26. nóvember 2026 /

Mál nr. 52/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 23. nóvember 2026

í máli nr. 52/2026:

ÞG verktakar ehf.

gegn

Garðabæ

 

Lykilorð

Kröfu um stöðvun innkaupaferlis hafnað.

Útdráttur

Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kæranda um að innkaupaferli varnaraðila yrði stöðvað um stundarsakir þar sem skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup voru ekki talin uppfyllt.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. nóvember 2026 kærði ÞG verktakar ehf. (hér eftir „kærandi“) innkaupaferli Garðabæjar (hér eftir „varnaraðili“) auðkennt „Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri“.

Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila, um að hafna forvalsumsókn kæranda 20. október 2026, verði felld úr gildi. Til vara er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda, sbr. 2. mgr. 111. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Kærandi krefst jafnframt að kærunefnd útboðsmála stöðvi um stundarsakir innkaupaferli varnaraðila þar til endanlega hefur verið leyst úr kærunni, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.

Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 12. nóvember 2026 að öllum kröfum kæranda verði hafnað, þ. á m. kröfu kæranda um stöðvun útboðs/samningsgerðar um stundarsakir samkvæmt 110. gr. laga nr. 120/2016.

Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til þeirrar kröfu kæranda að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

 

I

Varnaraðili auglýsti 26. ágúst 2026 á Evrópska efnahagssvæðinu eftir umsóknum áhugasamra aðila um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna hönnunar, uppbyggingar og útleigu á húsnæði fyrir þjónustumiðstöð og hjúkrunarheimili í Vetrarmýri í Garðabæ. Leitað væri að aðilum sem myndu taka að sér að hanna, byggja og leigja húsnæðið til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Garðabæjar. Um var að ræða forval og yrðu þeir aðilar sem uppfylltu kröfur forvalsgagna valdir til áframhaldandi þátttöku í lokuðu útboði, sbr. greinar 0.1.1 og  0.1.2 í forvalsgögnum.

Í kafla 0.2 í forvalsgögnum komu fram kröfur vegna hæfis umsækjenda og fylgigögn með umsókn. Í grein 0.2.1 kom fram ef umsækjandi byggði á getu annars aðila í samræmi við 76. gr. laga nr. 120/2016 skyldi hæfisyfirlýsing umsækjanda einnig innihalda viðeigandi upplýsingar samkvæmt 1. mgr. 73. gr. sömu laga um þann aðila. Umsækjandi skyldi jafnframt sanna fyrir kaupanda að hann hafi tryggt sér tilgreinda aðstoð, með því að leggja fram með forvalsumsókn sinni skuldbindandi yfirlýsingu þess aðila um að hann muni annast verkið eða þjónustuna.

Í grein 0.2.4 komu fram kröfur um hæfi vegna fjárhagsstöðu, og var m.a. gerð sú krafa að leigutekjur umsækjanda skyldu vera að lágmarki 500 milljónir króna á síðasta rekstrarári samkvæmt síðargerðum ársreikningi hans, eigi eldri en vegna ársins 2025. Í grein 0.2.5 komu fram kröfur um hæfi vegna tæknilegrar og faglegrar getu, og var m.a. gerð sú krafa að umsækjandi skyldi hafa reynslu af a.m.k. tveimur sambærilegum verkefnum á síðastliðnum 10 árum. Einnig var gerð krafa um að umsækjandi skyldi hafa í eignasafni sínu a.m.k. þrjár fasteignir stærri en 2.000 m2 sem hann ræki  og viðheldi í samræmi við viðteknar venjur.

Í grein 0.4. kom fram að umsóknir um þátttöku í lokuðu útboði yrðu metnar á grunni krafna, sbr. kafla 0.2, og myndi matið byggja á þeim upplýsingum sem umsækjandi legði fram með umsókn sinni til staðfestingar á því að hann stæðist kröfur forvalsins. Yrðu öllum umsækjendum sem uppfylltu kröfur forvalsins boðin þátttaka í lokaða útboðinu.

Skilafrestur umsókna var til 28. september 2026 og voru umsóknir opnaðar þann sama dag. Alls bárust átta umsóknir og var tveimur umsóknum vísað frá þar sem þær uppfylltu ekki kröfur um hæfi samkvæmt kafla 0.2 í forvalsgögnum, þ. á m. umsókn kæranda. Í rökstuðningi varnaraðila fyrir höfnun umsókn kæranda, dags. 20. október 2026, kom fram að kærandi hefði ekki uppfyllt kröfur forvalsgagna um lágmarks leigutekjur samkvæmt síðastgerðum ársreikningi, reynslu af útleigu sambærilegs húsnæðis, og að kærandi hefði ekki í eignasafni sínu a.m.k. 3 fasteignir stærri en 2.000 m2. Þá lægju ekki fyrir neinar samstarfsyfirlýsingar né aðrar viljayfirlýsingar við aðra aðila, og lægi ekkert fyrir samstarf kæranda og Reykjastrætis ehf.

 

II

Kærandi bendir á að það og Reykjastræti ehf. séu systurfélög, og eini hluthafi kæranda sé jafnframt eini hluthafi í öðru fyrirtæki, sem eigi svo 99% í Reykjastræti ehf. Sá aðili sitji í stjórn beggja félaganna en Reykjastræti ehf. sé leigufélag sem eigi og reki fjölda fasteigna, sem kærandi hafi annast allar byggingarframkvæmdir fyrir. Kærandi hafi skilað forvalsumsókn sinni innan tilskilins frests og á eyðublaði 1 sé kærandi tilgreindur undir vörumerkinu ÞG verk ehf. með kennitölu sinni. Með umsókninni hafi m.a. fylgt ársreikningur kæranda fyrir árið 2025, verkefnalistar, ferilskrár lykilstarfsmanna og skjal sem beri heitið „Reynsla Reykjastrætis og valdar eignir í eignasafni“. Í síðastnefnda skjalinu hafi verið gerð grein fyrir reynslu Reykjastrætis ehf. af þróun og útleigu atvinnuhúsnæðis, auk hlekkja á grunnlýsingu félagsins og fjárfestasíðu þess. Á fjárfestasíðu þess séu birtir ársreikningar og árshlutauppgjör, þ. á m. allar upplýsingar um leigutekjur þess. Þar komi einnig fram upplýsingar um eignarhald Reykjastrætis ehf. Á eyðublaði 2 hafi kærandi ritað undir lið 0.2.5 og vísað til fyrrnefnds skjals um reynslu Reykjastrætis ehf. sem lista yfir þær eignir sem uppfylltu kröfur í grein 0.2.5. Engin önnur skynsamleg ástæða geti verið fyrir því að leggja slíkt skjal fram með umsókn en sú að kærandi byggði á getu félagsins. Hafi varnaraðila mátt vera ljóst hvaða getu kærandi byggði á og hjá hvaða aðila.

Kærandi vísar til þess að tilgangur skuldbindandi yfirlýsingar um samstarf félaga sé að sýna fram á að umsækjandi hafi í raun aðgang að þeirri getu sem hann byggi á. Þegar sami einstaklingur sé eini eigandi umsækjanda, ráði yfir 99% hlutafjár í hinu félaginu og sitji í stjórn beggja, sé sá aðgangur tryggður í krafti eignarhalds og yfirráða. Yfirlýsing frá Reykjastræti ehf. yrði því gefin af sama aðila og standi að umsókninni og myndi engu bæta efnislega við það sem þegar lægi fyrir. Þá vísar kærandi til þess að samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 120/2016 sé skuldbindandi yfirlýsing samkvæmt orðanna hljóðan sönnunarleið en ekki skilyrði, og sönnun á aðgangi að getu annars aðila megi því færa með öðrum hætti. Eignarhald sama aðila að kæranda og Reykjastræti ehf. staðfesti skuldbindingu félagsins, hvort sem umsókninni hafi fylgt sérstök yfirlýsing eða ekki.

Þá telji kærandi sig hafa fyllt eyðublað 2 rétt út. Að því er varðar grein 0.2.1 þá varði það samstarfsaðila og samstarf, en Reykjastræti ehf. sé systurfélag kæranda undir yfirráðum sama eiganda og sé því ekki samstarfsaðili í þeim skilningi. Svör kæranda á þessu eyðublaði hafi því verið rétt, og jafnframt hafi verið innbyrðis samræmi milli þeirra, enda hafi kærandi vísað til reynslu Reykjastrætis ehf. í grein 0.2.5, líkt og framan greinir. Því hafi varnaraðila ekki getað dulist að kærandi hafi byggt á reynslu Reykjastrætis ehf. Í skjalinu „Reynsla Reykjastrætis ehf. og valdar eignir í eignasafni“ hafi jafnframt verið vísað til fjárfestasíðu félagsins vegna fjárhagsupplýsinga, þ. á m. ársreikningar þess og árshlutauppgjör með öllum upplýsingum um leigutekjur þess. Því hafi upplýsingar um leigutekjur komið fram í umsókn kæranda. Þá telji kærandi að hafi varnaraðili verið óviss um aðkomu Reykjastrætis ehf.  í umsókn kæranda þá hafi varnaraðila verið rétt að beina fyrirspurn til kæranda á grundvelli 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016. Staðfesting á því að Reykjastræti ehf. standi kæranda til boða við framkvæmd samningsins fæli ekki í sér breytingu á grundvallarþáttum umsóknar, og myndu jafnframt ekki raska samkeppni né fela í sér mismunun, enda yrði kærandi ekki settur í betri stöðu en hann var í þegar umsóknin hafi verið lögð fram.

Varnaraðili byggir á því að samkvæmt grein 0.2.1 í forvalsgögnum hafi komið fram að ef umsækjandi byggði á getu annars aðila í samræmi við 76. gr. laga nr. 120/2016 skyldi umsækjandi sanna fyrir kaupanda að hann hafi tryggt sér tilgreinda aðstoð með því að leggja fram með forvalsumsókn sinni skuldbindandi yfirlýsingu þess aðila um að hann muni annast verkið eða þjónustuna. Engin slík yfirlýsing hafi verið lögð fram með forvalsumsókn kæranda og því liggi ekkert fyrir um að Reykjastræti ehf. hafi skuldbundið sig gagnvart kæranda með slíkum hætti. Almenn lýsing á eignarhaldi félaganna og fylgiskjal um reynslu Reykjastrætis ehf. geti ekki talist fullnægjandi hvað þetta varði. Þá hafi komið fram í grein 0.2.1 að þegar byggt sé á getu annarra teljist báðir aðilar bera in solidum ábyrg á efndum samnings, sbr. 3. mgr. 76. gr. laga nr. 120/2016. Telja verði ljóst að til slíkrar ábyrgðar geti ekki stofnast án skuldbindandi yfirlýsingar þess aðila. Að auki hafi ekki verið skilað inn sömu upplýsingum um Reykjastræti ehf. og um kæranda, eins og krafist var í grein 0.2.1.

Varnaraðili bendir að auki á að í gátlista á eyðublaði 2 með forvalsumsókn hafi verið vísað til þeirra krafna sem gerðar hafi verið til umsækjenda með tilvísunum til viðeigandi ákvæða forvalslýsingar, og hvaða upplýsingar þyrfti að leggja fram vegna hverrar og einnar kröfu. Að því er varðar „Byggt á getu annarra“ þyrfti að skila upplýsingum um samstarfsaðila og yfirlýsingu um samstarf. Í þennan reit hafi varnaraðili ritað „á ekki við“ og út frá þeirri framsetningu hafi varnaraðili ekki getað ályktað annað en að kærandi byggði ekki á getu annarra. Varnaraðili telji ekki unnt að fallast á að um væri að ræða sameiginlegt tilboð aðila frá tengdum óaðskiljanlegum aðilum, líkt og kærandi hafi haldið fram. Eignarhald á kæranda og Reykjastrætis ehf. hafi enga þýðingu og ekki verði ráðið af framlagðri umsókn kæranda að Reykjastræti ehf. hafi skuldbundið sig til samstarfs vegna hins kærða forvals. Ekkert hafi sýnt fram á að um væri að ræða sameiginlegt tilboð þeirra og kærandi geti ekki skuldbundið annan lögaðila án nokkurrar aðkomu hans.

 

III

Samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda, heimilt að stöðva innkaupaferli um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, enda hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila. Þá segir í 2. mgr. 110. gr. að um kröfu kæranda gilda ákvæði 106. og 108. gr. eftir því sem við á.

Ágreiningur málsins varðar hvort kærandi hafi mátt byggja hæfi sitt á Reykjastræti ehf. og hvort honum hafi borið að leggja fram staðfestingu eða samstarfsyfirlýsingu frá Reykjastræti ehf. þess efnis. Varnaraðili hafnaði umsókn kæranda þar sem umsóknin uppfyllti ekki kröfur í greinum 0.2.1 og 0.2.5 í forvalsgögnum. Kærandi byggir á því að hann hafi látið fylgja með umsókn sinni upplýsingar um reynslu Reykjastrætis ehf., sem sé í eigu sama aðila og kærandi, og það fyrirtæki uppfylli kröfur um reynslu og leigutekjur. Varnaraðila hafi því mátt vera það ljóst.

Umsækjendum bar að fylla út eyðublað 2, sem var gátlisti fyrir fylgiskjöl forvalsumsóknar, og bar umsækjendum að láta viðeigandi gögn fylgja með og tilvísanir í gögn skyldu vera skilmerkilegar. Eyðublaðið tekur til krafna 0.2.1 til 0.2.5 í forvalsgögnum. Að því er varðar kröfu 0.2.1, sem varðaði hvort byggt væri á getu annarra, fyllti kærandi reitinn út þannig að það ætti ekki við. Að því er varðar kröfu 0.2.5, um hæfi vegna tæknilegrar og faglegrar getu, fyllti kærandi reitinn út þannig að hann lét fylgja verkefnalista vegna reynslu kæranda og ferilskrár lykilstarfsmanna. Umsækjendum bar einnig að láta fylgja með lista yfir eignir í eignasafni umsækjanda sem uppfylltu kröfuna, og lét kærandi fylgja með umsókn sinni skjal sem ber heitið „Reynsla Reykjastrætis og valdar eignir í eignasafni“.

Að mati kærunefndar útboðsmála virðist ekki hægt, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að fallast á með kæranda að hann geti byggt á hæfi Reykjastrætis ehf. eins og hann gerði tilboð sitt úr garði. Við mat á þessu er þess að gæta að einkahlutafélög eru eftir ákvæðum laga um þau nr. 138/1994 sjálfstæðar lögpersónur. Þótt slíkt félag lúti forræði hluthafa, sem hafa hagsmuni af hlutafjáreign sinni og réttindum sem hún veitir, tengist félagið ekki að öðru leyti fjárhag hluthafa vegna takmörkunar á ábyrgð þeirra á skuldbindingum þess, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 138/1994, sbr. dóm Hæstaréttar 6. apríl 2017 í máli nr. 770/2015.  Þá verða einkahlutafélög sem sjálfstæðar lögpersónur ekki samsömuð hluthöfum þeirra, sbr. dóm Hæstaréttar 11. maí 2017 í máli nr. 452/2016. Kærandi gat samkvæmt því ekki byggt á hæfi Reykjastrætis ehf. nema fyrir lægi fullnægjandi yfirlýsing síðar nefnda félagsins til samræmis við 1. mgr. 76. gr. laga nr. 120/2016. Kærandi aflaði ekki slíkrar yfirlýsingar og lét hana ekki fylgja með umsókn sinni. Varnaraðila virðist því hafa verið rétt að hafna tilboði kæranda.

Við þessar aðstæður verður ekki talið að varnaraðila hafi verið skylt að leita nánari skýringa á þessum annmarka á tilboði kæranda samkvæmt 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016, enda var hér um að ræða atriði sem telja má grundvallarþátt umsóknar kæranda.

Að framangreindu gættu og að virtum málatilbúnaði aðila að öðru leyti verður að telja að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim þannig að leitt geti til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Verður því að hafna stöðvunarkröfu kæranda.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

 

Ákvörðunarorð

Hafnað er kröfu kæranda, ÞG verktaka ehf., um að innkaupaferli varnaraðila, Garðabæjar, auðkennt „Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri“ verði stöðvað um stundarsakir.

 

Reykjavík, 23. nóvember 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?