17. okt. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Félags- og fjölskyldumál
Tímamót í velferðarþjónustu - Ráðstefna 7. - 8. nóvember
Velferðarráðuneytið og Nýsköpunarmiðstöð Íslands boða til ráðstefnu og málstofa dagana 7. – 8. nóvember. Sjálfstæði, nýsköpun og samvinna eru lykilhugtök ráðstefnunnar þar sem fjallað verður um velferðarþjónustuna á Íslandi, stöðu hennar og verkefnin sem framundan eru í ljósi. Fjöldi þeirra sem þurfa aðstoð og þjónustu vex hröðum skrefum og kröfur um gæði og einstaklingsmiðaða þjónustu aukast. Um þetta verður fjallað, ræddar lykilspurningar sem þetta varða og sjónum beint að tækifærum sem framundan eru.