Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 851–900 af 3013
    Raða eftir:
    31. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um atvinnusjúkdóma og rétt til bóta

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem fjallar um bótaskylda atvinnusjúkdóma. Markmiðið er að tryggja þeim bætur sem eru slysatryggðir og greinast með atvinnusjúkdóm, óháð tekjum viðkomandi. Með reglugerðinni er fylgt eftir breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga sem samþykktar voru á Alþingi í júní 2021.

    30. jan. 2023Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Geðheilbrigðismál: Stefna til 2030 og aðgerðaáæptlun 2023-2027

    janúar 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Geðheilbrigðismál: Stefna til 2030 og aðgerðaáæptlun 2023-2027 Geðheilbrigðismál: Stefna til 2030 og aðgerðaáætlun 2023-2027 Sjá einnig: Þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til 2030 Þingsályktun um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027

    27. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Norræn ráðstefna um geðheilbrigðismál þann 23. mars 2023 í Hörpu

    Í tilefni af formennskuári Íslands í norrænu ráðherranefndinni mun heilbrigðisráðuneytið halda ráðstefnu um geðheilbrigðismál þann 23. mars 2023 í Hörpu.

    25. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið

    Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu 2023lausir til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu.

    25. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Breytingar á lögum um réttindi sjúklinga

    Birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga. Þar eru lagðar til breytingar sem fela meðal annars í sér styrkingu á þeirri meginreglu að beiting nauðungar í heilbrigðisþjónustu sé óheimil.

    24. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Leggja til breytingar á vottorðagerð

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að gera drög að reglugerð um vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur heilbrigðisstarfsmanna, ásamt því að gera tillögur um breytingar á verklagi sem stuðlar að skilvirkari vottorðagerð hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum.

    17. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    780 milljónir í sérstök framlög til geðheilbrigðisþjónustu í kjölfar Covid-19

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið hvernig háttað verði úthlutun rúmlega 260 milljóna króna af fjárlögum þessa árs til ýmissa heilsufarslegra aðgerða til að vinna gegn neikvæðum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Fjármagnið verður nýtt til að efla þriðja stigs geðheilbrigðisþjónustu og efla skólaheilsugæslu. Framlagið er veitt tímabundið til þriggja ára og nemur í heild rúmum 780 milljónum króna.

    16. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt sjúkrahússapótek á Akureyri tekið í notkun á árinu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri 80 milljónir króna sem gerir kleift að ljúka framkvæmdum við nýtt sjúkrahússapótek spítalans. Framlagið kemur til viðbótar 120 milljónum króna sem ráðherra tryggði til verkefnisins í fyrra. Framkvæmdir hafa gengið vel og er þess vænst að hægt verði að ljúka þeim og hefja starfsemi í nýju sjúkrahússapóteki á þessu ári.

    13. jan. 2023Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Bráðaþjónusta á Íslandi. Núverandi staða og framtíðarsýn

    janúar 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Bráðaþjónusta á Íslandi. Núverandi staða og framtíðarsýn Bráðaþjónusta á Íslandi

    13. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    39 tillögur viðbragðsteymis að umbótum í bráðaþjónustu á landsvísu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu í ágúst síðastliðnum. Hlutverk þess var að setja fram tímasetta áætlun til næstu ára um breytingar og umbætur í bráðaþjónustu um allt land. Teymið hefur nú skilað ráðherra umfjöllun sinni um umbætur með 39 tillögum um aðgerðir til skemmri og lengri tíma.

    12. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigurður H. Helgason er nýr forstjóri Sjúkratrygginga Íslands

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigurð H. Helgason í embætti forstjóra Sjúkratrygginga Íslands frá 1. febrúar næstkomandi. Skipunin er gerð á grundvelli heimildar í 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og Sigurður fluttur úr embætti skrifstofustjóra í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Sigurður tekur við embættinu af Maríu Heimisdóttur sem hefur gegnt embætti forstjóra frá árinu 2018 en hefur nú ákveðið að láta af störfum.

    11. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Íslandi tryggð aðild að sameiginlegum innkaupum Evrópusambandsins í heilsuvá

    Með nýrri reglugerð Evrópusambandsins og Evrópuráðsins hefur Íslandi, ásamt öðrum ríkjum EFTA, verið tryggð bein aðild að sameiginlegum innkaupum Evrópusambandsins á lyfjum, lækningavörum og öðrum mikilvægum heilbrigðisaðföngum ef heilbrigðisvá steðjar að þvert á landamæri. Ísland verður þannig virkur þátttakandi í neyðar- og viðbragðsstjórnun Evrópusambandsins (HERA) sem styrkir stöðu þess varðandi öflun, innkaup og afhendingaröryggi aðfanga þegar þjóðir þurfa að bregðast sameiginlega við heilbrigðisvá.

    11. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gjaldskrárbreytingar í heilbrigðisþjónustu um áramót

    Greiðslur til sjúkratryggðra og gjöld sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu hækkuðu almennt 1. janúar sl. um 10,6% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlaga. Þannig hækkuðu meðal annars sjúkradagpeningar og bætur slysatrygginga um 10,6%. Aftur á móti helst greiðsluþáttaka vegna lyfjakostnaðar óbreytt ásamt komugjöldum í heilsugæslu. Einnig er haldið áfram með lækkun greiðsluþáttöku lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu.

    11. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Úthlutaði 30 milljónum kr. í styrki til að vinna gegn fíknisjúkdómum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 30 milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum. Alls hlutu fjögur félagasamtök styrki til sex skilgreindra verkefna.

    10. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ekki ástæða til aðgerða vegna útbreiðslu Covid-19 í Kína

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar á föstudag minnisblað sóttvarnalæknis til ráðherra um möguleg áhrif útbreiðslu Covid-19 í Kína hér á landi. Að mati sóttvarnalæknis mæla fagleg rök ekki með því að taka upp aðgerðir á landamærum hér til að vernda lýðheilsu og heldur ekki aðgerðir sem beinist sérstaklega að Kína sem brottfararlandi.

    06. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hjúkrunarrýmum í Reykjanesbæ fjölgað um 20 umfram fyrri áætlun

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ hafa undirritað samning um að bæta einni hæð við nýtt hjúkrunarheimili sem reist verður við hlið hjúkrunarheimilisins Nesvalla. Fyrsta skóflustunga að nýja heimilinu var tekin í maí síðastliðnum. Þá var gert ráð fyrir að það yrði fyrir 60 íbúa en með þessari breytingu fjölgar rýmunum um 20.

    06. jan. 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 1/2023

    Kærð var ákvörðun Lyfjastofnunar vegna umsóknar um undanþágu frá meginreglu lyfjalaga um tvo lyfjafræðinga að störfum á almennum afgreiðslutíma og álagstíma utan almenns afgreiðslutíma. Í málinu lá fyrir að Lyfjastofnun teldi hvern lyfjafræðing geta afgreitt um 20 þúsund lyfjaávísanir á ári, en færu afgreiðslur yfir 20 þúsund þyrftu tveir lyfjafræðingar að vera að störfum á tilteknum tímum. Samkvæmt gögnum málsins hafði apótek kæranda afgreitt 20.278 lyfjaávísanir árið 2021. Að mati ráðuneytisins hafði Lyfjastofnun ekki gætt að sjónarmiðum um skyldubundið mat við töku ákvörðunarinnar.…

    05. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp um leiðir til að jafna aðgengi landsmanna að ýmiskonar sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu. Liður í því er að gera tillögur um hvernig nýta megi sérstök ákvæði um ívilnum í lögum um Menntasjóð námsmanna til að styrkja mönnun heilbrigðisþjónustu, einkum í dreifðum byggðum. Markmiðið er að jafna aðgengi landsmanna að þjónustu sérfræðinga á heilbrigðissviði óháð búsetu. Aðgerð þessa efnis er skilgreind í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun til ársins 2036 sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið sumar.

    04. jan. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Tryggja bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir heimilislaust fólk

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 30 milljónum króna til að tryggja fólki sem er heimilislaust og með flóknar þjónustuþarfir betra aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

    30. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmörk á beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu

    Samráðshópur notenda sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um áformaðar breytingar á lögum um réttindi sjúklinga varðandi beitingu nauðungar hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Hópnum var falið að fjalla um frumvarp þessa efnis sem tvívegis hefur verið lagt fram á Alþingi en ekki náð fram að ganga. Tillögur samráðshópsins miða allar að því að þrengja heimildir til beitingu nauðungar frá fyrra frumvarpi og setja auknar skorður miðað við framkvæmdina eins og hún er í dag. Hópurinn ítrekar þá meginreglu að fólk skuli ráða meðferð sinni sjálft og að dregið verði markvisst úr beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu.

    28. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Álag á bráðaþjónustu og viðbrögð til að mæta því

    Heilbrigðisráðuneytið fundaði í dag með fulltrúum Landspítala og helstu aðilum sem veita heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og á heilbrigðisstofnunum í Kraganum vegna álags á bráðaþjónustu þessa dagana. Rætt var um leiðir til að bregðast við stöðunni og farið yfir það helsta sem hefur verið gert í því skyni að undanförnu. Staðan á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum er þung um þessar mundir, einkum vegna útbreiddra veirusýkinga í öndunarfærum.

    28. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skipað í vísindasiðanefnd til næstu fjögurra ára

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað fulltrúa í vísindasiðanefnd til næstu fjögurra ára í samræmi við lög um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Hlutverk vísindasiðanefndar er að meta vísindarannsóknir á heilbrigðissviði til að tryggja að þær samræmist vísindalegum og siðfræðilegum sjónarmiðum. Nýr formaður nefndarinnar er Þorvarður Jón Löve.

    27. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verkefni um sérhæfða þjónustu í geðhjúkrunarrýmum Áss og Fellsenda framlengt

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja um eitt ár tilraunaverkefni sem miðar að því að styrkja faglega geðheilbrigðisþjónustu við einstaklinga í geðrýmum á hjúkrunarheimilunum Fellsenda í Dölum og Ási í Hveragerði. Verkefnið hófst fyrir rúmu ári og hefur að mati aðstandenda þess skilað góðum árangri.

    27. des. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Stuðningur við Okkar heim

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirrituðu um jólin styrktarsamning við góðgerðasamtökin Okkar heim. Markmiðið er að styðja við úrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda.

    23. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stuðningur við Bergið fyrir ungt fólk í vanda

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirrituðu í gær styrktarsamning við Bergið – Headspace, stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri.

    22. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigurður Kári skipaður skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigurð Kára Árnason í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu.

    21. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tæpum 330 milljónum króna varið til tækjakaupa vegna bráðaþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja 215 milljónum kr. af fjárlögum næsta árs til að bæta tækjabúnað vegna bráðaþjónustu á heilsugæslustöðum um allt land. Úthlutunin kemur til viðbótar tæpum 114 milljónum kr. sem úthlutað var til heilbrigðisstofnana fyrr á þessu ári vegna bráðaþjónustu á sjúkrahúsum. Markmiðið er að halda áfram að jafna aðgengi að bráðaþjónustu um allt land og gera heilbrigðisstofnunum betur kleift að veita þessa mikilvægu þjónustu á starfssvæðum sínum. Ákvörðunin er byggð á tillögum viðbragðsteymis um bráðaþjónustu.

    21. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast – aðgerðaáætlun komin í samráðsgátt

    Gott að eldast – drög að aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk – hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið með áætluninni er að ná að flétta saman þeirri þjónustu sem snýr að eldra fólki, hvort sem um ræðir heimaþjónustu á vegum sveitarfélaga eða heilbrigðisþjónustu – með það að leiðarljósi að það eigi að vera gott að eldast á Íslandi. Grunnhugmyndin er að þjónustan við eldra fólk sé veitt þegar hennar er þörf, á forsendum fólksins sjálfs og á réttu þjónustustigi.

    16. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Þingsályktun um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að tillögu Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til næstu fimm ára. Aðgerðaáætlunin byggist á ályktun Alþingis um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem þingið samþykkti í júní síðastliðnum. Í áætluninni er megináhersla lögð á forvarnir og snemmtæk úrræði, heildræna, samþætta og notendamiðaða þjónustu, notendasamráð og nýsköpun með bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu um allt land að leiðarljósi. Umsagnarfrestur er til 12. janúar næstkomandi.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að framtíðarfyrirkomulagi vegvísunar í heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að skipuleggja fyrirkomulag vegvísunar í heilbrigðiskerfinu til framtíðar. Markmiðið er að tryggja almenningi greiðar og aðgengilegar upplýsingar um hvert leita skuli eftir heilbrigðisþjónustu í samræmi við þörf og aðstæður hvers og eins hverju sinni. Horft er til þess að með samræmdri upplýsingagjöf og aukinni samvinnu þjónustuveitenda megi bæta þjónustu við sjúklinga og dreifa álagi á heilbrigðiskerfið. Fyrsti fundur starfshópsins var í dag.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Brúum bilið: Verkefni til að auka þátttöku og virkni fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Þrír ráðherrar undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um verkefnið „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“ en það miðar að því að efla íþróttaástundun fatlaðs fólks, ekki síst fatlaðra barna og ungmenna. Alls verður 60 milljónum króna veitt til verkefnisins sem er til þriggja ára. Yfirlýsinguna undirrituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

    15. des. 2022Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis. Skýrsla starfshóps

    desember 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis. Skýrsla starfshóps Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis - Skýrsla starfshóps

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta samræmt verklag um þjónustu við þau sem leita til heilbrigðisstofnana vegna kynferðisofbeldis hefur skilað niðurstöðum sínum. Markmiðið er að tryggja sem jafnast aðgengi þolenda að faglegri heilbrigðisþjónustu í slíkum málum, óháð búsetu, efnahag eða öðrum aðstæðum. Auk tillagna um samræmt verklag og skráningu er lögð til skipulögð fræðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem styður við rétt viðbrögð þess. Þetta getur skipt miklu máli fyrir líðan þolenda og jafnframt ef til málsmeðferðar kemur.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Stýrihópur um stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað stýrihóp um þróun og stefnumótun varðandi stafrænar lausnir og heilbrigðistækni í heilbrigðisþjónustu. Hópurinn verður samráðsvettvangur og ráðuneytinu til ráðgjafar við að móta stefnu og framtíðarsýn á þessu sviði.

    13. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Guðlaug Rakel ráðin tímabundið í verkefni hjá heilbrigðisráðuneytinu

    Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala hefur verið ráðin til tímabundinna verkefna hjá heilbrigðisráðuneytinu. Verkefnin sem hún mun vinna að snúa m.a. að mönnun í heilbrigðisþjónustu með áherslu á hjúkrun, gerð viðbragðsáætlana og stuðning við innleiðingu Evrópureglugerðar um heilbrigðisvár þvert á landamæri.

    13. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Samningur og samvinna um meðferð við endómetríósu

    13 desember 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Samningur og samvinna um meðferð við endómetríósu Stjórnarráðið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skrifar: Aðgangur að heilbrigðisþjónustu er réttlætismál og áherslumál ríkisstjórnarinnar. Það er mikilvægt að allir hafi jafnt aðgengi að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Aðgengi sé óháð kyni, stöðu, bakgrunni, efnahag og búsetu

    13. des. 2022Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Sálfræðiaðstoð vegna kynferðisofbeldis tryggð að lokinni skýrslutöku hjá lögreglunni

    Dómsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra starfa saman að því að tryggja brotaþolum kynferðisofbeldis viðeigandi stuðning hjá sálfræðingi að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu

    08. des. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 31/2022

    Í málinu hafði kærandi kært ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um niðurfellingu á lífeyri og þátttöku í dvalarkostnaði á hjúkrunarheimili. Ákvörðun tryggingastofnunar hvað varðar mánaðarlega þátttöku í dvalarkostnaði var staðfest. Hins vegar taldi ráðuneytið að skráning upphafs dvalar á hjúkrunarheimilinu hefði ekki verið í samræmi við lög. Skráningin hefði miðast við þann dag sem kæranda hefði verið boðið pláss á hjúkrunarheimilinu en ekki þann dag sem hann hefði flutt á heimilið, líkt og lög gerðu ráð fyrir. Þar sem dagsetning upphaf dvalar hefði áhrif á niðurfellingu lífeyris og þátttöku í dvalarkostnaði var sá hluti ákvörðunar tryggingastofnunar felldur úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka hann til nýrrar meðferðar.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um hækkun starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í samráð

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Ný reglugerð um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir tekur gildi 1. janúar 2023

    Heimilt verður að reka lyfjabúðir sem einungis starfrækja netverslun með lyf, lyfjabúðum verður heimilt að semja við þriðja aðila til að sinna afhendingu lyfja utan lyfjabúða og lán og sala lyfja á milli lyfjabúða verður heimiluð.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fræðsluefni um barneignarþjónustu fyrir verðandi foreldra af erlendum uppruna

    Heilbrigðisráðherra hefur veitt Fæðingarheimili Reykjavíkur þriggja milljóna króna styrk til að útbúa fræðsluefni um barneignarferlið sem miðar að bættri þjónustu við verðandi foreldra af erlendum uppruna.

    07. des. 2022Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Réttarfar, Heilbrigðisráðuneytið, Lög og réttur

    Greining unnin á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis

    Dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra í samvinnu við heilbrigðisráðherra hafa ákveðið að ráðast í greiningu á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis.

    05. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast – aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk

    Mörg hundruð manns fylgdust með opnum kynningarfundi félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra sem fram fór í dag um drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um þjónustu við eldra fólk. Ráðherrarnir kynntu enn fremur nafn verkefnisins: Gott að eldast.

    05. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Kynningarfundur: Aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk – bein útsending kl. 11.00

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra halda í dag, mánudaginn 5. desember, opinn fund þar sem kynnt verða drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um heildarendurskoðun þjónustu við eldra fólk. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér.

    30. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið við Klíníkina um aðgerðir vegna endómetríósu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem þar með hefur tekið gildi. Samningurinn kveður á um að þeir sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs. ​

    28. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir verkefni í þágu trans-barna og hinsegin fólks

    Heilbrigðisráðuneytið hefur hlotið rúmar fjórar milljónir króna úr Framkvæmdasjóði hinsegin málefna sem renna til tveggja afmarkaðra verkefna á Landspítala í þágu trans barna og hinsegin fólks. Annars vegar verður ráðist í rannsókn sem miðar að því að kortleggja þarfir og óskir hinsegin fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu transteymis Landspítala. Hins vegar er um að ræða þróunarverkefni á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) sem felst í því að undirbúa og koma á fót fræðsluhópi fyrir foreldra trans barna sem eru í þjónustu hjá transteymi BUGL.

    24. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Spornað við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis: Þórólfur Guðnason formaður starfshóps um verkefnið

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað þverfaglegan starfshóp til að móta framtíðarsýn og áætlun um aðgerðir til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnalæknir, er formaður hópsins. Þórólfur hefur verið ráðinn tímabundið til heilbrigðisráðuneytisins til að leiða verkefnið sem unnið er með matvælaráðuneyti og ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála.

    23. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk – kynningarfundur 5. desember

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra halda opinn kynningarfund 5. desember kl. 11–13 á hótel Hilton Nordica, þar sem kynnt verða drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um heildarendurskoðun þjónustu við eldra fólk. Í stuttum erindum verður sagt frá því hvernig á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu. Fundurinn er öllum opinn en óskað eftir því að þau sem ætli að mæta skrái sig fyrir fram. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

    22. nóv. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 30/2022

    Í málinu hafði kærandi kært málsmeðferð embættis landlæknis vegna álits embættisins um mistök og vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu. Byggði kærandi m.a. á því að tiltekinn starfsmaður embættisins hefði verið vanhæfur auk þess sem andmælaréttur hefði ekki verið virtur. Ráðuneytið hafði þegar tekið afstöðu til málsástæðna um hæfi og vísaði til fyrri úrskurða í málum kæranda. Þá var talið að kæranda hefði verið veitt fullnægjandi tækifæri til að koma að athugasemdum við meðferð kvörtunarinnar, en honum hafði t.a.m. verið send umsögn óháðs sérfræðings til athugasemda í tölvupósti og með ábyrgðarbréfi. Var málsmeðferð embættis landlæknis því staðfest.

    18. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Íslenskir læknanemar í Slóvakíu

    Heilbrigðisráðherra fylgdi forseta Íslands í opinberri heimsókn til Slóvakíu í lok október þar sem þeir kynntu sér meðal annars starfsemi Jessenius-læknadeildar Komeniusarháskólans í borginni Martin. Um 170 íslenskir læknanemar stunda þar nú nám. Fyrstu nemarnir skráðu sig til náms við deildina árið 2012 og frá þeim tíma hafa 79 íslenskir læknar útskrifast frá háskólanum.

    • First
    • Prev
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband