27. maí 2013Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir
Mál nr 37/2012B. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
<br>Með bréfi, dags. 3. apríl 2013, krafðist
Íslenska gámafélagið ehf. þess með vísan til 24. gr. stjórnsýslulaga nr.
37/1993 að mál nr. 37/2012, Kubbur ehf. gegn Hafnarfjarðarkaupstað, yrði
endurupptekið. Í bréfinu var krafa Íslenska gámafélagsins ehf. orðuð með
svofelldum hætti: „Fyrir hönd Íslenska gámafélagsins ehf. er þess krafist, með
vísan til 24. gr. laga nr. 37/1993, að málið verði endurupptekið og að kveðinn
verði upp nýr úrskurður í málinu þar sem fallist verði á kröfur og sjónarmið
[Íslenska gámafélagsins ehf.] í málinu. Þá er þess krafist að kærunefndin
afturkalli úrskurð í málinu með vísan til 25. gr. laga nr. 37/1993.“