Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Sjávarútvegur
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 517
    Raða eftir:
    09. sep. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Íslenskt – láttu það ganga

    Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í í stöðugri hringrás. Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samorku og Bændasamtökum Íslands, vilja minna landsmenn á í kynningarátakinu Íslenskt – láttu það ganga sem fer af stað í dag. Tilgangur átaksins er að hvetja landsmenn, almenning og fyrirtæki til viðskipta við innlenda aðila á fjölbreyttum sviðum, við val á framleiðslu, vörum og þjónustu.

    01. sep. 2020Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Stjórn fiskveiða 2020/2021 - Lög og reglugerðir

    Í sérprentun þessari eru helstu lög og reglugerðir sem lúta að stjórn fiskveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021. Útgáfa þessi er ætluð til hagræðis. Séu í sérprentun þessari að finna frávik frá texta Stjórnartíðinda víkur texti þessi að sjálfsögðu.

    31. ágú. 2020Matvælasjóður, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Fiskeldi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kynningarfundur um Matvælasjóð

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til opins fundar um Matvælasjóð, miðvikudaginn 2. september kl 09:00.

    24. júl. 2020Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    29 þúsund tonnum aflamagns ráðstafað til sérstakra aðgerða á fiskveiðiárinu 2020/21

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ráðstafað rúmlega 29 þúsund tonnum aflamagns í bolfiski til sérstakra aðgerða. Er það nokkuð minna magn en á síðasta fiskveiðiári sem skýrist af samdrætti í leyfilegum heildarafla fyrir næsta fiskveiðiár sem fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

    21. júl. 2020Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðstöfun á 4.000 lesta viðbótaraflaheimilda í makríl

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um ráðstöfun 4.000 tonna af makríl til skipa í B-flokki gegn gjaldi.

    21. júl. 2020Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Auknar aflaheimildir til strandveiða

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um auknar aflaheimildir til strandveiða á þessu fiskveiðiári. Með reglugerðinni er komið til móts við þá miklu fjölgun báta sem hafa stundað strandveiðar á þessu ári en ljóst er að með ráðstöfuninni er öllum aflaheimildum í 5,3% kerfinu svokallaða ráðstafað að fullu á þessu fiskveiðiári.

    10. júl. 2020Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Orkídeu ýtt úr vör

    Orkídeu, nýju samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi, hefur verið ýtt úr vör með undirskrift fulltrúa allra þeirra sem að verkefninu standa, en það eru Landsvirkjun, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóli Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    10. júl. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Auðlindir

    Skýrsla verkefnastjórnar um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni afhent ráðherra

    Verkefnastjórn um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni hefur afhent Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lokaskýrslu sinni. Ráðherra skipaði verkefnastjórnina í mars 2019 til þess að fjalla um þær athugasemdir og ábendingar sem komu fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í desember 2018 um Eftirlit Fiskistofu og gera tillögur um úrbætur í rekstri Fiskistofu einkum er varðar verklag og áherslur er snúa að eftirlitshlutverki hennar. Enn fremur var verkefnastjórninni falið að leggja mat á fjárþörf Fiskistofu til að hún geti sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögum og að lokum að setja fram ábendingar um nauðsynlegar breytingar á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem varða hlutverk og viðfangsefni stofnunarinnar til að tryggja skilvirkni í störfum hennar.

    03. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegir

    Stefnt að verðmætari afurðum með minni losun frá sjávarútvegi

    Stefnt er að því að draga úr losun frá sjávarútvegi og auka eftirspurn eftir heilnæmum íslenskum fiski með samstarfi stjórnvalda og atvinnugreinarinnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu um hvata til að draga úr kolefnisspori íslensks sjávarútvegs sem undirrituð var við ráðherrabústaðinn í dag.

    03. júl. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fylgir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár og fylgir hún vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ráðgjöf stofnunarinnar byggir á því að nýta stofna miðað við hámarksafrakstur að teknu tilliti til vistkerfis- og varúðarnálgunar.

    01. júl. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    33 lagabálkar felldir brott

    Alþingi hefur samþykkt tvö frumvörp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um einföldun regluverks. Með lögunum voru alls 33 lagabálkar felldir brott í heild sinni, fimm stjórnsýslunefndir lagðar niður og stjórnsýsla og regluverk á málefnasviðum ráðherra einfölduð töluvert.

    25. jún. 2020Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Almannaöryggi

    Norrænu ráðherrarnir vilja efla fæðuöryggi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra og norrænir ráðherrar á sviði landbúnaðar, matvæla, fiskveiða, fiskeldis og skógræktar vilja efla og styrkja fæðuöryggi á Norðurlöndunum. Þetta er niðurstaða norræns ráðherrafundar sem fram fór í gær.

    16. jún. 2020Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

    11. jún. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Óskað eftir umsögnum um fiskeldi

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum þriggja stofnanna og viðkomandi sveitarfélaga um hvort rétt sé að lýst verði yfir banni við eldi laxfiska af eldisstofni í sjókvíum í Eyjafirði, Jökulfjörðum og í sunnanverðum Norðfjarðarflóa, það er í Viðifirði og Hellisfirði.

    10. jún. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Opinn fundur um fiskeldi á Norðurlandi í Hofi á fimmtudag

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið boðar til opins fundar, í Hofi á Akureyri, um fiskeldi á Norðurlandi. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra stýrir fundinum, en þar flytja framsögu fulltrúi veiðiréttarhafa og fulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

    05. jún. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór staðfestir nýtt áhættumat erfðablöndunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur staðfest tillögu Hafrannsóknastofnunar að nýju áhættumati erfðablöndunar vegna mögulegrar erfðablöndunar frá laxeldi. Áhættumat erfðablöndunar er samkvæmt lögum um fiskeldi skilgreint sem mat á því magni frjórra eldislaxa sem strjúka úr eldi í sjó og vænta má að komi í ár þar sem villta laxastofna er að finna og metið er að erfðablöndun eldislax við villta nytjastofna, að teknu tilliti til mótvægisaðgerða, verði það mikil að tíðni arfgerða villtra stofna breytist og valdi versnandi hæfni stofngerða þeirra.

    05. jún. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór skipar stjórn Matvælasjóðs

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað stjórn Matvælasjóðs. Alþingi samþykkti nýverið frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Matvælasjóður verður til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjáv

    19. maí 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Covid-19, Atvinnuvegir

    Heimilt að flytja 25% aflamarks

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þar sem heimild til flutnings aflamarks í botnfisktegundum yfir á næsta fiskveiðiár er aukin tímabundið úr 15% í 25%. Er þetta gert til að stuðla að meiri sveigjanleika við veiðar og vinnslu til að bregðast við áhrifum COVID-19 á íslenskan sjávarútveg.

    13. maí 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skýrsla og tillögur um fiskeldisnám

    Lagt er til að komið verði á laggirnar öflugu námi í fiskeldi með samfellu í námi frá framhaldsskóla í háskóla í nýrri skýrslu sem Háskólinn á Akureyri vann fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið sem hefur nú verið afhent sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    07. maí 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu forstjóra Matvælastofnunar

    Alls bárust átján umsóknir um starf forstjóra Matvælastofnunar, en umsóknarfrestur rann út þann 4. maí 2020.

    05. maí 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra afhenti nýjum fiskistofustjóra skipunarbréf

    ​Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur afhent nýjum fiskistofustjóra, Ögmundi Knútssyni, skipunarbréf.

    05. maí 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra ákveður heildarafla fyrir rækjuveiðar við Snæfellsnes

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla fyrir rækjuveiðar við Snæfellsnes. Reglugerðin er í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og er í gildi til 15. mars 2021. Í samræmi við varúðarsjónarmið lagði stofnunin til að rækjuveiðar verði ekki meira en 491 tonn við Snæfellsnes, en þetta er töluverð hækkun frá síðasta ári þegar leyfilegur heildarafli var 393 tonn.

    30. apr. 2020Rit og skýrslur, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Útflutningur á óunnum fiski í gámum

    Umfjöllun um álitaefni unnið fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti af Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri.

    30. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Breyting á reglugerð um veiðar á grásleppu 2020

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um stöðvun veiða á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Ástæðan er að fyrirséð er að veiðarnar muni fljótlega nálgast ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um að heildarafli á þessu fiskveiðiári verði ekki meiri en 4.646 tonn.

    30. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Fellir brott 34 lagabálka, leggur niður 6 nefndir og einfaldar stjórnsýslu

    Alls eru 34 lagabálkar felldir brott í heild sinni, 6 nefndir lagðar niður og stjórnsýsla einfölduð með tveimur nýjum lagafrumvörpum sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mælti fyrir á Alþingi nú í dag. Með lagafrumvörpunum er regluverk á málefnasviðum ráðherra einfaldað töluvert.

    28. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Byggðamál, Covid-19, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Bregðast við áhrifum COVID-19 á úthlutun og nýtingu byggðakvóta

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um breytingu á úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar.

    24. apr. 2020Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Verslun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Íslenskt- gjörið svo vel: Sameiginlegt átak stjórnvalda og atvinnulífsins

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hafa undirritað samning um sameiginlegt kynningarátak stjórnvalda og atvinnulífs um að verja störf og auka verðmætasköpun undir heitinu: Íslenskt – gjörið svo vel. ​

    24. apr. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ögmundur Knútsson skipaður Fiskistofustjóri

    Kristján Þór Júlíusson , sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað dr. Ögmund Knútsson, ráðgjafa, Fiskistofustjóra til fimm ára. Ögmundur hefur störf 1.maí nk.

    24. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um strandveiðar 2020

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um strandveiðar árið 2020

    22. apr. 2020Landbúnaður, Nýsköpun, Covid-19, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Matvælasjóður verði settur á fót

    Til að efla nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu verður settur á fót Matvælasjóður og verður 500 milljónum króna varið til stofnunar hans á þessu ári. Stofnun sjóðsins er hluti af öðrum áfanga aðgerða til að bregðast við áhrifum COVID-19.

    08. apr. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Heimilt að draga 0,6% frá ofurkældum afla

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla. Með breytingunni verður heimilt að draga 0,6% frá óunnum ofurkældum (íslausum) afla sem veginn er á hafnarvog.

    06. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skýrsla um vigtun sjávarafla

    Það skiptir sköpum að birta nöfn fyrirtækja þegar kemur að endurvigtun og aukið eftirlit Fiskistofu með minni (samþættum) aðilum og áframhald á aðgerðum Fiskistofu er líklegt til að halda vandamálum tengdum áreiðanleika endurvigtunar og umfangi frávika í skefjum. Þetta eru niðurstöður úr nýrri skýrslu Daða Más Kristóferssonar og Birgis Þórs Runólfssonar. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fól Daða Má og Birgi Þór, sem eru prófessor og dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, að gera úttekt á endurvigtun á fiski með tilliti til þess hversu mikil frávik í ísprósentu kæmu í raun og veru fram við eftirlit Fiskistofu.

    06. apr. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    ANR auglýsir eftir umsóknum um styrki: Ertu með snjallt verkefni?

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    02. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Afladagbókum skilað rafrænt frá næstu fiskveiðiáramótum

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um rafræn skil á afladagbókum. Með reglugerðinni verður skylt frá og með næstu fiskveiðiáramótum að skila aflaupplýsingum með rafrænum hætti, annað hvort með því að skila í gegnum ra­f­ræna afla­dag­bók eða í gegnum smá­for­rit sem Fiskistofa hefur verið að þróa.

    01. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra ákveður árskvóta í deilistofnum

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um veiðar íslenskra skipa á makríl á árinu 2020.

    27. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Aðgerðir til að mæta áhrifum COVID-19 á landbúnað og sjávarútveg

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun 15 aðgerðir á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar á þessar greinar. Markmið aðgerðanna er að lágmarka neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað og sjávarútveg til skemmri og lengri tíma, en um leið skapa öfluga viðspyrnu þegar þetta tímabundna ástand er gengið yfir. Aðgerðirnar eru eftirfarandi.

    24. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Horfur í landbúnaði og sjávarútvegi ræddar í ríkisstjórn

    Áhrif kórónaveirunnar eru víðtæk í íslensku samfélagi og gerði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, grein fyrir stöðunni eins og hún horfir við íslenskum landbúnaði og sjávarútvegi á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun en ráðuneytið hefur undanfarna daga og vikur fylgst grannt með þróun mála.

    23. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Náttúruvernd, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Vísindanefnd skipuð um áhættumat og burðarþolsmat

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað nefnd þriggja óvilhallra vísindamanna til að rýna aðferðafræði sem Hafrannsóknastofnun notar við mat á burðarþoli og við gerð áhættumats erfðablöndunar. Nefndin er skipuð í samræmi við bráðabirgðaákvæði VII. í lögum nr. 71/2008 um fiskeldi en þar segir: ​

    20. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Covid-19

    Áhrif COVID-19 á íslenskan landbúnað og sjávarútveg rædd í ríkisstjórn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir áhrifum COVID-19 á íslenskan landbúnað og sjávarútveg. Þar kom fram að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fylgdist náið með þróun mála og að ráðuneytinu berist reglulegar upplýsingar frá m.a. Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Eindregin samstaða væri um að lágmarka efnahagslega neikvæð áhrif veirunnar bæði til skemmri og lengri tíma.

    04. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Áslaug Eir sett í embætti Fiskistofustjóra til 30. apríl 2020

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur sett Áslaugu Eir Hólmgeirsdóttur í embætti Fiskistofustjóra frá deginum í dag til 30. apríl 2020. ​

    29. feb. 2020Rit og skýrslur, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Endurskoðun á meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda. Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um atvinnu- og byggðakvóta

    febrúar 2020 / Atvinnuvegaráðuneytið Endurskoðun á meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda. Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um atvinnu- og byggðakvóta Endurskoðun á meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda

    29. feb. 2020Rit og skýrslur, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Mat á áreiðanleika endurvigtunar, umfangi og ástæðum frávika og hugsanlegum úrbótum

    febrúar 2020 / Atvinnuvegaráðuneytið Mat á áreiðanleika endurvigtunar, umfangi og ástæðum frávika og hugsanlegum úrbótum Mat á áreiðanleika endurvigtunar, umfangi og ástæðum frávika og hugsanlegum úrbótum

    28. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra undirritar reglugerð um grásleppuveiðar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um grásleppuveiðar árið 2020.

    21. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skýrsla starfshóps um 5,3% aflaheimildir

    Starfshópur, skipaður 30. apríl 2019 af Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, til að endurskoða meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir hefur lokið störfum og skilað skýrslu til ráðherra.

    14. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Staða loðnuleitar rædd í ríkisstjórn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir stöðu loðnuleitar á ríkisstjórnarfundi í dag. Nýafstaðinn könnunarleiðangar á vegum Hafrannsóknarstofnunar sýnir betra ástand stofnsins en fyrri mælingar bentu til, en gefur þó að mati Hafrannsóknastofnunar ekki tilefni til að leggja til útgáfu kvóta.

    06. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fellir 144 reglugerðir úr gildi

    Alls hafa 1242 reglugerðir nú verið felldar brott á síðustu mánuðum, en í október sl. felldi Kristján Þór brott 1098 reglugerðir.

    24. jan. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Rannsókn á launakerfi í sjávarútvegi

    Í verkefninu verður leitast við að greina og lýsa launakerfi í sjávarútvegi í norrænu ríkjunum, þróun þess og skiptingu fiskveiðirentu milli sjómanna, eigenda skipa og handhafa aflakvóta.

    16. jan. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Kristján Þór fundaði með nýjum framkvæmdastjóra ESB á sviði umhverfis, hafs og fiskveiða

    Á fundinum í Brussel ræddu þeir stöðuna í samningaviðræðum strandríkjanna í makríl, kolmunna og norsk-íslenskri síld auk annarra deilistofna í Norður Atlantshafi.

    14. jan. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Starfsemi stofnana á landsbyggðinni efld

    Áætlun hefur verið gerð til að fjölga starfsmönnum stofnana á landsbyggðinni sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Sett hafa verið fram tölusett markmið um fjölgun árin 2021, 2023 og 2025. Þá munu sömu stofnanir leitast við að ná fram hagræði í rekstri með að hafa starfsstöðvar í sama húsnæði. Jafnframt munu þær bjóða starfsmönnum sínum upp á aukinn sveigjanleika varðandi val á starfsstöð. Bæði Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun munu á næstu þremur árum ráða í nýjar stöður tengdar fiskeldi á Austurlandi og á Vestfjörðum.

    14. jan. 2020Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Siglingar, Sjávarútvegur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Orkuskipti skipa - Möguleikar á orkuskiptum á sjó: skýrsla Eflu

    Skýrsla verkfræðistofunnar Eflu þar sem skoðaðir eru möguleikar á Íslandi vegna orkuskipta á sjó, bæði fyrir innlent og erlent eldsneyti.

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband