Fjármála- og efnahagsráðuneytið fékkst á árinu 2023 við fjölmörg verkefni, bæði lögbundin sem og ýmis áherslumál. Meginhlutverk ráðuneytisins er að fara með yfirstjórn opinberra fjármála og efnahagsmála, en það fer að auki með málefni fjármálamarkaðarins, ber ábyrgð á bættum stjórnunarháttum og áætlanagerð, hefur með höndum virka stjórn mannauðsmála ríkisins og er leiðandi í umbótum og nýsköpun í rekstri ríkisins. Mörg verkefni voru á borðum ráðuneytisins sem snúa að þessum þáttum á síðasta ári, sem og önnur áherslu- og átaksverkefni.
Starfsemin 2023 í tölum
Markmið og árangur
Eftirfarandi kafli sýnir markmið og aðgerðir eftir málaflokki ráðuneytisins. Hægt er að velja málaflokk og undiliggjandi markmið málaflokks og skoða þá mælikvarða sem settir voru fyrir markmið og málaflokk auk stöðu aðgerða sem styðja við markmið.
Starfsemi á árinu
Meginhlutverk fjármála- og efnahagsráðuneytis felst í yfirstjórn opinberra fjármála og efnahagsmála. Árið 2023 sinnti ráðuneytið fjölmörgum verkefnum, bæði reglubundnum sem og ýmsum áhersluverkefnum.