07. jún. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Heilbrigðisráðuneytið
Stjórn Tryggingastofnunar skipuð
Félags- og jafnréttismálaráðherra skipaði 19. maí síðastliðinn nýja stjórn Tryggingastofnunar ríkisins á grundvelli 3. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007 . Ráðherra skipaði Árna Pál Árnason, fyrrverandi ráðherra formann og Héðinn Svarfdal, verkefnastjóra hjá Landlækni varamann hans. Aðrir fulltrúar í stjórn voru tilnefndir af þingflokkum á Alþingi.