13. feb. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Vinnumál
Ragnar Þór Ingólfsson fundar á Kýpur með evrópskum félags- og vinnumarkaðsráðherrum
Félagslegt réttlæti, heilbrigður vinnumarkaður og barátta gegn fátækt eru meðal fundarefna á ráðherrafundi sem nú stendur yfir í Lefkosia á Kýpur. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sækir fundinn fyrir Íslands hönd. Fundinn sitja félags- og vinnumarkaðsráðherrar ESB- og EFTA-ríkjanna.