Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 908
    Raða eftir:
    25. ágú. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Æfingar listafólks heimilar á ný

    Snertingar verða heimilar við æfingar í sviðslistum, tónlist og við kvikmyndatöku frá 28. ágúst nk.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ný auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

    Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar tekur gildi 28. ágúst næstkomandi og gildir til og með 10. september. Litlar breytingar verða á þeim takmörkunum sem nú gilda og er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra sem fram koma í meðfylgjandi minnisblaði. Þær breytingar sem þó verða gerðar eru raktar hér að neðan. Efnið var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    22. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Niðurstöður úr fyrri skimun ráðherra vegna kórónuveiru neikvæðar

    Niðurstöður úr fyrri skimun ráðherra vegna kórónuveiru reyndust neikvæðar í öllum tilfellum. Félags- og barnamála- og heilbrigðisráðherra þurftu ekki að fara í skimun líkt og áður hefur komið fram.

    21. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ferðakostnaður ríkisins lækkaði um 1,1 milljarð króna milli ára

    Uppfært: Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu sex mánuðum ársins um 1,1 milljarð króna og fór úr 2 ma.kr. árið 2019 í tæpa 0,9 ma.kr.árið 2020. Lækkunin nemur 55% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru.

    21. ágú. 2020Covid-19, Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Vel heppnað sumarverkefni fyrir börn í viðkvæmri stöðu

    Alls sóttu 30 sveitarfélög um styrk og fengu þau öll samþykkta úthlutun.

    20. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Samstaðan skilar árangri - grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu

    Frá fyrstu aðgerðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar vegna heims­far­ald­urs­ins hafa skila­boð okk­ar verið skýr: Við mun­um beita rík­is­fjár­mál­un­um til að hjálpa fólki og fyr­ir­tækj­um í vanda og skapa skil­yrði fyr­ir vöxt efna­hags­lífs­ins á ný. Lík­lega má full­yrða að eng­inn sé ósnort­inn af af­leiðing­um far­ald­urs­ins, en af­leiðing­arn­ar væru meiri og þung­bær­ari ef ekk­ert væri aðhafst. Þetta kemur fram í grein Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í Morgunblaðinu í dag.

    19. ágú. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Leiðbeiningar fyrir framhalds- og háskóla tryggi sameiginlegan skilning

    Á annað hundrað skólastjórnendur, kennarar og sérfræðingar tóku þátt í fjarfundi um sóttvarnarráðstafanir í framhalds- og háskólum með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni í gær.

    19. ágú. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Umhyggja, sveigjanleiki og þrautseigja verði leiðarljós í skólastarfi

    Fulltrúar lykilaðila í starfsemi leik- og grunnskóla undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um leiðarljós skólanna á komandi skólaári.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Breyttar reglur um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum

    Farþegar sem koma til Íslands frá og með 19. ágúst geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis tekur gildi á miðnætti. Krafa um skimun og sóttkví nær til þeirra sem hafa dvalið í meira en sólarhring síðastliðna 14 daga í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði en sem stendur gildir það um öll lönd. Börn fædd árið 2005 eða síðar eru undanþegin sýnatöku og sóttkví og sama gildir um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýkingu og lokið einangrun, eða ef COVID-19 sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu.…

    18. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Tölur yfir stöðu efnahagsaðgerða vegna Covid-19

    Stjórnvöld hafa frá því í mars gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að verja grunnstoðir samfélagsins vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, t.d. með hlutastarfaleið, viðbótarlánum, frestun skattgreiðslna, lokunarstyrkjum, greiðsluhléi lána, úttekt séreignarsparnaðar, styrkingu ferðaþjónustu og fleiri aðgerðum. Upplýsingar yfir stöðu aðgerðanna hafa verið settar upp með myndrænum hætti og verða uppfærðar vikulega á vef Stjórnarráðsins héðan í frá eftir því sem breytingar verða á þeim.

    18. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sex sveitarfélög fá stuðning vegna hruns í ferðaþjónustu

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti ríkisstjórn í morgun skiptingu 150 milljóna króna fjárveitingar til sex sveitarfélaga vegna hruns í ferðaþjónustu í kjölfar Covid-19.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Samtal um leiðarljós

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Á fimmtudaginn næstkomandi, 20. ágúst, boða ég til samráðsfundar í formi vinnustofu, í samstarfi við forsætis-, dóms- og menntamálaráðuneyti, með lykilaðilum af hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Markmið fundarins er að ræða áframhaldandi stefnu og aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að að stilla saman strengi og móta áherslur sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum. Vegna sóttvarnarsjónarmiða verður fjöldi þátttakenda takmarkaður en þeim mun meiri áhersla verður lögð á það að öll sem vilja og hafa áhuga geti tekið þátt í fundinum á netinu.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Samtal um leiðarljós

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Á fimmtudaginn næstkomandi, 20. ágúst, boða ég til samráðsfundar í formi vinnustofu, í samstarfi við forsætis-, dóms- og menntamálaráðuneyti, með lykilaðilum af hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Markmið fundarins er að ræða áframhaldandi stefnu og aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að að stilla saman strengi og móta áherslur sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum. Vegna sóttvarnarsjónarmiða verður fjöldi þátttakenda takmarkaður en þeim mun meiri áhersla verður lögð á það að öll sem vilja og hafa áhuga geti tekið þátt í fundinum á netinu.

    14. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Efnahagsleg sjónarmið við ákvörðun um umfang sóttvarnaaðgerða á landamærum

    Meðfylgjandi er minnisblað fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg sjónarmið við ákvörðun um umfang sóttvarnarráðstafana á landamærum sem lagt var fram í ríkisstjórn í dag:

    14. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Að lifa með veirunni – samráðsfundur 20. ágúst

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið efnir til samráðsfundar í formi vinnustofu 20. ágúst með lykilaðilum í samfélaginu um áframhaldandi aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Streymt verður beint frá fundinum sem markar upphaf samráðsins en afraksturinn verður birtur í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að móta áherslur og leiðarljós sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum.

    14. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Allir komufarþegar fari í tvöfalda skimun og 5-6 daga sóttkví

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi í dag að eigi síðar en frá og með miðvikudeginum 19. ágúst næstkomandi verði allir komufarþegar skimaðir tvisvar við komuna til Íslands.

    13. ágú. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íþróttaæfingar- og keppnir hefjast að nýju

    Æfingar og keppnir fullorðinna í íþróttagreinum með mikilli nálægð verður leyfð að nýju eftir 13. ágúst. Um þetta er fjallað í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

    12. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sveitarstjórnir fá að nýju svigrúm til að bregðast við aðstæðum í samfélaginu

    Ákveðið hefur verið að sveitarstjórnir fái að nýju aukið svigrúm til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og að auðvelda ákvörðunartöku þeirra vegna Covid-19.

    12. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um takmörkun á samkomum taka gildi 14. ágúst

    Samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi 14. ágúst verða reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum. Að öðru leyti gildir áfram meginreglan um 2 metra nálægðarmörk. Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja 2 metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu. Hjúkrunarheimilum, öðrum heilbrigðisstofnunum og sambærilegum stofnunum er gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilum og stofnunum. Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki.…

    05. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Styrkir til sveitarfélaga vegna áskorana í félagsþjónustu í tengslum við Covid-19

    Byggðastofnun hefur auglýst styrki til sveitarfélaga vegna áskorana sem hafa fylgt COVID-19 faraldri í félagsþjónustu og barnavernd vorið 2020.

    04. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyting á auglýsingu um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að gera breytingar á auglýsingu þeirri sem tók gildi 31. júlí síðastliðinn.

    30. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar birt í Stjórnartíðindum

    Birt hefur verið í Stjórnartíðindum auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi á hádegi á morgun 31. júlí og gildir til og með 13. ágúst nk. Meginbreytingin felst í því að fjöldatakmörkun á samkomum lækkar úr 500 í 100 og 2 metra reglan tekur aftur gildi á milli þeirra einstaklinga sem ekki deila heimili. Þá hefur ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem fellir úr gildi fyrri reglugerð um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 verið birt í Stjórnartíðindum.

    30. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hertar aðgerðir innanlands og á landamærum vegna COVID-19 frá hádegi 31. júlí nk.

    Á hádegi þann 31. júlí næstkomandi taka gildi hertar aðgerðir innanlands og á landamærum vegna COVID-19 sem standa í tvær vikur, út 13. ágúst nk. Ákvörðunin er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem heilbrigðisráðherra hefur samþykkt.

    28. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 18. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum til 18. ágúst.

    23. júl. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Styrkja félagasamtök sem styðja við viðkvæma hópa og kortleggja fyrirkomulag matarúthlutana

    Samtals verður 25 milljónum króna úthlutað.

    21. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 4. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta til 4. ágúst. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin.

    21. júl. 2020Rit og skýrslur, Utanríkismál, Covid-19, Utanríkisviðskipti, Utanríkisráðuneytið

    Saman á útivelli – Framkvæmd utanríkisstefnu Íslands í kjölfar COVID-19

    Starfshópur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um stuðning utanríkisþjónustunnar við útflutningsgreinar var falið að móta tillögur að því hvernig utanríkisþjónustan geti betur stutt við atvinnulífið vegna efnahagslega afleiðinga COVID-19 heimsfaraldursins.

    17. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Fyrirmæli landlæknis um mótefnamælingar vegna COVID-19

    Þann 15. júlí tóku gildi fagleg fyrirmæli landlæknis sem ráðherra hefur staðfest, um mótefnamælingar til greiningar og eftirfylgni á COVID-19 sjúkdómnum auk þess sem breyting á reglugerð um sóttvarnaráðstafanir tók gildi.

    17. júl. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ferðaábyrgðasjóður – endurgreiðslur til neytenda vegna pakkaferða

    Sjóðurinn var settur á fót þar sem ekki hafa allar ferðaskrifstofur getað staðið undir lögboðnum endurgreiðslum á pakkaferðum sem hefur verið aflýst eða þær verið afbókaðar vegna heimsfaraldursins. Honum er ætlað að veita þessum ferðaskrifstofum lán til að standa skil á endurgreiðslum til neytenda og tryggja þannig rétt þeirra auk þess að aðstoða ferðaskrifstofur í erfiðu rekstrarumhverfi um þessar mundir. Eftirlitsstofnun EFTA hefur yfirfarið og samþykkt þessa ráðstöfun með tilliti til ríkisstyrkjaregla.

    16. júl. 2020Utanríkisráðuneytið, Útlendingar, Covid-19, Landamæraeftirlit, Dómsmálaráðuneytið

    Uppfærður listi yfir ríki - íbúum tólf ríkja utan EES og Schengen heimilt að heimsækja Ísland

    Aðildarríki ESB hafa uppfært lista þar sem afnumdar eru ferðatakmarkanir gagnvart íbúum tiltekinna ríkja. Tvö lönd féllu út af fyrri lista sem eru Serbía og Svartfjallaland.

    15. júl. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Ferðaþjónusta, Covid-19

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi verða undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi bætast á lista með Færeyjum og Grænlandi og verða frá og með fimmtudeginum 16. júlí undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví vegna Covid-19.

    15. júl. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Inspired by Iceland: Bjóða fólki um allan heim að losa um streitu á Íslandi

    „Það er spennandi að geta boðið fólki að upplifa Ísland með þessum hætti. Ég held að við þurfum öll að losa um streitu eftir undanfarna mánuði, og Ísland hefur allt til að bjóða fyrir fólk sem þarf á endurnærandi upplifun að halda. Hvort sem það er stafræn heimsókn til að losa um streitu eða raunveruleg heimsókn í afslappað frí,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

    14. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Atvinnuvegir

    Umsóknir um stuðningslán komnar í 2,2 milljarða

    Umsókn um stuðningslán var virkjuð á ísland.is 9. júlí s.l. en síðan þá hafa 171 fyrirtæki sótt um grunnlán fyrir allt að 10 m.kr. með 100% ríkisábyrgð. Þar af hafa 56 fyrirtæki til viðbótar sótt um auka-stuðningslán, allt að 40 m.kr. með 85% ríkisábyrgð. Samtals gera þetta 227 lán fyrir tæpa 2,2 milljarða (2.176.000.000).

    10. júl. 2020Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Heimkomusmitgát vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnarlæknis, að frá og með 13. júlí nk. skuli þeir sem eru búsettir hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í fimm daga eða þar til niðurstöður úr síðari sýnatöku liggja fyrir. Er þetta gert til að minnka líkurnar á að röng niðurstaða á prófi á landamærum geti leitt til stærri hópsmita á Íslandi.

    09. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðningslán virkjuð á Ísland.is

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stuðningslán á Ísland.is. Stuðningslán eru hluti af viðspyrnuaðgerðum stjórnvalda og er ætlað að styðja við smærri og meðalstór fyrirtæki sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli.

    09. júl. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Samningar um viðbótarfjárveitingu til landshlutasamtaka undirritaðir

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og framkvæmdastjórar sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga undirrituðu í lok júní samninga um ráðstöfun 200 milljóna kr. aukafjárveitingar til sóknaráætlana landshluta.

    06. júl. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19

    Teymið hefur fundað fjórum sinnum og gefið út þrjár skýrslur.

    03. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ákvörðun um breyttar reglur vegna skimunar á landamærum

    Sóttvarnalæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að breyta reglum um skimun á landamærum vegna COVID-19. Breytingin snýr eingöngu að íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sóttkvíar eða skimunar á landamærum en gert er ráð fyrir að einstaklingar úr fyrrnefndum hópi sem velja skimun þurfi að fara aftur í skimun 4 – 5 dögum eftir komuna til landsins og vera í sóttkví þar til niðurstaða seinni sýnatökunnar liggur fyrir. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis og er stefnt að því að breytingin komi til framkvæmda eigi síðar en 13. júlí.

    03. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin. Upplýsingagjöf til almennings um einstaklingsbundnar sýkingavarnir verður efld.

    03. júl. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stuðnings - Kría hefur sig til flugs: Stefnt að mótframlagslánum í sumar

    „Sprota- og nýsköpunarfyrirtæki hafa mikilvægu hlutverki að gegna í uppbyggingu atvinnulífs hér á landi. Stuðnings - Kría nýtist sprotafyrirtækjum í því ótrygga ástandi sem nú ríki og er upptaktur að þeirri auknu samvinnu stjórnvalda sem stefnt er að með Kríu – sprota - og nýsköpunarsjóði,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra.

    01. júl. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Skrifað undir samning um 250 milljóna kr. viðbótarfjármagn til sóknaráætlunar Suðurnesja

    Skrifað var í dag undir viðaukasamning við sóknaráætlun Suðurnesjum sem kveður á um 250 milljóna viðbótarfjármagn til að efla þjónustu og efla sveitarfélög á svæðinu.

    30. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Evrópusamvinna, Landamæraeftirlit, Schengen-samstarfið, Útlendingar

    Óbreyttar reglur á landamærum þar til ný reglugerð tekur gildi

    Í dag samþykktu aðildarríki ESB afnám tímabundinna ferðatakmarkana inn á Schengen-svæðið gagnvart ríkisborgurum 15 ríkja. Listi yfir þessi lönd verður endurskoðaður á vegum ESB á minnst 14 daga fresti.

    27. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Kosningar, Covid-19

    Aðstaða fyrir fólk í sóttkví til að kjósa

    Ákveðið hefur verið að aðstaða fyrir þá sem eru í sóttkví vegna Covid 19 og vilja greiða atkvæði í forsetakosningunum í dag verði opnuð í Hlíðarsmára 1 í Kópavogi á bílaplani sunnan megin við húsið. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu mun sjá um kosninguna. Unnt verður að greiða atkvæði milli kl. 15 og 18:30.

    26. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Utanríkisráðuneytið

    Gjald vegna skimunar á landamærum verður lægra en áformað var

    Þann 1. júlí næstkomandi hefst gjaldtaka af komufarþegum vegna skimunar fyrir COVID-19 á landamærum. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gjaldið verði 11.000 kr. ef greitt er á staðnum en 9.000 kr. ef greitt er fyrirfram. Þetta er nokkru lægra gjald en upphaflega var áætlað samkvæmt kostnaðarmati. Nýtt mat byggt á fenginni reynslu og breyttum forsendum leiðir í ljós að kostnaður við hvert sýni er að jafnaði lægra en ætlað var. Reglugerð heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum.

    26. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur, Vinnumál, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Heimildir til endurskipulagningar orðnar að lögum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Um er að ræða lög sem auðvelda eiga fyrirtækjum að endurskipuleggja rekstur sinn og þar með komast hjá gjaldþroti vegna tímabuns tekjumissis vegna áhrifa Covid-19.

    26. jún. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Almannaöryggi

    Dómsmálaráðherra stýrði norrænum ráðherrafundi vegna Covid-19

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, stýrði í morgun fundi norrænna ráðherra dóms- og innanríkismála. Efni fundarins voru aðgerðir og viðbrögð vegna Covid-19 faraldursins.

    26. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nær allar mótvægisaðgerðir vegna heimsfaraldurs komnar til framkvæmda

    Nær allar mótvægisaðgerðir sem gripið hefur verið til vegna heimsfaraldurs kórónuveiru eru komnar til framkvæmda. Eftir stendur greiðsla launa á uppsagnarfresti, en stefnt er að því að fyrsti hluti komi til greiðslu fyrir 20. júlí, og stuðningslán þar sem verið er að leggja lokahönd á umsóknargátt.

    25. jún. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þrjátíu þúsund hafa sótt Ferðagjöfina: Komdu með!

    Nú hafa yfir þrjátíu þúsund einstaklingar sótt Ferðagjöfina sína. Allir einstaklingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi fá Ferðagjöf að andvirði 5.000 kr. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar kórónuveirufaraldurs og efla þannig íslenska ferðaþjónustu sem og hvetja landsmenn til að eiga góðar stundir á ferðalagi víðsvegar um landið. Hægt er að kynna sér Ferðagjöf á vefsíðunni www.ferdalag.is og sjá hvaða fyrirtæki taka þátt.

    25. jún. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Samningur um lágmarksflug til Boston framlengdur

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning við Icelandair um lágmarksflug til Bandaríkjanna til og með 8. ágúst.

    25. jún. 2020Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Almannaöryggi

    Norrænu ráðherrarnir vilja efla fæðuöryggi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra og norrænir ráðherrar á sviði landbúnaðar, matvæla, fiskveiða, fiskeldis og skógræktar vilja efla og styrkja fæðuöryggi á Norðurlöndunum. Þetta er niðurstaða norræns ráðherrafundar sem fram fór í gær.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband