Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 751–800 af 908
    Raða eftir:
    14. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Dregið úr takmörkunum á samkomum og skólahaldi frá 4. maí

    Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í dag næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi. Breytingarnar taka gildi 4. maí. Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt verður að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunun, fjöldamörk samkomubanns verða hækkuð úr 20 í 50 manns, heimilt verður að hefja á ný ýmsa þjónustu, s.s. á hárgreiðslu- nudd- og snyrtistofum, tannlæknar geta tekið til starfa og söfn geta opnað á ný fyrir viðskiptavinum sínum. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem gerð er ýtarleg grein fyrir hér á eftir.

    14. apr. 2020Neytendamál, Ferðaþjónusta, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Norrænu ríkin þétta raðirnar eftir COVID-19

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fundaði með norrænum viðskiptaráðherrum til að ræða þver-norræna nálgun á leiðir til að efla viðskipti, ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar, þjónustugreinar og nýsköpunarmiðuð fyrirtæki á Norðurlöndunum í kjölfar COVID-19 faraldursins.

    08. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Náin samvinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna vegna COVID-19 heldur áfram

    Á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) sem fram fór í morgun kom fram skýr vilji til áframhaldandi náins samstarfs þessara ríkja við þær aðstæður sem nú eru uppi.

    08. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg styðja við úrræði fyrir fólk í húsnæðisvanda vegna Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið mun fjármagna tímabundnar lausnir fyrir þá sem ekki hafa í nein hús að venda vegna COVID-19 faraldursins í samstarfi við Reykjavíkurborg.

    08. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi fram: 27. mars sl. birtist á vef ráðuneytisins tilkynning um að Alþingi hefði samþykkt að hækkun sem samkvæmt lögum skyldi taka gildi 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. janúar 2021. Um var að ræða breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru.

    08. apr. 2020Kosningar, Dómsmálaráðuneytið, Covid-19

    Unnið að rafrænni skráningu meðmælendalista vegna forsetakosninga 2020

    Í ljósi þess ástands sem nú ríkir í samfélaginu vegna COVID-19 farsóttarinnar, m.a. vegna samkomubanns sem framlengt hefur verið til og með 3. maí nk., vinnur dómsmálaráðuneytið að því að unnt verði að bjóða upp á rafræna skráningu á meðmælendalista vegna forsetakosninga sem fram fara þann 27. júní 2020.

    07. apr. 2020Covid-19, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Félagsmálaráðuneytið leggur til að aðalfundum húsfélaga verði frestað um allt að sex mánuði vegna samkomubanns

    Frestun aðalfunda húsfélaga samkvæmt fjöleignarhúsalögum, nr. 26/1994, vegna COVID-19.

    07. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Sækja lækningavörur frá Kína

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið við Icelandair um að sækja pöntun af hlífðarbúnaði fyrir heilbrigðisstarfsmenn til Kína.

    07. apr. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Sýslumenn, Lög og réttur

    Aukning í rafrænni þjónustu sýslumanna

    Dómsmálaráðuneytið vekur athygli á því að hjá sýslumönnum hefur undanfarið átt sér stað mikil vinna við að bæta þjónustu embættanna, m.a. með auknu framboði rafrænna eyðublaða.

    07. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    WHO: Skýrsla um stöðu hjúkrunar um víða veröld

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO birti í dag viðamikla skýrslu um stöðu hjúkrunar á heimsvísu. Útgáfa skýrslunnar ber upp á alþjóðaheilbrigðisdaginn, 7. apríl, sem stofnunin tileinkar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Samkvæmt ákvörðun WHO er raunar allt þetta ár helgað þessum mikilvægu heilbrigðisstéttum. Markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er að vekja athygli á störfum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og stuðla að því að störf þeirra séu metin að verðleikum.

    07. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Ráðherra beinir tilmælum til Vinnumálastofnunar um að víkja frá aldursskilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur beint þeim tilmælum til Vinnumálastofnunar að hún víki frá aldursskilyrðum þegar sótt er um atvinnuleysibætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli.

    07. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir, Covid-19

    Aukin fjárfesting á Suðurnesjum

    Í samræmi við heimildir í fjáraukalögum fyrir árið 2020 hefur fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að auka við hlutafé Isavia ohf. um 4 milljarða króna með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

    06. apr. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19, Menntun fyrir alla, Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Atvinnumál, menntaúrræði og aðgerðir fyrir atvinnuleitendur og námsmenn

    Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hafa stofnað samhæfingarhóp sem skal skoða stöðu atvinnuleitenda og námsmanna og atvinnu- og menntaúrræði þeirra við þær breyttu aðstæður sem nú eru uppi í íslensku samfélagi. Verkefni hópsins er m.a. að:

    06. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19

    Óvíst með möguleika á heimkomu eftir páska

    Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur vakið athygli á því við Íslendinga sem staddir eru erlendis og hyggja á heimferð, að nýta sér ferðir Icelandair frá London og Boston næstu daga, auk flugferða frá Stokkhólmi á morgun, þriðjudag, og frá Alicante á Spáni á miðvikudag.

    06. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Almannaöryggi

    Fjarfundur forsætisráðherra og forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins áttu fjarfund í dag þar sem þær ræddu fyrst og fremst um heimsfaraldur COVID-19 og efnahagsleg áhrif hans.

    04. apr. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Traust á tímum kórónuveiru

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um mikilvægi trausts á erfiðum tímum eins og nú þegar COVID-19 faraldur geisar, í blaðagrein í dag.

    04. apr. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Traust á tímum kórónuveiru

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um mikilvægi trausts á erfiðum tímum eins og nú þegar COVID-19 faraldur geisar, í blaðagrein í dag.

    03. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Líf og heilsa, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Vaktaálagsauki hjúkrunarfræðinga á Landspítala tryggður

    Vaktaálagsauki sem hjúkrunarfræðingar á Landspítala hafa fengið vegna tilraunaverkefnis spítalans verður framlengdur til næstu mánaða og nauðsynlegar fjárveitingar tryggðar. Þetta kemur fram í bréfi sem fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra hafa sent forstjóra Landspítala vegna málsins.

    03. apr. 2020Innviðaráðuneytið, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti, Covid-19

    Lágmarks flugsamgöngur tryggðar með samningi við Icelandair

    Stjórnvöld hafa samið við Icelandair um flug til Evrópu og Bandaríkjanna en tilgangurinn er að tryggja lágmarks flugsamgöngur til og frá landinu.

    03. apr. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Útlendingar

    Réttur til dvalar lengdur vegna Covid-19

    Dómsmálaráðherra birti í dag nýja reglugerð sem tekur á dvöl þeirra útlendinga sem ekki hafa komist til síns heima frá 20. mars sl. vegna ferðatakmarkana, sóttkvíar eða einangrunar.

    03. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19

    Mikil ánægja með samstarf og samráð vegna COVID-19 á fundi norrænna utanríkisráðherra

    Mikilvægi norrænnar samvinnu og samráðs hefur sjaldan verið eins ljóst eins og á undanförnum vikum.

    03. apr. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Takmarkanir á skólahaldi framlengdar

    Tilkynnt hefur verið að takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem falla áttu úr gildi 13. apríl næstkomandi verði framlengdar til mánudagsins 4. maí.

    03. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Réttindavaktin fundar um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi vegna COVID-19

    Í vikunni fundaði Réttindavakt félagsmálaráðuneytisins og var farið yfir stöðu fatlaðs fólks á Íslandi í ljósi COVID-19.

    03. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Samkomubann framlengt til að hefta útbreiðslu Covid-19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur fjölgað hratt. „Nú skiptir öllu máli að við höldum áfram að standa saman sem einn maður, fylgja fyrirmælum okkar besta fagfólks og koma þannig í veg fyrir að álag á heilbrigðiskerfið fari yfir þolmörkin“ segir heilbrigðisráðherra.

    03. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Félags- og barnamálaráðherra styrkir félagasamtök um 55 milljónir í baráttunni við COVID-19

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur veitt 28 félagasamtökum styrki upp á samtals 55 milljónir króna sem lið í því að auka þjónustu við viðkvæma hópa sem verða fyrir áhrifum vegna COVID-19 faraldursins. Félagasamtökin veita mikilvæga þjónustu til ýmissa hópa í samfélaginu og eru styrkirnir ætlaðir til að aðstoða samtökin í að bregðast við auknu álagi í kjölfar COVID-19 faraldurins og styðja betur við skjólstæðinga sína almennt.

    03. apr. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19, Atvinnuvegir

    Sveinspróf verða haldin

    Mennta- og menningarmálaráðherra ásamt skólameisturum starfsmenntaskóla og umsýsluaðilum sveinsprófa hafa tekið saman höndum til að finna leiðir svo tryggja megi náms- og próflok hjá þeim sem nú stefna að sveinsprófum, þrátt fyrir tímabundnar lokanir skólabygginga og margra vinnustaða.

    03. apr. 2020Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19

    Heimilt að veita undanþágu frá skilum á kýrsýnum

    Með breytingunni verður ráðuneytinu heimilt við sérstakar aðstæður að veita undanþágu frá skilyrði um skila þurfi inn niðurstöðum kýrsýna (mjólkursýna) úr öllum mjólkandi kúm sem mjólkurframleiðendur skulu taka tvisvar sinnum í hverjum ársfjórðungi, til þess að þátttaka í afurðaskýrsluhaldi teljist fullnægjandi.

    02. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Yfir 1.000 skráðir í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar og 116 komnir til starfa

    Í dag, 2. apríl höfðu rúmlega 1.000 manns skráð sig á lista bakvarðasveitar heilbrigðisþjónustunnar. Á skrá eru einstaklingar úr 13 löggiltum heilbrigðisstéttum sem hafa boðið fram aðstoð sína. Stéttarfélögin hafa átt frumkvæði og lagt þessu máli lið, m.a. með því að kynna bakvarðasveitina meðal félagsmanna sinna. Nemar í læknisfræði og hjúkrunarfræði geta einnig skráð sig á lista bakvarðasveitarinnar og hafa þónokkrir liðsmenn bæst í bakvarðasveitina úr þeirra röðum.

    02. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál

    Gefa út góð ráð til foreldra á tímum COVID-19 faraldursins

    Félagsmálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og embætti landlæknis hafa tekið höndum saman við útgáfu góðra ráða til foreldra á tímum COVID-19 faraldursins. Foreldraráðin eru meðal annars unnin í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) og UNICEF.

    02. apr. 2020Annað, Brussel-vaktin, Covid-19, Utanríkisráðuneytið

    Aðgerðir vegna COVID-19

    Stefnumótun hjá Evrópusambandinu og starf fastanefndarinnar í Brussel við að gæta hagsmuna Íslands.

    01. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Utanríkismál, Heimasendiherrar

    Utanríkisráðherra ræðir Covid-19 faraldurinn við starfsbróður sinn í Singapore

    Hefur átt fjölmarga aðra síma- og fjarfundi við utanríkisráðherra annarra ríkja.

    01. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skatturinn með framkvæmd ýmissa úrræða sem tengjast heimsfaraldri kórónuveiru

    Efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru sem Alþingi hefur samþykkt fela í sér margs konar ráðstafanir sem hafa það að markmiði að tryggja afkomu fólks og fyrirtækja, verja grunnstoðir samfélagsins og skapa öfluga viðspyrnu fyrir efnahagslífið. Hluti þeirra snýr að ýmsum opinberum sköttum og gjöldum, svo sem hækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts, greiðslufresti vegna aðflutningsgjalda, frestun gjalddaga, niðurfellingu gistináttaskatts o.fl.

    01. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Horft verði fram hjá kröfum um ávöxtun og arðgreiðslur á árinu 2020

    Í ljósi þeirra aðstæðna sem leiða af heimsfaraldri COVID-19, m.a. viðbrögðum markaðsaðila undanfarið, og með vísan til ákvæða eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki sendi fjármála- og efnahagsráðherra bréf til Bankasýslu ríkisins 20. mars sl. þar sem farið er fram á að Bankasýslan horfi fram hjá kröfum um ávöxtun og arðgreiðslur á árinu 2020 og að þessum skilaboðum verði komið áfram til stjórna fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins.

    01. apr. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Samkomulag um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem fá COVID-19

    Að tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, hafa Vinnumálastofnun og stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga gert samkomulag við Bændasamtök Íslands um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af kórónuveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum.

    31. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sem starfa samkvæmt undanþágu frá samkomubanni

    Eftirfarandi er listi yfir fyrirtæki sem fengið hafa undanþágu frá samkomubanni svo unnt sé að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra veitti undanþáguna að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    31. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Evrópusamvinna, Lyfjamál, Covid-19

    Ísland aðili að samningi um sameiginleg innkaup Evrópuríkja á aðföngum fyrir heilbrigðisþjónustuna

    Íslensk stjórnvöld geta framvegis tekið þátt í sameiginlegum innkaupum Evrópuríkja á læknisfræðilegum viðbúnaðarvörum, eftir að Ísland undirritaði í gær sérstakan samning þar að lútandi. Í samningnum felst að aðildarríki samningsins geta staðið saman að innkaupum á lækningabúnaði, lyfjum, vöru og þjónustu sem nauðsynleg eru hverju sinni og geta þannig fengið hagstæðari kjör og skjótari afgreiðslu. Nær öll aðildarríki Evrópusambandsins, auk Bretlands standa að þessum samningi og Noregur gerðist aðili í síðustu viku.

    31. mar. 2020Útlendingar, Covid-19, Flóttafólk, Innflytjendur, Dómsmálaráðuneytið

    Breytt mat Útlendingastofnunar vegna COVID-19

    Ljóst er að útbreiðsla Covid-19 veirunnar hefur mikil áhrif á málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi. Á undanförnum vikum hafa flest Evrópuríki sett á ferðatakmarkanir og mörg hver lokað tímabundið fyrir endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá er fyrirséð að sum ríki munu þurfa kljást við efnahagslegar afleiðingar faraldursins auk áhrifa hans á innviði þeirra.

    31. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fá 20.000 króna eingreiðslu vegna COVID-19

    Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar, sem eiga rétt á orlofsuppbót á árinu 2020, fá 20.000.kr eingreiðslu til viðbótar vegna þeirra áhifa sem COVID-19 faraldurinn hefur haft.

    31. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Tæplega 25.000 umsóknir vegna minnkaðs starfshlutfalls

    Við lok dags höfðu Vinnumálstofnun borist tæplega 25.000 umsóknir um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli.

    31. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    COVID-19: Myndrænar leiðbeiningar til fólks í mismunandi aðstæðum

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) hefur birt á myndrænan hátt skýrar leiðbeiningar til fólks um hvað má og hvað má ekki gera meðan COVID-19 faraldurinn gengur yfir. Leiðbeiningarnar eru sniðnar að mismunandi aðstæðum fólks, t.d. fyrir fólk sem er í sóttkví eða fólk í áhættuhópi. Upplýsingaspjöldin eru aðgengileg til útprentunar og eru á íslensku og ensku.

    31. mar. 2020Sveitarstjórnir og byggðamál, Byggðamál, Covid-19, Fjarskiptasjóður, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Miklar fjárfestingar í samgöngum, fjarskiptum og byggðamálum til að vinna gegn samdrætti

    Á þessu ári verða 6,5 ma.kr. settir í samgöngumál, 550 m.kr. í uppbyggingu fjarskiptakerfa og 300 m.kr til byggðamála til að sporna gegn samdrætti.

    31. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Skatturinn felli tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti á gjalddaga í apríl

    Samkvæmt lögum um virðisaukaskatt, er 6. apríl 2020 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins janúar og febrúar 2020.

    31. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Hvatt til skráningar í bakvarðasveit velferðarþjónustunnar (in English and Polish)

    Félagsmálaráðuneytið hvetur fólk til að skrá sig á lista bakvarðasveitar velferðarþjónustunnar sem félagsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga halda utan um.

    31. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Covid.is aðgengileg á átta tungumálum

    Covid.is, upplýsingasíða landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, hefur nú verið þýdd yfir á átta tungumál til að tryggja betra aðgengi að upplýsingum og leiðbeiningum varðandi COVID-19 faraldurinn.

    30. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Samgöngur og fjarskipti

    Viðbygging reist við flugstöðina á Akureyri

    Nauðsynlegt er að byggja við flugstöðina á Akureyrarflugvelli til að geta veitt viðunandi þjónustu samtímis fyrir millilanda- og innanlandsflug.

    30. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Samgöngur og fjarskipti

    Viðbygging reist við flugstöðina á Akureyri

    Nauðsynlegt er að byggja við flugstöðina á Akureyrarflugvelli til að geta veitt viðunandi þjónustu samtímis fyrir millilanda- og innanlandsflug.

    30. mar. 2020Dómsmálaráðuneytið, Sýslumenn, Covid-19

    Viðtöl og fyrirtökur gegnum fjarskipti heimiluð

    Dómsmálaráðherra hefur undirritað breytingar á tveimur reglugerðum, annars vegar reglugerð um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð hjúskaparmála nr. 230/1992 og hins vegar reglugerð um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð skv. barnalögum nr. 231/1992. Breytingarnar á reglugerðunum sem öðlast þegar gildi, miða að því að gera sýslumönnum kleift að bjóða upp á fyrirtökur og viðtöl í gegnum síma, fjarfundabúnað eða annað fjarskiptatæk

    27. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 17/2020

    Menntaskólinn í tónlist sótti um undanþágu í þremur liðum frá takmörkun á skólastarfi fyrir útskriftarnema. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    27. mar. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Löggæsla, Almannaöryggi

    Bakvarðasveit lögreglu í undirbúningi

    Ríkislögreglustjóri vinnur að því að koma á fót bakvarðasveit í ljósi Covid-19 farsóttarinnar. Ríkislögreglustjóri kynnti þessi áform á daglegum upplýsingafundi almannavarna í dag.

    27. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna fryst til áramóta

    Laun alþingismanna, ráðherra, ráðuneytisstjóra og æðstu embættismanna verða fryst til 1. janúar 2021, verði breytingartillaga fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru, samþykkt á Alþingi. Þetta er annað árið í röð sem lögbundinni hækkun þjóðkjörinna fulltrúa, ráðherra og ráðuneytisstjóra er seinkað, en hækkun sem átti að koma til framkvæmda 1. júlí 2019 var slegið á frest í tengslum við gerð lífskjarasamninga.

    • First
    • Prev
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband