefndir, ráð og stjórnir skal þess gætt að kynjahlutfall sé sem jafnast og að hlutfall kvenna eða karla sé ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða, sbr. 28. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Slíkt fyrirkomulag á ekki að koma í veg fyrir tilnefningu og skipan fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá en hlutfall kvenna skal þó aldrei vera minna en 40%.

 

MarkmiðAðgerðÁbyrgðTímarammi

Að kynjahlutfall í nefndum, ráðum
og stjórnum á vegum ráðuneytanna sé sem jafnast

#14: Þegar leitað er tilnefninga í opinberar stjórnir, nefndir og ráð skal minnt á ákvæði 28. gr. laga nr. 150/2020 og sérstaklega óskað eftir tilnefningu bæði karls og konu í hvert sæti sem skipa skal í. Kalla skal eftir skýringum frá tilnefningaraðila séu ekki tilnefndir aðilar af báðum kynjum. Aðgerð þessi kemur ekki í veg fyrir tilnefningu og skipun fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá í nefndir, ráð og stjórnir á vegum hins opinbera.Ráðherrar og ráðuneytisstjórarAlltaf

VI. Mismunun

Allt starfsfólk á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu. Hvers kyns mismunun, fordómar eða áreitni vegna kyns, kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar er óheimil, í hvaða formi sem hún birtist, samanber lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018.

 

MarkmiðAðgerðÁbyrgðTímarammi

Að mismunun finnist ekki innan
Stjórnarráðsins

#15: Starfsfólk Stjórnarráðsins fái fræðslu um jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu. Starfsfólk þekki réttindi sín og hvert skal leita verði það fyrir mismunun eða óæskilegri hegðun.

Þau sem fara með mannauðsmál í
samstarfi við jafnréttisfulltrúa

Fyrir lok gildistíma
jafnréttiáætlunarinnar

VII. Eftirfylgni

Yfirstjórnir ráðuneyta bera ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni aðgerða jafnréttisáætlunar í samstarfi við ábyrgðaraðila aðgerða og jafnréttisfulltrúa.

Jafnréttisfulltrúar ráðuneytanna

Í hverju ráðuneyti skal starfa jafnréttisfulltrúi með sérþekkingu á jafnréttismálum, sbr. 27. gr. laga nr. 150/2020.

Fundur jafnréttisfulltrúa og mannauðshóps Stjórnarráðsins

Árlega skal jafnréttisfulltrúi þess ráðuneytis sem fer með jafnréttismál kalla saman samráðsfund jafnréttisfulltrúa og mannauðshóps um framkvæmd jafnréttisáætlunar og jafnréttismál innan Stjórnarráðsins.

Gildistími og endurskoðun

Jafnréttisáætlun þessi gildir í þrjú ár frá samþykki og skal Skrifstofa jafnréttismála hafa forgöngu um endurskoðun hennar fyrir lok október 2029.

Staðfest á fundi ráðuneytisstjóra 5. nóvember 2026.

Sjá einnig: