20. jan. 2021Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mál nr. 328/2020 - Úrskurður
Sérstök uppbót til framfærslu. Felld úr gildi afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins á umsókn kæranda um örorkulífeyri og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Það var niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að ákvæði 3. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1200/2018 um að fjárhæð sérstakrar uppbótar greiðist í samræmi við búsetu hér á landi, eigi sér ekki næga stoð í 6. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð, sbr. 14. gr. laganna og 70. gr laga nr. 100/2007 um almannatryggingar.