12 október 2026
/
Utanríkisráðuneytið

Við getum gert bæði

Við getum gert bæði

Það er undarlega lífseig hugmynd hjá ákveðnum stjórnmálamönnum í íslenskri pólitík að við verðum alltaf að velja. Bandaríkin eða Evrópu. Aðhald eða fjárfestingu. Atvinnulíf eða velferð. Innanríkismál eða alþjóðasamstarf. Eins og við getum aldrei gert fleira en eitt í einu.

Þessi hugsun hefur verið sérstaklega áberandi í málflutningi Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins að undanförnu. Ef ríkisstjórnin leggur áherslu á nánara samstarf við Evrópu er hún sökuð um að vanrækja Bandaríkin. Ef við styrkjum tengslin vestur um haf er látið eins og við höfum skipt um stefnu.

En hlutverk ábyrgra stjórnvalda er að gæta hagsmuna Íslands í síbreytilegum heimi. Það þýðir að velja sér ekki bara einn vin, eina átt eða eitt verkefni. Heldur að geta unnið að mörgu í einu og átt marga vini.

 

Að fjölga möguleikum

Síðastliðinn þriðjudagur var ágætt dæmi. Um morguninn tók ég á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Höfða. Við ræddum varnar- og öryggismál, norðurslóðir, viðskipti, fjárfestingar og hvernig við getum styrkt samband ríkjanna enn frekar. Samband Íslands og Bandaríkjanna stendur traustum fótum og það kom skýrt fram í heimsókninni.

Nokkrum klukkustundum síðar stóð ég í pontu Alþingis og mælti fyrir bókun 35 við EES-samninginn. Máli sem snýst um að tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja samkvæmt EES-samningnum og standa við skuldbindingar sem Ísland tók á sig fyrir meira en þrjátíu árum.

Í þessu felst engin mótsögn. Þvert á móti. Utanríkisstefna lítillar þjóðar á einmitt að snúast um að fjölga möguleikum okkar og styrkja þær stoðir sem hagsmunir og öryggi Íslands hvíla á.

 

Þegar Washington svarar

Þetta er sérstaklega áhugavert í ljósi umræðunnar síðustu vikur. Forysta Sjálfstæðisflokksins kom nýverið heim frá Washington og gerði mikið úr því að Ísland ætti að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin.

Svo kom utanríkisráðherra Bandaríkjanna sjálfur til Íslands og sagði hreint út að að mati bandarískra stjórnvalda væri tími hefðbundinna fríverslunarsamninga liðinn um fyrirsjáanlega framtíð. Bandaríkin vildu frekar ræða annars konar tvíhliða viðskiptasamninga. Þetta hefur reyndar áður komið fram í samtölum milli ríkjanna.

Það er auðvelt að koma fram með stórar yfirlýsingar. En það er líka ágætt að leggja við hlustir um hvað raunverulega er á borðinu. Við eigum sannarlega að sækja hvert tækifæri sem býðst í viðskiptum við Bandaríkin og finna þær leiðir sem eru færar. En þá verðum við líka að lifa í raunheimum.

Það sama á við um EES-samninginn. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sjálf kallað hann hornstein í utanríkis- og efnahagsstefnu Íslands. Það eru orð sem ég tek heilshugar undir.

Þess vegna er sérkennilegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli síðan ekki geta sagt með skýrum hætti hvernig hann ætlar að standa að bókun 35, sem snýst einmitt um að Ísland uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt þessum sama samningi og tryggja fólki og fyrirtækjum þau réttindi sem honum fylgja. Þegar ESA ákvað að höfða mál gegn Íslandi vegna innleiðingarinnar kaus formaður flokksins að svara því ekki hvort flokkurinn myndi greiða atkvæði með eða á móti frumvarpinu.

Það er ekki nóg að lýsa yfir ást á samstarfinu þegar það hentar. Samstarfi fylgir líka ábyrgð þegar á reynir. Vingulsháttur í pólitík er ekki í þágu íslenskra hagsmuna.

 

Falskir valkostir

Þetta mynstur nær langt út fyrir utanríkismálin. Stjórnarandstaðan reynir reglulega að stilla stórum verkefnum ríkisstjórnarinnar upp sem andstæðum. Ef við ætlum að ná tökum á ríkisfjármálunum getum við ekki fjárfest. Ef við ætlum að styrkja velferðina getum við ekki bætt rekstrarumhverfi fyrirtækja.

Ég vil færa stjórnarandstöðunni þær fréttir að við höfum getu til að vinna að mörgum verkefnum samtímis.

Ríkisstjórnin stefnir að hallalausum fjárlögum árið 2027 og ríkisútgjöld stefna niður í um 30% af landsframleiðslu á næsta ári, lægsta hlutfall þessa áratugar. Við höfum fækkað ríkisstofnunum um 8% á tveimur árum og stefnum að 15% fækkun á kjörtímabilinu.

Á sama tíma er almenn atvinnuvegafjárfesting að aukast um rúmlega 6% á þessu ári og fjárfesting atvinnuveganna hefur, fyrir utan sérstakt þensluskeið fyrir hrun, ekki verið meiri um áratugaskeið. Fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands hefur verið samþykkt og unnið er að einföldun regluverks, aukinni orkuöflun, verknámi og samgönguinnviðum.

Og ró er á vinnumarkaði milli verkalýðshreyfingar og atvinnurekanda eftir að kjarasamningar tókust í vikunni, meðal annars eftir útspil ríkisstjórnarinnar. Án þess að farið yrði í hjólför fyrri ríkisstjórna með tugmilljarða útgjöldum fyrir ríkissjóð.

 

Að standa fyrir eitthvað

Að geta unnið í margar áttir þýðir heldur ekki að utanríkisstefna eigi að vera gildislaus eða að íslenskir hagsmunir séu best tryggðir með því að liggja lágt þegar á reynir.

Og það er áhyggjuefni að heyra raddir sífellt verða opinskárri í því að hossa Rússum og hafa jafnframt efasemdir um stuðning Íslands við Úkraínu. Þetta viðhorf kom síðast fram í þinginu í vikunni í máli eins af þingmönnum Miðflokksins. Þegar uppi er staðið er verið að gagnrýna íslensk stjórnvöld fyrir að standa af staðfestu með öryggi Evrópu og virðingu við alþjóðalög.

 

Þarna greinir okkur á um sjálfan kjarna málsins.

Fyrir smáríki felast grundvallarhagsmunir einmitt í því að landamæri séu virt, alþjóðalög haldi og stærri ríki geti ekki ráðist inn í nágrannaríki og tekið landsvæði þeirra með valdi. Þess vegna stöndum við með Úkraínu. Því við stöndum með okkur sjálfum.

Við eigum að rækta tengslin við Bandaríkin og Evrópu, leita nýrra tækifæra í Asíu og fjölga mörkuðum og samstarfsleiðum Íslands. Í þeim tilgangi skipaði ég fyrir helgina spretthóp um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum, í samvinnu við atvinnulífið.

En um leið og við sækjum fram eigum við að standa fast á þeim prinsippum sem hagsmunir smáríkja byggjast á. Að eiga marga vini þýðir ekki að vera skoðanalaus. Að gæta íslenskra hagsmuna þýðir ekki að þegja þegar grundvallarreglur eru brotnar. Við getum bæði sótt tækifærin og staðið föst á okkar gildum. Það er ekki annaðhvort eða.

Grein Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, sem birt var í Morgunblaðinu 12. október 2026.