Ársskýrsla dómsmálaráðherra 2022
Ávarp dómsmálaráðherra
Starfsemi dómsmálaráðuneytisins 2022 í tölum
Málefnasvið og málaflokkar dómsmálaráðuneytis 2022
Umfjöllun er kaflaskipt eftir málaflokkum á þeim málefnasviðum sem falla að öllu leyti eða hluta undir dómsmálaráðuneytið. Markmið eru skilgreind, stöðumat er birt og tíunduð þau verkefni sem helst stuðluðu að framgangi viðkomandi markmiða á árinu. Árangursmælingar markmiða eru tvíþættar: Mælikvarðar 2022 í fjármálaáætlun 2021–5 eru gerðir upp og sömuleiðis aðgerðir ársins, sem settar voru fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2022. Fjárveitingar til ríkisaðila og verkefna sem tilheyra A-hluta ríkissjóðs eru birtar í fylgiriti með fjárlögum.
Eftirfarandi skýrsla sýnir markmið og aðgerðir eftir málaflokk. Hægt er að velja málaflokk og undiliggjandi markmið málaflokks og skoða þá mælikvarða sem settir voru fyrir markmið og málaflokk auk stöðu aðgerða sem styðja við markmið.
Greining á útgjöldum
Útgjöld málaflokks 2.1, Hæstiréttur, voru 241,6 m.kr. á árinu eða 5,8% umfram heimildir ársins. Að teknu tilliti til uppsafnaðra heimilda fyrri ára var staðan neikvæð um 4,1 m.kr. Staða fjárfestingaframlaga var jákvæð um 5,1 m.kr. í árslok 2022.
Héraðsdómstólar**, málaflokkur 2.2** var 18,5 m.kr. innan fjárheimilda ársins og 194,8 m.kr. þegar búið er að taka tillit til uppsafnaðra fjárheimilda fyrri ára, varasjóður málaflokksins er hluti af uppsöfnuðum heimildum. Fjárfestingar á árinu voru að fjárhæð 13,5 m.kr. og staða fjárfestingaheimilda í árslok 4,1 m.kr.
Útgjöld Landsréttar, málaflokks 2.3, voru 805,8 m.kr. á árinu. Það er 6.4 m.kr. umfram heimildir ársins en 11,1 m.kr. innan uppsafnaðra rekstrarheimilda. Fjárfestingaheimild Landsréttar var neikvæð um 10,7 m.kr. í árslok 2022.
Fjárfestingar Dómstólasýslunnar námu 18,4 m.kr. á árinu 2022 og óráðstöfuð fjárfestingaheimild í árslok nam 100 m.kr. Útgjöld Dómstólasýslunnar námu 358,4 m.kr. á árinu sem er 4.6 m.kr. umfram uppsafnaðar rekstrarfjárheimildir.
Málefnasvið 9, Almanna- og réttaröryggi, var 1.246 m.kr. umfram heimildir ársins, þegar búið er að taka tillit til uppsafnaðra heimilda fyrri ára er hallinn 1.060 m.kr. eða 3,2%. Það skýrist að mestu leyti af liðnum réttaraðstoð og bætur sem var 1.006 m.kr. í halla um áramót. Á þessu lið er málskostnaður í opinberum málum, opinber réttaraðstoð og bætur brotaþola, sem ráðuneytið hefur ekki stjórn á.
Útgjöld málaflokks 9.1, löggæsla, nam 20.767,9 m.kr. Uppsöfnuð heildarfrávik ársins voru 441,2 m.kr. eða 2,1% innan uppsafnaðra fjárheimilda. Ríkislögreglustjóri er 13 m.kr innan heimilda ársins en halli fyrri ára gerir það að verkum að árið endar í 163 m.kr. halla. Uppsöfnuð heimild Lögreglustjórans á Suðurnesjum er 128 m.kr. Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra er 62 m.kr. innan uppsafnaðra rekstrarheimilda. Það skýrist fyrst og fremst af því að ekki fékkst starfsfólk til starfa fyrr en seint á árinu, svo það vantaði í 1 ½ - 2 stöður. Útgjöld lögreglustjórans í Vestmannaeyjum eru 12,8 m.kr. umfram heimildir ársins, en að teknu tilliti til uppsafnaðra fjárheimilda fyrri ára er hann 17,7 m.kr. innan rekstrarheimilda. Fjárfestingaheimild löggæslunnar nam 1.363,5 m.kr. um áramótin 2022/2023. Það samanstendur að mestu leyti af fyrirhuguðum Schengen verkefnum sem hafa tafist og svo samhæfingamiðstöð viðbragðsaðila en framkvæmdum við stöðina hefur verið frestað.
Halli var á fjárfestingaheimild Landhelgisgæslunnar í árslok 2022 um 168 m.kr. Það skýrist að mestu leyti af umfram fjárfestingu fyrri ára. Útgjöld málaflokksins til rekstrar var 318 m.kr. umfram heimild ársins og 440,6 m.kr. uppsafnað. Margföldun eldsneytisverðs vegna heimsástands, auknum rekstrarkostnaði varðskipa samhliða komu Freyju, standsetningar hennar og staðsetningu á Siglufirði, óvænt bilun á Þór og léleg afkoma af Frontex verkefnum er helsta ástæða hallans.
Á málaflokki 9.3 eru tvær stofnanir, Ríkissaksóknari og Héraðssaksóknari. Uppsöfnuð heimild Ríkissaksóknara í árslok var 12,4 m.kr. og fjárfestingaheimildin í árslok var 9,2 m.kr. Héraðssaksóknari var 14 m.kr. umfram uppsafnaðar heimildir eða 1.1%. Fjárfestingaheimild Héraðssaksóknara var á núlli í árslok.
Fangelsismálastofnun er 23,5 m.kr. umfram heimildir ársins og 53,5 m.kr. uppsafnað. Frávik eru í launakostnaði vegna aukningar í útgjöldum vegna styttingar vinnuvikunnar í vaktavinnu og mikilla veikindafjarvista. Þá eru einnig frávik í liðnum rekstrarvörur vegna aukins kostnaðar við aðföng. Fjárfestingaheimild málaflokksins stendur í 782,2 m.kr. um áramótin, liðurinn fangelsisbyggingar er þar stærstur með 809,7 m.kr.
Málefnasvið 10, réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmálaráðuneytisins, var 64,5 m.kr. innan heimilda ársins og 134,7 m.kr í halla að teknu tilliti til yfirfærslu frá fyrri árum.
Staða sýslumanna hefur batnað frá fyrri árum, í árslok 2022 voru þeir 143,3 m.kr. innan heimilda ársins og 125.7 m.kr. að teknu tilliti til fyrri ára. Fjárfestingaheimild sýslumanna var neikvæð um 4,1 m.kr.
Fjárfestingaheimild stjórnsýslu dómsmálaráðuneytisins var neikvæð um 5,4 m.kr. í árslok. Rekstrarheimild málaflokksins var 1,7 m.kr. umfram heimildir en 181,5 m.kr. umfram heimildir þegar búið er að taka tillit til uppsafnaðrar afkomu fyrri ára. Þar munar mestu um aukin kostnað við alþjóðasamstarf sem ekki hefur verið fjármagnaður í fjárlögum í samræmi við raunkostnað.
Úgjöld málaflokks 10.5, útlendingamál, voru 2.167,5 m.kr. eða 44,6 m.kr. umfram heimildir ársins. Að teknu tilliti til fyrri ára var staðan í árslok 2022, 36 m.kr. í halla. Liðurinn, umsækjendur um alþjóðlega vernd var 74 m.kr. í halla vegna aukningar umsókna um alþjóðlega vernd og vegna Úkraínustríðs. Útlendingastofnun er 5,5% innan heimilda og Kærunefnd útlendingamála er 1,8% innan heimilda. Fjárfestingaliður málaflokksins var 8 m.kr. um áramót og fjárfestingar ársins námu 37,3 m.kr.
Starfsemi ráðuneytisins á árinu 2022
Starfsemi ráðuneytisins nær til þriggja málefnasviða samkvæmt lögum um opinber fjármál og snerta fjölmörg svið þjóðfélagsins. Þau varða meðal annars almannavarnir, ákæruvald, dómstóla, réttarfar, fullnustu dóma, landhelgisgæslu, löggæslu, persónurétt, sýslumenn og kosningar. Hjá ráðuneytinu starfa rúmlega 50 starfsmenn og heyra 30 stofnanir undir starfsemi þess. Starfsemi stofnana skipast eftir málefnasviðum þannig að undir málefnasviðið dómstólar heyra héraðsdómstólar, Landsréttur, Hæstiréttur og dómstólasýslan. Níu lögregluembætti, Ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæslan, ríkissaksóknari, héraðssaksóknari og Fangelsismálastofnun heyra undir málefnasviðið almanna- og réttaröryggi, og Persónuvernd, Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála og níu sýslumannsembætti undir málefnasviðið réttindi einstaklinga, sem og trúmál og stjórnsýsla dómsmálaráðuneytisins. Ráðuneytið skiptist árið 2021 niður á fimm skrifstofur sem nefnast lagaskrifstofa, skrifstofa almanna- og réttaröryggis, skrifstofa réttinda einstaklinga, skrifstofa fjármála og rekstrar og skrifstofa yfirstjórnar.
Helstu verkefni ársins 2022
Sýslumenn lögðu mikla áherslu á stafrænar umbætur á árinu 2022, með það að meginmarkmiði að bæta þjónustuna við almenning. Áfram var unnið að úrbótum á starfskerfi sýslumanna og stafrænum lausnum fyrir þjónustu embættanna, svo sem vegna rafrænna þinglýsinga, dánarbúsmála, fjölskyldumála og annarra málaflokka. Vefur sýslumanna á Ísland.is hélt áfram að þróast en nú eru þar aðgengilegir listar yfir útgefin rekstrarleyfi ásamt leyfum fasteigna- og skipasala og lögmanna. Þá var að auki tekin í gagnið ný þjónustuleið í gegnum vefinn, sem býður upp á bætt samskipti við starfsfólk sýslumannsembættanna, auk þess sem tekin var í notkun sérstök gagnagátt sem býður almenningi upp á öruggar gagnasendingar í gegnum vefgátt Ísland.is. Á árinu 2022 voru sýslumenn tilnefndir til verðlauna Ský (Skýrslutæknifélagsins) í flokknum UT-Stafræna þjónustan 2021 ásamt því að hljóta viðurkenningu fyrir stafræn skref frá Ísland.is.
Áfram var unnið að því að leita leiða til að styðja við Persónuvernd vegna aukins álags á stofnunina undanfarin misseri. Í þeirri viðleitni var unnið að frumvarpi til breytinga á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga með það að markmiði að einfalda og bæta málsmeðferð hjá Persónuvernd. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi haustið 2022 þar sem það var tekið til meðferðar en samþykkt aðeins að hluta.
Á árinu var samþykkt frumvarp til breytingar á hjúskaparlögum en með þeim voru gerðar breytingar á ýmsum ákvæðum hjúskaparlaga. Meðal annars lutu breytingarnar að því að afnema undanþáguheimild frá 18 ára lágmarksaldri til þess að stofna til hjúskapar.
Á árinu var unnið að frumvarpi til nýrra laga um nafnskírteini þar sem mælt er fyrir um útgáfu nýrra handhægra nafnskírteina sem teljast örugg persónuskilríki til auðkenningar og geta jafnframt verið gildi ferðaskilríki á Evrópska efnahagssvæðinu. Frumvarpið var samþykkt sem lög á Alþingi í maí 2023.
Á árinu 2022 tók Vinnumálastofnun formlega við þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, sbr. breyting á lögum um útlendinga, en þjónustunni hafði þá verið sinnt af Útlendingastofnun um árabil. Ágætt samstarf hlutaðeigandi stjórnvalda var við undirbúning á flutningi þjónustunnar og hefur það samstarf haldið áfram og vaxið. Umsækjendum um alþjóðlega vernd fjölgaði mjög árið 2022 er ríflega 4.500 umsóknir bárust íslenskum stjórnvöldum. Þessi mikla aukning stafaði að hluta af stríðinu í Úkraínu en þaðan sóttu 2.350 einstaklingar um alþjóðlega vernd. Í byrjun mars 2022 ákvað dómsmálaráðherra að virkja 44. gr. útlendingalaga sem kveður á um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta. Var það í fyrsta sinn sem ákvæðið var virkjað, en undanfari þess var samráð bæði innanlands sem utan þ. á m. við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Haustið 2022 lagði dómsmálaráðherra fram frumvarp til breytinga á útendingalögum, nánar tiltekið breytingar er varða ákvæði laganna um alþjóðlega vernd, en það var að hluta endurframlagt.
Í dómsmálaráðuneyti fer fram rýni og gæðaeftirlit með stjórnarskjölum, þ.e. frumvörpum og þingsályktunartillögum allra ráðuneyta sem ráðherrar hyggjast leggja fram á Alþingi. Á árinu 2022 bárust ráðuneytinu 135 frumvörp og 22 þingsályktunartillögur. Þetta er nokkur fjölgun frá árinu 2021 þegar 95 frumvörp og 23 þingsályktunartillögur bárust til yfirlestrar, enda þingsetning þá í lok nóvember.
Dómsmálaráðuneytið annast umsjón samráðsgáttar í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneyti. Markmið samráðsgáttarinnar er að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun, reglusetningu og ákvarðanatöku opinberra aðila. Þar er á einum stað hægt að finna öll mál ráðuneyta sem birt hafa verið til samráðs við almenning. Öllum er frjálst að senda inn umsögn eða ábendingu (www.samradsgatt.is). Fjöldi mála í samráðsgátt á árinu 2022 var 254 en árið áður voru þau 241. Heimsóknir á árinu 2022 voru u.þ.b. 138.000 en voru um 126.000 árið áður. Alls bárust á árinu 2022 um 1.700 umsagnir sem er nokkur fjölgun frá fyrra ári. Stjórnarfrumvörp sem urðu að lögum á árinu 2022 höfðu í 66% tilvika verið birt sem drög til opins samráðs á fyrri stigum. Tekið skal fram að fjárlög og fjáraukalög eru utan þessara talna.
Sveitastjórnarkosningar voru haldnar þann 14. maí 2022 og var það fyrstu almennu kosningar sem haldnar voru hér á landi í tíð nýrra kosningalaga sem tóku gildi 1. janúar 2022. Í aðdraganda þeirra samþykkti Alþingi lagabreytingar enda höfðu þá komið í ljós ýmis atriði sem betur máttu fara í hinni nýju löggjöf. Lutu þær breytingar einkum að því að leiðrétta misræmi í dagsetningum hvað varðaði viðmiðunardag kjörskrár og hvenær framboð skyldi tilkynnt, auk þess sem gerðar voru nokkrar lagatæknilegar breytingar.
Dómsmálaráðherra lagði á árinu 2022 fram tvö frumvörp til breytinga á almennum hegningarlögum. Með fyrra frumvarpinu voru gerðar breytingar á þeim ákvæðum laganna sem taka til mútugreiðslna til erlendra opinberra starfsmanna í því skyni annars vegar að gera ákvæðin skýrari auk þessi refsihámark var hækkað. Með síðara frumvarpinu voru lagðar til verulegar breytingar á barnaníðsákvæðum almennra hegningarlaga, bæði að því er varðar efni þeirra og refsihámark fyrir brot gegn börnum, sem og breytingar á ákvæðum sem fjalla um hatursorðræðu og mismunun.
Þá lagði dómsmálaráðherra fram frumvarp, sem samþykkt var af Alþingi 15. júní 2022, þar sem lagðar voru til umfangsmiklar breytingar ákvæðum laga um meðferð sakamála í því augnamiði að bæta réttarstöðu brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda látinna einstaklinga. Eftir þeir breytingar hefur til að mynda aðgangur brotaþola að gögnum á rannsóknarstigi verið aukinn verulega, ótvíræður réttur til að vera viðstaddur lokuð þinghöld verið viðkenndur og réttur til að leggja fram sönnungargögn og spyrja spurninga við skýrslutökur verið rýmkaður, ásamt fleiru. Einnig samþykkti Alþingi 16. desember 2022 frumvarp dómsmálaráðherra sem fól í sér ýmsar breytingar á lögum um meðferð einkamála, lögum um meðferð sakamála og lögum um dómstóla. Með þeim var meðal annars rýmkuð kæruheimild til Hæstaréttar Íslands í kærumálum og rýmkuð skilyrði fyrir því að áfrýja héraðsdómi beint til Hæstaréttar.
Þann 16. desember 2022 samþykkti Alþingi enn fremur frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. þar sem leitast var við sporna við misnotkun á hlutafélagaforminu og svokölluðu kennitöluflakki í atvinnurekstri. Mikilvægasta nýmæli frumvarpsins fólst í heimild til að úrskurða þann sem ekki telst hæfur til að stýra hlutafélagi vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta við stjórnun félags í atvinnurekstrarbann sem að meginreglu vari í þrjú ár.