Um sendiráð Íslands í Peking

Sendiráð Íslands í Peking var opnað árið 1995. Sendiráðið er með fyrirsvar gagnvart Kína og tveimur öðrum ríkjum, þ.e. Mongólíu og Víetnam.

Hlutverk sendiráðsins er að gæta hagsmuna Íslands og Íslendinga í umdæmisríkjum sínum, þróa og efla samskipti ríkjanna einkum á sviði utanríkismála, viðskipta- og ferðamála og menningarmála, og nýta öll tækifæri til þess að kynna Ísland og styrkja orðspor lands og þjóðar.

Sendiráð Íslands - Peking

Heimilisfang:

1 Liangma Bridge North Alley
Chaoyang District
Beijing 100600, China

Sími: +86 (10) 8531 6900

Netfang: beijing@utn.is

Opnunartími: Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:00 - 17:00

Nafn Starfsheiti Netfang
Birkir Már Þrastarson vararæðismaður beijing@utn.is
Hafrún Stefánsdóttir ræðismaður beijing@utn.is
Inga Dóra Pétursdóttir varamaður sendiherra beijing@utn.is
Petur Yang viðskiptafulltrúi beijing@utn.is
Svandís Þóra Kristinsdóttir vararæðismaður beijing@utn.is
Yan Xue Song aðstoðarmaður beijing@utn.is

Sendiherra

Ms. Bergdís Ellertsdóttir

Sjá ferilskrá á ensku.

Bergdís Ellertsdóttir er sendiherra Íslands gagnvart Kína. Hún á að baki langan feril í utanríkisþjónustunni og hefur því komið víða við. Meðal nýlegra verkefna má nefna, að Bergdís var sérstakur sendiherra norðurslóða í tvö ár og á sama tíma sinnti hún starfi staðgengils ráðuneytisstjóra.

Á árunum 2019 til 2024 var Bergdís sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum og fyrir þann tíma var hún um skeið fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York.

Árin 2014 til 2018 dvaldi Bergdís í Brussel þar sem hún var fastafulltrúi gagnvart Evrópusambandinu, sinnti EFTA og EES samstarfinu auk þess að vera sendiherra gagnvart Belgíu, Lúxemborg og Hollandi. Önnur verkefni snúa að öryggis- og varnarmálum, m.a. á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, viðskiptum, tvíhliða samskiptum við fjölmörg ríki, auk þess að vera skrifstofustjóri alþjóðasamskipta, aðstoðarframkvæmdastjóri EFTA og ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum.

„Ég er mjög spennt að taka við starfi sendiherra Íslands í Kína. Þótt ég hafi ekki áður búið í Kína var ég svo lánsöm að taka þátt í og leiða til lykta fríverslunarsamning Íslands og Kína, sem hefur verið grunnur að auknum viðskiptum og samskiptum ríkjanna.“ - Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra.

Bergdís er menntuð í stjórnmálafræði í Þýskalandi, á Íslandi og í Bretlandi. Hún er gift Jóni Óskari Sólnes, og eiga þau fjögur börn.

Var efnið hjálplegt?