12. sep. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Fjárlagafrumvarpið: Framlög til uppbyggingar leiguíbúða tvöfölduð
Framlög til uppbyggingar hagkvæmra leiguíbúða, svokallaðra leiguheimila, verða tvöfölduð á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Áformað er að verja 3,0 milljörðum króna til stofnframlaga í þessu skyni samkvæmt lögum um almennar íbúðir.