Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnahagsmál og opinber fjármál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 1495
    Raða eftir:
    22. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Íslandsbanki

    Greinargerð um ráðgerða sölumeðferð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur útbúið greinargerð um ráðgerða sölumeðferð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka í samræmi við ákvæði laga.

    22. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Breytingar á staðgreiðslu um áramót

    Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Þessi seinni áfangi felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða því 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.

    22. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Breytingar á staðgreiðslu um áramót

    Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Þessi seinni áfangi felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða því 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.

    18. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    ESA samþykkir fjórar aðgerðir sem tengjast áhrifum Covid-19

    Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tók í vikunni fjórar ákvarðanir sem varða ráðstafanir íslenskra stjórnvalda í tengslum við áhrif Covid-19 en stofnunin lagði mat á hvort aðgerðirnar samrýmist ákvæðum EES-samningsins um ríkisaðstoð. Á mánudag samþykkti stofnunin viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki við að viðhalda lágmarksstarfsemi meðan áhrifa kórónuveirufaraldursins gætir.

    18. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Íslandsbanki

    Stefnt að sölu eignarhluta í Íslandsbanka á vormánuðum

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á eignarhlutum í Íslandsbanka. Í því felst að ráðherra útbýr nú greinargerð sem lögð verður fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, auk þess að óska umsagnar Seðlabanka Íslands í samræmi við ákvæði laga. Að liðnum umsagnarfresti tekur ráðherra endanlega ákvörðun um hvort sölumeðferð skuli hafin, en miðað er við að honum ljúki um 20. janúar nk.

    17. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Viðspyrnustyrkir lögfestir og stuðningslán framlengd

    Tvö frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra um stuðning vegna efnahagslegra áhrifa Covid-19 voru samþykkt á Alþingi í gær. Samþykkt voru lög um nýtt styrkjaúrræði, viðspyrnustyrki og gildistími stuðningslána var framlengdur um fimm mánuði eða til 31. maí 2021.

    11. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ísland meðal efstu ríkja í stafrænni opinberri þjónustu

    Ísland er í hópi fremstu ríkja heims þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu. Þetta er niðurstaðan í nýútgefnum mælikvarða Sameinuðu þjóðanna (SÞ), þar sem Ísland er í 12. sæti af 193 löndum og færist upp um sjö sæti frá síðustu mælingu, en mælikvarðinn er gefinn út á tveggja ára fresti.

    09. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skilvirkari og betri opinber þjónusta með stafrænu pósthólfi

    Skilvirkari og betri opinber þjónusta og aukið gagnsæi við meðferð mála eru meðal helstu markmiða með frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um stafrænt pósthólf sem verið hefur til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda en frestur til að veita umsögn um frumvarpið var til 7. desember sl.

    08. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðlað að aukinni fjárfestingu fyrirtækja og sérstök ívilnun veitt vegna grænna eigna

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að leggja fram frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum um tekjuskatt, í því skyni að hvetja einkaaðila til fjárfestinga. Sérstök áhersla er lögð á að hvatarnir snúi að fjárfestingum í eignum sem teljast umhverfisvænar og stuðla að grænni umbreytingu (grænum eignum).

    08. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Dómi Héraðsdóms Reykjavíkur vegna ÍLS-veðbréfs áfrýjað til Landsréttar

    Í ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir eru í kjölfar nýgengins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3141/2020, um lögmæti uÍ ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir eru í kjölfar nýgengins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3141/2020, um lögmæti uppgreiðslugjalds vegna ÍLS-veðbréfs, hafa stjórnvöld ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar. ppgreiðslugjalds vegna ÍLS-veðbréfs, hafa stjórnvöld ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar.

    08. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla um efnahagsmál Norðurlanda: Spá aukinni landsframleiðslu á næsta ári

    Horfur eru á að landsframleiðsla á Norðurlöndum dragist saman á bilinu 3,1%-7,6% á árinu 2020 vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu og horfur efnahagsmála sem unnin er árlega af fjármálaráðuneytum ríkjanna.

    07. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stefna um notkun skýjalausna til umsagnar í samráðsgátt

    Notkun skýjalausna er mikilvæg forsenda þess að styðja við stafræn umskipti, auka sjálfvirkni og hækka öryggisstig upplýsinga og upplýsingakerfa hins opinbera. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt drög að stefnu um notkun skýjalausna í samráðsgátt stjórnvalda sem opin verða til umsagnar til 20. desember nk.

    07. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stórauknir hvatar til að styðja við almannaheillastarfsemi

    Stefnt er að því að framlög einstaklinga og atvinnurekenda til almannaheillastarfsemi aukist verulega með nýju frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðherra mælti fyrir málinu á Alþingi í síðustu viku, en tillögurnar snúa bæði að auknum hvötum til að styðja við aðila í almannaheillastarfsemi og léttari skattbyrði aðilanna sjálfra.

    04. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020 liggur fyrir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vefsíðu Fjársýslu ríkisins.

    03. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvetja almenning til fjárfestinga í íslenskum fyrirtækjum

    Auknir möguleikar almennings til þátttöku á hlutabréfamarkaði eru eitt af meginmarkmiðum nýs frumvarps Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gærkvöldi, en þar er einnig kveðið á um aukið samræmi í skattlagningu söluhagnaðar fasteigna.

    25. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á fjármagnstekjuskatti samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur (fjármagnstekjuskattur).

    25. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla eftirlitsnefndar með framkvæmd viðbótar- og stuðningslána

    Eftirlitsnefnd með framkvæmd viðbótar- og stuðningslána sem skipuð var af fjármála- og efnahagsráðherra í vor hefur nú skilaði sinni fyrstu skýrslu. Eftirlitsnefndinni er ætlað að hafa almennt eftirlit með framkvæmd lánveitinga til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og skal hún skila fjármála- og efnahagsráðherra skýrslu um framkvæmdina á sex mánaða fresti.

    23. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýsköpunardagur hins opinbera: Áhrif Covid-19 á þjónustu – hvað má læra til framtíðar?

    Hvað getum við lært af Covid-19 þegar kemur að því að veita opinbera þjónustu og hvaða tækifæri hefur heimsfaraldurinn skapað til þess að bæta þjónustuna? Þetta er meginumræðuefni á Nýsköpunardegi hins opinbera sem haldinn verður 21. janúar 2021 en yfirskift dagsins er Áhrif Covid-19 á opinbera þjónustu – lærdómar til framtíðar.

    18. nóv. 2020Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Opinber innkaup, Rafræn viðskipti, Ríkisreikningar, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nordic Smart Government: Verðmætasköpun með stafrænum lausnum

    Fjárfesting í stafrænni þróun og nýsköpun er brýn á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, faraldurs og samdráttar. Hvar liggja tækifærin?

    13. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Standard og Poor's, Efnahagsmál og opinber fjármál

    S&P Global Ratings staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs - horfur eru áfram stöðugar

    Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum.

    13. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Rekstur og eignir ríkisins, Ferðakostnaður

    Ferðakostnaður ríkisins lækkaði um 1,8 milljarða króna milli ára

    Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu níu mánuðum ársins um 1,8 milljarða króna og fór úr 3 ma.kr. árið 2019 í tæpa 1,2 ma.kr. árið 2020. Lækkunin nemur um 60% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru.

    11. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Breytt fyrirkomulag skimunar á landamærum forsenda umtalsverðs efnahagsbata

    Breytt fyrirkomulag skimunar á landamærum, sem liðkar fyrir aðgangi ferðamanna með ásættanlegri áhættu með tilliti til sóttvarna, er forsenda þess að umtalsverður efnahagsbati geti hafist á næsta ári

    10. nóv. 2020Húsnæðis- og mannvirkjamál, Neytendamál, Skipulagsmál, Vinnumál, Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Samkeppnismat OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði: 438 tillögur til úrbóta

    „Stjórnvöld verða sífellt að vera vakandi gagnvart þróun regluverksins og huga að því hvaða áhrif regluverkið hefur á skilyrði fyrir virkri samkeppni í atvinnulífinu. Íslensk ferðaþjónusta og byggingariðnaður eru þjóðhagslega mjög mikilvægar atvinnugreinar og veita fjölda fólks atvinnu og skipta almenning miklu máli. Þess vegna óskaði ég eftir því að OECD framkvæmdi samkeppnismat á regluverki íslensks byggingariðnaðar og íslenskri ferðaþjónustu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um skýrslu OECD um samkeppnismat íslenskrar ferðaþjónustu og byggingariðnaðar.​​​

    10. nóv. 2020Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Skipulagsmál, Vinnumál, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Opinn streymisfundur: Kynning á samkeppnismati OECD um ferðaþjónustu og byggingariðnað á Íslandi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra býður til opins streymisfundar um niðurstöður samkeppnismats OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði

    09. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt að sækja um tekjufallsstyrki og framhald lokunarstyrkja innan skamms

    Hægt verður að sækja um tekjufallsstyrki og framhald lokunarstyrkja hjá Skattinum um næstu mánaðamót, en Alþingi samþykkti í liðinni viku lög um aðgerðirnar sem hafa að markmiði að styðja fyrirtæki vegna áhrifa Covid-19 heimsfaraldursins.

    06. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Skýrsla um nýtingu úrræða í heimsfaraldri: Hátt í 40 milljarðar í beinan stuðning til heimila og fyrirtækja

    Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma.kr. í beinan stuðning vegna heimsfaraldurs kórónuveiru að því er fram kemur í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu efnahagsúrræða vegna faraldursins. Þá hafa 19,5 ma.kr. farið í frestun skattgreiðslna, 20 ma.kr. í frestun aðflutningsgjalda auk þess sem 6,6 ma.kr. hafa verið lánaðir með ríkisábyrgð. Heimilin munu auk þess hafa fengið fyrirframgreiddan um 21 ma.kr. úr séreignarsparnaði fyrir árslok.

    06. nóv. 2020Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Úrræði vegna faraldurs: Nýting heimila og fyrirtækja

    nóvember 2020 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Úrræði vegna faraldurs: Nýting heimila og fyrirtækja Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma. kr

    06. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Rekstur og eignir ríkisins

    Meiri umsvif í hagkerfinu í þriðju bylgju faraldursins

    Umsvif í hagkerfinu eru mun meiri nú en í fyrstu bylgju heimsfaraldursins. Neysla Íslendinga innanlands er nú svipuð og á sama tíma í fyrra en í fyrstu bylgju faraldursins dróst hún saman um 20%. Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur minnkað töluvert sem líklega endurspeglar aukna fjarvinnu.

    04. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aukinn þungi í baráttu gegn skattsvikum með sameiningu embættis skattrannsóknarstjóra við Skattinn

    Fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn í skattalagabrotum. Markmið frumvarpsins er að styrkja eftirlit og rannsóknir skattundanskota og er þess vænst að verði það að lögum aukist þungi í baráttunni gegn skattsvikum.

    04. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp að heildarlögum um greiðsluþjónustu í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um greiðsluþjónustu í samráðsgátt stjórnvalda. Um umfangsmikla löggjöf er að ræða og í henni felst innleiðing á annarri greiðsluþjónustutilskipun Evrópusambandsins (PSD2) í íslenskan rétt.

    04. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Fundur fjármálaráðherra í ríkjum ESB, Ecofin og EFTA: Samhæfðar aðgerðir forsenda árangurs gegn kórónuveiru

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sat í dag árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Meginefni fundar ráðherranna var viðsnúningur hagkerfis Evrópu eftir kórónuveirufaraldurinn, en auk þess var rætt um stöðu og horfur efnahagsmála í ríkjum EFTA og ESB.

    02. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Álagning opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2019

    Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2019

    30. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisstjórnin samþykkir enn frekari efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að grípa til frekari efnahagsaðgerða vegna kórónuveirufaraldursins. Er þar annars vegar um að ræða tillögur að útvíkkun tekjufallsstyrkja, en frumvarp um þá er þegar til meðferðar á Alþingi, og hins vegar nýtt úrræði, viðspyrnustyrki, sem ætlað er að styðja við rekstur fyrirtækja á komandi mánuðum.

    30. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Ferðaþjónustufyrirtæki fengið 52% allra stuðningslána

    Stuðningslán hafa einkum verið veitt til fyrirtækja í ferðaþjónustu og hafa þau fengið 52% allra stuðningslána. Þetta er meðal upplýsinga sem fram koma í samantekt Seðlabanka Íslands til fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu úrræðisins.

    30. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    30. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áherslur stjórnvalda í umbótum til næstu ára

    Stór skref hafa verið tekin undanfarið í að bæta skilvirkni opinberrar þjónustu og aðgengi almennings að henni, ekki síst með stafrænni þróun hins opinbera. Heimsfaraldur kórónuveiru hefur haft í för með sér þörf fyrir hraðar umbreytingar á opinberri þjónustu sem kröfðust nýsköpunar af hálfu opinberra aðila og samstarfs við almenning og fyrirtæki í landinu.

    29. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Norrænt samstarf, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Norðurlöndin komi tvíefld út úr heimsfaraldrinum

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra fundaði í dag með norrænum fjármálaráðherrum í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Helsta umræðuefni fundarins var hvernig tryggja megi að Norðurlöndin komist sem fyrst og með sem farsælustum hætti út úr þeim vanda sem leiðir af heimsfaraldri kórónuveiru.

    29. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddi leiðir að öflugum efnahagsbata á ráðherrafundi OECD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra tók þátt í ráðherrafundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í dag og í gær. Meginefni fundarins var að ræða leiðir að öflugum og grænum efnahagsbata sem sé sem flestum til hagsbóta.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Um fjórðungur allra skatttekna og tryggingagjalda fer til almannatrygginga

    Sífellt aukinn hluti verðmætasköpunar hagkerfisins rennur til tilfærslukerfa og fjárframlaga ríkissjóðs sem hafa verið í stöðugum vexti síðustu ár. Í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag í ríkisstjórn um framlög til almannatrygginga (að frátöldum atvinnuleysisbótum) kemur fram að þau hafa nær tvöfaldast frá árinu 2013 miðað við verðlag hvers árs og nema nú 642 þúsund krónum á hvern landsmann aldrinum 18-67 ára.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Dómsmálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Erlendir sérfræðingar geti unnið í fjarvinnu á Íslandi

    Ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa lagt fram minnisblað fyrir ríkisstjórn um aðgerðir til þess að gera erlendum ríkisborgurum sem eru utan EES kleift að dvelja á Íslandi í allt að sex mánuði og stunda vinnu sína hjá erlendum fyrirtækjum í fjarvinnu. Með breytingunni verður þeim ríkisborgurum, sem eru undanþegnir áritunarskyldu, heimilt að sækja um langtímavegabréfsáritun á Íslandi fyrir starfsmenn í fjarvinnu og fjölskyldur þeirra án þess að þurfa að flytja lögheimili til landsins eða fá kennitölur.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Landsarkitektúr upplýsingaöryggis í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sett drög að landsarkitektúr upplýsingaöryggis opinberra aðila inn í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 12. nóvember nk.

    23. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fitch, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fitch Ratings staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með neikvæðum horfum

    Fitch Ratings birti í dag mat á lánshæfi ríkissjóðs. Langtímaeinkunnir í innlendri og erlendri mynt eru óbreyttar og standa í A. Horfur eru neikvæðar.

    23. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýting efnahagsúrræða stjórnvalda vegna heimsfaraldurs

    Ríkisstjórnin hefur frá því heimsfaraldur kórónuveiru hófst kynnt úrræði sem ætlað er styðja við efnahagslega vörn, vernd og viðspyrnu heimila og fyrirtækja. Úrræðin geta falið í sér bein útgjöld fyrir ríkissjóð, líkt og í tilfelli hlutabóta eða greiðslu launa á uppsagnarfresti, tilfærslu tekna milli ára eða ábyrgðir sem geta raungerst síðar sem kostnaður fyrir ríkissjóð. Hér á eftir er farið yfir stöðu nýtingar úrræðanna. tingar úrræðanna.

    23. okt. 2020Covid-19, Nýsköpun, Orka, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Evrópusamvinna, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra á fundi viðskiptaráðherra innan EES: „Samkeppni er hvati nýsköpunar“

    „Nýsköpun þarf að vera kjarni nýrrar efnahagsstefnu því hún er lykillinn að sjálfbærum hagvexti til lengri tíma. Samkeppni og nýsköpun eru samofin. Án virkrar samkeppni er takmarkaður hvati til nýsköpunar,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra

    22. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Landbúnaður, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Auka þarf nákvæmni í skjölun og eftirfylgni tollafgreiðslu vegna innfluttra landbúnaðarafurða

    ann 24. september 2020 skipaði fjármála- og efnahagsráðuneytið starfshóp til að skoða hvort misræmi væri að finna milli magns í útflutningstölum úr gagnagrunni Evrópusambandsins og innflutningstölum Hagstofu Íslands vegna ákveðinna tegunda landbúnaðarvara, þ.e. nautakjöts, svínakjöts, kjúklingakjöts og mjólkurafurða. Starfshópurinn hefur nú skilað minnisblaði til ráðherra en þar er meðal annars bent á að auka þurfi nákvæmni í skjölun og eftirfylgni tollafgreiðslu á Íslandi en það myndi minnka til muna mögulegt misræmi í gögnum um innflutning landbúnaðarafurða.

    20. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddi hugmyndir um loftslagsgjöld á fundi OECD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í dag þátt í fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um sjálfbæra þróun þar sem m.a. var rætt um hugmyndir um loftslagsgjöld á landamærum vegna innflutnings frá svæðum sem leggja ekki á kolefnisgjöld eða losunarkvóta og nýtingu gjaldanna í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Hugmyndir um slík gjöld eru til skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evópusambandsins.

    20. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ferli við birtingu auglýsinga á Starfatorg.is stafvætt

    Hagkvæmni eykst með stafvæðingu ferlis við birtingu starfaauglýsinga á vefnum Starfatorg.is sem nú er komið í virkni. Á Starfatorgi eru birtar auglýsingar um laus störf hjá ríkinu og árlega birtast að jafnaði á þriðja þúsund auglýsingar á vefnum.

    16. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Tekjufallsstyrkir samþykktir í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Frumvarpinu er ætlað að aðstoða einyrkja og litla rekstraraðila sem hafa orðið fyrir verulegum tekjumissi og er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr tjóni vegna faraldursins og leggja grunn fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfar hans.

    12. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fundaði með alþjóðlegum vettvangi fjármálaráðherra um loftslagsmál

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fundaði í dag með alþjóðlegum vettvangi fjármálaráðherra um loftslagsmál, sem ætlað er að hvetja til aðgerða í loftslagsmálum í krafti regluverks og ákvarðana á sviði ríkisfjármála og fjármálamarkaðar. Þetta er fjórði fundur vettvangsins, en hann var haldinn í tengslum við haustfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fram fer þessa dagana.

    09. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framhald á lokunarstyrkjum

    Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi breytingar á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru með það fyrir augum að tryggja framhald á lokunarstyrkjum til rekstraraðila sem gert er að sæta lokun á starfsemi eða stöðva hana frá 18. september 2020.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband