24. jan. 2020Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Lög og réttur
Mælt fyrir frumvarpi um endurupptökudóm
Til stendur að setja á fót endurupptökudóm og hefur dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, mælt fyrir frumvarpi þess efnis á Alþingi. Frumvarpið er um breytingu á lögum um dómstóla, lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála.