Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2301–2350 af 3013
    Raða eftir:
    06. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Viðbrögð við vaxandi fjölda barna og unglinga með fíknivanda

    Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun gerði Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra grein fyrir aðgerðum sem hann hefur nú til skoðunar til að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin vegna vaxandi fjölda barna og ungmenna með fíknivanda.

    05. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun 2019-2023: Umtalsverð aukning til heilbrigðismála

    Útgjöld til reksturs heilbrigðismála munu aukast um 79 milljarða króna alls á næstu fimm árum miðað við fjárlög yfirstandandi árs. Stofnkostnaður, m.a. vegna byggingaframkvæmda, verður 101 milljarður á tímabilinu. Stefnt er að því að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga á tímabili fjármálaáætlunar, þannig að hlutdeild sjúklinga hérlendis verði sambærileg því sem gerist á Norðurlöndunum.

    28. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra úthlutar rúmlega 96 milljónum til lýðheilsu- og forvarnaverkefna

    Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra úthlutaði í dag rúmlega níutíu og sex milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 169 verkefna og rannsókna. Lýðheilsusjóður hefur það hlutverk að stuðla að heilsueflingu og forvörnum ásamt því að styrkja lýðheilsustarf um land allt.

    21. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Frestun á gildistöku reglugerðar um lyfjaávísanir

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta gildistöku nýrrar reglugerðar um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem taka átti gildi 3. apríl næstkomandi. Reglugerðin tekur þess í stað gildi 1. júlí.

    21. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um mikilvægi neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis

    Komur á neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisofbeldis voru 187 árið 2017 og hafði komum þá fjölgað um 40% á tveimur árum. Svandís Svavarsdóttir skrifar um þessi mál, fjallar um þjónustu neyðarmóttökunnar og mikilvægi þess að vinna gegn ofbeldi í nánum samböndum í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag.

    20. mar. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Eftirfyglniskýrsla Ríkisendurskoðunar um Heilbrigðisstofnun Austurlands

    Ríkisendurskoðun ítrekar ekki ábendingar sínar til velferðarráðuneytis og Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá árunum 2009, 2012 og 2015 sem sneru að eftirliti með fjárreiðum og rekstri stofnunarinnar. Uppsafnaður halli stofnunarinnar var jafnaður út með lokafjárlögum 2015 og stjórnendur hennar hafa sýnt aukið aðhald í rekstri. Síðustu ár hefur rekstur stofnunarinnar verið í járnum en að jafnaði í samræmi við fjárveitingar.

    17. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Öruggir sjúkraflutningar tryggðir áfram

    Vegna ákvörðunar Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) um að slíta samstarfi við ríkið um rekstur sjúkrabíla vill ráðuneytið taka fram að öryggi sjúkraflutninga verður áfram tryggt meðan unnið er að því að skipuleggja fyrirkomulag þessarar þjónustu til framtíðar.

    16. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra heilbrigðisþjónustu

    Þrettán sóttu um embætti skrifstofustjóra heilbrigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út 12. mars síðastliðinn.

    15. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmar 70 milljónir veittar félagasamtökum á sviði heilbrigðismála

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 72,6 milljónum króna í styrki til 29 félagasamtaka sem starfa á sviði heilbrigðismála. Auglýst var eftir styrkumsóknum í október sl. og bárust 44 umsóknir. Ráðherra hitti fulltrúa félagasamtakanna í gær við formlega afhendingu styrkjanna.

    15. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Landspítala falin fagleg og fjárhagsleg ábyrgð vegna S-merktra lyfja

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að færa fjárhagslega ábyrgð og umsýslu vegna S-merktra og leyfisskyldra lyfja frá Sjúkratryggingum Íslands til Landspítala. Horft er til þess að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á innleiðingu og notkun nýrra og dýrra lyfja í landinu fari betur saman með þessu móti.

    13. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Blóðgjafi heiðraður

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra afhenti í dag Óla Þór Hilmarssyni viðurkenningu fyrir að hafa gefið blóð 175 sinnum. Blóðgjafafélag Íslands heiðar ár hvert blóðgjafa sem hvað oftast hafa gefið blóð sem þakklætisvott til þeirra og um leið hvatningu til annarra að gefa blóð ef þeir geta.

    12. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Erfið staða á bráðamóttöku Landspítala

    Heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir erfiðum aðstæðum á á Landspítala vegna mikils álags á bráðamóttöku spítalans á fundi ríkisstjórnar síðastliðinn föstudag. Ráðherra leggur áherslu á að hratt verði unnið að verkefnum sem ákveðin hafa verið til að efla heilbrigðiskerfið og styrkja mönnun þess.

    09. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framhald átaks um styttingu biðlista eftir tilteknum skurðaðgerðum

    Gerðar verða tæplega 530 liðskiptaaðgerðir á hnjám og mjöðmum á þessu ári á grundvelli átaks til að stytta bið eftir tilteknum skurðaðgerðum. Þetta er þriðja ár biðlistaátaksins og verður varið til þess um 840 milljónum króna á árinu.

    02. mar. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Alma Dagbjört Möller skipuð landlæknir

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Ölmu Dagbjörtu Möller nýjan landlækni frá 1. apríl næstkomandi. Alma verður fyrst kvenna til að gegna þessu embætti hér á landi. Umsækjendur um stöðuna voru sex og var Alma önnur tveggja sem lögskipuð hæfnisnefnd mat hæfasta.

    02. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um skýrslu Ríkisendurskoðunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir ábendingu Ríkisendurskoðunar sem snýr að stefnumörkun í heilbrigðiskerfinu vera réttmæta og góða brýningu fyrir ráðuneytið. Góð heilbrigðisþjónusta þurfi að byggja á skýrri heilbrigðisstefnu sem sé hluti af samfélagssáttmálanum.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Tillögur um lækkun tannlæknakostnaðar lífeyrisþega í mótun

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að fjalla um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum aldraðra og öryrkja. Hópurinn á að skila ráðherra tillögum 1. apríl 2018.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Gjaldskrárbreytingar vegna heilbrigðisþjónustu 1. mars

    Komugjöld í heilsugæslu haldast óbreytt en gjöld fyrir aðra heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um 2,2% samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi í dag. Breytingarnar eru til samræmis við forsendur fjárlaga ársins sem gera ráð fyrir verðlagshækkunum sem þessu nemur.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Mannauðsmál ríkisins, Heilbrigðismál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Yfirlýsing þriggja ráðherra um heilbrigðiskerfið og mönnun þess

    Ráðist verður í átak við gerð mannaflaspár fyrir heilbrigðiskerfið og mótuð stefna og aðgerðaáætlun í heilbrigðismálum í samvinnu við fagstéttir til að stuðla að heilbrigði þjóðarinnar og skapa eftirsóknarverðan starfsvettvang fyrir heilbrigðisstarfsfólk.

    26. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla Ríkisendurskoðunar um kaup á heilbrigðisþjónustu

    Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu sína til Alþingis um Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu. Stofnunin beinir tveimur ábendingum til velferðarráðuneytisins í tengslum við stjórnsýsluúttekt sína og snúa þær að stefnumótun í heilbrigðisþjónustu og verkaskiptingu við gerð samninga.

    23. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um rafrettur; lögmæt viðskipti og neytendavernd

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir frumvarp um rafrettur stuðla að lögmætum viðskiptum með þessa vöru og tryggja eftirlit og mikilvæga neytendavernd. Aðgengi fólks að rafrettum og reglur um notkun þeirra samkvæmt frumvarpinu geri þeim hægt um vik sem vilja hætta tóbaksnotkun með aðstoð þeirra.

    21. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skaðaminnkandi aðgerðir og rétturinn til heilbrigðisþjónustu

    Tryggja þarf að allir njóti jafns aðgangs að heilbrigðisþjónustu, burt séð frá þjóðfélagsstöðu. Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að jaðarhópar verði ekki útundan og bendir á mikilvægi skaðaminnkandi aðgerða í þessu samhengi fyrir vímuefnaneytendur.

    15. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Endurskoðun reglugerða um lyfjaskömmtun og meðferð lyfja á heilbrigðisstofnunum

    Heilbrigðisráðherra hefur sett af stað vinnu við að endurskoða reglugerð um lyfjaskömmtun ​og reglugerð um val, geymslu og meðferð lyfja á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Starfshópur sem skipaður var til verksins hélt fyrsta vinnufund sinn í gær.

    15. feb. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Heilbrigðisráðuneytið

    Umönnunargreiðslur og greiðslur til foreldra langveikra eða fatlaðra barna

    Velferðarráðuneytið hefur birt til umsagnar áfangaskýrslu með tillögum starfshóps sem vinnur að endurskoðun löggjafar um fjárhagslegan stuðning til fjöskyldna fatlaðra og langveikra barna. Frestur til að skila umsögnum er til 12. mars næstkomandi.

    15. feb. 2018Rit og skýrslur, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Þróun örorku

    Greining KMPG fyrir velferðarráðuneytið um þróun á fjölda öryrkja og kostnaði við kerfið og snertifleti kerfisins gagnvart einstaklingum.

    14. feb. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Synjun Embættis landlæknis um varanlegt starfsleyfi sem talmeinafræðingur

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um varanlegt starfsleyfi sem talmeinafræðingur. Kærandi fór jafnframt fram á að ráðuneytið staðfesti fyrirhugaðan rekstur hennar á heilbrigðisþjónustu. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Embættis landlæknis.

    14. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Fatlað fólk, Lýðheilsa og forvarnir, Félags- og fjölskyldumál

    Ráðherra styrkir Íþróttasamband fatlaðra

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur veitt Íþróttasambandi fatlaðra 1,0 milljón króna í styrk styrk til verkefna sem miða að því að auka þátttöku fatlaðra barna í íþróttum.

    13. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Loftslagsmál, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Stofnanir móti sér umhverfis- og loftslagsstefnu

    Loftslagsmál eru heilbrigðismál og lofslagsbreytingar ein af helstu áskorununum sem heimurinn stendur frammi fyrir, skrifar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í blaðagrein þar sem hún hvetur stofnanir sem heyra undir embætti hennar til fylgja fordæmi Landspítala og setja sér stefnu í umhverfis- og loftslagsmálum.

    12. feb. 2018Almannaöryggi, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aukin aðkoma Landhelgisgæslunnar að sjúkraflugi til skoðunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að meta hvort ávinningur sé af því að auka aðkomu Landhelgisgæslu Íslands að sjúkraflugi. Ráðherra hefur skipað starfshóp um málið sem ætlað er að skila niðurstöðum sínum um miðjan mars næstkomandi.

    09. feb. 2018Líf og heilsa, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Spornað við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að gera tillögur um aðgerðir til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja. Hópnum er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. maí næstkomandi.

    08. feb. 2018Rit og skýrslur, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ávinningur fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar

    febrúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Ávinningur fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar Greinargerð starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar. Greinargerð hópsins

    08. feb. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið

    febrúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið Skýrsla starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á Akureyri, starfsvæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (Hvest), Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið

    08. feb. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Leggja til leiðréttingu klukku til samræmis við gang sólar

    Starfshópur sem falið var að kanna mögulegan ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við sólarganginn hefur skilað heilbrigðisráðherra greinargerð með tillögu þess efnis. ​

    08. feb. 2018Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur um líknarmeðferð á landsbyggðinni

    Starfshópur sem falið var að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða, Austurlands og Norðurlands hefur skilað heilbrigðisráðherra skýrslu með tillögum sínum.

    05. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Frumvarp um rafrettur verður lagt fyrir Alþingi

    Heilbrigðisráðherra mun leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um rafrettur sem felur í sér heildstæðar reglur um innflutning, sölu og markaðssetningu á rafrettum og áfyllingum fyrir þær, auk ákvæða um eftirlit og skorður við notkun þeirra. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi ríkissstjórnar í liðinni viku.

    01. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um afgreiðslu tiltekinna ávanabindandi lyfja

    Lyfjastofnun hefur ákveðið að breyta reglum um afgreiðslu tiltekinna lyfja sem valdið geta ávana- og fíkn, til að hamla gegn misnotkun. Gert er ráð fyrir að nýjar reglur stofnunarinnar um þetta taki gildi 3. apríl næstkomandi.

    31. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma

    Starfshópur sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi hefur skilað heilbrigðisráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum. Ráðherra skipaði starfshópinn í mars 2017 í samræmi við tillögu frá sóttvarnarlækni.

    30. jan. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma

    janúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma Skýrsla starfshóps heilbrigðisráððherra sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma. Ráðherra skipaði starfshópinn í mars 2017 í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis

    26. jan. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Synjun Embættis landlæknis um veitingu starfsleyfis sem sálfræðingur

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem sálfræðingur. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun embættisins.

    24. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Líf og heilsa

    Mikilvæg skref í jafnréttisbaráttu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um jafnréttismál í grein í Morgunblaðinu í dag. „Það er óskandi að áhrif #metoo-byltingarinnar verði til þess að það takist að uppræta kynferðislega áreitni, ofbeldi og mismunun í samfélaginu“ skrifar heilbrigðisráðherra meðal annars í grein sinni.

    19. jan. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðisráðuneytið

    Stjórnsýslukæra vegna málsmeðferðar Embættis landlæknis

    Kærandi krafðist þess að álit Embættis landlæknis yrði fellt úr gildi vegna brota á málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og laga um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007. Ráðuneytið hafnaði kröfunni.

    18. jan. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Arnar Þór Sævarsson verður aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra

    Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ráðið Arnar Þór Sævarsson, fráfarandi sveitarstjóra á Blönduósi aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu.

    18. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stefnt að opnun neyslurýma fyrir vímuefnaneytendur

    Heilbrigðisráðherra hefur sett af stað vinnu í velferðarráðuneytinu til að undirbúa opnun neyslurýma fyrir langt leidda vímuefnaneytendur. Neyslurými sem þessi eru þekkt úrræði erlendis og byggjast á hugmyndafræði skaðaminnkunar.

    18. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landspítalinn er bakhjarl heilbrigðisþjónustunnar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um hlutverk Landspítalans í grein í Fréttablaðinu í dag sem bakhjarl heilbrigðisþjónustu um land allt: „Gott samfélag þarf gott heilbrigðiskerfi og gott heilbrigðiskerfi þarf sterkt móðursjúkrahús. Landspítalinn er slík stofnun“ skrifar heilbrigðisráðherra meðal annars í grein sinni.

    16. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnanir heimsóttar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ræddi við stjórnendur og annað starfsfólk og kynnti sér starfsemi stofnananna. Á morgun fer hún um Norðurland og heimsækir heilbrigðisstofnanir þar.

    15. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjölgun sálfræðinga í almenna heilbrigðiskerfinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um fjölgun sálfræðinga í almenna heilbrigðiskerfinu í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag og eflingu geðheilbrigðisþjónustunnar. Hún segir skýrt ákall í samfélaginu um að þjónusta sálfræðinga verði hluti af hinu almenna opinbera heilbrigðiskerfi.

    11. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Líf og heilsa

    Fjallað um lækkun tannlæknakostnaðar lífeyrisþega

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum lífeyrisþega. Hálfur milljarður króna er til ráðstöfunar í þessu skyni samkvæmt fjárlögum 2018.

    10. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Birgir Jakobsson verður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ráðið Birgi Jakobsson aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu. Birgir tekur til starfa 1. apríl næstkomandi þegar hann lætur af embætti landlæknis.

    10. jan. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Heilbrigðisráðuneytið

    Hækkun bóta almannatrygginga 1. janúar 2018

    Fjárhæðir bótaflokka almannatrygginga hækkuðu að jafnaði um 4,7% 1. janúar síðastliðinn. Tryggingastofnun ríkisins hefur birt yfirlit um breytingar á ellilífeyri, örorkulífeyri og endurhæfingarlífeyri. Þar eru einnig upplýsingar um breytingar á reglugerðum og nýjar reglugerðir sem tóku gildi í byrjun ársins.

    09. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja

    Heilbrigðisráðherra hefur sett nýja reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja. Með henni er lögð áhersla á rafrænt umhverfi lyfjaávísana. Meðal nýmæla er ákvæði um hertar reglur um ávísanir til að sporna við misnotkun tiltekinna ávanabindandi lyfja. Reglugerðin tekur gildi 3. apríl.

    09. jan. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Áreitni á vinnustöðum, NEI TAKK

    Stjórn Vinnueftirlitsins, Vinnueftirlitið og velferðarráðuneytið standa fyrir fundi 11. janúar um eflingu forvarna gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Forsætisráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra, aðilar vinnumarkaðarins o.fl. undirrita á fundinum viljayfirlýsingu um málefnið.

    • First
    • Prev
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
    • 49
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband