Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2101–2150 af 3013
    Raða eftir:
    06. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Eftirlit með þjónustu og rekstri heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita 30 milljónir króna til að sinna eftirliti með því að þjónusta og rekstur heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu sé samræmi við Kröfulýsingu vegna rekstrar heilsugæsluþjónustu. Kröfulýsingin tók gildi í tengslum við ​breytt fjármögnunarkerfi heilsugæslunnar sem innleitt var í ársbyrjun 2017.

    05. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Stefna um rafrænar lyfjaupplýsingar til umsagnar hjá Lyfjastofnun Evrópu

    Áformað er að samræma upplýsingar um lyf á Evrópska efnahagssvæðisins og hefja notkun rafrænna fylgiseðla. Um þetta er m.a. fjallað í drögum að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar sem birt hefur verið til umsagnar á vef Lyfjastofnunar Evrópu. Umsagnarfrestur er til 31. júlí næstkomandi.

    04. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Hjúkrunarheimilið Seltjörn afhent til rekstrar

    Stefnt er að því að fyrstu íbúar nýja hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi, sem hlotið hefur nafnið Seltjörn, geti flutt þar inn um 20. mars næstkomandi. Framkvæmdum við húsnæðið er nú lokið og afhenti Seltjarnarnesbær ríkinu heimilið fullbúið til rekstrar við hátíðlega vígsluathöfn um helgina.

    01. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lögfræðileg úttekt um kaup sjúkratrygginga á heilbrigðisþjónustu

    Gerð hefur verið úttekt á framkvæmd og málsmeðferð velferðarráðuneytisins vegna samninga Sjúkratrygginga Íslands um kaup á heilbrigðisþjónustu sem veitt er af sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum. Úttektin var gerð að beiðni heilbrigðisráðherra í ljósi þeirra álitamála sem fjallað var um í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 18. september 2018.

    01. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um innleiðingu krabbameinsáætlunar

    Forvörnum, greiningu og meðferð krabbameina hefur fleygt fram á liðnum árum og batahorfur þeirra sem greinast hafa batnað verulega. Aftur á móti má reikna með mikilli fjölgun einstaklinga sem greinast með krabbamein á næstu árum vegna fólksfjölgunar og hækkandi meðalaldurs. Því er íslensk innleiðing íslenskrar krabbameinsáætlunar mikilvæg. Heilbrigðisráðherra skrifar um innleiðingu krabbameinsáætlunar til ársins 2030 blaðagrein í dag.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sjúkrahótelið við Hringbraut afhent í dag

    Framkvæmdum við sjúkrahótelið við Hringbraut er lokið og fór afhending þess fram í dag. Hótelið er hluti af fyrsta áfanga þess verkefnis sem felst í heildaruppbyggingu Landspítalans. Sjúkrahótelið er á fjórum hæðum, með 75 herbergjum af mismunandi gerð miðað við ólíkar þarfir dvalargesta.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefna til umfjöllunar í velferðarnefnd

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti fyrir tillögu sinni til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 á Alþingi í gær. Þingsályktunartillagan er nú komin til umfjöllunar hjá velferðarnefnd þingsins.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Þrír umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Umsóknarfrestur rann út 28. janúar. Heilbrigðisráðherra mun skipa í stöðuna til fimm ára að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar á umsækjendum.

    31. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð um rafrettur til umsagnar: varðar merkingar umbúða, upplýsingaefni o.fl.

    Reglugerð um merkingar á umbúðum rafrettna og áfyllinga og efni upplýsingabæklings sem fylgja skal rafrettum og áfyllingum hefur verið birt til umsagnar.

    30. jan. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Um hálfum milljarði króna úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 495 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar í öldrunarþjónustu. Hæstu framlögin renna til endurgerðar hjúkrunarrýma á gamla Sólvangi í Hafnarfirði og til uppbyggingar þjónustumiðstöðvar við Sléttuveg í Reykjavík.

    29. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Unnið að verkefnum krabbameinsáætlunar með gildistíma til ársins 2030

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að vinna að framkvæmd verkefna í samræmi við tillögu ráðgjafarhóps sem vann að mótun íslenskrar krabbameinsáætlunar á árunum 2013 – 2016. Ráðherra hefur ákveðið að gildistími áætlunarinnar verði til ársins 2030, til samræmis við tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu sem nú liggur fyrir Alþingi.

    29. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir til að styrkja mönnun á sviði hjúkrunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sent bréf til opinberra heilbrigðisstofnana þar sem þeim er falið að fjalla um og útfæra tilteknar aðgerðir sem hafa það markmið að laða fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa og styrkja mönnun á sviði hjúkrunar.

    29. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð til umsagnar: varðar nýtingu erfðaupplýsinga í forvarnarskyni

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um tilkynningar til þátttakanda í vísindarannsókn á heilbrigðissviði um mikilvæga þætti sem koma fram við framkvæmd vísindarannsókna og varða heilsu hans. Umsagnarfrestur er til 18. febrúar næstkomandi.

    28. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Tilkynning vegna sameiginlegs norræns útboðs á lyfjum

    Útboðsgögn vegna sameiginlegs lyfjaútboðs norskra, danskra og íslenskra stjórnvalda hafa verið birt í drögum á vef danska lyfjainnkaupasambandsins Amgros. Mögulegum bjóðendum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við útboðsgögnin. Frestur til athugasemda rennur út 6. mars næstkomandi.

    21. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lifrarbólga C: Einstakur árangur meðferðarátaks sem verður að viðhalda

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að viðhalda þeim einstaka árangri sem þriggja ára meðferðarátak heilbrigðisyfirvalda gegn lifrarbólgu C hefur skilað.

    18. jan. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðstæður barnshafandi kvenna á landsbyggðinni skoðaðar

    Félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra kynntu á ríkisstjórnarfundi í morgun áform um skoða í sameiningu breytingar til að styðja betur við barnshafandi konur á landsbyggðinni og fjölskyldur þeirra.

    18. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimsókn heilbrigðisráðherra til Embættis landlæknis

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í gær Embætti landlæknis þar sem starfsfólk ​kynnti starfsemi embættisins og helstu verkefni. Ráðherra átti jafnframt fund með framkvæmdastjórn embættisins.

    18. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Útlendingar, Líf og heilsa

    Skýrsla um heilsu flóttafólks og innflytjenda

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) kynnir næstkomandi mánudag nýja skýrslu um heilsu flóttafólks og innflytjenda í Evrópu. Þetta er fyrsta skýrsla stofnunarinnar um þetta málefni. Bein útsending verður frá kynningunni í gegnum streymi á Facebook.

    16. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu kynnt í ríkisstjórn

    Tillaga Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 var til umfjöllunar í ríkisstjórn í gær sem samþykkti að senda hana til þingflokka. Að lokinni umfjöllun í þingflokkum verður hún lögð fyrir Alþingi þar sem ráðherra mælir fyrir henni.

    16. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Málþing um líffæragjöf og líffæraígræðslu 26. janúar

    Með breytingu á lögum um brottnám líffæra sem samþykkt var á Alþingi í sumar er nú miðað við ætlað samþykki látins einstaklings fyrir líffæragjöf nema annað liggi fyrir. Lagabreyting sem felur þetta í sér tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Embætti landlæknis stendur fyrir opnu málþingi um líffæragjöf og líffæraígræðslu 26. janúar næstkomandi.

    15. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum

    Undirbúningur að sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands vegna kaupa á völdum lyfjum til notkunar á sjúkrahúsum er á lokastigi. Litið er á útboðið sem reynsluverkefni til að afla þekkingar á ýmsum hagnýtum þáttum slíkra útboða.

    15. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Níu sækja um embætti ráðuneytisstjóra

    Níu umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út í gær. Heilbrigðisráðherra mun skipa í stöðuna til fimm ára að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar á umsækjendum.

    14. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samráð um reglugerðarbreytingu varðandi skýrslugerð vegna sóttvarna

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð heilbrigðisráðherra til breytinga á reglugerð nr. 221/2012 um skýrslugerð vegna sóttvarna. Breytingin felst í uppfærslu á lista yfir skráningar- og tilkynningarskylda sjúkdóma. Umsagnarfrestur er til 28. janúar næstkomandi.

    14. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vísindasiðanefnd skipuð til næstu fjögurra ára

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö manna vísindasiðanefnd til næstu fjögurra ára. Hlutverk nefndarinnar er að meta vísindarannsóknir á heilbrigðissviði og tryggja að þær samrýmist vísindalegum og siðfræðilegum sjónarmiðum.

    11. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Starfshópur fjallar um skipulag líknar- og lífslokameferðar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi.

    10. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Viljayfirlýsing um rekstur 40 rýma hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi

    Vigdísarholt ehf. mun annast rekstur nýja hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi, samkvæmt viljayfirlýsingu heilbrigðisráðherra og Vigdísarholts ehf. sem undirrituð var í dag. Félagið mun einnig taka að sér rekstur dagdvalarrýma í bæjarfélaginu og er stefnt að umtalsverðri fjölgun þeirra.

    10. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra heimsækja Landspítala

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Landspítala-háskólasjúkrahús í morgun. Páll Matthíasson forstjóri og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri, tóku á móti ráðherrunum á bráðamóttökunni í Fossvogi.

    09. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra heimsótti Geislavarnir ríkisins

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í gær Geislavarnir ríkisins þar sem Sigurður M. Magnússon forstjóri og sérfræðingar stofnunarinnar kynntu starfsemina fyrir ráðherra, sögðu frá meginverkefnum og gerðu grein fyrir helstu áherslum á nýju ári.

    08. jan. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformuð lagasetning um neyslurými til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, áform Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um lagasetningu í því skyni að koma á fót öruggu neyslurými fyrir einstaklinga sem neyta vímuefna með sprautubúnaði, með skaðaminnkun að leiðarljósi. Umsagnarfrestur er til 27. janúar næstkomandi.

    08. jan. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Niðurstöður hlutaúttektar Embættis landlæknis á bráðamóttöku Landspítala

    Embætti landlæknis hefur lokið hlutaúttekt vegna alvarlegrar stöðu á bráðamóttöku Landspítalans. Samkvæmt úttektinni tekst móttökunni vel að sinna bráðahlutverki sínu en vandinn liggur í þjónustu við sjúklinga sem bíða eftir innlögn. Gerðar eru tillögur að leiðum til úrbóta í skýrslu embættisins.

    04. jan. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Álit væntanlegt frá ráðgjafanefnd um blóðgjafaþjónustu

    Ráðgjafanefnd um fagleg málefni í blóðbankaþjónustu mun í kjölfar fundar 17. janúar næstkomandi, skila Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra afstöðu sinni til þess hvort slaka beri á þeim reglum sem gilda hér á landi um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna. Málið hefur verið til umfjöllunar hjá fagráðinu að ósk ráðherra.

    28. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Forsendur aukafjárveitingar til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni

    Eftirfarandi eru upplýsingar um forsendur þeirrar aukafjárveitingar til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni fyrir rekstrarárið 2018 sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og tilkynnt var um í gær. Fjárveitingin rúmast innan fjárheimilda samkvæmt fjárlögum og byggist á millifærslum á grundvelli heimilda í lögum um opinber fjármál.

    27. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gjaldskrárbreytingar vegna heilbrigðisþjónustu um áramót

    Bótafjárhæðir slysatrygginga almannatrygginga og sjúkradagpeningar hækka 1. janúar um 3,6% til samræmis við launa- og verðlagsuppfærslur fjárlaga. Gjaldskrár vegna heilbrigðisþjónustu hækka að sama skapi sem þessu nemur, að undanskildum komugjöldum í heilsugæslu. Breytingar verða á greiðsluþátttöku fyrir tæknifrjóvgun og vegna þjálfunar.

    27. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Greiðslur fyrir þjónustu sérgreinalækna meðan samningaviðræður standa yfir

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð þar sem kveðið er á um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Áhersla er lögð á að samningsleysið komi ekki niður á notendum meðan það varir og hafa Sjúkratryggingar Íslands og Læknafélag Reykjavíkur gefið út sameiginlega yfirlýsingu þess efnis.

    27. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukafjárveiting til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni um 560 milljóna króna viðbótarfjárveitingu fyrir rekstrarárið 2018. Aukningin nemur að jafnaði um 3% af heildarfjárveitingu stofnananna á árinu.

    21. des. 2018Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Engin komugjöld fyrir aldraða og öryrkja í heilsugæsluna

    21 desember 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Engin komugjöld fyrir aldraða og öryrkja í heilsugæsluna Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbriðgisráðherra skrifar: Í samræmi við áform ríkisstjórnarinnar um að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu hefur verið ákveðið að hætta að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar næstkomandi. Á það jafnt við um komu á dagvinnutíma og á öðrum tímum sólarhringsins

    21. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Sjö umsækjendur eru um embætti heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember. Heilbrigðisráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar á umsækjendum.

    21. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

    Fjórir umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem auglýst var laust til umsóknar í lok nóvember. Heilbrigðisráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar á umsækjendum.

    20. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsagnarfrestur um drög að heilbrigðisstefnu liðinn

    Alls bárust 27 umsagnir um drög að heilbrigðisstefnu sem birt var til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur rann út í gær. Umsagnir bárust frá heilbrigðisstofnunum og menntastofnunum, fagfélögum, sjúkingasamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum og eru þær aðgengilegar þeim sem vilja kynna sér þær í samráðsgáttinni. Unnið verður úr umsögnunum í ráðuneytinu á næstu vikum og lokahönd lögð á heilbrigðisstefnuna sem heilbrigðisráðherra mun leggja fyrir Alþingi sem tillögu til þingsályktunar á vorþingi. Á grundvelli stefnunnar verða unnar aðgerðaáætlanir til fimm ára um einstaka þætti stefnunnar og einstakar greinar heilbrigðisþjónustunnar.

    20. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið

    Ábendingar landlæknis um viðbrögð við alvarlegri stöðu á bráðamóttöku Landspítalans

    Heilbrigðisráðherra hefur móttekið minnisblað frá landlækni með helstu niðurstöðum úttektar embættisins á bráðamóttöku Landspítalans og ábendingum til heilbrigðisráðherra um úrræði til að bregðast við útskriftar- og mönnunarvanda sjúkrahússins.

    19. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Komugjöld í heilsugæslu felld niður hjá öryrkjum og öldruðum

    Hætt verður að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar næstkomandi, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja verður einnig fellt niður. Líkt og áður eru ekki innheimt komugjöld hjá börnum að 18 ára aldri. Ráðherra segir þetta mikilvæga aðgerð og lið í stefnu stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga og að efla hlutverk heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiskerfinu.

    18. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar varðandi ákvarðanir sem snúa að S-merkingu lyfja taka gildi 1. janúar

    Lyfjagreiðslunefnd mun frá 1. janúar 2019 taka ákvarðanir um S-merkingu lyfja í stað Lyfjastofnunar og merkingin verður skilgreind með nýjum hætti samkvæmt reglugerð um lyfjagreiðslunefnd nr. 353/2013. Verðlagning S-merktra lyfja verður óbreytt og sem fyrr munu sjúklingar ekki greiða gjald fyrir S-merkt lyf.

    18. des. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Heilbrigðisráðuneytið

    Hækkun bóta almannatrygginga um áramót

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað tíu reglugerðir um hækkun bóta almannatrygginga 1. janúar 2019. Hækkun bóta nemur 3,6% í samræmi við launa- og verðlagsuppfærslur fjárlaga og tekur til lífeyristrygginga, félagslegrar aðstoðar, foreldragreiðslna og greiðslna til lifandi líffæragjafa.

    17. des. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Loftslagsmál, Heilbrigðisráðuneytið

    Tvö græn skref stigin í rekstri velferðarráðuneytisins

    Velferðarráðuneytið hlaut í dag viðurkenningu fyrir skref 1 og skref 2 samkvæmt áætlun verkefnisins Græn skref í ríkisrekstri. Grænu skrefin tengjast vinnu við gerð loftslagsstefnu Stjórnarráðsins og felast í litlum og stórum aðgerðum til að draga úr sóun, orkunotkun og fleira.

    17. des. 2018Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum heimilað að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra sem kveður á um að ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum sé heimilt að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

    14. des. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Synjun Embættis landlæknis um sérfræðiviðurkenningu í sjúkraþjálfun á greiningu og meðferð stoðkerfis (MT)

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis um að synja kæranda um sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun á greiningu og meðferð stoðkerfis (MT). Ráðuneytið ógildi ákvörðun Embættis landlæknis og lagði fyrir embættið að veita kæranda sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun.

    14. des. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um sérfræðiviðurkenningu í sjúkraþjálfun á greiningu og meðferð stoðkerfis (MT)

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis um að synja kæranda um sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun á greiningu og meðferð stoðkerfis (MT). Ráðuneytið ógildi ákvörðun Embættis landlæknis og lagði fyrir embættið að veita kæranda sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun.

    13. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsóknarfrestur um styrki til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu rennur út 21. desember

    Velferðarráðuneytið minnir að frestur til að sækja um árlega styrki sem veittir eru til gæðaverkefna á sviði heilbrigðisþjónustu rennur út 21. desember næstkomandi. Styrkjunum er ætlað að stuðla að umbótastarfi, nýbreyti og auknum gæðum heilbrigðisþjónustunnar.

    12. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fyrsta áætlun um gæðaþróun heilbrigðisþjónustunnar staðfest

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller landlæknir, undirrituðu í dag áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Þetta er fyrsta áætlunin þessa efnis sem gerð er á grundvelli laga um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007. Heilbrigðisráðherra segir áætlunina ásamt þeirri heilbrigðisstefnu sem er í mótun verða einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustunnar.

    11. des. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Reglubundið samráð um þjónustu við fólk með geðrænan vanda

    Fyrsti fundur velferðarráðuneytisins og fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu var haldinn í ráðuneytinu í gær. Fundir sem þessi verða haldnir tvisvar á ári til að skapa farveg fyrir virkt samráð við notendur hvað varðar stefnumótun og veitingu þjónustu. Til fundar við sérfræðinga ráðuneytisins komu fulltrúar Samráðsvettvangs geðúrræða á höfuðborgarsvæðinu, Hugarafls og Öryrkjabandalags Íslands.

    • First
    • Prev
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband