ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
06 apríl 2020
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Skipulagsbreytingar sveitarfélaga vegna Borgarlínu í samráðsgátt

{image.Description}
Golli

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa lagt sameiginlega verk- og matslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Kópavogs og Reykjavíkur fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 9. maí nk.

Breytingarnar felast í að staðsetja legu fyrstu lotu Borgarlínu og svokallaðrar kjarnastöðvar milli Hamraborgar í Kópavogi og Ártúnshöfða í Reykjavík, ásamt fyrirhuguðum breytingum á Sæbraut og Miklubraut.

Þetta er í fyrsta skipti sem samráðsgátt stjórnvalda er notuð til að kynna skipulagsbreytingar á vegum sveitarfélaga en Borgarlínuverkefnið er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga. Hægt er að senda inn umsögn og ábendingar í samráðsgáttina eða á netföngin borgarlinan@borgarlinan.is, skipulag@reykjavik.is eða skipulag@kopavogur.is.