Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 1862
    Raða eftir:
    31. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Heilbrigðismál, Utanríkisviðskipti, Líf og heilsa, Heimasendiherrar

    Rafrænn viðskiptafundur Íslands og Slóvakíu um heilbrigðistækni og lífvísindi

    Samstarf Íslands og Slóvakíu á sviði heilbrigðistækni og lífvísinda var efst á baugi á rafrænum viðskiptafundi landanna sem haldið var í dag. Fjögur fyrirtæki frá hvoru ríki kynntu þar starfsemi sína.

    28. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði fundi EES-ráðsins

    Samvinna ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn og afleiðingar hans voru í brennidepli á fjarfundi EES-ráðsins í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra stýrði fundinum af hálfu EFTA-ríkjanna í EES. Í almennum umræðum um alþjóðamál var einnig rætt um áhrif faraldursins á heimsvísu, auk umræðna um Rússland sem og um tengsl loftslagsmála og öryggimála.

    27. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á vefráðstefnu um loftslagsmál

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í gær þátt í vefráðstefnu um loftslagsmál. Ráðstefnan var haldin á vegum norrænu sendiráðanna í London, Norrænu ráðherranefndarinnar og Chatham House í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26.

    21. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fundað með Murkowski, Broberg og Bárði af Steig

    Í tengslum við ráðherrafund Norðurskautsráðsins átti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tvíhliðafundi með grænlenskum og færeyskum ráðamönnum auk þess sem hann hitti bandaríska öldungadeildarþingmanninn Lisu Murkowski.

    20. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi mannréttindi í Rússlandi á fundi sínum með Lavrov

    Viðskiptamál, tvíhliða samskipti, alþjóðamál og mannréttindi voru helstu umræðuefnin á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í dag í Hörpu.

    19. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherrum Kanada, Finnlands og Svíþjóðar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra átti í dag tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Kanada, Finnlands og Svíþjóðar sem komnir eru hingað til lands í tilefni af ráðherrafundi Norðurskautsráðsins. Samskipti ríkjanna og ýmis önnur málefni voru þar til umræðu.

    18. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Einhugur á fundi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Íslands

    Viðskiptamál, öryggis- og varnarmál, málefni norðurslóða, alþjóðamál og mannréttindi voru helstu umræðuefnin á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna í dag. Ráðherrarnir skoðuðu Hellisheiðarvirkjun og Carbfix-verkefnið síðdegis.

    17. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins í Reykjavík

    Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins verður haldinn í Reykjavík síðar í þessari viku og er von á utanríkisráðherrum allra aðildarríkjanna hingað til lands af því tilefni. Fundurinn markar lok tveggja ára formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu.

    14. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurljós: Skýrsla um efnahagstækifæri á norðurslóðum komin út

    Starfshópur um efnahagstækifæri á norðurslóðum hefur afhent utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra skýrsluna Norðurljós, sem hefur að geyma tillögur um hvernig Ísland geti sem best staðið að því að vernda og efla efnahagslega hagsmuni Íslands á norðurslóðum til framtíðar.

    14. maí 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Norðurljós: Skýrsla starfshóps um efnahagstækifæri á norðurslóðum

    Starfshópur um efnahagstækifæri á norðurslóðum hefur afhent utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra skýrsluna Norðurljós, sem hefur að geyma tillögur um hvernig Ísland geti sem best staðið að því að vernda og efla efnahagslega hagsmuni Íslands á norðurslóðum til framtíðar.

    11. maí 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna (JPO) - Innri rýni á þátttöku Íslands 2005-2015

    Ísland tók þátt í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna 2005-2015 og hefur innri rýni ráðuneytisins á þeirri þátttöku nú verið gefin út, auk samantektar. Markmiðið var m.a. að afla lærdóms sem hægt væri að leggja til grundvallar þátttöku Íslands á nýjan leik.

    11. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Árangursrík þátttaka í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna

    Ísland tók þátt í ungliðaáætlun Sameinuðu þjóðanna 2005-2015 og hefur innri rýni ráðuneytisins á þeirri þátttöku nú verið gefin út, auk samantektar. Markmiðið var m.a. að afla lærdóms sem hægt væri að leggja til grundvallar þátttöku Íslands á nýjan leik.

    08. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland gefur öndunarvélar til Indlands

    Í ljósi alvarlegrar stöðu kórónuveirufaraldursins á Indlandi hafa þarlend stjórnvöld þegið boð íslenskra stjórnvalda um að senda 17 öndunarvélar til Indlands. Öndunarvélarnar eru gjöf frá Landspítala og verða þær fluttar, með milligöngu heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, á vegum almannavarna Evrópusambandsins sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samstarfsins.

    06. maí 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um framkvæmd EES-samningsins 2021

    Árlega skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um framkvæmd EES-samningsins 2021 er flutt Alþingi 6. maí. Er þetta í annað sinn sem ráðherra fllytur Alþingi sérstaka skýrslu um framkvæmd EES-samningsins.

    05. maí 2021Rit og skýrslur, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um utanríkis- og alþjóðamál 2021

    Árleg skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra til Alþingis um utanríkis- og alþjóðamál.

    05. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sjötíu ár frá undirritun varnarsamningsins við Bandaríkin

    Sjötíu ár eru í dag liðin frá undirritun varnarsamningsins milli Íslands og Bandaríkjanna. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir varnarsamstarfið við Bandaríkin hafa reynst þjóðinni heilladrjúgt.

    03. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Utanríkismál

    Smitskömmun í garð Pólverja til umræðu á fundi með pólska sendiherranum

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra undirstrikaði að smitskömmun í garð Pólverja á Íslandi væri ólíðandi á fundi með sendiherra Póllands á Íslandi, Gerard Pokruszyński,fyrir helgi.

    29. apr. 2021Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu að vinna úttekt á áhrifum heimsfaraldursins

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, tók í dag þátt í fjarfundi norrænna samstarfsráðherra en þar var samþykkt að vinna úttekt á áhrifum heimsfaraldursins.

    29. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í London, Utanríkismál

    Ráðherrafundur samstarfsvettvangs um öryggis- og varnarmál

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í gær þátt í fjarfundi varnarmálaráðherra í sameiginlegu viðbragðssveitinni (JEF), samstarfsvettvangi líkt þenkjandi ríkja í öryggis- og varnarmálum sem Bretland leiðir.

    28. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Víðtækt samstarf Íslandsstofu og Business Sweden

    Íslandsstofa og systurstofa hennar í Svíþjóð, Business Sweden, hafa gert með sér samkomulag sem tryggir íslenskum fyrirtækjum aðgang að alþjóðlegu neti viðskiptafulltrúa Business Sweden. Guðlaugur Þór Þórðarson kynnti þessi tímamót í ávarpi sínu á ársfundi Íslandsstofu í dag.

    28. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi við Antony Blinken

    Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins, tvíhliða samskipti og samstarf á alþjóðavettvangi voru til umræðu á símafundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í dag.

    26. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ráðherra sat fyrir svörum á viðburði Harvard og Wilson Center um norðurslóðir

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra flutti ávarp og sat fyrir svörum á vefviðburði um sjálfbæra framtíð á norðurslóðum sem haldinn var í samvinnu við Arctic Initiative hjá Harvard Kennedy School og Polar Institute hjá Woodrow Wilson Center í Bandaríkjunum.

    21. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ráðherra ávarpaði fund áheyrnaraðila Norðurskautsráðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, áréttaði gildi laga og réttar á norðurslóðum og vægi Norðurskautsráðsins í samstarfi um svæðið á ráðstefnu áheyrnaraðila ráðsins sem fram fór í dag.

    20. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í London, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Ísland aðili að samstarfsvettvangi um öryggis- og varnarmál

    Ísland gerðist í dag aðili að samstarfsvettvangi líkt þenkjandi ríkja í Norður-Evrópu um öryggis- og varnarmál sem Bretar leiða undir merkjum sameiginlegrar viðbragðssveitar. Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í London undirritaði samkomulag þessa efnis í dag ásamt Ben Wallace varnarmálaráðherra Bretlands.

    16. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Grænni og betri uppbygging að loknum heimsfaraldri

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra áréttaði hlutverk einkageirans í atvinnuuppbyggingu á fundi norrænna og afrískra ráðherra í dag. Hann lagði jafnframt áherslu á hlutverk sjálfbærrar orku við að ná markmiðum heimsmarkmiðanna.

    14. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Lok aðgerða Atlantshafsbandalagsins í Afganistan ákveðin á ráðherrafundi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í fjarfundi utanríkis- og varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins. Á fundinum var tekin ákvörðun um að binda enda á aðgerðir bandalagsins í Afganistan og að liðsafli bandalagsríkjanna verði farinn frá landinu fyrir 11. september næstkomandi.

    13. apr. 2021Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Félagasamtök á Íslandi hvött til að taka þátt í norrænu samstarfsneti

    Norræna ráðherranefndin hyggst koma á fót norrænu samstarfsneti borgaralegra samtaka til að efla samstarf þvert á Norðurlönd og á hin ýmsu fagsvið.

    07. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór áréttaði mikilvægi einkageirans á fundi Alþjóðabankans

    Framþróun einkageirans og græn uppbygging í þróunarlöndum voru helsta umfjöllunarefnið á ráðherrafundi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum sem fram fór í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði þar sérstaka áherslu á mikilvægi þess að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki í þróunarlöndunum og að viðspyrnuaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins nái til kvenna.

    01. apr. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Utanríkismál

    Greinargerð skilað til landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa skilað endurskoðaðri greinargerð Íslands til landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna í New York. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra kveðst vongóður um að landgrunnsnefndin fallist á röksemdir Íslands í málinu.

    26. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór beitti sér gegn reglugerð ESB um hömlur á bóluefnisútflutningi

    Viðbrögð við nýrri reglugerð Evrópusambandsins um útflutningshömlur á bóluefni voru ofarlega á baugi fjarfundar utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í dag sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í.

    24. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu í Brussel

    Tillögur um eflingu á starfi Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á tveggja daga fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag.

    23. mar. 2021Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Dagur Norðurlanda - upptökur frá málþingum

    Degi Norðurlanda er fagnað 23. mars ár hvert. Af því tilefni stóð Norræna ráðherranefndin í dag fyrir fimm málþingum á vefnum.

    22. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkismál

    Harmar ákvörðun Tyrklands um að segja sig frá Istanbúl-samningi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra harmar ákvörðun tyrkneska stjórnvalda í síðustu viku að segja sig frá samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimililsofbeldi, Istanbúl-samningnum svonefnda.

    19. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Leit og björgun, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók við tillögum að endurskoðaðri norðurslóðastefnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag við tillögum nefndar þingmanna úr öllum flokkum sem hann hafði falið að endurskoða stefnu Íslands í málefnum norðurslóða. Á grundvelli tillagna nefndarinnar mun utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra leggja fram á næstunni tillögu til þingsályktunar um nýja norðurslóðastefnu.

    18. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, UN Women

    Þátttaka í ákvarðanatöku og á opinberum vettvangi meginþema CSW-fundar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra áréttaði mikilvægi jafnar þátttöku kynjanna í stjórnmálum og atvinnulífi í hringborðsumræðum á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir.

    18. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Heimasendiherrar

    Rafrænn viðskiptafundur Íslands og Tékklands á sviði nýsköpunar og grænna lausna

    Íslenskar og tékkneskar tækninýjungar á sviði umhverfis- og loftslagsmála voru kynntar á rafrænum viðskiptafundi sem fór fram í morgun á milli Íslands og Tékklands. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, flutti opnunarerindi ásamt utanríkisráðherra Tékklands, Tomáš Petříček

    11. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Mannréttindi, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherrum Norðurlanda og Bretlands

    ​Öryggis- og alþjóðamál voru ofarlega á baugi á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis og þróunarsamvinnuráðherra og utanríkisráðherra Norðurlanda (N5), með Dominic Raab utanríkisráðherra Bretlands.

    05. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Loftslagsmál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fyrsti norræni utanríkisráðherrafundur ársins

    Alþjóðamál, öryggis- og varnarmál og COVID-19 voru efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda sem fram fór í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir samband ríkjanna standa sterkar eftir kórónuveirufaraldurinn.

    04. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með yfirmanni herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk

    Öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi voru aðalumræðuefnið á fundi Guðlaugs Þór Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Andrew Lewis, aðmíráls og yfirmanns herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum fyrr í þessari viku.

    02. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Sendiskrifstofa

    Árlegt samráð við Bandaríkin um öryggis- og varnarmál

    Árlegt samráð við Bandaríkin um öryggis- og varnarmál fór fram í dag. Tvíhliða samstarf ríkjanna, samvinna á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, öryggispólitísk málefni, norðurslóðir, loftslags-, mannréttinda- og lýðræðismál voru til umræðu á fundinum sem haldinn var gegnum fjarfundabúnað vegna heimsfaraldursins.

    25. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Heimasendiherrar

    Fundað um fríverslunarviðræður við Bretland

    Staða og horfur í fríverslunarviðræðum Bretlands og Íslands, Noregs og Liechtenstein voru efst á baugi á fjarfundi ráðherra utanríkisviðskipta þessara ríkja í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.

    24. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Fjarskipti, Öryggis- og varnarmál, Samgöngur og fjarskipti

    Tillaga um útboð á ljósleiðaraþráðum Atlantshafsbandalagsins

    Starfshópur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra leggur til að hafinn verði formlegur undirbúningur útboðs á tveimur af þremur ljósleiðaraþráðum Atlantshafsbandalagsins á Íslandi í þágu samkeppni á fjarskiptamarkaði, þjóðaröryggis og varnarhagsmuna. Skýrsla starfshópsins var kynnt á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í morgun.

    23. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Guðlaugur Þór ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra varaði við því að heimsfaraldurinn væri notaður sem átylla til að skerða frelsi og borgaraleg réttindi í ávarpi sínu í mannréttindarráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Hann fagnaði sérstaklega ákvörðun Bandaríkjastjórnar að gerast aftur virkur þátttakandi í starfi mannréttindaráðsins. Ekki væri um gallalausa stofnun að ræða en einmitt þess vegna þyrftu lýðræðisríki að vinna að umbótum á mannréttindaráðinu og halda á lofti frelsi og mannréttindum.

    15. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ólögmætum fangelsunum á erlendum ríkisborgurum andæft

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi á vegum kanadískra stjórnvalda um ólögmæta fangelsisvistun á erlendum ríkisborgurum í pólitískum tilgangi.

    11. feb. 2021Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Mikilvægt að standa vörð um norrænt samstarf á tímum faraldurs

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, sat í dag á fjarfund samstarfsráðherra Norðurlanda.

    11. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Þrjátíu ár frá viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Litáens

    Í dag eru þrjátíu ár liðin frá því að Ísland viðurkenndi fyrst ríkja sjálfstæði Litáens eftir lok kalda stríðsins. Af því tilefni færði Inga Minelgaité, kjörræðismaður Litáens á Íslandi, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, blóm og þakkir.

    06. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi við utanríkisráðherra Pakistans

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ræddi nú síðdegis við Makhdoom Shah Mahmood Qureshi, utanríkisráðherra Pakistans, vegna leitarinnar að fjallgöngumanninum John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans. Mál hans er nú til meðferðar hjá borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins

    03. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ávarpaði Arctic Frontiers-norðurslóðaráðstefnuna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði áherslu á mikilvægi sjálfbærni þegar hann flutti opnunarávarp og tók þátt pallborðsumræðum á ráðstefnunni Arctic Frontiers sem fram fór í dag.

    03. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Lýsir yfir djúpstæðum vonbrigðum vegna dóms yfir Navalní

    Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lýsir yfir miklum vonbrigðum vegna dóms yfir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní og skorar á rússnesk stjórnvöld að láta hann lausan. Fulltrúar Íslands hjá Evrópuráðinu og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hafa tekið undir gagnrýni á framgöngu rússneskra stjórnvalda gegn friðsömum mótmælendum.

    02. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fjölsóttur fundur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra með erlendum sendiherrum

    Hátt í eitt hundrað fulltrúar erlendra ríkja með fyrirsvar gagnvart Íslandi tóku þátt í fjarfundi sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra stóð fyrir í dag. Nýútkomnar skýrslur um utanríkisviðskipti og samstarf við Grænland voru þar efst á baugi.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband