Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Utanríkismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 1862
    Raða eftir:
    19. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ráðherra kynnir þingsályktunartillögu um langtímastuðning við Úkraínu

    Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára á Alþingi í dag. Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarstríði sínu gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa.

    19. mar. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Ísland greiðir kjarnaframlag til UNRWA fyrir gjalddaga

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að greiðsla kjarnaframlags Íslands til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) verði innt af hendi fyrir gjalddaga, þann 1. apríl næstkomandi.

    15. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styður þjálfun úkraínskra sjóliðsforingjaefna

    Ísland hefur tekið að sér þjálfun úkraínskra sjóliðsforingjaefna sem fá verklega þjálfun við Ísland í siglingafræði, eftirliti og aðgerðum á hafi, meðal annars leit og björgun.

    13. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úganda, Utanríkismál

    Skóli og athvarf fyrir þolendur kynbundins ofbeldis afhent í Úganda

    Sendiráð Íslands í Kampala í Úganda afhenti í nýliðinni viku héraðsyfirvöldum í Buikwe-héraði annars vegar nýtt athvarf fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og hins vegar fullbúinn grunnskóla. Skólinn er sá fimmtugasti sem byggður er fyrir íslenskt þróunarfé frá því byggðaþróunarverkefni Íslands hófst í héraðinu árið 2015. Nemendafjöldinn í þessum skólum er um helmingur íslenskra barna á grunn- og framhaldsskólaaldri.

    10. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Indland undirritaður

    Nýr fríverslunarsamningur milli Indlands og EFTA-ríkjanna, það er Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss, var undirritaður í Nýju Delí dag. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands.

    08. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Starfi sendinefndar utanríkisráðuneytisins í Kaíró lokið

    72 dvalarleyfishafar frá Gaza komu til landsins í dag og hafa nú sameinast fjölskyldum sínum. Undanfarnar vikur hefur sendinefnd utanríkisráðuneytisins verið við störf í Egyptalandi til að greiða fyrir ferð hópsins yfir Rafah-landamærin, en til þess hefur þurft samþykki bæði egypskra og ísraelskra stjórnvalda.

    08. mar. 2024Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Samgöngur

    Opið samráð um evrópska reglugerð um réttindi farþega

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið opið samráð um réttindi farþega.

    08. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Málefni EES rædd á Alþingi

    Árleg skýrsla um framkvæmd EES-samningsins var til umræðu á Alþingi í gær en þetta er í fjórða skipti sem skýrsla af þessu tagi er gefin út. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra mælti fyrir skýrslunni og í kjölfarið fóru fram umræður um stöðu EES-samstarfsins og helstu málefni á vettvangi Evrópusamvinnunnar en samhljómur var í umræðunni um mikilvægi EES-samstarsfins. Í ár eru 30 ár liðin frá því að EES-samningurinn tók gildi.

    06. mar. 2024Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Persónuréttur, Utanríkismál, Persónuskilríki, Þjóðskrá og fasteignaskrá, Dómsmálaráðuneytið

    Útgáfa hafin á nýjum nafnskírteinum

    Útgáfa á nýjum nafnskírteinum er hafin hjá Þjóðskrá Íslands í takt við auknar öryggiskröfur sem gerðar eru til persónuskilríkja.

    05. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Íslensk stjórnvöld flytja dvalarleyfishafa á Gaza til Íslands

    72 einstaklingar frá Gaza, með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista um helgina.

    28. feb. 2024Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra ræddi málefni dvalarleyfishafa á Gaza við utanríkisráðherra Ísrael

    Málefni dvalarleyfishafa á Gaza voru til umræðu á símafundi sem Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra átti með Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, síðdegis í dag. Þar óskaði utanríkisráðherra liðsinnis um afgreiðslu á lista yfir dvalarleyfishafa á Gaza, en erindinu var vel tekið af hálfu ísraelska ráðherrans.

    28. feb. 2024Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Nýr samstarfssamningur við Alþjóðaráð Rauða krossins undirritaður í Genf

    Íslensk stjórnvöld undirrituðu í gær nýjan samstarfssamning um stuðning Íslands við Alþjóðaráð Rauða krossins (International Committee of the Red Cross, ICRC) til næstu þriggja ára. Anna Jóhannsdóttir, staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands ásamt Robert Mardini, framkvæmdastjóra ICRC. Samkvæmt samningnum munu framlög íslenskra stjórnvalda til ICRC nema 30 milljónum króna árlega á tímabilinu 2024-2026.

    28. feb. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Mannréttindi, Úkraína, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindaráð SÞ

    Utanríkisráðherra ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Ráðherravika 55. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna stendur nú sem hæst í Genf. Aðalframkvæmdastjóri og mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna ávörpuðu ráðið við upphaf lotunnar í vikunni, en Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra flutti ræðu Íslands í gegnum fjarfundarbúnað í gær.

    26. feb. 2024Utanríkismál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ísland tók þátt í Raisina Dialogue í fyrsta sinn

    Áskoranir alþjóðasamfélagsins vegna loftslagsbreytinga, stríðsátaka og aukins þrýstings á alþjóðakerfið voru í brennidepli á árlegri ráðstefnu á vegum indverskra stjórnvalda sem fram fór í Nýju Delí í vikunni. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, tók þátt í ráðstefnunni fyrir hönd Íslands ásamt utanríkisráðherrum NB8 ríkjanna.

    24. feb. 2024Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Langtímastuðningur Íslands við Úkraínu

    Þingsályktunartillaga að stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu 2024 til 2028 var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í gær. Með henni verður fest í sessi áætlun um áframhaldandi kraftmikinn stuðning Íslands við úkraínsku þjóðina í baráttu sinni við innrásarlið Rússa auk endurreisnar og uppbyggingar innviða í landinu. Þingsályktunin verður nánar unnin í samráði við utanríkismálanefnd og kynnt í framhaldinu, en gert er ráð fyrir að framlög ársins 2024 verði aukin frá fyrra ári og heildarframlög íslenskra stjórnvalda vegna Úkraínu verði sambærileg stuðningi Norðurlandanna. Þá verði tekin ákvörðun um heildarframlög til Úkraínu í tengslum við fjárlög ár hvert, en lágmarksfjárhæð tryggð til næstu ára.

    21. feb. 2024Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Ísland fordæmir meðferð rússneskra stjórnvalda á Alexei Navalny

    Íslensk stjórnvöld fordæma meðferð rússneskra stjórnvalda á stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny sem leiddi til andláts hans í síðustu viku. Þá fordæma íslensk stjórnvöld aðför rússneskra stjórnvalda að mannréttindum og frelsi fólks, en fjöldi fólks hefur verið fangelsaður fyrir að hafa opinberlega harmað andlátið og lýst samúð með málstað Navalny.

    20. feb. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Staða vinnu vegna aðstoðar við dvalarleyfishafa á Gaza

    Undanfarið hefur þriggja manna sendinefnd utanríkisráðuneytisins verið að störfum í Egyptalandi til að greiða fyrir för dvalarleyfishafa með fjölskyldusameiningu frá Gaza. Sendinefndin hefur átt í góðu samstarfi við fulltrúa egypskra, ísraelskra og norrænna stjórnvalda á svæðinu.

    16. feb. 2024Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Fulltrúar utanríkisráðuneytisins að störfum í Egyptalandi vegna dvalarleyfishafa á Gaza

    Síðastliðinn laugardag hélt þriggja manna sendinefnd frá utanríkisráðuneytinu til Kaíró í Egyptalandi í þeim tilgangi að greiða fyrir för fólks, sem fengið hefur dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, frá Gaza.

    15. feb. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Varnarmálaráðherrar NATO ræddu aukinn varnarviðbúnað og stuðning við Úkraínu

    Aukinn varnarviðbúnaður, framlög til varnarmála og þéttara samstarf við Úkraínu voru á meðal umræðuefna á varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel í dag. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra sótti fundinn.

    15. feb. 2024Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ísland leiðir ríkjahóp um sprengjuleit og -eyðingu ásamt Litáen

    Ísland er í hópi 20 ríkja sem hyggjast styðja Úkraínu við sprengjuleit og -eyðingu og var viljayfirlýsing þess efnis undirrituð í Brussel í gær í tengslum við varnarmálaráðherrafund Atlantshafsbandalagsins.

    14. feb. 2024Utanríkismál, Evrópusamvinna, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Uppfærsla á lista yfir forgangsmál stjórnvalda vegna hagsmunagæslu gagnvart ESB

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag uppfærðan lista yfir forgangsmál í hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB). Þar sem kosningar til Evrópuþingsins fara fram í júní nk. og ný framkvæmdastjórn ESB verður skipuð í kjölfarið hefur verið ákveðið að uppfæra og framlengja gildistíma forgangslista 2022-2023 fram á mitt ár 2024, eða til loka skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar. Næsta heildarendurskoðun á forgangslistanum verður því miðuð við upphaf skipunartímabils nýrrar framkvæmdastjórnar.

    13. feb. 2024Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Vinna hafin við að greiða för dvalarleyfishafa á Gaza til Íslands

    Þrír fulltrúar utanríkisráðuneytisins héldu til Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, um síðastliðna helgi. Ferðin er liður í undirbúningi aðgerða utanríkisráðuneytisins til aðstoðar við fólk á Gaza með dvalarleyfi á Íslandi. Fulltrúar ráðuneytisins eiga í nánu samstarfi við norræn sendiráð og stjórnvöld á staðnum.

    13. feb. 2024Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Málefni Úkraínu og Mið-Austurlanda í brennidepli á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna

    Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, málefni Úkraínu og samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins voru helst til umræðu á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, sem fram fór í gær. Fundurinn var fyrsti fundur ársins í norrænu samstarfi utanríkisráðherranna. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

    05. feb. 2024Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland styður við mannréttindi í Malaví

    Fulltrúar sendiráðs Íslands í Malaví, ásamt fulltrúum sendiráðs Noregs og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP), undirrituðu á föstudaginn samning um stuðning við stofnanir og samtök sem standa vörð um mannréttindi í landinu. Þá var fyrsta skóflustungan að nýrri stjórnsýslubyggingu í Mangochi-héraði tekin fyrr í vikunni, en framkvæmdin markar tímamót því hún er fjármögnuð sameiginlega af íslenskum og malavískum stjórnvöldum.

    02. feb. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Starfshópur um gullhúðun EES-reglna óskar eftir ábendingum

    Starfshópur um aðgerðir gegn gullhúðun, sem skipaður var af utanríkisráðherra 25. janúar síðastliðinn, hefur tekið til starfa og óskar nú eftir ábendingum í Samráðsgátt um tilvik þar sem gullhúðun hefur verið beitt. Þá er óskað eftir mati viðkomandi á þeim áhrifum sem hlotist hafa af slíkri reglusetningu. Umsagnarfrestur er til 26. febrúar næstkomandi.

    30. jan. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra leggur fram skýrslu um bókun 35 við EES-samninginn

    Utanríkisráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um bókun 35 við EES-samninginn. Skýrslunni er ætlað að vekja umræðu og kalla fram sjónarmið, á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga og skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum. Í skýrslunni eru dregnir fram nokkrir lykilþættir í forsögu og forsendum málsins til að varpa ljósi á þá stöðu sem Alþingi stendur frammi fyrir nú.

    30. jan. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Áframhaldandi stuðningur við UNRWA til skoðunar

    Utanríkisráðherra ákvað á föstudag að fresta greiðslu kjarnaframlags til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA), í kjölfar ásakana um að tólf starfsmenn stofnunarinnar hafi átt aðild að hryðjuverkaárás Hamas 7. október síðastliðinn, þar til samráð hefur verið haft við samstarfsríki og frekari skýringa leitað hjá stofnuninni. Í framhaldi hefur utanríkisráðuneytið verið í virkum samskiptum við Norðurlöndin og önnur samstarfsríki um viðbrögð við málinu og sótti fund varaframkvæmdastjóra UNRWA í gær, mánudag. Þá ræddi ráðherra málið í ríkisstjórn í dag og mun enn fremur eiga fund sama efnis með utanríkismálanefnd Alþingis á morgun.

    30. jan. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Viðbótarframlög til Rauða krossins og Alþjóðabankans vegna Palestínu

    Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita viðbótarframlög til Rauða krossins á Íslandi vegna þeirrar neyðar sem nú ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs. Þá hefur verið ákveðið að Ísland verði aðili að sjóði á vegum Alþjóðabankans sem styðja mun við enduruppbyggingu og endurreisn innviða í Palestínu.

    26. jan. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Viðbrögð utanríkisráðherra vegna niðurstöðu alþjóðadómstólsins

    Íslensk stjórnvöld hafa ítrekað kallað eftir vopnahléi af mannúðarástæðum í yfirstandandi átökum til þess að lina þjáningar íbúa Gaza. Ákvörðun Alþjóðadómstólsins í dag um bráðabirgðaráðstafanir er til marks um þá neyð sem ríkir á Gaza og skyldur stríðandi fylkinga til að vernda borgara.

    25. jan. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið

    Nýir rammasamningar á sviði mannúðarmála undirritaðir í Genf

    Nýir rammasamningar um áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (CERF) og Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) til næstu fimm ára voru undirritaðir í síðustu viku. Einar Gunnarsson, fastafulltrúi Íslands hjá alþjóðastofnunum í Genf, undirritaði samningana fyrir hönd Íslands ásamt Ramesh Rajasingham, yfirmanni OCHA í Genf. OCHA og Neyðarsjóðurinn eru meðal áherslustofnana Íslands á sviði mannúðarmála.

    25. jan. 2024Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland styður við fæðuöryggi skólabarna með loftslagsverkefni í Úganda

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja samstarf við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna á sviði loftslagsmála í Úganda sem jafnframt stuðlar að auknu fæðuöryggi fátækra skólabarna. Orkusparandi eldunaraðstaða verður sett upp í tugum skóla og þúsundir trjáa gróðursett á einu snauðasta svæði landsins.

    22. jan. 2024Utanríkismál, Utanríkisviðskipti, Utanríkisráðuneytið

    Uppfærsla á fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Síle í höfn

    EFTA-ríkin og Síle hafa komist að samkomulagi um uppfærslu á fríverslunarsamningi ríkjanna, sem tók gildi árið 2004. Áformað er að undirrita samninginn formlega í júní, á næsta ráðherrafundi EFTA í Genf.

    18. jan. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland fjármagnar verkefni gegn fæðingarfistli í Namayingo héraði í Úganda

    Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt að fjármagna sérstakt verkefni gegn fæðingarfistli í Namayingo-héraði í Úganda í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Ísland styður nú við svipuð verkefni með UNFPA í öllum samstarfsríkjunum þremur í Afríku.

    05. jan. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Utanríkismál, Alþjóðamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samningur við Bretland um réttindi á sviði almannatrygginga tekur gildi

    Samningur Íslands, Liechtenstein og Noregs við Bretland um samræmingu almannatrygginga sem undirritaður var í sumar, tók formlega gildi um áramótin eða 1. janúar sl. Hann kveður á um framtíðarfyrirkomulag réttinda á sviði almannatrygginga, aðallega hvað varðar lífeyrisréttindi og sjúkratryggingar þeirra sem ferðast eða flytjast milli landanna.

    23. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Tvíhliða samráð Íslands og Kína

    Tvíhliða samráð Íslands og Kína fór fram í Peking í gær þar sem ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Martin Eyjólfsson, fundaði með Deng Li, vararáðherra í utanríkisráðuneyti Kína. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland og Kína eiga samráð af þessu tagi.

    23. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland tekur þátt í ríkjahópum sem styðja varnargetu Úkraínu

    Ísland mun taka þátt í starfi tveggja ríkjahópa sem veita Úkraínu stuðning, annars vegar á sviði netvarna- og upplýsingamála (IT Coalition) og hins vegar á sviði sprengjueyðinga (Demining Coalition).

    21. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Tveir nýir grunnskólar afhentir í Úganda

    Tveir nýir grunnskólar sem byggðir voru fyrir íslenskt þróunarfé hafa verið afhentir yfirvöldum í Namayingo-héraði í Úganda. Á dögunum voru ný salernishús tekin í notkun í sjö skólum til viðbótar.

    20. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024-2028 samþykkt

    Alþingi samþykkti einróma á föstudag þingsályktun um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024-2028. Stefnan byggir á því sem vel hefur tekist á undanförnum árum, niðurstöðum úttekta og nýafstaðinni jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) þar sem meðal annars var lögð áhersla á mikilvægi þess að Ísland hafi áfram skýra og einbeitta nálgun í sinni þróunarsamvinnu.

    15. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda, Benelúx-ríkja og Araba- og múslimaríkja funda um átökin á Gaza

    Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra sótti fund utanríkisráðherra Norðurlanda og Belgíu, Hollands og Lúxemborgar með utanríkisráðherrum nokkurra Araba- og múslimaríkja í Osló í dag. Tilgangur fundarins var að ræða leiðir til að binda enda á átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, hvernig tryggja megi framgang tveggja ríkja lausnar og leiðir til að styrkja og viðhalda stofnunum og stjórnkerfi palestínsku heimastjórnarinnar.

    15. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Fjögur fyrirtæki fá styrki úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs

    Fjögur fyrirtæki fengu í vikunni styrki frá utanríkisráðuneytinu úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Markmið sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu. Fyrirtækin sem um er að ræða eru Tern systems, As We Grow, Creditinfo Group og Verkís.

    13. des. 2023Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs og málefni Úkraínu til umræðu á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna

    Málefni Úkraínu, átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins á næsta ári og staða fjölþjóðlegrar samvinnu voru meðal helstu umræðuefna á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna (N5) sem fram fór í dag.

    12. des. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Yfirgnæfandi stuðningur í allsherjarþinginu við ályktun um mannúðarhlé á Gaza

    Ályktun, þar sem kallað er eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza af mannúðarástæðum, framfylgd alþjóðalaga, vernd óbreyttra borgara, tafarlausri lausnar gísla og tryggu mannúðaraðgengi, var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Ísland kaus með ályktuninni og var meðflytjandi að henni.

    12. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Ísland fjölgar loftferðasamningum

    Ísland tók þátt í árlegri samningaráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem lauk í Riyadh í síðustu viku. Fulltrúar tæplega hundrað ríkja tóku þátt. Tilgangurinn var að auka markaðsaðgang fyrir íslensk fyrirtæki í flugrekstri með gerð tvíhliða samninga varðandi farþegaflug, farmflug, leiguflug og leigu á flugvélum með áhöfn.

    07. des. 2023Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Úganda, Utanríkisráðuneytið

    Ísland bakhjarl mannréttindasamtaka í Úganda

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja stuðning við afrísku mannréttindasamtökin DefendDefenders. Samtökin, sem hafa höfuðstöðvar í Úganda, beita sér fyrir stuðningi við fólk sem berst fyrir mannréttindum, þar á meðal réttindum hinsegin fólks. 75 ár eru um þessar mundir frá því að mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt.

    07. des. 2023Dómsmálaráðuneytið, Evrópusamvinna, Landamæraeftirlit, Utanríkismál

    Dómsmálaráðherra á fundi Schengen-ráðherra í Brussel

    Farið yfir heildarstöðuna á innra öryggi Schengen-svæðinu og stöðuna á ytri landamærum

    06. des. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Utanríkisráðuneytið

    Ísland ítrekar enn á ný ákall sitt um tafarlaust vopnahlé á Gaza

    Ákall íslenskra stjórnvalda um tafarlaust vopnahlé af mannúðarástæðum á Gaza var ítrekað í ávarpi sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum fundi um stöðu mannúðarmála á Gaza sem fram fór í París í dag.

    06. des. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið

    Ísland veitir 100 milljónum króna aukalega í Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 100 m.kr. viðbótarframlag í Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (e. UN Central Emergency Response Fund, CERF). Tilkynnt var um aukninguna á árlegri framlagaráðstefnu Neyðarsjóðsins sem fram fór í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag.

    01. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ráðherrafundi ÖSE í breyttu öryggislandslagi í Evrópu

    Utanríkisráðherra sótti ráðherrafund Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Skopje, höfuðborg Norður-Makedóníu, sem hófst á óformlegum kvöldverðarfundi ráðherra þann 29. nóvember en formleg dagskrá stendur yfir frá 30. nóvember til 1. desember. Efst á baugi voru innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og örðugleikar í starfi ÖSE vegna ósamvinnuþýðra stjórnvalda í Rússlandi og Belarús.

    01. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Sjávarútvegur, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Aukin tækifæri til útflutnings sjávarafurða með nýju samkomulagi við ESB

    Í gær lauk samningaviðræðum milli EFTA-ríkjanna innan EES (Íslands, Noregs og Liechtenstein) og Evrópusambandsins (ESB) um framlög til Uppbyggingarsjóðs EES fyrir tímabilið 1. maí 2021 til 30. apríl 2028. Samningaviðræður hafa staðið yfir frá júní 2022. Samhliða þeim hafa farið fram viðræður um endurnýjun samnings um tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir sjávarafurðir frá Íslandi inn á markað ESB.

    29. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Aukið eftirlit með mikilvægum neðansjávarinnviðum

    Varnarmálaráðherrar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) hafa ákveðið að virkja eina af viðbragðsáætlunum sveitarinnar sem felur í sér aukið eftirlit með mikilvægum neðansjávarinnviðum. Verkefnið hefst í byrjun desember og er því ætlað að auka eftirlit og viðveru í samstarfi við Atlantshafsbandalagið sem einnig sinnir sambærilegum verkefnum á Eystrasaltssvæðinu.

    • First
    • Prev
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband