Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 901–950 af 1862
    Raða eftir:
    25. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherra undirritar nýjan samning við Hnattræna jafnréttissjóðinn

    Árlegt framlag Íslands til Hnattræna jafnréttissjóðsins (Global Equality Fund, GEF) verður tvöfaldað með nýjum samningi sem utanríkisráðherra undirritaði á föstudag. Sjóðurinn beinir stuðningi sínum að mannréttindum hinsegin fólks um allan heim.

    22. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland veitir 130 milljónum í efnahagslega neyðaraðstoð við Úkraínu

    Íslensk stjórnvöld mun veita alls 130 milljónum króna í sérstakan sjóð Alþjóðabankans í efnahagslega neyðaraðstoð við Úkraínu, eða því sem nemur alls einni milljón Bandaríkjadala. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti um viðbótarframlag Íslands til sjóðsins á ráðherrafundi um stuðning við Úkraínu í gær sem haldinn var í tengslum við vorfundi Alþjóðabankans í Washington.

    21. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Öryggis- og varnarmál í brennidepli í Washington

    Samstarf Íslands og Bandaríkjanna og áhrif innrásar Rússlands í Úkraínu á öryggis- og varnarmál í Evrópu voru til umræðu á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með háttsettum embættismönnum í bandaríska stjórnkerfinu í gær og í dag.

    12. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fulltrúar bandaríska sjóhersins og Atlantshafsbandalagsins funduðu með utanríkisráðherra

    Utanríkisráðherra fundaði í dag með Eugene Black aðmírál 6. flota bandaríska sjóhersins og Daniel W. Dwyer, yfirmanni herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk. Black er stjórnandi varnaræfingarinnar Norður-Víkings sem nú stendur yfir en Dwyer er þátttakandi í henni sem fulltrúi Atlantshafsbandalagsins.

    11. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 í Hvalfirði

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 náði hápunkti í dag með æfingu landgönguliða í Hvalfirði. Fjölmenni fylgdist með æfingunni, þar á meðal fulltrúar ríkisstjórnarinnar og yfirmenn í herafla Bandaríkjanna.

    11. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á fundi utanríkisráðherra ESB

    Utanríkisráðherrar Íslands og Noregs voru sérstakir gestir á fundi utanríkisráðherraráðs Evrópusambandsins í Lúxemborg í dag og áttu auk þess tvíhliða fund með Josep Borrell, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins.

    08. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með ráðamönnum í Litháen

    Öryggis og varnarmál, einkum í tengslum við innrás Rússlands í Úkraínu, og söguleg tengsl Íslands og Litháen, voru efst á baugi í vinnuferð Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í Vilníus í dag.

    07. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Rússland svipt þátttökurétti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag ályktun um að fella niður þátttökurétt Rússlands vegna setu þeirra í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í ljósi alvarlegra og kerfisbundinna mannréttindabrota í tengslum við stríðið í Úkraínu. Ísland var á meðal þeirra ríkja sem lögðu ályktunina fram í allsherjarþinginu. Alls kusu 93 aðildarríki með ályktuninni, 24 voru á móti henni og 58 ríki sátu hjá. Í framhaldi af ákvörðun allsherjarþingsins ákvað Rússland að segja sig frá setu í ráðinu.

    07. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO

    Utanríkisráðherrar NATO funduðu í Brussel

    Stríðið í Úkraínu var í forgrunni tveggja daga fundar utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, ávarpaði fundinn en auk hans tóku þátt utanríkisráðherrar frá öðrum ríkjum sem eiga í samstarfi við Atlantshafsbandalagið.

    05. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Frakklands ræddu stríðið í Úkraínu

    Úkraína var í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og á sameiginlegum fundi þeirra með utanríkisráðherra Frakklands sem fram fór í Berlín í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundunum með fjarfundarbúnaði.

    05. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styður við móttöku flóttamanna í Moldóvu

    Íslensk stjórnvöld tilkynntu í dag um 50 milljóna króna framlag til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til að bregðast við álagi á innviði í Moldóvu vegna komu flóttamanna frá Úkraínu.

    02. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Nýsköpun, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði ársfund Íslandsstofu

    Nýsköpun og tækniþróun, hlutverk Íslandsstofu til stuðnings íslensku atvinnu- og menningarlífi og mikilvægi sköpunarkraftsins voru til umfjöllunar í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á ársfundi Íslandsstofu sem haldinn var í Grósku í gær. Á ársfundinum var farið yfir starfsemi stofnunarinnar á liðnu ári og markaðsáherslur framundan.

    31. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland veitir 400 milljónum í neyðaraðstoð í Afganistan

    Utanríkisráðherra tilkynnti um samtals 400 milljóna króna framlag Íslands til neyðaraðstoðar í Afganistan á fjáröflunarfundi Sameinuðu þjóðanna í dag. Þar af er 360 milljóna króna framlag fyrir tímabilið 2022-2024 sem skiptist milli Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þá tilkynnti ráðherra einnig um fjörtíu milljóna króna framlag til Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Um er að ræða áherslustofnanir Íslands í mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu og lykilstofnanir í verkefnum Sameinuðu þjóðanna í Afganistan.

    31. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurslóðamálin til umræðu á opnum fundi á Akureyri

    Utanríkisráðuneytið efndi til opins fundar um málefni norðurslóða í Háskólanum á Akureyri í dag. Fundurinn er mikilvægur liður í að efla innlent samráð og samstarf um málefni norðurslóða og markar upphafið að gerð framkvæmdaáætlunar fyrir stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

    31. mar. 2022Utanríkismál, Alþjóðamál, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sendiherra Noregs heimsótti matvælaráðherra

    Matvælaráðherra Svandís Svavarsdóttir tók á móti Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs í vikunni.

    30. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Nýsköpun og öryggismál efst á baugi í opinberri heimsókn til Finnlands

    Vinátta og samskipti Íslands og Finnlands, samvinna á sviði nýsköpunar og öryggismála og stríðið í Úkraínu voru í brennidepli í opinberri heimsókn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra til Finnlands.

    30. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    30 ára stjórnmálasamband Íslands og Úkraínu

    Í dag, 30. mars, eru þrjátíu ár frá því Ísland og Úkraína tóku upp formlegt stjórnmálasamband, en það var gert að tillögu ríkisstjórnar Úkraínu í framhaldi af viðurkenningu Íslands á sjálfstæði og fullveldi Úkraínu.

    29. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Nýsköpun, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundur Íslands og Finnlands í tilefni af 75 ára stjórnmálasambandi

    75 ára stjórnmálasamband Íslands og Finnlands, samstarfstækifæri í grænum orkulausnum og stríðið í Úkraínu voru meðal helstu umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands, í Helsinki í dag.

    25. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Norrænir ráðherrar á Cold Response-æfingunni

    Varnarmálaráðherrar Noregs, Finnlands, Svíþjóðar og utanríkisráðherra Íslands fylgdust í dag með varnaræfingunni Cold Response 2022 sem nú stendur yfir í Norður-Noregi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir einhug ríkja á meðal Norðurlanda um að efla samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála enn frekar, í ljósi gerbreyttrar stöðu öryggismála. ​

    25. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Loftferðasamningur Íslands og Chile undirritaður í Osló

    Loftferðasamningur milli Íslands og Chile var undirritaður í gær í Osló. Samningurinn veitir afar víðtæk réttindi og tekur til áætlunarflugs milli ríkjanna án takmarkana á fjölda áfangastaða, flutningsmagni eða tíðni fluga.

    24. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi NATO

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat í dag leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel, ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Tilefni fundarins var að ræða innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögð NATO í bráð og lengd. Eining var rætt um áframhaldandi stuðning við Úkraínu en Volodomír Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundabúnað.

    23. mar. 2022Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skýrsla um stöðu Norðurlanda eftir heimsfaraldurinn

    Skýrsla Nordregio um stöðu Norðurlanda (State of the Nordic Region 2022) var birt í dag á degi Norðurlandanna.

    22. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 á Íslandi

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 fer fram á Íslandi og á hafinu í kringum landið dagana 2.-14. apríl næstkomandi. Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir sjóleiða umhverfis Ísland og mikilvægra öryggisinnviða en einnig leit og björgun á sjó og landi. Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja.

    22. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Borgaraþjónusta, Kosningar

    Sveitarstjórnarkosningar 2022: Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis og skráning námsmanna á Norðurlöndum á kjörskrá

    Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 14. maí nk. Hægt verður að kjósa hjá sendiskrifstofum Íslands og hjá ræðismönnum erlendis. Nánari upplýsingar um kosningu utan kjörfundar erlendis verður að finna á vef viðkomandi sendiráðs þegar nær dregur kosningunum.

    16. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrarnir ræddu viðbrögð vegna Úkraínu

    Stuðningur við Úkraínu og efling sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins var meginefni fundar varnarmálaráðherra bandalagsins sem fram fór í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sat fundinn fyrir hönd Íslands.

    16. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra tilkynnti um stuðning Íslands við Jemen

    Framlagsráðstefna til að tryggja lífsnauðsynlega mannúðaraðstoð fyrir almenna borgara Jemen var haldin í dag. Á slíkum ráðstefnum tilkynnir forsvarsfólk ríkja um viðbrögð við ákalli um neyðaraðstoð í tengslum við tiltekin verkefni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti að heildarframlög Íslands til stuðnings Jemen muni á þessu ári nema 125 milljónum króna.

    16. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Úkraína, Utanríkismál

    Rússlandi vísað úr Evrópuráðinu

    Ráðherranefnd Evrópuráðsins ákvað samhljóða á sérstökum aukafundi í dag að vísa Rússlandi formlega úr Evrópuráðinu. Ákvörðunin, sem tekur gildi í dag, er tekin á grundvelli þess að Rússland hafi með árás sinni á Úkraínu brotið gróflega gegn stofnsáttmála og grunngildum stofnunarinnar.

    15. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra undirritar rammasamninga við félagasamtök

    Utanríkisráðherra undirritaði í gær rammasamninga við fjögur íslensk félagasamtök sem starfa á sviði mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. Rammasamningarnir munu veita félagasamtökunum fyrirsjáanleika sem auðveldar skipulagningu verkefna og eykur viðbragðsflýti samtakanna, til dæmis þegar neyðarástand skapast.

    14. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Íslenskt sendiráð opnað í Varsjá

    Ákveðið hefur verið að íslenskt sendiráð verði stofnsett í Varsjá í Póllandi síðar á þessu ári. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti tillögu þess efnis á fundi ríkisstjórnarinnar síðastliðinn föstudag og kynnti utanríkismálanefnd málið í morgun. Hún átti í hádeginu fund með Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi, þar sem honum var greint frá áformunum.

    10. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál lögð fyrir Alþingi

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál var til umræðu á Alþingi í dag en skýrslan er sú fyrsta sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir leggur fram til Alþingis í embætti utanríkisráðherra. Ráðherra hóf ræðu sína á Alþingi á því að fjalla um horfur í alþjóðamálum. Þó svo að skýrslan miðist við almanaksárið 2021 var ekki hjá því komist að minnast á innrás Rússlands í Úkraínu og þá viðsjárverðu tíma sem við horfum nú fram á í öryggismálum í Evrópu.

    10. mar. 2022Rit og skýrslur, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra flytur Alþingi árlega skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál 10. mars. Skýrslan í ár miðast við almanaksárið 2021 en í þingskjalinu er að finna samantekt og það sem hæst ber.

    09. mar. 2022Úkraína, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkismál

    Sameiginleg yfirlýsing um aðgerðir gegn Rússlandi og Belarús á sviði íþrótta

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur undirritað sameiginlega yfirlýsingu ráðherra íþróttamála 37 ríkja um aðgerðir gegn Rússlandi og Belarús á sviði íþrótta vegna innrásarinnar í Úkraínu.

    09. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Hlé gert á samstarfi við Rússa á vettvangi Barentsráðsins og Norðlægu víddarinnar

    Aðildarríki Barentsráðsins (e. Barents Euro-Arctic Council, BEAC), að Rússlandi frátöldu, hafa birt sameiginlega yfirlýsingu þar sem innrás Rússlands í Úkraínu er harðlega fordæmd. Gert verður tímabundið hlé á samstarfi við Rússland á vettvangi ráðsins þar til annað verður ákveðið. Þá hafa Evrópusambandið, Noregur og Ísland birt sameiginlega yfirlýsingu á vettvangi samstarfsins um Norðlægu víddina (Northern Dimension) þar sem innrás Rússlands í Úkraínu er harðlega fordæmd. Ákvörðun er tekin um að meina Rússlandi þátttöku í starfsemi Norðlægu víddarinnar þar til annað verður ákveðið.

    08. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi og jafnrétti

    Kvenkyns utanríkisráðherrar funduðu um stöðu kvenna í Afganistan

    Staða kvenna og stúlkna í Afganistan var rædd á fjarfundi kvenkyns utanríkisráðherra í gær en fundurinn var haldinn að frumkvæði Marise Payne, utanríkis- og kvennamálaráðherra Ástralíu. Á fundinum hlýddu ráðherrarnir á erindi frá afgönskum mannréttindafrömuðum sem sögðu frá reynslu sinni og þeirri stöðu sem blasir við konum og stúlkum í Afganistan frá yfirtöku Talibana í ágúst á síðasta ári.

    08. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Norrænir utanríkisráðherrar einhuga í samstöðu með Úkraínu

    Utanríkisráðherrar Norðurlandanna komu saman á fjarfundi í dag til að ræða stöðu mála vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Ítrekuðu ráðherrarnir algjöra samstöðu með úkraínsku þjóðinni og lýstu áhyggjum af vaxandi neyð vegna hernaðar Rússa.

    08. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Jafnrétti, Löggæsla, Mannréttindi og jafnrétti

    Aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi ræddar á málstofu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna

    Samningsskuldbindingar Íslands vegna Istanbúl-samningsins, með sérstakri áherslu á stafrænt kynferðisofbeldi og þátttöku karla og drengja í forvarnarstarfi gegn kynbundnu ofbeldi, voru til umræðu á málstofu sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir á alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag.

    04. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Úkraína: Tæplega 300 milljónir króna frá íslenskum stjórnvöldum til mannúðaraðstoðar

    Utanríkisráðherra hefur tilkynnt um viðbótarframlög til mannúðaraðstoðar vegna Úkraínu að heildarupphæð eina milljón evra, eða um 145 milljónum íslenskra króna. Framlagið skiptist milli þriggja samstarfsaðila íslenskra stjórnvalda.

    04. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu um Úkraínu

    Viðbrögð Atlantshafsbandalagsins vegna innrásar Rússlands í Úkraínu voru í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, sem sat fundinn, segir samstöðu bandalagsþjóðanna eindregna.

    04. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Úkraína, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra lýsti áhyggjum af mannréttindum í Úkraínu vegna innrásar Rússa

    Stuðningur íslenskra stjórnvalda við úkraínsku þjóðina var ítrekaður og innrás Rússlands harðlega fordæmd í myndbandsávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna. Tveggja daga sérstakri umræðu sem fram fór í ráðinu um stöðu mannréttinda í Úkraínu lauk í dag.

    04. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Rússlandi meinuð þátttaka í starfsemi Eystrasaltsráðsins

    Utanríkisráðherrar aðildarríkja Eystrasaltsráðsins (e. Council of the Baltic Sea States, CBSS) og háttsettur fulltrúi ESB á sviði utanríkismála hafa samþykkt sameiginlega yfirlýsingu þar sem tekin er ákvörðun um að meina Rússlandi þátttöku í allri starfsemi Eystrasaltsráðsins þar til annað verður ákveðið. Sama gildir um Belarús sem er áheyrnaraðili að ráðinu.

    03. mar. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Norræna ráðherranefndin stöðvar samstarf sitt við Rússland

    Norrænu samstarfsráðherrarnir fordæma harðlega tilhæfulausa og óverjandi innrás Rússlands í Úkraínu sem stríðir gegn þjóðarrétti. Hernaðaraðgerðir Rússlands eru árás á öryggi í Evrópu. Norrænu löndin standa sameinuð við bakið á Úkraínu og úkraínsku þjóðinni.

    03. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þórir Guðmundsson til fjölþjóðaliðsins í Litáen

    Þórir Guðmundsson fréttamaður hefur verið ráðinn til starfa, sem upplýsingafulltrúi (e. Public Affairs Officer), á vegum utanríkisráðuneytisins, hjá fjölþjóðaliði Atlantshafsbandalagsins í Rukla í Litáen (NATO enhanced Forward Presence).

    03. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál, Úkraína

    Hernaði Rússlands mótmælt á vettvangi Norðurskautsráðsins

    Aðildarríki Norðurskautsráðsins, utan Rússlands, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem tilefnislaus innrás Rússlands í Úkraínu er fordæmd. Í ljósi grófra brota Rússlands á alþjóðalögum munu fulltrúar ríkjanna ekki ferðast til Rússlands á fundi Norðurskautsráðsins, en Rússland fer nú með formennsku í ráðinu. Þá verði gert tímabundið hlé á þátttöku í öllum fundum ráðsins og undirstofnana þess.

    01. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Eindrægni hjá NB8-ráðherrum vegna Úkraínu

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja lýstu yfir samstöðu og stuðningi við Úkraínu á fundi sínum sí dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.

    01. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Sendiherra Úkraínu átti fund með utanríkisráðherra

    Ástandið í Úkraínu og framlag Íslands til úkraínsku þjóðarinnar voru umfjöllunarefnið á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Olgu Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, í utanríkisráðuneytinu í dag.

    01. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál, Atvinnuvegaráðuneytið, Skólar GRÓ

    Rúmlega fimmtán hundruð sérfræðingar frá þróunarríkjum útskrifaðir frá GRÓ skólunum

    Tuttugu og sjö sérfræðingar á sviði sjávarútvegs- og fiskimála, frá sextán löndum í Afríku, Asíu, Eyjaálfu og Mið-Ameríku, útskrifuðust frá Sjávarútvegsskóla GRÓ í dag. Eftir útskriftina hefur heildarfjöldi útskrifaðra sérfræðinga frá skólunum fjórum sem starfa á vegum GRÓ Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu farið yfir fimmtán hundruð manna markið, en alls er fjöldinn 1.513.

    28. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi og jafnrétti, Úkraína

    Utanríkisráðherra áréttaði stuðning við Úkraínu í ávarpi í mannréttindaráðinu

    Mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi og alþjóðalög bar hæst í ávarpi utanríkisráðherra við upphaf 49. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag.

    28. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Íslensk stjórnvöld lögðu til fraktflug til aðstoðar Úkraínu

    Fraktflutningavél á vegum íslenskra stjórnvalda flutti búnað til notkunar í Úkraínu í nótt. Flogið var frá Slóveníu í samvinnu við þarlend yfirvöld til áfangastaðar nálægt landamærum Úkraínu.

    25. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Úkraína

    Utanríkisráðherra á fundi útflutnings- og markaðsráðs

    Ástandið í Úkraínu og mikilvægi friðar og alþjóðalaga voru helstu umfjöllunarefni í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á fundi útflutnings- og markaðsráðs í dag. Fundurinn fór fram í húsakynnum Íslandsstofu í Grósku.

    24. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Vín, Utanríkismál, Úkraína

    Árás Rússlands á Úkraínu fordæmd á vettvangi ÖSE og NORDEFCO

    Hernaður Rússlands gegn Úkraínu var umfjöllunarefni funda sem fram fóru í dag á vettvangi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og norræna varnarsamstarfsins NORDEFCO. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra lagði áherslu á að árásirnar væru brot á alþjóðalögum um leið og hún áréttaði samstöðu með úkraínsku þjóðinni.

    • First
    • Prev
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • 21
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband