Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 1821
    Raða eftir:
    19. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Þráinn fékk heiðursverðlaun og Berdreymi verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna

    Kvikmyndagerðamaðurinn og rithöfundurinn Þráinn Bertelsson er heiðursverðlaunahafi Eddu verðlaunanna, en Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra afhenti honum verðlaunin á Eddu verðlaunahátíðinni. Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og eru heiðursverðlaun Eddunnar veitt einstaklingum sem hafa sett sitt mark á íslenska kvikmyndasögu með framúrskarandi störfum í þágu íslensks sjónvarpsefnis og kvikmyndagerðar.

    17. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Fjárlög, Atvinnuvegir

    Ný tónlistarmiðstöð fær 150 milljón króna framlag stjórnvalda

    „Í nýrri tónlistarstefnu er lögð áhersla á að Ísland er tónlistarland. Íslenskt tónlistarlíf hefur leitt af sér ríkan menningararf sem á fastan sess í hjörtum landsmanna auk þess að vera mikilvæg atvinnugrein. Tónlist er atvinnuskapandi og nauðsynleg útflutningsgrein Íslendinga og íslenskt tónlistarlíf einkennist af sköpunargleði. Áhersla stjórnvalda með nýrri stefnu og Tónlistarmiðstöð er að hlúa að tónlistargeiranum, styðja við bakið á tónlistarfólki og fagfólki og skapa þeim frjósaman jarðveg til vaxtar,” segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    16. sep. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fatlað fólk, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Starfshópur vinni tillögur til að auka náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að auka náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk.

    15. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Nýsköpunarþing 2022 haldið 20. september – Hugvitið út!

    Yfirskrift Nýsköpunarþings í ár er Hugvitið út! – Hvernig verður hugvit stærsta útflutningsgrein Íslands?, en umræðuefni þingsins er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfi hins vegar.

    14. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning: Tryggir fjölbreytileika íslensks fjölmiðlamarkaðar

    Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta 25 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2022, en alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning.

    14. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Fjárlagafrumvarp 2023: Áframhaldandi vöxtur íslenskrar kvikmyndagerðar

    Eitt af mikilvægustu verkefnum stjórnvalda er að skjóta fjölbreyttari stoðum undir íslenskt atvinnulíf og auka verðmætasköpun í hagkerfinu. Sérstök áhersla lögð á skapandi og hugvitsdrifnar greinar svo sem kvikmyndagerð í þeirri vegferð.

    14. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntun fyrir alla, Menntamál

    Tveggja milljarða Samstarfssjóður háskóla settur á laggir

    Sjóðnum er ætlað að ýta undir öflugt samstarf allra háskóla á Íslandi. Allt að einum milljarði króna verður úthlutað strax á þessu ári.

    12. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Talað fyrir íslenskri tónlist í Los Angeles

    Íslensk tónlist og tónlistariðnaðurinn á Íslandi voru umræðuefni funda Lilju D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra með einu stærsta tónlistarfyrirtæki veraldar, Universal Music Group (UMG), ásamt því að heimsækja umboðsskrifstofuna Milk & Honey Management, sem fer meðal annars með umboð fyrir listamenn Dua Lipa og Kanye West & umboðsskrifstofuna John Silva Management sem heldur utan um listamenn eins Foo Fighters, Nirvana og Norah Jones.

    11. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Um 9 milljarða kvikmyndaverkefni til Íslands

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra leiddi sendinefnd á vegum Íslandsstofu og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) með áherslu á kvikmyndir og tónlist. Markmið ferðarinnar er að kynna Ísland sem áfangastað sköpunar, kynna íslenska menningu og hvetja til erlendrar fjárfestingar í skapandi greinum á Íslandi.

    08. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Auglýsing á starfi safnstjóra Listasafns Íslands

    Að gefnu tilefni vill menningar- og viðskiptaráðuneytið taka fram eftirfarandi varðandi auglýsingu á starfi safnstjóra Listasafns Íslands:

    08. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áslaug Arna stjórnmálamaður ársins hjá One Young World samtökunum

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók í dag á móti Politician of the Year 2022 verðlaunum á One Young World ráðstefnunni sem að þessu fer fram í Manchester á Englandi. Ráðstefnan leiðir saman yfir tvö þúsund manns víðs vegar að úr heiminum sem öll eiga það sameiginlegt að vera leiðtogar á sínu sviði.

    08. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Safnstjóri Listasafns Íslands: Umsóknarfrestur til 20. september 2022.

    Embætti safnstjóra Listasafns Íslands er laust til umsóknar. Safnstjóri Listasafns Íslands stjórnar starfsemi og rekstri safnsins og mótar listræna stefnu þess.

    07. sep. 2022Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Andrej Kúrkov hlýtur bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

    Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov hlaut í dag alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra afhenti Kúrkov verðlaunin í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

    07. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Kynnti Ísland sem vænlegan tökustað fyrir Netflix

    Umgjörð kvikmyndagerðar á Íslandi og hækkaðar endurgreiðslur vegna kostnaðar í kvikmyndagerð voru ræddar á fundi Lilju D. Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með fulltrúum Netflix í Los Angeles ásamt því að kynna sér starfsemi fyrirtækisins.

    06. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áfrýjunarnefnd EUIPO tekur Iceland-málið fyrir

    Munnlegur málflutningur í máli Íslands gegn bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods Ltd fer fram fyrir fjölskipaðri áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) föstudaginn 9. september. Þetta er í fyrsta sinn sem mál er flutt munnlega fyrir áfrýjunarnefndinni. Áður hafði EUIPO komist að þeirri niðurstöðu að vörumerkjaskráning Iceland Foods Ltd á orðmerkinu ICELAND í Evrópusambandinu væri ógild í heild sinni

    02. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins

    Jón Ingi, Úlfar og Gylfi nýir sérfræðingar hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu

    Ráðið hefur verið í þrjú störf innan háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins sem auglýst voru í lok júní. Alls bárust 132 umsóknir um störfin.

    01. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fjarskipti, Háskólar, Iðnaður, Netöryggi, Nýsköpun, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Glókollur - nýir styrkir taka flugið

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur komið á fót styrkjum til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðuneytisins. Styrkirnir verða veittir tvisvar sinnum á ári, vor og haust, en opið er fyrir umsóknir allt árið. Styrkupphæð getur numið allt að einni milljón króna fyrir hvert verkefni.

    30. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Háskólar, Iðnaður, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Allar listgreinar nú kenndar við LHÍ

    Kvikmyndlist hefur bæst við námsframboð Listaháskóla Íslands (LHÍ) og eru nú allar listgreinar kenndar við skólann eftir að kennsla við kvikmyndalistadeild hófst í síðustu viku í nýju húsnæði LHÍ í Borgartúni.

    25. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Harpa Þórsdóttir er nýr þjóðminjavörður

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Hörpu Þórsdóttur til að gegna embætti þjóðminjavarðar.

    25. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Opið fyrir umsóknir um styrki úr Tækniþróunarsjóði

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sproti, Vöxtur og Markaður hjá Tækniþróunarsjóði. Umsóknarfrestur er 15. september nk.

    24. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Sameiginleg innritunargátt háskóla á Íslandi

    Sameiginleg innritunargátt háskólanna felur það í sér að í stað þess að sótt sé um nám á vefsíðu hvers háskola fyrir sig þá sæki nemendur um á island.is. Ráðherra hefur nú þegar átt viðræður við rektora allra háskólanna sem öll eru afar jákvæð gagnvart verkefninu.

    23. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins

    Hreinn Loftsson aðstoðar Áslaugu Örnu tímabundið

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, hefur ráðið Hrein Loftsson sem tímabundinn aðstoðarmann sinn.

    22. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Netöryggismánuðurinn 2022: Skráning viðburða

    Októbermánuður er á hverju ári helgaður netöryggismálum víða um Evrópu og er Ísland í hópi landa sem taka þátt.

    19. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Landbúnaðarháskóli Íslands í hóp evrópskra háskólaneta

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti á dögunum um úthlutun til evrópskra háskólaneta (e. European Universities) úr Erasmus+ áætluninni. Einungis fjögur ný net voru tekin inn að þessu sinni og kallast eitt þeirra UNIgreen – the Green European University og á Landbúnaðarháskólinn (LBHÍ) þar sæti.

    19. ágú. 2022Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, Úrskurðir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    8/2021 A gegn Háskóla Íslands

    Ár 2022, 19. ágúst, lauk áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, þau Elvar Jónsson lögmaður og formaður nefndarinnar, Eva Halldórsdóttir lögmaður og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson lögfræðingur málinu nr. 8/2021 A gegn Háskóla Íslands með svohljóðandi úrskurði.

    17. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Fyrsta íslenska tónlistarstefnan og frumvarp til heildarlaga um tónlist kynnt í Samráðsgátt

    „Þetta eru mikil tímamót, en með stefnunni og lögum um tónlist vinnum við að því að efla tónlist á landinu öllu og mörkum í fyrsta sinn heildarramma fyrir málefni tónlistar sem lengi hefur vantað. Með þessu viljum við búa tónlistinni hagstæð skilyrði til að vaxa og dafna um ókomna tíð,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    16. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Iðnaður, Nýsköpun, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skrifstofur ráðherra um land allt

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir staðsetur skrifstofu sína víðs vegar um landið á kjörtímabilinu.

    04. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Fjarskipti, Háskólar, Iðnaður, Netöryggi, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opnir viðtalstímar ráðherra í Grósku

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra verður í haust með opna viðtalstíma í Grósku.

    20. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Betri lífsgæði og aukin verðmætasköpun: Hönnunarstefna til kynningar í samráðsgátt

    Drög að stefnu í málefnum hönnunar og arkitektúrs er nú til umsagnar í samráðsgátt og er umsagnartími til 20. ágúst nk.

    19. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Blómlegt samstarf opinberu háskólanna

    Verkefnisstjórn um samstarfsnet opinberu háskólanna fundaði á Hvanneyri í maí síðastliðnum. Samstarfið hefur aukist á undanförnum árum og var frekari efling þess m.a. rædd á fundinum

    15. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Sýndarveruleiki nýttur til að fræða ungmenni um loftslagsmál

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, heimsótti íslenska nýsköpunarfyrirtækið Gagarín á dögunum ásamt fjármálaráðherra.

    12. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Flóttafólk, Háskólar, Úkraína, Menntamál

    Námsframboð íslenskra háskóla til úkraínskra námsmanna á flótta

    Á island.is er nú að finna upplýsingar fyrir úkraínska háskólanema sem dvelja nú á Íslandi um námsmöguleika í íslenskum háskólum. Þar má nálgast allar upplýsingar bæði á ensku og úkraínsku.

    11. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    21 verkefni hlýtur styrk úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina

    Hundrað umsóknir um Lóu nýsköpunarstyrk bárust í ár. Áhugi á þörungarækt var áberandi í umsóknum en verkefnin eru afar fjölbreytt.

    07. júl. 2022Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2021 birtar

    Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2021 hafa verið birtar. Skýrslurnar koma nú út í fimmta sinn en markmiðið með útgáfu þeirra er að auka gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna. Þá er þeim ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    06. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Útgáfa handbókar um viðurkenningu háskóla

    Út er komin leiðbeinandi handbók um viðurkenningu háskóla. Handbókin lýsir þeim kröfum sem gerðar eru til umsókna um viðurkenningu ráðherra til að fá að starfa sem háskóli og leiðbeinir frekar með tillögum að gögnum sem leggja má fram til stuðnings slíkri umsókn.

    04. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Lýðheilsa og forvarnir, Menningarmál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Lesum leikinn og skrifum söguna!

    „Nú er um að gera að setja sér metnaðarfull markmið. Við fylgjumst vel með stelpunum okkar á EM og styðjum þær með ráðum og dáð. Landsliðið er okkur mikill innblástur og að þessu sinni hverfist lestrarhvatningin um bæði lestur og sköpun,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og lestrarhestur..

    30. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Alþjóðamál, Sendiráð Íslands í Ottawa, Menningarmál

    Færðu kanadísku bókasafni bókagjöf: 75 ár af stjórnmálasambandi Íslands og Kanada

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, afhenti Whitehorse bókasafninu í Yukon fylki í Kanada íslenska bókagjöf og þakkaði fyrir höfðinglega gjöf sem sendiráð Kanada á Íslandi veitti íslenskum bókasöfnum á Akureyri og í Reykjavík fyrr á þessu ári, en árið 2022 markar 75 ára stjórnmálasamband Íslands og Kanada.

    29. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Atvinnuvegir

    Nýr sjóður Norðurlandanna tileinkaður menningarstarfi á Norðurslóðum

    Lilja Alfreðsdóttir menningar og viðskiptaráðherra situr nú ráðstefnu um list á norðurslóðum (e. Arctic Arts Summit) sem fer fram í Whitehorse í Kanada.

    28. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Ráðherra heimsótti kvikmyndaskóla í Vancouver

    Kvikmyndaskólinn í Vancouver er framsækinn kvikmyndaskóli sem er leiðandi á heimsvísu í kvikmynda og sjónvarpsgerð. Skólinn starfar náið með atvinnulífinu í British Columbia en nemendur vinna með hinum ýmsu fyrirtækjum sem tengjast kvikmyndaiðnaði í skólaverkefnum sínum. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti Kvikmyndaskóla Vancouver á ferð sinni í Norður-Ameríku.

    28. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Iðnaður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Afnám löggildingar valdra iðngreina í samráðsgátt – hattasaumsiðn aldrei náð flugi

    Breytingar á reglugerð nr. 940/1999 um löggiltar iðngreinar hafa verið birtar í Samráðsgátt. Tillögurnar eru afrakstur vinnu sem ráðist var í í kjölfar úrbótatillaga sem settar voru fram í samkeppnismati Efnahags- og framkvæmdanefndarinnar (OECD) síðla árs 2020.

    27. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Alþjóðamál, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Winnipeg, Sendiráð Íslands í Ottawa, Atvinnuvegir

    Lilja heiðursgestur á skandínavísku sólstöðuhátíðinni í Kanada

    „Ég er heilluð af samfélaginu hér og það er einstakt að upplifa hversu fólk er meðvitað um uppruna sinn og er stolt af honum. Hér kemur fólk saman til að fagna norrænni arfleið sinni og halda menningu okkar og sögu á lofti,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, en hún var heiðursgestur á skandínavísku sólstöðuhátíðinni og ávarpaði hátíðina. Ríflega 1100 gestir voru viðstaddir hátíðina sem allir hafa norræna tengingu á einn eða annan hátt en talið er að um 1 milljón Kanadabúa séu af Skandinavískum uppruna.

    27. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins

    Þrjú störf auglýst hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur auglýst þrjú störf laus til umsóknar. Umsóknarfrestur fyrir öll störfin er til 18. júlí og má finna allar nánari upplýsingar á Starfatorgi.

    24. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Lilja skipar vinnuhóp sem skoðar gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna

    Í vinnuhópnum munu eiga sæti fulltrúar tilnefndir af Hagfræðistofnun HÍ, Neytendasamtökunum, ASÍ, Samtökum fjármálafyrirtækja og fjármála- og efnahagsráðherra.

    23. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntun fyrir alla, Menntamál

    Framlag allra eru verðmæti fyrir samfélagið

    Ráðherra háskólamála hélt nýverið ávarp á útskriftarráðstefnu nemenda í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við Háskóla Íslands.

    22. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra heimsótti Landspítalann

    Ráðherra heimsótti Landspítalann í vikunni þar sem Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, tók á móti henni ásamt starfsfólki sem sinnir heilbrigðis- og upplýsingatækni og þjónustusviði spítalans.

    22. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menningarkynning og lestrarátak í tengslum við Evrópumót kvenna í knattspyrnu

    Ráðist verður í lestrarátak og menningarkynningu í tengslum við þátttöku Íslands á Evrópumóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer á Englandi síðar í sumar. Ríkisstjórnin mun styrkja verkefnið um 10 m.kr. af ráðstöfunarfé sínu.

    22. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Styrkur veittur vegna 250 ára afmælis vísindaleiðangurs Banks og Solander

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að veita 2,5 m.kr. af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja dagskrá í tengslum við 250 ára afmæli vísindaleiðangurs Sir Joseph Banks og Daniel Solander til Íslands.

    21. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Auknar vinsældir Endurmenntunar HÍ í samræmi við hraðar breytingar á vinnumarkaði

    Aldrei hafa fleiri nemendur útskrifast úr Endurmenntun Háskóla Íslands en gerðu í liðinni viku.

    20. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntamál

    Stórbætt aðgengi að upplýsingum um rannsóknir á Íslandi með IRIS

    Merkilegur áfangi náðist í háskóla- og vísindasamfélaginu á Íslandi í liðinni viku er opnun Rannsóknasafnsins IRIS átti sér stað eftir margra ára undirbúning.

    17. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Áframhaldandi stuðningur stjórnvalda við nýsköpun

    Alþingi hefur samþykkt áframhaldandi stuðning við nýsköpun í formi 35% endurgreiðslu skatta til rannsókna- og þróunarverkefna.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband