ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
27 desember 2010
/
Innviðaráðuneytið
Umsagnarfrestur um flugvallareglugerð framlengdur
Ákveðið hefur verið að framlengja til 12. janúar umsagnarfrest um drög að nýrri reglugerð um flugvelli. Umsagnir skulu sendar á netfang ráðuneytisins: postur@sam.stjr.is.
Ákveðið hefur verið að framlengja til 12. janúar umsagnarfrest um drög að nýrri reglugerð um flugvelli. Umsagnir skulu sendar á netfang ráðuneytisins: postur@sam.stjr.is.
Reglugerð um flugvelli hefur að geyma skilgreiningar og kröfur um búnað og þjónustu sem vera skuli fyrir hendi á öllum flugvöllum og lendingarstöðum, þar með talið þyrluvöllum, í þágu almenningsflugs og hvort heldur er til almennra nota eða einkanota.
Frekari upplýsingar má sjá hér.