06. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19
Skýrsla um nýtingu úrræða í heimsfaraldri: Hátt í 40 milljarðar í beinan stuðning til heimila og fyrirtækja
Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma.kr. í beinan stuðning vegna heimsfaraldurs kórónuveiru að því er fram kemur í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu efnahagsúrræða vegna faraldursins. Þá hafa 19,5 ma.kr. farið í frestun skattgreiðslna, 20 ma.kr. í frestun aðflutningsgjalda auk þess sem 6,6 ma.kr. hafa verið lánaðir með ríkisábyrgð. Heimilin munu auk þess hafa fengið fyrirframgreiddan um 21 ma.kr. úr séreignarsparnaði fyrir árslok.