19 júní 2025
Dómsmálaráðherra í Genf vegna sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, sótti sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf dagana 17.-18. júní. Þetta er 59. fundarlota ráðsins en Ísland tók sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 1. janúar síðastliðinn. Sumarlotan stendur í tæpar fjórar vikur og bera jafnréttismál jafnan einna hæst í henni.