16 Markaðseftirlit og neytendamál
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Einn málaflokkur heyrir undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 16 Markaðseftirlit og neytendamál árið 2026 eru áætluð 4.895,6 m.kr. og aukast um 398,9 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 8,9,%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 435,9 m.kr. milli ára eða sem svarar til 9,8%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
16.10 Markaðseftirlit og neytendamál
Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytis, Samkeppniseftirlitsins, Neytendastofu og Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Aukið gagnsæi, virkari samkeppni og heilbrigðari viðskiptahættir fjármála- og viðskiptalífs |
||
|
Ný heildstæð stefnumótun á sviði neytendamála (þingsályktun um stefnu stjórnvalda á sviði neytendamála). |
Atvinnuvegaráðuneyti |
Innan ramma. |
|
Endurskoðun löggjafar til að efla neytendavernd og treysta umgjörð neytendamála. |
Atvinnuvegaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. |
Atvinnuvegaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Efling samkeppniseftirlits (veltumörk tilkynningarskyldra samruna og samrunagjald). |
Atvinnuvegaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Endurskoðun á regluverki um fjármálafyrirtæki með það að markmiði að minnka flækjustig þess. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti og Seðlabanki Íslands |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 4.547,2 m.kr. og hækkar um 293,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 36,7 m.kr.
Rekstrartilfærslur hækka um 200,7 m.kr. að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum sem skýrist fyrst og fremst af hækkun fjárheimildar í samræmi við rekstraráætlun Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða. Vakin er athygli á því að innan málaflokksins er búið að aðlaga fjárheimildir í tengslum við breytta verkaskiptingu ráðuneyta vegna breytinga á Stjórnarráðinu.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 95 m.kr. til eflingar samkeppnis- og neytendamála. Gert er ráð fyrir að framlaginu verði ráðstafað til aukinna verkefna á sviði neytendamála og til endurnýjunar á mælitækjum vegna kvörðunarþjónustu fyrir atvinnulífið. Einnig er gert ráð fyrir að framlag til Samkeppniseftirlitsins verði aukið til að efla eftirlitið, m.a. í kjölfar úttektar Ríkisendurskoðunar á Samkeppniseftirlitinu og til að mæta þeim ábendingum sem þar koma fram. Þá er gert ráð fyrir auknu framlagi til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa til að mæta auknum verkefnum og málafjölda.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 209,9 m.kr. í samræmi við rekstraráætlun Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Fjárveiting úr ríkissjóði er jafnhá áætluðum tekjum af eftirlitsgjaldi til að standa undir rekstri Fjármálaeftirlitsins. Sjá nánari umfjöllun í frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 13,4 m.kr.
16.20 Stjórnsýsla atvinnumála og nýsköpunar
Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytis. Undir málaflokkinn fellur einn fjárlagaliður sem er ýmis verkefni og þar undir eru ýmis viðskipta- og bankamál umsvifamest.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 348,4 m.kr. og hækkar um 105 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 0,3 m.kr.
Rekstrarframlög hækka um 212,2 m.kr. að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum sem skýrist fyrst og fremst af fjárheimild sem millifærð er í tengslum við breytingar á Stjórnarráðinu í samræmi við forsetaúrskurð auk eflingar samkeppnis- og neytendamála. Þá hækka rekstrartilfærslur um 135,9 m.kr. sem að stærstum hluta er vegna breytinga á Stjórnarráðinu. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 243,1 m.kr. vegna flutnings fjárheimildar af málaflokki 18.50 í tengslum við breytingar á Stjórnarráðinu í samræmi við forsetaúrskurð eins og vikið var nánar að hér á undan.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 105 m.kr. til eflingar samkeppnis- og neytendamála. Gert er ráð fyrir að framlagið verði annars vegar notað til að standa undir kostnaði (tekjutapi) fyrirtækjaskrár Skattsins við það að veita gjaldfrjálsan aðgang að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá í samræmi við lög þar um, nr. 64/2017, og álit umboðsmanns Alþingis. Hins vegar er gert ráð fyrir tímabundnu framlagi til að styrkja áfrýjunarnefnd samkeppnismála vegna umfangsmikilla mála sem þar eru til meðferðar.
Fjárlög fyrir árið 2026
Var efnið hjálplegt?