Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2251–2300 af 3945
    Raða eftir:
    04. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 22/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 8. nóvember 2018 kærir Sporthöllin ehf. útboð Garðabæjar (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) auðkennt „Íþróttamiðstöðin við Ásgarð. Aðstaða fyrir líkamsrækt“. Kærandi krefst þess að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað. Þá krefst hann þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að meta tilboð kæranda ógilt og ganga til samninga við Laugar ehf. Jafnframt að varnaraðila verði gert að ganga til samninga við kæranda. Til vara er þess krafist að útboðið verði ógilt og lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða innkaupin út að nýju. Þá er í öllum tilvikum krafist álits á skaðabótaskyldu varnaraðila. Jafnframt er krafist málskostnaðar.…

    04. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 21/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 2. nóvember 2018 kærði Líftækni ehf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala nr. V-20716 „Automated Hematology Analyzer“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila Ríkiskaupa og Landspítala (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að vísa frá tilboði kæranda og að velja tilboð Lyra ehf. í hinu kærða útboði og lagt verði fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið að nýju. Þá er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðilum verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

    31. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Yfirlýsing vegna viðlagaæfingar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í janúar 2019

    Stjórnvöld sem bera ábyrgð á eftirliti með fjármálastöðugleika á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum héldu sameiginlega viðlagaæfingu 22. og 23. þessa mánaðar. Í æfingunni tóku þátt 31 stjórnvald frá Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi og Svíþjóð ásamt viðkomandi stofnunum Evrópusambandsins. Starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fylgdist einnig með æfingunni.

    30. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Viðskipti við hið opinbera einfölduð og dregið úr kostnaði með rafrænum reikningum

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið vinnur að því að samræma kröfur til rafrænna reikninga vegna opinberra innkaupa í því augnamiði að einfalda viðskipti fyrirtækja við hið opinbera og draga úr hindrunum og kostnaði í viðskiptum jafn innanlands sem og milli landa. Reikningarnir eru umhverfisvænir og skapa verulegt hagræði, m.a. í sparnaði við útgáfu, miðlun, móttöku og úrvinnslu.

    29. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 28/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 17. desember 2018 kærði Andrúm arkitektar ehf. útboð nr. 20684 sem er framkvæmdasamkeppni Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir hönd Forsætisráðuneytisins „Viðbygging við stjórnarráðshús, Lækjargötu“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Framkvæmdasýslunnar og Forsætisráðuneytisins (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að veita tillögu Kurt og Pí ehf. fyrstu verðlaun í samkeppninni. Þá er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðilum verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

    29. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 24/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 13. nóvember 2018 kærði Hugvit hf. samkeppnisútboð Ríkiskaupa fyrir hönd Háskóla Íslands nr. 20724 „Mála- og skjalakerfi fyrir Háskóla Íslands“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila Ríkiskaupa og Háskóla Íslands (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) um að velja tilboð Spektra ehf. og varnaraðilum verði gert að velja tilboð kæranda. Til vara er þess krafist að útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðilum gert að auglýsa það að nýju. Til þrautavara er þess krafist að samningur varnaraðila við Spektra ehf. verði lýstur óvirkur. Einnig er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðilum verði gert að greiða kæranda málskostnað.…

    28. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    132 stofnanir á vef um opna reikninga

    Aðgengi að fjárhagsupplýsingum ríkisins hefur aukist til muna með vefnum opnirreikningar.is, sem hleypt var af stokkunum fyrir rúmu ári. Upphaflega voru á vefnum upplýsingar yfir greidda reikninga ráðuneyta en stofnanir í A-hluta ríkissjóðs hafa komið inn á vefinn í áföngum. Þeirri innleiðingu er lokið og hægt að nálgast greiðsluupplýsingar 132 stofnana á vefnum.

    25. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kosningar, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2019

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2019.

    24. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Bætt kostnaðarstjórnun í framkvæmdum á vegum ríkisins

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið fagnar niðurstöðum nýrrar skýrslu Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) sem sýnir að kostnaðarstjórnun verkefna ríkisins hefur batnað síðustu ár og standist alþjóðlegan samanburð. Þá sýnir skýrslan fram á mikilvægi vandaðrar áætlunargerðar í framkvæmdum líkt og við aðra stóra útgjaldaliði ríkisins. Markmið Framkvæmdasýslunnar um að gera enn betur í áætlunargerð sinni á næstu árum er í takti við stefnu núverandi ríkisstjórnar um aukið aðhald og ábyrgð í ríkisfjármálunum.

    22. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur fengið staðfesta vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt kröfum ÍST 85:2012.

    21. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Nefnd vegna lausnar um stundarsakir, Úrskurðir

    Mál nr. 1/2018

    Aðilar málsins eru lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og X.

    18. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Neytendamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Tekjusagan - gagnagrunnur um þróun lífskjara

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði vefinn tekjusagan.is á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Vefurinn veitir aðgang að gagnagrunni um lífskjör landsmanna sem byggir á ópersónugreinanlegum upplýsingum úr skattframtölum allra einstaklinga á Íslandi frá árinu 1991 til 2017.

    17. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins

    Stjórnendastefna ríkisins í samráðsgátt

    Unnin hafa verið drög að stjórnendastefnu fyrir ríkið, sem ætlað er að bæta stjórnendafærni og efla stjórnun. Í stefnunni er kveðið á um hvaða hæfni, þekkingu og eiginleika stjórnendur þurfa að bera og hvernig ríkið ætlar að styðja við stjórnendur til að ná framúrskarandi árangri. Drögin hafa verið lögð í samráðsgátt stjórnvalda og er frestur til umsagna til 1. febrúar.

    11. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar. Frelsi sauðfjárbænda aukið og stuðlað að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir.

    Fulltrúar Bændasamtaka Íslands og stjórnvalda hafa skrifað undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar. Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að auknu jafnvægi framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir, auka frelsi sauðfjárbænda og að auðveldara verði að takast á við sveiflur í ytra og innra umhverfi greinarinnar. Áhersla er lögð á að auðvelda aðlögun að breyttum búskaparháttum eða nýrri starfsemi með sérstökum aðlögunarsamningum. Þær breytingar sem gerðar eru á samningnum kalla ekki á aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.

    10. jan. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Opið samráð OECD um eflingu opinberrar nýsköpunar

    Opið samráð um yfirlýsingu ríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um opinbera nýsköpun, stendur yfir á samráðsgátt OECD en frestur til að veita umsagnir stendur til 22. febrúar.

    21. des. 2018Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Stefna í lánamálum ríkisins 2019-2023

    desember 2018 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Stefna í lánamálum ríkisins 2019-2023 Stefna í lánamálum 2019-2023. pdf

    21. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skattbreytingar á árinu 2019

    Ýmsar samþykktar skattbreytingar munu koma til framkvæmda í ársbyrjun 2019. Hér verður farið yfir helstu efnisatriði þeirra. Nánari upplýsingar um einstakar breytingar er að finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa og öðrum skjölum á vef Alþingis.

    21. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Persónuafsláttur og skattleysismörk hækka um 4,7%

    Samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal í upphafi hvers árs hækka persónuafslátt hvers einstaklings um sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 3,7% á tólf mánaða tímabili.

    21. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ísland með frjálslyndustu ríkjum heims í tollamálum

    Frá upphafi árs 2017 hafa tollar á innfluttar iðnaðarvörur, numið 0%. Samkvæmt Alþjóðaviðskiptastofnuninni er Ísland eitt aðeins sex aðildarríkja sem hafa nær alfarið afnumið tolla á iðnaðarvörur.

    20. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt verði að greiða með kreditkortum hjá öllum ríkisstofnunum

    Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að fela fjármála- og efnahagsráðherra að gefa út tilmæli til allra ríkisaðila um að taka við greiðslum með kreditkortum. Með þessu batnar þjónusta við almenning og mögulegt verður að taka við greiðslum með sambærilegum hætti og almenningur þekkir í samskiptum við aðra þjónustuveitendur. Meðal þess sem verður skoðað er möguleiki á að greiða með kreditkortum hjá sýslumanni fyrir útgáfu vegabréfa.

    14. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Raunvaxtakjör ríkissjóðs þau hagstæðustu í sögulegu samhengi

    Ríkissjóður gaf út nýjan verðtryggðan skuldabréfaflokk í lok nóvember sl., RIKS 26, og ber hann 1,5% vexti. Þetta eru hagstæðustu raunvaxtakjör sem ríkissjóður hefur nokkru sinni fengið á innlendri lántöku. Þessi niðurstaða endurspeglar traust á ríkissjóði og grundvallast það á góðum árangri í ríkisfjármálum og festu í stjórn opinberra fjármála.

    14. des. 2018Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppgjör ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins 2018

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um tekjur og yfirlit yfir stöðu málefnasviða og málaflokka fyrir fyrstu níu mánuði ársins í samanburði við fjárheimildir. Byggt er á mánaðaryfirliti Fjársýslu ríkisins.

    13. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Óskað eftir umsögnum um hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið í samráðsgátt stjórnvalda og óskar eftir umsögnum.

    10. des. 2018Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla: Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið

    Skýrsla starfshóps um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi.

    10. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið

    Gott regluverk og öflugt eftirlit, hagkvæmni í bankarekstri og traust eignarhald fjármálafyrirtækja eru þær þrjár meginstoðir sem framtíðarsýn íslensks fjármálakerfis þarf að mótast af. Þetta er niðurstaða starfshóps sem skipaður var í febrúar til að vinna hvítbók um fjármálakerfið, en hópurinn hefur lokið störfum og skilað skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfestir óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfesti í dag óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar í erlendum og innlendum gjaldmiðli með stöðugum horfum

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Matsfyrirtækið Fitch staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldir í erlendum gjaldmiðli sem A með stöðugum horfum.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sóknarfrumvarp samþykkt: Fjárlög 2019 afgreidd frá Alþingi

    Fjárlög fyrir árið 2019 voru samþykkt á Alþingi í dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2011 sem fjárlög eru samþykkt í fyrstu heilu viku desember, eins og kveðið er á um í þingskapalögum.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum - losun fjármagnshafta á aflandskrónueigendur og framkvæmd bindingarskyldu á fjármagnsinnstreymi

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum nr. 37/2016, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.

    03. des. 2018Menntamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Menningarmál, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Jöfn tækifæri til tónlistarnáms

    Samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna um stuðning við tónlistarnám er ætlað að jafna aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms á framhaldsstigi og söngnám á mið- og framhaldsstigi og festa fjármögnun námsins í betri sessi.

    30. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum vegna brottfalls laga um kjararáð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru að mestu með hliðsjón af tillögum starfshóps forsætisráðherra um málefni kjararáðs sem skilaði skýrslu í febrúar.

    30. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Bætt stafræn þjónusta hins opinbera með innleiðingu Straumsins

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur undirritað samning við NIIS stofnunina (Nordic Institute for Interoperability Solutions) um samstarf við Eistland og Finnland um að hefja notkun gagnabrautarinnar Straumsins (X-Road). Með þessu batnar samvirkni milli upplýsingakerfa stofnana, svo ekki þarf lengur að veita sömu upplýsingar á fleiri en einum stað og hið opinbera þarf ekki að óska eftir upplýsingum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem það býr þegar yfir.

    28. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur ræddu efnahagsmál ríkjanna

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur hittust síðdegis í gær í Kaupmannahöfn á fundi Dansk-íslenska viðskiptaráðsins, sem haldinn var í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands. Efnahagsmál ríkjanna tveggja voru í deiglunni, sameiginlegar og ólíkar áskoranir.

    27. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði settur á fót

    Stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði hafa komið sér saman um átakshóp um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði í kjölfar 12. samráðsfundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem haldinn var á föstudaginn var.

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 24/2015B. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með bréfi 9. mars 2018 krefst Enor ehf. endurupptöku á máli kærunefndar útboðsmála nr. 24/2015 sem lauk með úrskurði 7. mars 2016. Sóknaraðili krefst þess að í enduruppteknu máli felli kærunefnd útboðsmála úr gildi þá ákvörðun varnaraðila, Hafnarfjarðar og Ríkiskaupa, að meta tilboð sóknaraðila ógilt í örútboði nr. 20148 samkvæmt rammasamningi nr. 15392 á endurskoðun ársreiknings fyrir Hafnarfjarðarbæ, Hafnarfjarðarhöfn og GN eignir ehf. Þá er þess krafist að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem krafist er málskostnaðar. Varnaraðilum og PricewaterhouseCoopers ehf. var gefinn kostur á að tjá sig um endurupptökubeiðnina. Með tölvubréfi 13. mars 2018 gerðu varnaraðilar ekki athugasemdir við að málið yrði tekið til efnislegrar meðferðar fyrir kærunefnd.…

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 9/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. júní 2018 kærði ÞG Verk ehf. útboð Hafnarfjarðarkaupstaðar auðkennt „Knatthús í Kaplakrika 2018“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar.

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 7/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 14. júní 2018 kærði Gísli Rafn Jónsson útboð sveitarfélagsins Skútustaðahrepps (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um skólaakstur fyrir Reykjahlíðarskóla í Skútustaðarhreppi. Kærandi krefst þess að „felld verði niður ákvörðun sveitarstjórnar Skútustaðarhrepps um að ganga að tilboði Snow Dogs ehf. í leið 2 samkvæmt útboðslýsingu og tilboð félagsins verði úrskurðað ógilt.“

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 15/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 8. september 2018 kærði Fastus ehf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala nr. 20678 um blóðflögutæki („Automated continuous microbal detection system and consumables for detecting the presence or absence of microorganisms in blood and sterile body fluids“). Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa og Landspítala (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð Medor ehf. í hinu kærða útboði og lagt verði fyrir varnaraðila að velja tilboð að nýju. Til vara gerir kærandi þá kröfu að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er einnig gerð sú krafa að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Kæran barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laga nr.…

    23. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 24 milljarða króna

    Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 24 ma.kr. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf í flokkunum RIKB 20, RIKB 22, RIKB 25 og RIKB 31 fyrir samtals um 22,5 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKS 21 fyrir um 0,3 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fer fram í dag.

    20. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland til sérstakrar umfjöllunar á Global Positive Forum í París

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu ráðstefnuna Global Positive Forum í París í dag.

    14. nóv. 2018Rit og skýrslur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslensk efnahagsmál

    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir úttekt á efnahagslífi aðildarlanda á eins til tveggja ára fresti á grundvelli 4. greinar stofnsáttmálans (e. Article IV Consultation). Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum var hér á landi í september síðastliðnum til viðræðna við íslensk stjórnvöld og ýmsa hagsmunaaðila.

    14. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Nýir stjórnendur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu

    Undanfarið hafa orðið talsverðar breytingar á stjórnendahópi fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

    09. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Aukinn stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi um að auka stuðning við rannsóknir og þróun fyrirtækja og stuðla þannig að enn frekari nýsköpun. Lagt er til að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar tvöfaldist, hækki úr 300 m.kr. í 600 m.kr.

    07. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 18/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. september 2018 kærir Garðlist ehf. útboð Garðabæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Garðabæ 2018-2021“. Kærandi krefst þess að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað auk þess að „ákvörðun Garðabæjar um að velja ekki tilboð kæranda verði felld úr gildi og Garðabæ gert að velja tilboð kæranda og ganga til samninga við kæranda.“ Til vara er þess krafist að „útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðila gert að bjóða þjónustuna út að nýju.“ Þá er óskað álits kærunefndar útboðsmála á skaðabótaskyldu varnaraðila, auk þess sem krafist er málskostnaðar.…

    07. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 14/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 3. september 2018 kærði Síminn hf. útboð Ríkiskaupa nr. 20735 „Síma- og fjarskiptaþjónusta fyrir Íslandspóst“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um ógildingu útboðsferlis og að halda hraðútboð. Þá krefst kærandi aðgangs að tilboði Sýnar hf. Jafnframt er gerð krafa um að nefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og að honum verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilar krefjast þess að kröfum kæranda verði hafnað og varnaraðilinn Sýn hf. krefst jafnframt málskostnaðar úr hendi kæranda. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr.…

    06. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddu breytingar í umhverfi fjármálastofnana á fundi ráðherra fjármála- og efnahagsmála í Brussel

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sótti í dag árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn fór fram í Brussel.

    05. nóv. 2018Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Nýsköpun hjá hinu opinbera kortlögð í fyrsta sinn

    Á dögunum fengu um 800 stofnanir ríkis og sveitarfélaga senda könnun sem ætlað er að kortleggja nýsköpun hjá hinu opinbera og um leið efla hana. Könnunin, sem nefnist Nýsköpunarvogin, er samnorræn en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í slíkri könnun.

    05. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur brit greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    31. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Staða og horfur á vinnumarkaði: Spyrja þarf um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar

    Þegar lífskjör landsmanna eru skoðuð þarf spyrja um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar þeirra, fremur en að horfa aðeins á mælikvarða skatthlutfalla. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, í pallborði á morgunfundi Landsbankans þar sem rætt var um stöðu og horfur á íslenskum vinnumarkaði.

    30. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 samþykkt í ríkisstjórn

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð var samþykkt í ríkisstjórn sl. föstudag. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur haft forystu um gerð áætlunarinnar í samráði við ráðherra jafnréttismála.

    • First
    • Prev
    • 44
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband