Formennska Íslands í Norrænu ráðherranefndinni kynnt í Vilnius
ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
23. janúar 2019
/
Sendiráð Íslands í Helsinki
Í vikunni kynnti Árni Þór Sigurðsson sendiherra formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2019 fyrir starfsfólki skrifstofu ráðherranefndarinnar í Vilníus, sendiherrum hinna Norðurlandanna í Litáen og fulltrúum litáíska utanríkisráðuneytisins.