04. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Norrænt samstarf: Mikilvæg ráðstefna um geðheilbrigði barna 28. mars
Geðrækt, forvarnir og snemmtæk íhlutun er viðfangsefni stórrar norrænnar ráðstefnu um geðheilbrigði barna í Reykjavík 28. mars. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði Íslands sem leiðir samstarf á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar á þessu ári.