28. jún. 2017Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Vinnumál, Mannauðsmál ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Embætti Tollstjóra fyrst til að hljóta jafnlaunamerkið
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra afhenti í dag Snorra Olsen tollstjóra jafnlaunamerkið sem viðurkenningu um að embættið starfræki jafnlaunakerfi sem samræmist kröfum reglugerðar um vottun jafnlaunakerfa fyrirtækja og stofnana á grundvelli jafnlaunastaðalsins ÍST 85.