19 ágúst 2026
/

Mál nr. 325/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 325/2026

Miðvikudaginn 19. ágúst 2026

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 6. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 10. mars 2026 á umsókn kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri/sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. júlí 2025 til 31. janúar 2026. Kærandi sótti um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins með umsókn, móttekinni 15. febrúar 2026. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 10. mars 2026, var umsókn kæranda synjað á þeim forsendum að nám sem kærandi stundaði samhliða endurhæfingu væri of mikið.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. maí 2026. Með bréfi, dags. 11. maí 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 28. maí 2026, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er óskað eftir endurskoðun á ákvörðun um synjun á áframhaldandi endurhæfingarlífeyri.

Kærandi hafi leitaði til Tryggingastofnunar og VIRK eftir alvarlegt álag og áfall í tengslum við fyrri störf, sem hafi leitt til þess að hann hafi misst starfið og hafi ekki átt möguleika á endurkomu í það starf eða sambærileg störf í hans nærumhverfi. Í kjölfarið hafi andleg og félagsleg virkni minnkað verulega. Kærandi hafi dregið sig í hlé frá félagslegum samskiptum, forðast að fara út úr húsi og upplifað verulega skerðingu á lífsgæðum og starfsgetu.

Samkvæmt læknisráði hafi kærandi byrjað í starfsendurhæfingu hjá VIRK. Sú þjónusta og þau úrræði sem kærandi hafi nýtt sér hafi haft verulega jákvæð áhrif á bataferlið. Hann hafi verið í sjúkraþjálfun og hafi aukið líkamlega virkni smám saman. Þá sé kærandi í reglulegri meðferð hjá sálfræðingi. Með þessu hafi honum tekist að auka félagslega virkni og byggja upp færni á ný í daglegu lífi.

Einn mikilvægasti þáttur endurhæfingarinnar hafi verið nám sem kærandi hafi stundað með samþykki VIRK og Tryggingastofnunar sem hluta af einstaklingsbundinni endurhæfingaráætlun. Námið hafi verið samþykkt í samráði við ráðgjafa hans hjá VIRK og skilgreint sem markviss endurhæfingarþáttur með það að markmiði að styðja við virkni, sjálfstraust, félagslega þátttöku og starfshæfni. Þetta hafi verið lykilþáttur í bataferlinu og í raun og veru algjör vendipunktur. Þegar kærandi sé að læra og í samskiptum við samnemendur sína þá líði honum hvað best og hann nái að vera hann sjálfur og byggja sig upp.

Það hafi því komið kæranda í opna skjöldu að fá synjun á þessum þætti endurhæfingarinnar einmitt á þeim tímapunkti sem sýnilegar framfarir hafi átt sér stað og þegar honum gangi hvað best í endurhæfingu. Í rökstuðningi synjunarinnar hafi verið nefnt að um of umfangsmikið nám væri að ræða. Kærandi vilji undirstrika að námið hafi frá upphafi verið órjúfanlegur hluti af endurhæfingu hans, ekki viðbót við hana eða aukið álag, heldur meðvitað úrræði í anda stigvaxandi uppbyggingar og hæfilegs álags.

Námið hafi verið hluti af endurhæfingaráætlun frá upphafi, sem kærandi hafi nýtt sér í samræmi við heildræna nálgun að starfsendurhæfingu. Fyrir kæranda snúist þetta ekki einvörðungu um námsframvindu, heldur um að efla starfsgetu, endurheimta færni, styrkja félagslega virkni og byggja upp raunhæfan grundvöll fyrir endurkomu á vinnumarkað.

Synjunin hafi því haft veruleg áhrif á áframhaldandi endurhæfingu kæranda og hann hafi upplifað að með henni sé verið að draga úr þeim þætti sem hafi reynst honum árangursríkastur í bataferlinu.

Farið sé fram á að ákvörðunin verði endurskoðuð með hliðsjón af framangreindu og í samhengi við markmið og framvindu endurhæfingar kæranda í heild. Kærandi sé reiðubúinn að veita frekari upplýsingar eða gögn ef óskað sé.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram kæra varði synjun stofnunarinnar á umsókn kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, dags. 11. maí 2026.

Kveðið sé á um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 27. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Í 1. mgr. 27. gr. laganna komi fram:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.“

Nánar sé kveðið á um sjúkra- og endurhæfingarlífeyri í reglugerð nr. 933/2025 um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Í 1. gr. segi að reglugerðin gildi um framkvæmd sjúkra- og endurhæfingargreiðslna skv. 27. gr. laga um almannatryggingar. Markmið greiðslnanna sé að stuðla að aukinni færni greiðsluþega til atvinnuþátttöku. Tryggingastofnun annist framkvæmd sjúkra- og endurhæfingargreiðslna, þar á meðal taki stofnunin ákvörðun um rétt einstaklinga til slíkra greiðslna.

Í 5. gr. reglugerðarinnar sé fjallað um gerð endurhæfingaráætlunar. Í 6. gr. sé fjallað um endurhæfinguna sjálfa, þar segi að með endurhæfingu sé átt við ferli eða röð íhlutana sem hafi það að markmiði að hámarka, viðhalda eða ná aftur færni einstaklingsins í daglegum aðstæðum eða til atvinnuþátttöku að fullu eða hluta. Endurhæfing taki mið af stöðu og aðstæðum einstaklings og krefjist samfellu og samræmdra aðgerða sem sé byggð á gagnreyndri þekkingu. Í 7. gr. reglugerðarinnar sé fjallað um viðurkennda meðferð. Í 8. gr. sé fjallað um bið eftir viðurkenndri meðferð og í 9. gr. sé fjallað um starf og nám samhliða greiðslum. Þá segi 10. gr. til um heimild til framlengingar greiðslutímabils vegna fjölþætts vanda og skilyrði.

Í 9. gr. reglugerðarinnar komi eftirfarandi fram:

„Almennt skal miðað við að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Nám eða þátttaka á vinnumarkaði að hluta, þ.ám. vinnuprófun, sem stuðla að aukinni starfshæfni umsækjanda, geta þó talist vera liður í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð. Þó skal ætíð horft til þess að námið eða þátttakan á vinnumarkaði séu ekki svo umfangsmikil að eigi gefist svigrúm til að sinna þeim endurhæfingarúrræðum eða viðurkenndu meðferð sem auka eiga starfshæfni. Svo nám geti talist liður í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð verður námið að vera líklegt til að auka líkur á endurkomu á vinnumarkað.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hlutaðeigandi einstaklingi heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hlutaðeigandi einstaklingur skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 2. mgr. er Tryggingastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði reglugerðar þessara enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Þrátt fyrir 2. og 3. mgr. er Tryggingastofnun heimilt að meta fjölda eininga sérstaklega þegar hlutaðeigandi einstaklingur er með staðfesta fötlunargreiningu og er á sérnámsbraut eða starfsbraut enda sé námið að jafnaði ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Tryggingastofnun leggur mat á hvort starf eða nám samræmist endurhæfingu skv. 1. mgr., á grundvelli staðfestingar frá vinnuveitanda eða skóla.“

Málavextir séu þeir að kærandi hafi lokið sex mánuðum á endurhæfingarlífeyri/sjúkra- og endurhæfingargreiðslum á tímabilinu 1. ágúst 2025 til 1. janúar 2026.

Kærandi hafi sótt um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur með umsókn 15. febrúar 2026. Með henni hafi fylgt staðfesting á bið, dags. 2. febrúar 2026, yfirlit yfir nám, dags. 13. febrúar 2026, endurhæfingaráætlun, dags. 5. mars 2026, og yfirlit yfir nám, dags. 22. maí 2026. Tryggingastofnun hafi synjað umsókninni með bréfi, dags. 10. mars 2026, á þeim grundvelli að kærandi væri skráður í of mikið nám.

Við mat á umsókn um sjúkra- og endurhæfingagreiðslur, dags. 15. febrúar 2026, hafi legið fyrir staðfesting á bið, dags. 2. febrúar 2026, yfirlit yfir nám, dags. 13. febrúar 2026, og endurhæfingaráætlun, dags. 5. mars 2026.

Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá því sem fram kemur í endurhæfingaráætlun, dags. 5. mars 2026

Í staðfestingu á bið, dags. 2. febrúar 2026, komi fram að kærandi sé að ljúka þjónustu hjá VIRK vegna námshlutfalls, heimilislæknir muni taka við utanumhaldi á endurhæfingaráætlun.

Á námsferilsyfirliti frá B, dags. 13. febrúar 2026, megi áætla að kærandi sé skráður í 30 einingar. Þó séu upplýsingar um það bæði á umsókn, dags. 15. febrúar 2026, og í endurhæfingaráætlun, dags. 5. mars 2026, að kærandi sé skráður í 18 ECTS-einingar.

Í því skyni að skera úr um námsumfang kæranda á því tímabili sem um ræði, þ.e. á vorönn 2026, hafi verið óskað eftir frekari gögnum frá skólanum. Af nýju námsferilsyfirliti, dags. 25. maí 2026, verði ekki annað ráðið en að kærandi hafi lokið 30 ECTS-einingum á vorönn 2026. Þá virðist kærandi jafnframt hafa lokið 8 ECTS-einingum á sumarönn 2026.

Afgreiðsla umsókna um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur sé byggð á 27. gr. laga um almannatryggingar og reglugerð nr. 933/2025 um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 933/2025 skuli almennt miðað við að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Þó geti nám eða þátttaka á vinnumarkaði að hluta talist liður í endurhæfingu ef það stuðli að aukinni starfshæfni og samræmist markmiðum endurhæfingaráætlunar. Jafnframt skuli horft til þess að námið sé ekki svo umfangsmikið að það dragi úr möguleikum viðkomandi til að sinna þeim endurhæfingarúrræðum eða viðurkenndri meðferð sem ætlað sé að bæta starfshæfni hans.

Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar sé heimilt að stunda allt að 12 ECTS-einingar á háskólastigi samhliða greiðslum. Þá sé samkvæmt 3. mgr. sömu greinar heimilt, þegar sérstaklega standi á, að meta sérstaklega hvort einstaklingur sem stundi allt að 20 ECTS-einingar á námsönn uppfylli skilyrði reglugerðarinnar, enda sé námið ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Um undantekningarheimild sé að ræða sem beri að túlka þröngt.

Af gögnum málsins verði ráðið að kærandi hafi á vorönn 2026 verið skráður í 30 ECTS-einingar við B. Námshlutfall hans hafi því verið umfram það viðmið sem fram komi í 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar, auk þeirra marka sem heimilt sé að meta sérstaklega samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins.

Við mat málsins hafi verið litið til þess að kærandi glími við langvarandi andlegan og líkamlegan heilsubrest og hafi verið í þjónustu VIRK starfsendurhæfingar. Þá liggi fyrir samkvæmt endurhæfingaráætlun að námið hafi haft jákvæð áhrif á félagslega virkni kæranda og dregið úr félagslegri einangrun. Einnig komi fram að kærandi hafi talið námið mikilvægan þátt í endurhæfingu sinni.

Þrátt fyrir framangreint verði að líta til þess að kærandi stundi a.m.k. 30 ECTS-eininga nám á háskólastigi, sem sé talið verulegt námsumfang. Samkvæmt reglugerðinni séu sjúkra- og endurhæfingargreiðslur ætlaðar einstaklingum sem vegna heilsubrests geti almennt hvorki stundað vinnu né nám nema í takmörkuðu umfangi sem samræmist markmiðum endurhæfingar. Að mati Tryggingastofnunar falli nám af þessu umfangi ekki innan þess svigrúms sem reglugerðin geri ráð fyrir, jafnvel þótt námið hafi haft jákvæð áhrif á líðan og félagslega virkni kæranda.

Með vísan til framangreinds telji Tryggingastofnun að skilyrði fyrir greiðslu sjúkra- og endurhæfingargreiðslna hafi ekki verið uppfyllt 10. mars 2026 þar sem námsumfang kæranda hafi verið umfram það sem talið verði samrýmast skilyrðum 27. gr. laga um almannatryggingar og 9. gr. reglugerðar nr. 933/2025.

Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum og með vísan til 27. gr. laga um almannatryggingar og reglugerðar nr. 933/2025 um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur sé það niðurstaða Tryggingastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði sjúkra- og endurhæfingargreiðslna á þeim tíma sem um ræði.

Tryggingastofnun fari því fram á að kærð ákvörðun, dags. 10. mars 2026, um synjun umsóknar kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Um endurhæfingarlífeyri er fjallað í 27. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Í 1. og 2. mgr. ákvæðisins segir:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.

Skilyrði greiðslna er að fyrir liggi endurhæfingaráætlun eða staðfesting á viðurkenndri meðferð sem styður við markmið skv. 1. mgr. frá þeim þjónustuaðila sem veitir einstaklingi þjónustu eða sem veitir þjónustu í umboði þjónustuaðilans. Sá þjónustuaðili sem veitir einstaklingi þjónustu skal tryggja að áætlunin taki mið af þörfum einstaklings hverju sinni í tengslum við endurhæfingu hans. Endurhæfingaráætlun getur verið heilbrigðistengd, starfstengd eða samsett af hvoru tveggja.“

Á grundvelli 31. og 63. gr. laga um almannatryggingar var sett reglugerð nr. 933/2025 um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og tók hún gildi 1. september 2025. Í 31. gr. kemur meðal annars fram að ráðherra sé heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd IV. kafla laganna, þar á meðal um helstu viðmið um mat á þátttöku á vinnumarkaði og ástundun náms samhliða sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.

Í 5. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar segir um endurhæfingaráætlun:

„Endurhæfingaráætlun skal ávallt taka mið af heilsufarsvanda umsækjanda með það að markmiði að styðja viðkomandi til að finna heildstæðar lausnir við þeim heilsubresti sem dregur úr færni til atvinnuþátttöku. Áætlunin skal vera skýr, markviss og byggja á heildstæðri nálgun sem miðar að því að bæta heilsu umsækjanda og jafnframt efla starfsorku og starfshæfni viðkomandi. Áætlunin skal fela í sér fagleg árangursmarkmið og markvissar aðgerðir sem byggjast á einstaklingsbundnu mati hverju sinni. Sá aðili sem ber ábyrgð á endurhæfingaráætlun hverju sinni skal endurskoða áætlunina með reglubundnum hætti út frá framangreindum faglegum árangursmarkmiðum, svo sem út frá framgangi, ástundun og breytingum í áherslum í endurhæfingu. Tryggingastofnun leggur endanlegt mat á hvort endurhæfingaráætlun uppfylli framangreint og þar með skilyrði fyrir greiðslum.“

Í 9. gr. reglugerðarinnar segir um starf og nám samhliða greiðslum:

„Almennt skal miðað við að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Nám eða þátttaka á vinnumarkaði að hluta, þ. á m. vinnuprófun, sem stuðla að aukinni starfshæfni umsækjanda, geta þó talist vera liður í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð. Þó skal ætíð horft til þess að námið eða þátttakan á vinnumarkaði séu ekki svo umfangsmikil að eigi gefist svigrúm til að sinna þeim endurhæfingarúrræðum eða viðurkenndu meðferð sem auka eiga starfshæfni. Svo nám geti talist liður í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð verður námið að vera líklegt til að auka líkur á endurkomu á vinnumarkað.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hlutaðeigandi einstaklingi heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hlutaðeigandi einstaklingur skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 2. mgr. er Tryggingastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði reglugerðar þessara enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Þrátt fyrir 2. og 3. mgr. er Tryggingastofnun heimilt að meta fjölda eininga sérstaklega þegar hlutaðeigandi einstaklingur er með staðfesta fötlunargreiningu og er á sérnámsbraut eða starfsbraut enda sé námið að jafnaði ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Tryggingastofnun leggur mat á hvort starf eða nám samræmist endurhæfingu skv. 1. mgr., á grundvelli staðfestingar frá vinnuveitanda eða skóla.”

Ágreiningur málsins lýtur að því hvort skilyrði greiðslna sjúkra- og endurhæfingarlífeyris hafi verið uppfyllt í tilviki kæranda á frá 1. febrúar 2026. Fyrir liggur að Tryggingastofnun ríkisins synjaði umsókn kæranda á þeim grundvelli að hann væri skráður í of mikið nám. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi í námi við B á vorönn 2026 og var skráður í og lauk 30 ECTS-einingum.

Meginreglan er sú að miða við að heilsubrestur eða fötlun valdi því að umsækjandi um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur geti hvorki stundað vinnu né nám, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar. Þó segir í 3. málsl. 1. mgr. 27. gr. laganna að heimilt sé að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun. Þá er ráðherra veitt heimild í 31. gr. laganna til að setja reglugerð um helstu viðmið um mat á þátttöku á vinnumarkaði og ástundun náms samhliða sjúkra- og endurhæfingargreiðslum. Ráðherra hefur sett slík viðmið í 9. gr. reglugerðar nr. 933/2025. Tekið er fram í 3. máls. 1. mgr. 9. gr. að ætíð skuli horfa til þess að námið eða þátttakan á vinnumarkaði sé ekki svo umfangsmikil að eigi gefist svigrúm til að sinna þeim endurhæfingarúrræðum eða viðurkenndu meðferð sem auka eiga starfshæfni. Þá er umsækjanda samkvæmt 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn og allt að 20 ECTS-einungum á námsönn ef sérstaklega stendur á samkvæmt 3. mgr. 9. gr., enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Eins og áður hefur komið fram lauk kærandi 30 ECTS-einingum á vorönn 2026. Það jafngildir fullu námi á háskólastigi sem benda verður á að er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Með hliðsjón af framangreindu er fallist á það mat Tryggingastofnunar ríkisins að kærandi hafi verið í of miklu námi til þess að eiga rétt á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar, sbr. einnig 9. gr. reglugerðar nr. 933/2025.

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A, um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir