06 september 2024
Afhending trúnaðarbréfs til framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar SÞ
Guðmundur Árnason sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm afhenti framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar SÞ, Cindy McCain, trúnaðarbréf sitt sl. miðvikudag og átti við það tækifæri fund með henni og fleiri stjórnendum stofnunarinnar.