Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 3887
    Raða eftir:
    07. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti

    Utanríkisráðherra kynnir fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi

    Utanríkisráðherra hefur nú lagt fram fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi sem markar stefnu stjórnvalda um framkvæmd samnefndrar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 og síðari ályktana ráðsins þar að lútandi.

    01. apr. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Skipað að nýju í Grindavíkurnefnd

    Skipað hefur verið að nýju í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór Sigurðsson sendiherra gegnir áfram formennsku í nefndinni en Jóhanna Lilja Birgisdóttir, forstöðumaður fyrir þjónustuteymi Grindvíkinga, og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi í atvinnuteymi Grindavíkurbæjar, koma ný inn í nefndina.

    28. mar. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Eindregin samstaða Evrópuríkja með Úkraínu

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók þátt í fjölmennum leiðtogafundi Evrópuríkja í Elysée-höll í París í gær.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1264/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1236/2024 frá 19. desember 2024. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku máls væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki heldur skilyrði til endurupptöku málsins á ólögfestum grundvelli. Beiðni um endurupptöku málsins var því hafnað.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1263/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að sundurliðun á öðrum tekjum Ríkisútvarpsins ohf. en af al­mannaþjónustu fyrir árin 2022 og 2023, þar sem nafn greiðanda kæmi fram. Ríkisútvarpið kvað að ekki lægi fyrir gagn með þeirri sundurliðun sem óskað væri eftir og að félaginu væri samkvæmt upplýsingalögum óskylt að útbúa slíkt gagn í tilefni af beiðni kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga í efa þá staðhæfingu að umbeðið gagn lægi ekki fyrir. Því lægi ekki fyrir synjun beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og var ákvörðun Ríkisútvarpsins staðfest.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1262/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að kauptilboði Mílu hf. í Eygló eignarhaldsfélag ehf. í vörslu Vestmannaeyjabæjar. Í hinni kærðu ákvörðun var beiðninni hafnað þar sem tilboðið hefði að geyma upplýsingar sem vörðuðu mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Mílu. Við meðferð málsins hjá úrskurðar­nefndinni kom hins vegar í ljós að hjá Vestmannaeyjabæ lægi ekki fyrir kauptilboð frá Mílu hf. þar sem samskipti um kaup á félaginu hefðu aðeins verið munnleg fram að þeim tíma sem samn­ingsdrög lágu fyrir. Þar sem ekki lægi fyrir synjun beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga var ákvörðun Vestmannaeyjabæjar staðfest.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1261/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Útlend­inga­stofnunar sem vörðuðu tiltekna um­sókn um alþjóð­lega vernd. Ákvörðun stofnun­arinnar að hafna beiðni kæranda byggðist á því að gögnin vörðuðu einka­málefni umsækjandans sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt samkvæmt 9. gr. upp­lýs­ingalaga, nr. 140/2012. Þá taldi stofnunin ekki unnt að veita aðgang að gögn­unum að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna, þar sem upplýsingar um einkamálefni væru svo samofnar öðrum upplýs­ing­um að ekki væri unnt að skilja þar á milli. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögn málsins og staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1260/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gagni í vörslu Sorpu bs. sem innihéldi upplýsingar um topp 20 lögaðila sem hefðu skilað mestum úrgangi til Sorpu í tilgreindum flokkum árin 2021–2023. Ákvörðun Sorpu að hafna beiðni um aðgang að gagninu byggðist á því að mikilvægir almannahagsmunir krefðust þess að að­gang­ur kær­anda að upplýsingunum sé takmarkaður því þær vörðuðu viðskipti Sorpu að því leyti sem Sorpa væri í samkeppni við aðra, og að sanngjarnt væri og eðlilegt að upplýsingarnar færu leynt þar sem þær vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða við­skiptahagsmuni lögaðilanna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gagnið og komst að þeirri niðurstöðu að engin takmörkunarákvæði upplýsingalaga ættu við um upplýsingarnar sem þar kæmu fram. Var Sorpu bs.…

    26. mar. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund um Úkraínu í París

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur á morgun þátt í leiðtogafundi í París um málefni Úkraínu. Á fundinum munu leiðtogarnir ræða um áframhaldandi stuðning við Úkraínu, viðræður um vopnahlé og hvernig megi tryggja frið og öryggi í Úkraínu til frambúðar. Gestgjafi fundarins er Emmanuel Macron, forseti Frakklands, en um 30 þjóðarleiðtogar sækja fundinn sem haldinn verður í Elysée-höll. ​

    20. mar. 2025Forsætisráðuneytið

    Leiðrétting vegna fréttaflutnings um meintan trúnaðarbrest forsætisráðuneytis

    Fullyrðingar sem fram komu í fréttum RÚV um að forsætisráðuneytið hafi rofið trúnað með upplýsingagjöf til mennta- og barnamálaráðherra eiga ekki við rök að styðjast.

    19. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við börn með fjölþættan vanda

    Í dag var undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga; annars vegar um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og hins vegar um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga og taka gildi um mitt þetta ár.

    19. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við börn með fjölþættan vanda

    Í dag var undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga; annars vegar um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og hins vegar um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga og taka gildi um mitt þetta ár.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1259/2025. Úrskurður frá 18. mars 2025

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem erindi kæranda til Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. bæri ekki með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1258/2025. Úrskurður frá 18. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu matvælaráðuneytis um mat á sérstöku hæfi starfandi matvælaráðherra til afgreiðslu hans á umsókn Hvals hf. um hvalveiðar. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna gagnabeiðninni var byggð á því að gögnin teldust vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að ráðuneytið hefði ekki afmarkað beiðni kæranda með réttum hætti, með þeim afleiðingum að ekki hefði verið fjallað um rétt til tiltekinna gagna sem tengdust mati á hæfi ráðherrans. Var beiðni kæranda því vísað til matvælaráðuneytis til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1257/2025. Úrskurður frá 18. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu matvælaráðuneytis um þá ákvörðun starfandi matvælaráðherra að aðstoðarmaður hans hefði enga aðkomu að útgáfu leyfa til hvalveiða. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna gagnabeiðninni byggðist á því að um vinnugögn væri að ræða. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þau gögn sem beiðnin var afmörkuð við og taldi að þau uppfylltu skilyrði upplýsingalaga fyrir að teljast vinnugögn. Því hefði ráðuneytinu verið heimilt að takmarka aðgang að gögnunum og var ákvörðun ráðuneytisins staðfest.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar í dag var tekin ákvörðun um framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum. Gerðar verða breytingar sem miða að því að færa stuðning úr formi sértækra neyðarúrræða og í almennari farveg. Einstaklingar og fjölskyldur í sérstaklega viðkvæmri stöðu munu áfram njóta nauðsynlegs stuðnings.

    14. mar. 2025Stjórnarráðið, Forsætisráðuneytið

    Breytingar á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands

    Forseti Íslands hefur undirritað þrjá forsetaúrskurði vegna breytinga á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem taka gildi á morgun, 15. mars. Með þessu fækkar ráðuneytum úr tólf í ellefu en menningar- og viðskiptaráðuneyti verður lagt niður. Þá breytast heiti þriggja ráðuneyta og málaflokkar flytjast milli ráðuneyta.

    07. mar. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Stóraukning framlaga ESB til varnarmála styrkir NATO

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í dag fjarfund með Antonío Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB, ásamt forsætisráðherrum Noregs, Bretlands, Kanada og forseta Tyrklands.

    06. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Framhald vinnu um hagræðingu og umbætur í ríkisrekstri

    Á fundi ríkisstjórnar þriðjudaginn 4. mars voru kynntar tillögur starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri eftir víðtækt samráð við almenning og stofnanir ríkisins. Samþykkt var að vinnuhópur forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis sem starfaði með hagræðingarhópnum muni vinna áfram að framkvæmd tillagna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og að ráðuneyti taki mið af vinnunni við gerð fjármálaáætlunar 2026-2030.

    06. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Nefndahúsi fyrir stjórnsýslunefndir komið á fót

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að koma á fót sérstöku nefndahúsi sem hýsi stjórnsýslunefndir á vegum ríkisins. Þessi fyrirætlan er í samræmi við tillögu hagræðingarhóps um fækkun nefnda og aukinn samrekstur.

    04. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Hagræðingarhópur skilar tillögum til ríkisstjórnar

    Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri skilaði í dag tillögum sínum til ríkisstjórnar og voru þær kynntar á fjölmiðlafundi í forsætisráðuneytinu síðdegis.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin fundaði með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurnesjum

    Ríkisstjórnarfundur var haldinn í Reykjanesbæ í dag. Ríkisstjórnin fundaði einnig með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurnesjum og heimsótti öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1256/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um rétt Verðlagsstofu skiptaverðs til aðgangs að gögnum í vörslu Skattsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í því máli sem til umfjöllunar væri teldist Skatturinn ekki hafa tekið ákvörðun um synjun um aðgang að gögnum sem Verð­lags­stofa skiptaverðs gæti sem stjórnvald kært til úr­skurð­arnefndarinnar á grundvelli upp­lýsingalaga. Var kæru Verðlagsstofu skipta­verðs því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1255/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um ákvörðun grunnskóla á vegum Reykjavíkurborgar að synja beiðni um aðgang að tilteknum tölvupósti í vörslu skólans, sem varð til við meðferð máls sem lauk með ákvörðun um að veita kæranda aðgang að upplýsinga- og skráningarkerfinu Mentor fyrir barn­ sitt. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að sú ákvörðun væri um rétt eða skyldu, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Upplýsingalögin tækju því ekki til aðgangs að tölvupóstinum, sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og var kærunni vísað frá.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1254/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að nöfnum höfunda og ábyrgðarfólks verkefnis í vörslu Háskólans á Bifröst. Ákvörðun háskólans að synja beiðninni var meðal annars byggð á að verkefnið varðaði einkamálefni þeirra nemenda sem bæru ábyrgð á því. Úrskurðarnefndin taldi að þótt verkefnið hefði ekki að geyma upplýsingar um persónu­leg málefni nemendanna væri ljóst að verkefnið sem slíkt væru upplýsingar sem endurspegluðu persónu­legt fram­lag í námi þeirra, og að þeir hefðu mátt ganga út frá því að verk­efnið sem deilt er um að­gang að kæmi ekki fyrir sjónir almennings. Var ákvörðun Háskólans á Bifröst því staðfest.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1253/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um rétt kærenda til aðgangs að gögnum á því formi sem þau væru varðveitt, en fyrir lá að þeim hafði verið afhent gögn á öðru formi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að röksemdir hins kærða stjórnvalds fyrir synjun beiðninnar ætti sér ekki stoð í 18. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, sem varðar afhendingu gagna samkvæmt lögunum. Þá taldi úrskurðarnefndin að lýsigögn gagna á því formi sem þau væru varðveitt gætu ekki talist vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Þar sem úrskurðarnefndinni voru ekki afhent gögnin á því formi sem þau eru varðveitt var nefndinni ókleift að leggja mat á rétt kærenda til aðgangs að þeim, og var beiðni kærenda því vísað til hins kærða stjórnvalds til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.…

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1252/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að frásögnum og greinargerðum starfsmanna sem urðu til í tengslum við rannsókn á kvörtun kæranda um einelti. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Í gögnunum var að finna lýsingar starfsmannanna á persónulegri upplifun og skoðunum þeirra, sem úrskurðarnefndin taldi að væru viðkvæmar upplýsingar um einkamálefni starfsmannanna. Var það mat nefndarinnar að þótt kærandi hefði hagsmuni af að fá aðgang að gögnunum vægju hagsmunir starfsmannanna af að gögnin færu leynt þyngra á metunum. Hin kærða ákvörðun var því staðfest.

    24. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Unnið að gerð framtíðarsviðsmynda um Grindavík

    Vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga hafa stjórnvöld á liðnum misserum gripið til umfangsmikilla ráðstafana til þess að tryggja öryggi almennings og verja og tryggja virkni mikilvægra innviða.

    24. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ísland sýnir stuðning við Úkraínu í verki

    Kristún Frostadóttir forsætisráðherra sækir í dag leiðtogafund í Kænugarði í Úkraínu í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá ólögmætri allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu. Forsætisráðherra tók í morgun þátt í minningarathöfn um úkraínska hermenn sem hafa fallið í varnarbaráttu þjóðarinnar á undanförnum árum.

    21. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ráðherranefnd um öldrunarþjónustu hefur störf

    Ráðherranefnd um öldrunarþjónustu kom í vikunni saman til síns fyrsta fundar. Hlutverk nefndarinnar er að efla samráð og samhæfingu meðal þeirra ráðuneyta sem vinna að málefnum eldra fólks.

    18. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1251/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025

    Mál þetta varðaði beiðni til Skattsins um upplýsingar um hverju mótshaldarar Þjóðhátíð­ar­innar í Vestmannaeyjum 2024 hefðu skilað í opinber gjöld. Skatturinn kvað að ekki lægi fyrir gagn með þessum upp­lýsingum og að ekki væri hægt að kalla það fram með einföldum skipunum í gagna­grunnum emb­ættisins. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga í efa þá fullyrðingu Skattsins að gagn með um­beðnum upplýsingum sé ekki fyrirliggjandi hjá stofnuninni. Þá væri ljóst að ekki væri unnt að kalla fram gagn með þeim upplýsingum sem óskað er eftir með tiltölulega einföldum hætti, heldur þyrfti að ráðast í vinnu sem væri nokkuð mikil að umfangi. Var því lagt til grundvallar að gagn með umbeðnum upplýsingum lægi ekki fyrir hjá Skattinum. Ákvörðun Skattsins var því staðfest.

    18. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1250/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025

    Beiðni kæranda um aðgang að yfirliti úr málaskrá Garðabæjar yfir mál og gögn sem vörðuðu dóttur hans var synjað með vísan til þess að dóttir kæranda þyrfti sjálf að óska eftir aðgangi að yfirlitinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál gerði ekki athugasemd við þá afstöðu Garðabæjar en taldi engu að síður að beiðnin hefði verið afgreidd á röngum lagagrundvelli, þar sem fyrir lægi að beiðni kæranda hefði verið sett fram á grundvelli upplýsingalaga. Því hefði Garðabæ verið rétt að afgreiða beiðnina á grundvelli þeirra laga. Var beiðni kæranda því vísað til Garðabæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    18. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1249/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025

    Kærandi felldi sig ekki við svör Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. við spurningum sem hann beindi til félagsins vegna ráðningar framkvæmdastjóra félagsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að upplýsingaréttur almennings tæki til að­gangs að fyrir­liggj­andi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögn­um. Fyrirspurn kæranda teldist aðeins að hluta til vera beiðni um aðgang að gögnum. Að öðru leyti hefði hún að geyma ósk um útskýringar á ráðningarferlinu. Varðandi beiðni kæranda um lista yfir umsækjendur um starfið taldi úrskurðarnefndin að Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi ohf. væri ekki skylt að afhenda kæranda þær upplýsingar. Afgreiðsla félagsins á beiðni kæranda var því staðfest.

    18. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1248/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025

    Deilt var um synjun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. á beiðnum kæranda um aðgang að upplýsingum um annars vegar hver hafi verið kostnaður félagsins vegna sálfræði­þjón­ustu fyrir starfsmenn þess á árinu 2023 og hins vegar hvort og þá hversu mörg skrifleg leyfi Herjólfur hefði gefið út til undirmanna félags­ins til að stunda önnur launuð eða ólaunuð störf á sama ári. Herjólfur fullyrti að þær upplýsingar sem kærandi óskaði eftir væru ekki fyrirliggjandi hjá félag­inu. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga fullyrðinguna í efa og staðfesti því ákvörðun Herjólfs.

    18. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1247/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í tengslum við innkaup Happdrættis Há­skóla Íslands á happdrættisvélum og öðrum tengdum vörum. Synjun Happdrættis Háskóla Íslands var byggð á því að gögnin vörðuðu bæði mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni lögaðila sem og samkeppnishagsmuni Happdrættis Háskóla Íslands. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að stærstur hluti upplýsinga í gögnunum teldist ekki varða svo mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni viðkomandi lögaðila að sanngjarnt væri og eðlilegt að þær færu leynt. Þá taldi úrskurðarnefndin að samkeppnishagsmunir Happdrættis Háskóla Íslands stæðu ekki heldur í vegi fyrir aðgangi kæranda að gögnunum. Var Happdrætti Háskóla Íslands því gert að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Öryggismál í Evrópu í brennidepli í München

    Vaxandi spenna í alþjóðamálum, öryggismál í Evrópu, stríðið í Úkraínu og horfur í alþjóðahagkerfinu eru á meðal þeirra mála sem rædd verða á hinni árlegu Öryggismálaráðstefnu í München sem sett var í dag og stendur fram á sunnudag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur þátt í ráðstefnunni og átti í dag fjölda tvíhliða funda með öðrum evrópskum leiðtogum þar sem þau alþjóðamál sem hæst ber um þessar mundir voru rædd.

    14. feb. 2025Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ítreka stuðning við Úkraínu

    Leiðtogar Norðurlandanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu til stuðnings Úkraínu og segja þar að gera verði Úkraínumönnum kleift að verjast og standa af sér árásarstríð Rússa til að tryggja réttlátan og langvarandi frið.

    13. feb. 2025Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Forsætisráðuneytið

    Ómissandi samfélagsinnviðum tryggðir varafjarskiptasamband við útlönd um gervihnetti

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að fjármagna varafjarskiptaleið við útlönd um gervihnetti.

    13. feb. 2025Forsætisráðuneytið

    Kristín Ólafsdóttir ráðin aðstoðarmaður forsætisráðherra

    Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.

    11. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Stefnuræða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra - 10. febrúar 2025

    febrúar 2025 / Forsætisráðuneytið Stefnuræða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra - 10. febrúar 2025 Frú forseti – háttvirtir þingmenn

    03. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Fyrstu verk nýrrar ríkisstjórnar

    Formenn stjórnarflokkanna, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, kynntu í dag fyrstu verk nýrrar ríkisstjórnar. Á fréttamannafundi í forsætisráðuneytinu sögðu þær frá þingmálaskrá fyrir vorþingið og ýmsum frumvörpum, reglugerðarbreytingum og öðrum aðgerðum sem stjórnin hyggst ráðast í á fyrstu 100 dögum stjórnarsamstarfsins.

    30. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Samantekt um hagræðingartillögur almennings

    Samantekt um tillögur, hugmyndir og sjónarmið sem bárust í verkefninu Verum hagsýn í rekstri ríkisins hefur verið birt í samráðsgátt. Alls bárust 3.985 umsagnir sem er metfjöldi og um 0,7% þjóðarinnar tók þátt í samráðinu.

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1246/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Kærðar voru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál tafir á afgreiðslu Garðabæjar á fyrirspurn kæranda. Úrskurðarnefndin fór yfir erindi kæranda til Garðabæjar og taldi erindið ekki bera með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga heldur beiðni um skýringar á ákveðnum atriðum sem tilgreind væru í beiðninni og ósk um afstöðu til þeirra. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1245/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að öllum gögnum máls sem varðaði vinnu starfshóps sem menningar- og viðskiptaráðherra skipaði til að fara í greiningarvinnu í tengslum við ákveðna þætti fasteignalána til neytenda og neytendalána. Menningar- og viðskiptaráðuneyti afhenti kæranda umbeðin gögn að undanskildum drögum að greinargerð starfshópsins og drögum að uppfærðu leiðbeiningarskjali Neytendastofu, þar sem þau væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að ráðuneytið hefði ekki tekið afstöðu til þess hluta beiðni kæranda sem laut að tilteknum fundargerðum starfshópsins og vísaði beiðninni til ráðuneytisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1244/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Í málinu var deilt um rétt til aðgangs að gögnum í vörslum dómsmálaráðuneytis sem ráðherra hefði stuðst við þegar hann staðhæfði að hálfsjálfvirk vopn yrðu bönnuð í Noregi frá árinu 2024. Ráðuneytið taldi að kærandi ætti ekki rétt til aðgangs að gögnunum því þau væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að gögnin uppfylltu skilyrði upplýsingalaga að teljast vinnugögn. Þá taldi nefndin að engin þeirra tilvika sem nefnd væru í 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, ættu við um gögnin. Var ákvörðun dómsmálaráðuneytis því staðfest.

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1243/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að gögnum um fjölda vinnuvélaprófa í vinnuvélahermum Vinnu­eftirlitsins á nokkurra ára tímabili. Vinnueftirlitið kvað að ekki lægi fyrir gagn með þeim upp­lýsingum sem beiðnin varðaði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga í efa fullyrðingu Vinnueftirlitsins að gagn með þeim upplýsingum sem kærandi óskaði eftir lægi ekki fyrir í vörslu stofnunarinnar. Þá taldi nefndin að stofnuninni væri óskylt að taka upplýsingarnar saman fyrir kæranda. Var afgreiðsla Vinnueftirlitsins á beiðni kæranda því staðfest.

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1242/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Deilt var um ákvörðun Vestmannaeyjabæjar að synja beiðni um aðgang að verðtilboðum sem bárust vegna raforkukaupa bæjarins. Sveitarfélagið hélt því fram að óheimilt væri að afhenda gögnin samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, því þau innihéldu m.a. upplýsingar um einingarverð sem ekki beri að gefa upp vegna samkeppnissjónarmiða auk þess sem um sé að ræða viðkvæmar fjárhagsupplýsingar sem óheimilt sé að birta samkvæmt lög­um um opinber innkaup. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að ákvörðunin uppfyllti ekki þær kröfur sem gerðar væru til rökstuðnings ákvörðunar samkvæmt upplýsingalögum og að mat samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga hefði verið ófullnægjandi. Var beiðni kæranda því vísað til Vestmannaeyjabæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1241/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Málið varðaði beiðni til Skattsins um tölfræðiupplýsingar um árlegar heildartölur um inn­flutning annars vegar og framleiðslu frá innlendum framleiðendum hins vegar fyrir ýmsa flokka áfengra drykkja, fimm ár aftur í tímann. Skatturinn kvað að ekki lægi fyrir gagn með þessum upp­lýsingum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa. Þá taldi nefndin að jafnvel þótt hjá Skattinum lægju fyrir allar nauðsynlegar upplýsingar til að kalla fram það gagn sem óskað var eftir væri ljóst að ekki væri unnt að gera það með tiltölulega einföldum hætti, svo sem með nokkr­um einföldum skip­unum í gagnagrunni, heldur þyrfti að ráðast í nokkuð umfangsmikla vinnu sem m.a. fæli í sér sam­keyrslu gagnagrunna og handvirka úrvinnslu sérfræðinga á vegum Skatts­ins.…

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1240/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Kærandi taldi Sveitarfélagið Voga hafa afgreitt tvær gagnabeiðnir sínar með ófullnægjandi hætti. Fyrri beiðnin laut að gögnum varðandi leyfi til borunar eftir grunnvatni og hin síðari að gögnum um samskipti við fulltrúa fjármálastofnana um tiltekið svæði á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi um fyrri beiðnina að sveitarfélagið hefði ekki gert fullnægjandi tilraun til að afmarka beiðnina við öll þau gögn sem óskað var eftir. Um síðari beiðnina taldi úrskurðarnefndin að hún uppfyllti skýrleikakröfur samkvæmt upplýsingalögum og að sveitarfélaginu bæri að taka hana til meðferðar, eftir atvikum með því að veita kæranda leiðbeiningar og gefa honum færi á að afmarka beiðni sína nánar.…

    28. jan. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1239/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025

    Óskað var eftir lista yfir nöfn og netföng öryggistrúnaðar­manna og öryggisvarða auk upplýsinga um hvaða fyrir­tæki og stofnanir hefðu tilkynnt Vinnueftir­lit­inu um öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði. Vinnu­eftirlitið kvað að hjá stofn­uninni lægi ekki fyrir gagn sem innihéldi þær upplýsingar sem kærandi óskaði eftir. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu stofnunarinnar í efa. Þá taldi nefndin að jafn­vel þótt fært væri að kalla fram umbeðið gagn með tiltölulega einföldum aðgerð­um þyrfti stofnunin engu að síður að fara yfir rúmlega 1.200 netföng og leggja mat á hvort þau teldust til einkamálefna viðkomandi einstaklinga sem sann­gjarnt væri og eðlilegt að færu leynt.…

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband