06. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Ræður og greinar
Ræða fjármála- og efnahagsráðherra á ársfundi Landsvirkjunar 5. mars 2024
06 mars 2024
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ræða fjármála- og efnahagsráðherra á ársfundi Landsvirkjunar 5. mars 2024
Ágætu stjórnendur og aðrir starfsmenn Landsvirkjunar, góðir gestir
Það er mér sönn ánægja að ávarpa ársfund Landsvirkjunar, nú sem fjármála- og efnahagsráðherra, en þegar ég ávarpaði ársfund Landsvirkjunar síðast, fyrir fimm árum, var ég með orkumálahattinn.
Áður en lengra er haldið langar mig til að óska fyrirtækinu, starfsfólki þess, og eigendum þess, til hamingju með sterka rekstrarniðurstöðu sem kynnt var í dag