Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 2063
    Raða eftir:
    22. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigurður Kári skipaður skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigurð Kára Árnason í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu.

    21. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tæpum 330 milljónum króna varið til tækjakaupa vegna bráðaþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja 215 milljónum kr. af fjárlögum næsta árs til að bæta tækjabúnað vegna bráðaþjónustu á heilsugæslustöðum um allt land. Úthlutunin kemur til viðbótar tæpum 114 milljónum kr. sem úthlutað var til heilbrigðisstofnana fyrr á þessu ári vegna bráðaþjónustu á sjúkrahúsum. Markmiðið er að halda áfram að jafna aðgengi að bráðaþjónustu um allt land og gera heilbrigðisstofnunum betur kleift að veita þessa mikilvægu þjónustu á starfssvæðum sínum. Ákvörðunin er byggð á tillögum viðbragðsteymis um bráðaþjónustu.

    16. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Þingsályktun um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að tillögu Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til næstu fimm ára. Aðgerðaáætlunin byggist á ályktun Alþingis um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem þingið samþykkti í júní síðastliðnum. Í áætluninni er megináhersla lögð á forvarnir og snemmtæk úrræði, heildræna, samþætta og notendamiðaða þjónustu, notendasamráð og nýsköpun með bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu um allt land að leiðarljósi. Umsagnarfrestur er til 12. janúar næstkomandi.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að framtíðarfyrirkomulagi vegvísunar í heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að skipuleggja fyrirkomulag vegvísunar í heilbrigðiskerfinu til framtíðar. Markmiðið er að tryggja almenningi greiðar og aðgengilegar upplýsingar um hvert leita skuli eftir heilbrigðisþjónustu í samræmi við þörf og aðstæður hvers og eins hverju sinni. Horft er til þess að með samræmdri upplýsingagjöf og aukinni samvinnu þjónustuveitenda megi bæta þjónustu við sjúklinga og dreifa álagi á heilbrigðiskerfið. Fyrsti fundur starfshópsins var í dag.

    15. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmd heilbrigðisþjónusta vegna kynferðisofbeldis

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta samræmt verklag um þjónustu við þau sem leita til heilbrigðisstofnana vegna kynferðisofbeldis hefur skilað niðurstöðum sínum. Markmiðið er að tryggja sem jafnast aðgengi þolenda að faglegri heilbrigðisþjónustu í slíkum málum, óháð búsetu, efnahag eða öðrum aðstæðum. Auk tillagna um samræmt verklag og skráningu er lögð til skipulögð fræðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem styður við rétt viðbrögð þess. Þetta getur skipt miklu máli fyrir líðan þolenda og jafnframt ef til málsmeðferðar kemur.

    13. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Guðlaug Rakel ráðin tímabundið í verkefni hjá heilbrigðisráðuneytinu

    Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala hefur verið ráðin til tímabundinna verkefna hjá heilbrigðisráðuneytinu. Verkefnin sem hún mun vinna að snúa m.a. að mönnun í heilbrigðisþjónustu með áherslu á hjúkrun, gerð viðbragðsáætlana og stuðning við innleiðingu Evrópureglugerðar um heilbrigðisvár þvert á landamæri.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um hækkun starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í samráð

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

    07. des. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fræðsluefni um barneignarþjónustu fyrir verðandi foreldra af erlendum uppruna

    Heilbrigðisráðherra hefur veitt Fæðingarheimili Reykjavíkur þriggja milljóna króna styrk til að útbúa fræðsluefni um barneignarferlið sem miðar að bættri þjónustu við verðandi foreldra af erlendum uppruna.

    30. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið við Klíníkina um aðgerðir vegna endómetríósu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem þar með hefur tekið gildi. Samningurinn kveður á um að þeir sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs. ​

    28. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir verkefni í þágu trans-barna og hinsegin fólks

    Heilbrigðisráðuneytið hefur hlotið rúmar fjórar milljónir króna úr Framkvæmdasjóði hinsegin málefna sem renna til tveggja afmarkaðra verkefna á Landspítala í þágu trans barna og hinsegin fólks. Annars vegar verður ráðist í rannsókn sem miðar að því að kortleggja þarfir og óskir hinsegin fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu transteymis Landspítala. Hins vegar er um að ræða þróunarverkefni á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) sem felst í því að undirbúa og koma á fót fræðsluhópi fyrir foreldra trans barna sem eru í þjónustu hjá transteymi BUGL.

    24. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Spornað við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis: Þórólfur Guðnason formaður starfshóps um verkefnið

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað þverfaglegan starfshóp til að móta framtíðarsýn og áætlun um aðgerðir til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnalæknir, er formaður hópsins. Þórólfur hefur verið ráðinn tímabundið til heilbrigðisráðuneytisins til að leiða verkefnið sem unnið er með matvælaráðuneyti og ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála.

    23. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk – kynningarfundur 5. desember

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra halda opinn kynningarfund 5. desember kl. 11–13 á hótel Hilton Nordica, þar sem kynnt verða drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um heildarendurskoðun þjónustu við eldra fólk. Í stuttum erindum verður sagt frá því hvernig á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu. Fundurinn er öllum opinn en óskað eftir því að þau sem ætli að mæta skrái sig fyrir fram. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

    18. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Íslenskir læknanemar í Slóvakíu

    Heilbrigðisráðherra fylgdi forseta Íslands í opinberri heimsókn til Slóvakíu í lok október þar sem þeir kynntu sér meðal annars starfsemi Jessenius-læknadeildar Komeniusarháskólans í borginni Martin. Um 170 íslenskir læknanemar stunda þar nú nám. Fyrstu nemarnir skráðu sig til náms við deildina árið 2012 og frá þeim tíma hafa 79 íslenskir læknar útskrifast frá háskólanum.

    18. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Áform um lagabreytingu sem snýr að varðveislu fósturvísa

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda áform heilbrigðisráðherra um lagasetningu til breytinga á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfruma og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Samkvæmt gildandi lögum er skylt að eyða fósturvísum við breyttar aðstæður aðila, s.s. eftir sambúðarslit. Áformuð lagabreyting snýr að því að einstaklingum sem eiga fósturvísa verði í sjálfsvald sett að ákveða um geymslu og notkun þeirra. Markmiðið er m.a. að tryggja jafnræði og fyrirbyggja að einstaklingum sé mismunað eftir ólíkum fjölskylduformum. Heilbrigðisráðuneytið hefur nú til skoðunar hvort ráðast eigi í heildarendurskoðun laganna í framhaldi.

    16. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Á fjórða hundrað sóttu vel heppnað heilbrigðisþing um lýðheilsu

    Húsfyllir var á heilbrigðisþingi um lýðheilsu á hótel Hilton Nordica 10. nóvember síðastliðinn og töldu gestir um 350 manns. Þeir sem ekki komust að gátu fylgst með beinu streymi frá þinginu og voru margir sem nýttu sér það. Upptaka frá þinginu er aðgengileg á www.heilbrigdisthing.is. Þar má einnig nálgast stakar upptökur af erindum allra fyrirlesaranna ásamt upplýsingum um þá og dagskrá þingsins.

    16. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt meistaranám í geðhjúkrun skapar margvísleg tækifæri

    Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, geðþjónusta Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri, bjóða nú í fyrsta sinn upp á sameiginlegt tveggja ára klínískt meistaranám í geðhjúkrun hér á landi og er námið vistað hjá Háskóla Íslands. Námið er til tveggja ára. Samstarf þessara fjögurra stofnana felur í sér að háskólarnir í sameiningu bjóða upp á fræðilega undirstöðu og nauðsynlega sérhæfingu og heilbrigðisstofnanirnar bjóða upp á 12 launaðar sérnámsstöður í geðhjúkrun á fyrra ári námsins. Fyrstu nemendurnir innrituðust í haust.

    14. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sérfræðingur á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starfs sérfræðings á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu. Verksvið skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu er annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónusta auk eftirmeðferðar og endurhæfingar, sjúkraflutninga, þjónustu hjúkrunarheimila og dagdvalar aldraðra. Skipulag skrifstofunnar byggir á þjónustuflokkum og snýr auglýst starf fyrst og fremst að endurhæfingarþjónustu innan sem utan stofnana.

    09. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmt verklag í heilbrigðisþjónustu við móttöku þolenda heimilisofbeldis

    Unnið er að því að innleiða samræmt verklag og bæta þjónustu heilbrigðiskerfisins við þolendur heimilisofbeldis. Verið er að forrita og setja upp í sjúkraskrá rafrænt skráningarform sem styður við verklagið. Markmið vinnunnar er að tryggja þolendum heimilisofbeldis sem besta þjónustu og þróa og efla þjónustuna til lengri tíma litið.

    08. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bráðaþjónusta efld um allt land með bættum tækjabúnaði

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðisins 113,5 milljónir króna til kaupa á tækjabúnaði sem styrkir bráðaþjónustu um allt land. Ákvörðunin er byggð á tillögu viðbragðsteymis um bráðaþjónustu. Markmiðið er að auka getu heilbrigðisstofnana til að veita bráðaþjónustu og stuðla að jafnara aðgengi að þjónustunni á landsvísu.

    04. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Notendaráð heilbrigðisþjónustu skipað í fyrsta sinn

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað notendaráð heilbrigðisþjónustu. Ráðið er skipað samkvæmt tilnefningum sjúklingasamtaka og er tilgangur þess að tryggja að sjónarmið notenda séu höfð til hliðsjónar við ákvarðanatöku um atriði sem varða hagsmuni sjúklinga innan heilbrigðisstofnana.

    03. nóv. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt skipurit Landspítala tekur gildi 1. janúar 2023

    Breytingar verða á stjórnskipulagi Landspítala með nýju skipuriti sem tekur gildi um næstu áramót. Megináherslan í nýju stjórnskipulagi er að styrkja klíníska starfsemi spítalans með því að færa aukið umboð og ákvörðunarvald nær framlínu þar sem þjónustan er veitt. Þverfagleg klínísk starfsemi allra fagstétta spítalans fái þannig styrkari grunn til að eflast.

    31. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur um sálfræðiþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert nýjan rammasamning um sálfræðiþjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Samningurinn hefur verið uppfærður með það að leiðarljósi að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu. Samningurinn nær núna til allra aldurshópa og stuðlar að fjölbreyttari þjónustu. Einnig standa vonir til þess að fleiri sálfræðingar sjái sér fært að starfa samkvæmt nýjum samningi þar sem viðmiðum um starfsreynslu hefur verið breytt.

    28. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

    Auglýst er eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Í ár leggur heilbrigðisráðherra áherslu á að styrkja verkefni sem stuðla að jöfnu aðgengi. Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 30. nóvember næstkomandi.

    26. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar Covid-sjúklinga

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið um kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar einstaklinga sem eru smitaðir af SARS-CoV-2 veirunni og í hættu á að veikjast alvarlega af völdum hennar. Á hinum Norðurlöndunum hefur lyfið Paxlovid þegar verið tekið í notkun í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.

    25. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælt með ferðamannabólusetningum við barnaveiki og mænusótt

    Sóttvarnalæknir mælir með bólusetningu gegn barnaveiki og mænusótt fyrir öll ferðalög út fyrir landsteinana, fyrir 24 ára og eldri sem ekki hafa fengið slíkar bólusetningar á síðastliðnum 10 árum. Ástæðan er fjölgun tilvika barnaveiki barnaveiki í Evrópu það sem af er ári og dreifing mænusóttarveiru í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. Heilsugæslan og aðilar sem sinna ferðamannaheilsuvernd sinna bólusetningum.

    21. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsti hópur hjúkrunarfræðinga útskrifast af nýrri námsleið

    Í dag voru brautskráðir frá Háskóla Íslands 14 hjúkrunarfræðingar af nýrri námsleið fyrir fólk sem áður hefur lokið háskólagráðu í öðru fagi en hjúkrun. Námsleiðin er skipulögð sem sex missera nám í að uppfylltum forkröfum, 11 mánuðir hvort ár og er klínísk kennsla þar meðtalin. Námið veitir BS gráðu og telur 240 einingar.

    21. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Víðtækari bólusetning gegn HPV veirunni til að auka vörn gegn krabbameini

    Heilbrigðisráðherra áformar að almenn bólusetning gegn HPV veiru (e. Human Papilloma Virus) verði boðin öllum börnum óháð kyni og að jafnframt verði innleitt nýtt breiðvirkara bóluefni sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameini af völdum veirunnar.

    19. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Líf og heilsa, Menntamál, Háskólar, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar

    Minnisblað til upplýsinga um forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar hefur verið lagt fyrir ríkisstjórn.

    18. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vel heppnuð alþjóðleg ráðstefna um fjármögnun heilbrigðiskerfa

    Dagana 27.-30. september síðastliðinn stóð heilbrigðisráðuneytið fyrir 35. ráðstefnu alþjóðlegu samtakanna PCSI (Patient Classification Systems International) á Hótel Hilton í Reykjavík. Rúmlega 250 gestir frá 27 löndum sóttu ráðstefnuna. Efni hennar tengist innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar heilbrigðisþjónustu (DRG) hér á landi, en þema ráðstefnunnar snerist um hvernig aðferðafræði DRG getur verið grundvöllur sjálfbærrar heilbrigðisþjónustu. Ráðstefnan var haldin í samvinnu við Nordic Casemix Centre sem er miðstöð þróunar DRG aðferðafræðinnar á Norðurlöndunum.

    17. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Átak sem styttir bið eftir meðferð við kæfisvefni

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkratryggingum Íslands fjármagn til kaupa á 1.000 svefnöndunarvélum til meðhöndlunar á kæfisvefni. Ákvörðunin tengist aukinni getu Landspítala til að veita meðferð við kæfisvefni með ráðningu aðstoðarfólks við eininguna sem kemur að þessari þjónustu. Rúmlega 1.000 einstaklingar bíða nú meðferðar og er biðtíminn um 12 mánuðir. Með átakinu stefnir Landspítali að því að bið eftir meðferð styttist verulega og verði í framtíðinni aðeins nokkrar vikur.

    13. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra boðar til lýðheilsuþings

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings 2022 sem að þessu sinni verður helgað lýðheilsu. Þingið verður haldið 10. nóvember á hótel Hilton Reykjavík Nordica. Þingið er öllum opið en fulltrúar heilbrigðisstofnana, fræðasamfélagsins, sveitarfélaga, skólanna, íþróttahreyfingarinnar og annarra félagasamtaka sem láta sig málið varða eru sérstaklega hvattir til þátttöku.

    13. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norræn skýrsla um samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í dreifðum byggðum

    Vakin er athygli á nýrri skýrslu Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar um samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu í dreifðum byggðum. Í skýrslunni er fjallað um fimm dæmi slíkrar samþættingar í tilteknum umdæmum í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og á Íslandi þar sem segir frá undirbúningi að slíkri samþættingu í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Skýrslan er afurð norræna samstarfsverkefnis iHAC (Integrated healthcare and care) sem Svíar leiða. Markmiðið er að sýna hvernig unnt sé að samþætta í auknum mæli heilbrigðis- og félagsþjónustu, þvert á skipulagsheildir, og nýta stafrænar lausnir og fjarheilbrigðisþjónustu til að mæta betur þörfum notenda.

    11. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Leiðbeinandi álit vísindasiðanefndar um upplýst samþykki

    Vísindasiðanefnd hefur gefið út leiðbeinandi álit um upplýst samþykki fyrir þátttöku í vísindarannsóknum. Nefndin stóð fyrir málþingi um þetta efni í apríl síðastliðnum þar sem fjallað var um lög, reglur og sjónarmið sem gilda í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði. Álitinu er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir ábyrgðarmenn vísindarannsókna og einnig upplýsandi fyrir þátttakendur í slíkum rannsóknum.

    06. okt. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnun Austurlands tryggt nýtt tölvusneiðmyndatæki

    Heilbrigðisráðherra hefur veitt Heilbrigðisstofnun Austurlands 80 milljónir króna til kaupa á nýju tölvusneiðmyndatæki. Tækið mun auka öryggi við greiningu og meðferð sjúklinga í heilbrigðisumdæminu, til dæmis í kjölfar slysa eða bráðra veikinda. Með nýju tæki verður jafnframt unnt að þjónusta í heimabyggð sjúklinga sem annars þyrftu að ferðast um langan veg til myndgreiningar með tilheyrandi fyrirhöfn og kostnaði.

    28. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Um 650 milljónum króna úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Áhersla var lögð á ​verkefni sem bæta aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum, úrbætur sem tengjast aðgengismálum og öryggismálum og ýmsum stærri viðhaldsverkefnum. Alls bárust umsóknir um framlög til 60 verkefna og hlutu 54 þeirra styrk.

    27. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aldrei fleiri í sérnámi í heimilislækningum

    Aldrei hafa fleiri stundað sérnám í heimilislækningum. Í dag eru 95 læknar skráðir í námið en til samanburðar voru þeir 38 árið 2017. Frá þeim tíma hafa að jafnaði sjö til átta læknar útskrifast úr sérnáminu ár hvert. Nú er umtalsverð fjölgun fyrirsjáanleg. Við bestu aðstæður munu samtals 57 læknar ljúka sérnámi í heimilislækningum á næstu þremur árum.

    26. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um tóbaksvarnir - innleiðing Evróputilskipunar

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til laga um breytingu á lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir. Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tilskipun 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum. Umsagnarfrestur er til og með 10. október.

    23. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Brjóstamiðstöð Landspítala formlega opnuð

    Ný brjóstamiðstöð Landspítala var formlega opnuð í gær. Í brjóstamiðstöðinni er heildstæð heilbrigðisþjónusta og öflug þverfagleg teymisvinna. Þar á sér meðal annars stað brjóstaskimun, brjóstamyndgreining, greiningar á sjúkdómum og öflug göngudeildarþjónusta. Miðstöðin heldur utan um fjölbreytta þjónustu tengdum ýmsum sjúkdómum í brjóstum, sinnir þjónustu úti á landi og fólki sem er í áhættuhópi á að fá krabbamein vegna stökkbreytinga í genum.

    21. sep. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Stórt skref stigið með skipun Endurhæfingarráðs

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hafa skipað Endurhæfingarráð – samstarfsvettvang um endurhæfingu þvert á velferðarkerfi ráðuneytanna.

    20. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skóflustunga tekin að nýju hjúkrunarheimili á Höfn

    Heilbrigðisráðherra ásamt tíu elstu íbúum Hornafjarðar tóku í gær fyrstu skóflustungurnar að nýju hjúkrunarheimili á Höfn sem er áætlað að verði tekið í notkun árið 2024. Framkvæmdin felur í sér 1.400 fermetra viðbyggingu við eldra húsnæði Skjólgarðs sem jafnframt verður endurgert. Hjúkrunarrýmum mun fjölga um sex og aðbúnaður fyrri íbúa breytast til hins betra.

    12. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ásgeir Margeirsson skipaður formaður stýrihóps um Hringbrautarverkefnið

    Heilbrigðisráðherra hefur framlengt skipunartíma stýrihóps um verkefni Nýs Landspítala ohf. (NLSH) til 25. ágúst 2024. Ásgeir Margeirsson hefur verið skipaður formaður hópsins en skipan hans er að öðru leyti óbreytt.

    09. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ferli umsókna um styrki vegna næringarefna og sérfæðis einfaldað

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að einfalda umsóknarferli vegna styrkja sem veittir eru til niðurgreiðslu á næringarefni eða sérfæðis fyrir einstaklinga sem á því þurfa að halda. Með breytingunni verður það á hendi þess heilbrigðisstarfsmanns sem vinnur að lausn á næringarvanda einstaklings að annast umsóknina. Krafa um læknisvottorð fellur brott nema í undantekningartilvikum þar sem Sjúkratryggingar Íslands telja vottorð læknis nauðsynlegt. Breytingin er gerð í samræmi við ábendingu Landspítala. Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um þessa breytingu hefur verið send Stjórnartíðindum og öðlast gildi við birtingu.

    08. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælaborð með vísum um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á landsbyggðinni

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt mælaborð sem veitir margvíslegar upplýsingar um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á landsbyggðinni. Mælaborðið endurspeglar þá vísa sem lagðir eru til grundvallar í fjármögnunarlíkaninu sem stýrir fjármögnun heilsugæslustöðva. Kerfið byggist á því að fjármagn til hverrar heilsugæslustöðvar endurspegli þann hóp fólks sem stöðin þjónar, umfang og gæði veittrar þjónustu og hversu vel viðkomandi stöð nær tilteknum markmiðum um ýmsa þætti þjónustunnar. Mælaborðið gerir meðal annars kleift að bera saman hvernig einstakar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu standa gagnvart þeim breytum sem fjármögnunarlíkanið tekur til.

    08. sep. 2022Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum

    september 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum Tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum

    08. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verkefnastjórn falið að meta og innleiða tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með skýrslu starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum. Þar eru lagðar fram tillögur að samræmdu og stöðluðu verklagi liðskiptaaðgerða, allt frá undirbúningi tilvísunarbeiðna til eftirfylgdar eftir aðgerð. Tilgangurinn er að auka gæði og öryggi þjónustunnar. Heilbrigðisráðherra fól embætti landlæknis að leiða verkefnið í samvinnu við fulltrúa stofnana sem framkvæma liðskiptaaðgerðir hér á landi og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

    08. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samræmt verklag heilbrigðisþjónustu í kynferðisbrotamálum í mótun

    Heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör verkefni sem miðar að því að vinna að samræmdu verklagi og úrræðum við móttöku þeirra sem leita til heilbrigðisstofnana landsins vegna kynferðisofbeldis. Liður í verkefninu verður að kortleggja og skýra afgreiðslu áverkavottorða og hvernig aðkomu réttargæslumanna skuli háttað í ofbeldismálum, þar með töldum kynferðisbrotamálum. Í samræmdu verklagi verður sérstaklega hugað að fólki sem er í viðkvæmri stöðu, s.s. vegna fötlunar, uppruna, kynhneigðar, kynvitundar og aldurs.

    07. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar, Líf og heilsa

    Eitt mikilvægasta verkfærið í verkfærakistunni

    Grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra um endurhæfingu.

    01. sep. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna framlengd

    ​Gildistími reglugerðar heilbrigðisráðherra um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna hefur verið framlengdur frá 1. september til 31. október nk. Reglugerð um framlenginguna hefur verið send Stjórnartíðindum og birtist í dag. Réttur sjúklinga til endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sérgreinalækna helst því óbreyttur. Samningaviðræður milli Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna standa yfir. Heilbrigðisráðuneytið leggur áherslu á að staða sjúklinga gagnvart endurgreiðslu kostnaðar meðan samningar liggja ekki fyrir sé tryggð.

    25. ágú. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra heimsótti Heilbrigðisstofnun Austurlands

    Heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) þar sem hann hitti framkvæmdastjórn stofnunarinnar og kynnti sér starfsemi hennar á Egilsstöðum, Reyðarfirði og í Neskaupsstað. Stofnunin veitir alhliða heilsugæslu- sjúkra- og hjúkrunarþjónustu á Austurlandi á 13 starfsstöðvum og rekur öll hjúkrunarheimilin í umdæminu sem eru fimm talsins.

    24. ágú. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um nýbyggingu endurhæfingar við Grensás

    Heilbrigðisráðherra undirritaði í gær samning Nýs Landspítala ohf. við Nordic Office of Architecture og EFLU verkfræðistofu um fullnaðarhönnun 3.800 fermetra viðbyggingar við endurhæfingardeild Grensáss. Ráðherra segir þetta enn einn ánægjulegan áfanga í uppbyggingu betra húsnæðis fyrir Landspítala, sjúklinga og starfsfólk Grensáss og þá mikilvægu starfsemi sem þar fer fram. Gert er ráð fyrir að hönnunarferlið taki um það bil eitt ár og að því loknu verði unnt að hefja verklegar framkvæmdir.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband