26. nóvember 2026 /

Mál nr. 38/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 10. júlí 2026

í máli nr. 38/2026:

Ístak hf.

gegn

Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum,

Þjóðarhöllinni ehf. og

Íslenskum aðalverktökum hf.

 

Lykilorð

Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.

Útdráttur

Kærunefnd útboðsmála féllst á kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 18. júní 2026 kærði Ístak hf. (hér eftir „kærandi“) samkeppnisútboð Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna og Þjóðarhallarinnar ehf. (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 22169 auðkennt „Samkeppnisútboð um byggingu Þjóðarhallar.“

Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að velja tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. og þar með að hafna tilboði kæranda. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda, nema afstaða kærunefndar til annarra krafna leiði til þess að það eigi ekki við. Að auki er gerð krafa um að varnaraðilum verði gert að greiða kostnað kæranda við að hafa kæruna uppi samkvæmt mati kærunefndar útboðsmála. Kærandi krefst þess einnig að kærunefnd útboðsmála stöðvi samningsgerð varnaraðila með vísan til 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup þar til endanlega hefur verið leyst úr kærunni.

Varnaraðilar krefjast þess í greinargerð sinni 2. júlí 2026 að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt og að öllum kröfum kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála eða hafnað.

Íslenskir aðalverktakar hf. krefjast þess aðallega í greinargerð sinni 2. júlí 2026 að öllum kröfum kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála, en til vara er þess krafist að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Þá krefjast Íslenskir aðalverktakar hf. þess að kærunefnd útboðsmála aflétti banni við samningsgerð, sbr. 2. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016.

Kærunefnd útboðsmála tilkynnti aðilum málsins 30. júní 2026 að ákveðið hefði verið að kalla Ásmund Ingvason verkfræðing sem sérfræðing til ráðgjafar og aðstoðar nefndinni í málinu með vísan til heimildar 2. mgr. 104. gr. laga nr. 120/2016. Aðilar málsins gerðu ekki athugasemdir við það og var skipunarbréf hans undirritað 1. júlí 2026.

Þess skal getið að kærandi hefur áður lagt fram kæru til kærunefnd útboðsmála vegna sama útboðs, en sú kæra barst 25. mars 2026. Sú kæra er til meðferðar í máli nr. 13/2026 í málaskrá kærunefndar útboðsmála.

Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til fyrrgreindra krafna varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

 

I

Í mars 2024 auglýsti varnaraðili Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir f.h. Þjóðarhallar ehf. eftir umsóknum fyrirtækja eða teyma fyrirtækja um þátttöku í forvali vegna samkeppnisútboðs um byggingu Þjóðarhallar í Laugardal. Að loknu forvali voru tveir þátttakendur valdir til þátttöku í samkeppnisútboðinu, annars vegar kærandi og hins vegar Íslenskir aðalverktakar hf. Útboðslýsing var birt í nóvember 2024. Í grein 1.3 í útboðslýsingu var tekið fram að verkkaupi myndi við meðferð samkeppnisútboðsins skipa einstaklinga til að taka sæti í mats- og viðræðunefndum. Þeir sem hafi setið í stjórn verkkaupa, Þjóðarhallarinnar ehf., við auglýsingu útboðsins myndu sitja í matsnefnd og leggja mat á tiltekin atriði í samræmi við fylgiskjal nr. 11 með útboðslýsingu. Aðrir einstaklingar yrðu jafnframt skipaðir í mats- og viðræðunefnd, og yrðu þátttakendur upplýstir um hverjir sætu í viðræðunefndinni en ekki um nöfn matsnefndarmanna fyrir utan þá sem fyrir lægi að sætu í stjórn verkkaupa. Verkkaupi myndi þó birta almennar upplýsingar um reynslu matsnefndarmanna og hæfi þeirra við meðferð samkeppnisútboðsins.

Samkvæmt grein 1.5 í útboðslýsingu var samkeppnisútboðinu skipt í þrjú þrep, sem nánar væri lýst í kafla 3 í útboðslýsingu. Á fyrsta þrepi væru útboðsgögnin afhent þátttakendum og haldinn yrði rafrænn kynningarfundur. Þátttakendum var gefið færi að senda fyrirspurnir og athugasemdir, sem verkkaupi myndi svara. Undir lok þrepsins skyldu þátttakendum leggja fram fyrsta tilboð, þ.e. upphaflegt tilboð þeirra. Matsnefnd verkkaupa myndi í kjölfarið fara yfir upphaflegt tilboð þátttakenda og gera athugasemdir við það, þ. á m. skila einkunn og skriflegri umsögn um þann hluta tilboða sem lytu að hönnun mannvirkisins. Um hlutverk matsnefndar var fjallað í grein 3.6.3 í útboðslýsingu.

Á þrepi tvö myndi verkkaupi kalla til sérstaka viðræðunefnd sem myndi kynna nánar athugasemdir matsnefndar fyrir hverjum þátttakenda fyrir sig. Þátttakendur yrðu ekki upplýstir um einkunnagjöf matsnefndar fyrr en niðurstaða varðandi endanleg tilboð lægi fyrir. Viðræðunefndin ætti ekki sæti í matsnefndinni. Viðræðunefndin myndi í kjölfarið eiga í viðræðum fyrir hönd verkkaupa við þátttakendum með það að markmiði að laga tilboð að þörfum verkkaupa. Í kjölfarið skyldu þátttakendur leggja fram síðara tilboð. Matsnefnd verkkaupa myndi fara yfir síðara tilboð þátttakenda í kjölfarið og gera athugasemdir við það, en áskilinn var réttur til þess að endurtaka það ferli á þessu þrepi viðræðnanna eins oft og nauðsynlegt væri talið.

Á þrepi þrjú skyldu bjóðendur skila sínu endanlega tilboði. Skilafrestur endanlegs tilboðs var 12. febrúar 2026 og var jafnframt tekið fram að tilkynnt yrði um val tilboðs að loknu mati tilboða.

Í grein 3.2 komu fram upplýsingar um þau skilagögn sem þátttakendur skyldu leggja fram með öllum tilboðum sínum í stafliðum a-r. Þá kom fram í grein 1.2 í útboðsskjali frá 15. desember 2025 að þátttakendur skyldu m.a. skila útfylltri og undirritaðri magn- og verðskrá samkvæmt sniðmáti verkkaupa, sbr. fylgiskjal 8 með útboðsgögnum), með öllum tilboðum sínum.

Valforsendur komu fram í kafla 4 í útboðslýsingu. Þær yrðu annars vegar hönnun – gæðaeinkunn þátttakenda, sem gilti 50 stig, og hins vegar boðin heildartilboðsfjárhæð, sem gilti 50 stig. Lokaeinkunn yrði reiknuð út frá formúlu sem fram kom í kaflanum, og tekið fram að það endanlega tilboð sem fengi flest samanlögð stig fyrir annars vegar hönnun – gæðaeinkunn og hins vegar fyrir verð yrði talið hagkvæmasta tilboðið.

Að því er varðar verðhlutann þá yrði gefið fullt hús stiga fyrir lægsta verð, og yrðu aðrar einkunnir hlutfallaðar frá lægsta verði samkvæmt formúlu sem kom fram í kafla 4 í útboðslýsingu.

Að því er varðar hönnun var tekið fram að heildareinkunn vegna þess hlutar byggi á mati fjölmargra þátta. Heildarþættir stigagjafar skiptust í 1) heildaryfirbragð og ásýnd Þjóðarhallar (19 stig); 2) lóð (3 stig); 3) rými (3 stig); 4) flæði og skipulag (8 stig); 5) aðkoma (4 stig); 6) tæknilausnir (10 stig); og 7) kolefnisspor hönnunar (3 stig). Nánari sundurliðun og viðmið matsnefndar væri að finna í fylgiskjali 11 með útboðsgögnum, en þar kom m.a. fram að þessir heildarþættir skiptust í fleiri undirliði, alls 32 matsliði sem hefðu jafnframt mismikið vægi við lokaeinkunn.

Tilboð voru opnuð 5. mars 2026 og lögðu bæði kærandi og Íslenskir aðalverktakar hf. fram tilboð. Tilboð kæranda nam samkvæmt opnunarskýrslunni að fjárhæð 16.268.429.968 krónum, en tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. nam 16.825.502.986 krónum. Samkvæmt opnunarskýrslunni fékk kærandi 50 stig fyrir verðhluta hins kærða útboðs og 44,0455 stig fyrir hönnun – gæðaeinkunn, eða samtals 94,0455 stig. Íslenskir aðalverktakar hf. fengu 48,3446 stig fyrir verðhlutann og 46,1762 stig fyrir hönnun gæðahluta, eða samtals 94,5208 stig.

Varnaraðilar sendu báðum þátttakendum leiðrétta opnunarskýrslu 8. júní 2026, þar sem fram kom að leiðréttingin fælist í að heildartilboðsfjárhæð kæranda hefði verið hækkuð þar sem upphaflega birt fjárhæð tók ekki til alls kostnaðar sem samkvæmt útboðsgögnum átti að vera innifalinn í heildartilboðsfjárhæð. Nam heildartilboðsfjárhæð kæranda í kjölfar leiðréttingar þessar því 16.314.287.568 krónum. Þá var tekið fram að leiðréttingin hefði jafnframt áhrif á útreikning stigagjafar Íslenskra aðalverktaka hf. til hækkunar. Tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. fengi því 48,4808 stig fyrir verð og því samtals 94,6570 stig. Stigagjöf kæranda breyttist ekki.

Varnaraðilar sendu bjóðendum einnig þann sama dag tilkynningu um val tilboðs, þar sem fram kom að ákveðið hefði verið að velja tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. í hinu kærða samkeppnisútboði, sem hefði verið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar.

 

II

Kærandi byggir kröfur sínar á tveimur málsástæðum. Annars vegar að varnaraðilar hafi hækkað heildartilboðsfjárhæð kæranda með hinni leiðréttu opnunarskýrslu þrátt fyrir að sá kostnaður, sem leiðréttingin hafi lotið að, hafi þegar verið innifalinn í heildartilboðsfjárhæð kæranda. Hins vegar byggir kærandi á því að verulegir annmarkar hafi verið á stigagjöf varnaraðila við mat á hönnun.

Að því er varðar fyrri málsástæðu kæranda þá bendir kærandi á að varnaraðilar hafi einhliða hækkað heildartilboðsfjárhæð kæranda um 45.857.600 krónur, sem hafi haft þau áhrif að stigagjöf Íslenskra aðalverktaka hf. hafi hækkað um 0,1362 stig, kæranda í óhag. Varnaraðilar hafi byggt á því að sú fjárhæð sem hafi komið fram á undirrituðu tilboðsblaði kæranda hefði ekki náð til kostnaðar vegna byggingarstjóra og trygginga vegna hans. Það sé rangt, enda hafi verið sérstaklega tekið fram í tilboði kæranda að stjórnunarkostnaður verktaka, sbr. flipa 12 í tilboðsskrá kæranda, væri innfalinn í aðstöðu verktaka, sbr. flipa 2 í tilboðsskrá. Kostnaður fyrir byggingarstjóra félli þar af leiðandi undir flipa 2 í tilboðsblaði og hafi verið gert ráð fyrir honum þar. Kostnaður vegna byggingarstjóra hafi því ekki verið ótilgreindur eða vanreiknaður kostnaðarliður sem heimilt væri að bæta ofan á tilboðsfjárhæð kæranda. Þá liggi fyrir að framsetning kæranda hafi verið í samræmi við það sem hefði komið fram í viðræðum við varnaraðila á viðræðufundum undir lok árs 2025. Að mati kæranda byggi ákvörðun varnaraðila, um að leiðrétta heildartilboðsfjárhæð kæranda, á augljósum misskilningi við yfirferð tilboðsins. Þá hafi varnaraðilum verið í lófa lagið að spyrja kæranda út í þetta atriði samkvæmt 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016.

Að því er varðar síðari málsástæðu kæranda, um annmarka á stigagjöf varnaraðila við mat á hönnun, þá skal tekið fram að kærandi reifar í nokkuð ítarlegu máli þær athugasemdir sem hann hefur við mat matsnefndar á tilteknum matsliðum. Í meginatriðum byggir kærandi á því að ekki verði séð að matsnefnd hafi með gagnsæjum hætti gert greinarmun í framkvæmd á einkunnunum 100% (ágætt, mjög sammála) og 75% (gott, sammála). Til að mynda hafi matsnefndin ekki rökstutt hvernig hún teldi lausn færi fram úr væntingum þegar einkunnin 100% hafi verið veitt. Þar sem það hafi ekki verið rökstutt, svo sem hvernig lausn færi fram úr væntingum, í stað þess að leysa vel þau atriði sem fjallað væri um í viðkomandi matsatriði, sem fengi þá einkunnina 75%, telji kærandi það hafa leitt til þess að ógagnsætt hafi verið hvernig staðið væri að einkunnagjöfinni. Það gefi augaleið að skortur á rökstuðningi að þessu leyti auki áhættu á að geðþótti ráði einkunnagjöf þegar valið standi á milli þessara tveggja einkunna. Ætlunin virðist hafa verið að binda hendur matsmanna með þessu mismunandi orðalagi í útboðsgögnum en í framkvæmd hafi matsnefnd ekki farið eftir þeim takmörkunum sem störfum þeirra voru sett. Í þessu sambandi vísar kærandi til dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 366/2013, þar sem fjallað hafi verið um mikilvægi þess að hendur þess sem velji tilboð séu bundnar fyrirfram í eins ríkum mæli og kostur sé. Kærandi vísar einnig til úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 26/2022 í þessum efnum.

Þessu til viðbótar tekur kærandi fram að annmarkar hafi verið á einkunnagjöf fyrir einstaka matsliði í tilboði kæranda, og þá sé ljóst að þeir annmarkar hafi haft áhrif á niðurstöðu útboðsins, einkum þegar horft sé á þá samhliða ólögmætri hækkun varnaraðila á heildartilboðsfjárhæð kæranda. Í kærunni er reifað með nokkuð ítarlegum hætti þeir annmarkar sem kærandi telur hafa verið á mati matsnefndar á matsliðum 1, 2, 3, 6, 17, 24, 25, 31 og 32. Það skal einnig tekið fram, að kærandi vísar jafnframt til mats matsnefndar á öðrum matsliðum sem hafi komið fram í kæru hans í máli nr. 13/2026, sem enn er til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála.

Samandregið verður ráðið af athugasemdum kæranda að því er varðar mat á þessum tilgreindu matsliðum að hann telji einkunnagjöf ekki samrýmast þeim fyrirmælum sem matsnefndin átti að vinna eftir. Umsagnir fyrir tiltekna matsliði hafi í sumum tilvikum verið jákvæð á fyrri þrepum samkeppnisútboðsins, en í lokamati hafi komið fram tilteknar athugasemdir um neikvæð áhrif á heildaryfirbragð mannvirkisins. Að auki telji kærandi að í sumum tilvikum, t.d. að því er varðar matslið 6, að athugasemdir í lokamati byggi ekki á réttum tæknilegum forsendum um þá lausn sem kærandi hafi boðið. Þá hafi komið fram athugasemdir í lokamati sem ekki hafi komið fram á fyrri stigum, t.d. að því er varðar matslið 17. Kærandi bendi á að hann hafi brugðist við athugasemdum á fyrri þrepum samkeppnisútboðsins með aðlögun á tillögu sinni.

Kærandi bendir á að í ljósi þess að aðeins hafi munað 0,6115 sigum á heildareinkunn tilboðanna þá hafi þeir annmarkar sem hafi verið á ferlinu verið til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu útboðsins. Því hafi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Íslenskra aðalverktaka hf., og um leið hafna tilboði kæranda, verið ólögmæt þar sem varnaraðilar hafi annars vegar byggt hana á ólögmætri leiðréttingu á tilboðsfjárhæð kæranda og hins vegar lagt til grundvallar mat á hönnun sem hafi verið haldin verulegum annmörkum. Þessir annmarkar hafi verið til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu hins kærða útboðs.

 

III

Varnaraðilar benda í fyrsta lagi á að í kæru kæranda í máli nr. 13/2026 hafi verið tekið fram að kærufrestur vegna stigagjafar matsnefndar hafi hafist 5. mars 2026 og lokið 25. sama mánaðar. Í kæru kæranda í þessu máli sé hins vegar gerðar ýmsar nýjar athugasemdir við matsferlið og stigagjöf matsnefndar, einkum varðandi ætlað ósamræmi milli athugasemda matsnefndar við endurtekin skil á síðari tilboðum og athugasemdum matsnefndar og/eða einstakra matsnefndarmanna við endanleg tilboð. Því telji varnaraðilar að allar nýjar athugasemdir kæranda í kæru málsins séu fram komnar að liðnum kærufresti, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.

Í öðru lagi byggja varnaraðilar á því að það sé meginregla útboðsréttar að bjóðendur beri ábyrgð á að skila tilboði sínu í samræmi við kröfur útboðsgagna, sbr. m.a. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 15/2022. Leiðrétting varnaraðila á heildartilboðsfjárhæð kæranda hafi verið byggð á þeirri forsendu að augljós villa hafi átt sér stað við framsetningu tilboðsins, sem heimilt væri að leiðrétta þar sem fullnægjandi forsendur fyrir henni kæmu fram í tilboðsgögnum kæranda, sbr. t.d. úrskurð kærunefnd útboðsmála í máli nr. 4/2021. Villan hafi falist í því að tvær mismunandi heildartilboðsfjárhæðir hafi verið tilgreindar í tilboði kæranda, þ.e. í flipunum „Summary A“ og „Summary B“ í tilboðsskrá kæranda. Í „Summary A“ hafi tilboðsfjárhæðin numið 16.268.429.968 krónum, sem hafi jafnframt verið tekin fram í tilboðsblaði kæranda, en í „Summary B“ hafi hún numið 16.314.287.568 krónum, sem hafi jafnframt komið fram í flipanum „Áætlaður heildarkostnaður“ í tilboðsskrá kæranda. Því hafi verið augljóst misræmi í tilboði kæranda varðandi boðna tilboðsfjárhæð. Varnaraðilar hafi staðið í þeim skilningi að kæranda hafi misfarist að tiltaka stjórnunarkostnað að fjárhæð 45.857.600 krónur á framlögðu tilboðsblaði, og jafnframt hafi varnaraðilar talið sér heimilt að leiðrétta villuna.

Varnaraðilar benda jafnframt á í þessu sambandi að skýring kæranda, um að kostnaður byggingarstjóra að fjárhæð 45.857.600 krónum, hafi verið innifalinn í aðstöðulið félagsins, feli í sér að hann sé þá tvítalinn við framsetningu á hærri tilboðsfjárhæðinni, þ.e. hann sé þá bæði innifalinn í aðstöðuliðnum og í tilgreindum stjórnunarkostnaði. Sú skýring sé með engu móti augljós þegar tilboðsgögn kæranda séu skoðuð. Þá hafi útboðsgögn jafnframt verið skýr um framsetningu tilboða að þessu leyti, sbr. g. lið greinar 3.2 í útboðslýsingu. Misræmi milli tilboðsskrár og tilboðsblaðs hefur verið talið til ógildingarannmarka á tilboði, sbr. ákvörðun kærunefndar útboðsmála í máli nr. 48/2025.

Í þriðja lagi vísa varnaraðilar til sjónarmiða kæranda um ætlaða annmarka á stigagjöf við mat á hönnun. Varnaraðilar benda á að hann hafi komið á framfæri ítarlegum athugasemdum varðandi matsferlið og mat á stigagjöf hins kærða samkeppnisútboðs í tengslum við kæru kæranda í máli nr. 13/2026 og vísa varnaraðilar til þeirrar umfjöllunar þar. Því til viðbótar benda varnaraðilar á umfjöllun kærunefndar útboðsmála í ákvörðun í máli nr. 22/2026, um heimildir kærunefndar til endurskoðunar á einkunnum fyrir gæði í tilboðum. Almennt benda varnaraðilar á að hvorki í þessari kæru né í kæru í máli nr. 13/2026 hafi kærandi gert athugasemdir við verklagið sem hafi verið viðhaft í hinu kærða samkeppnisútboði varðandi störf matsnefndar eða annað sem tengist fyrirkomulagi útboðsins. Það hafi enda verið í samræmi við fyrirmæli 36. gr. laga nr. 120/2016. Halda varnaraðilar því fram að mat matsnefndar og einstakra matsnefndarmanna á gæðum tilboða hafi verið málefnalegt og metið út frá fyrirfram gefnum forsendum útboðsgagna, sem endurspeglist í bæði sameiginlegum athugasemdum matsnefndar og athugasemdum einstakra matsnefndarmanna. Þá sé ekkert í fyrirliggjandi gögnum sem bendi til þess að stigagjöf einstakra matsnefndarmanna hafi verið haldin annmörkum.

Varnaraðilar benda á að allir matsnefndarmenn hafi verið meðvitaðir um aðferðarfræðina við matið, þ. á m. um mörkin milli einkunna. Þegar matsnefndarmenn hafi gefið fullt hús stiga hafi þeir talið, eðli máls samkvæmt, að tillaga uppfyllti skilyrði þess að hljóta þá einkunn samkvæmt nánari viðmiðum stigagjafar, m.a. að hún færi fram úr væntingum.

Að því er varðar ætlað ósamræmi milli athugasemda matsnefndar milli þreps tvö og endanlegra tilboða, þá benda varnaraðilar á að tillaga kæranda hafi tekið ákveðnum breytingum og var matsnefnd í sumum tilvikum að leggja mat á nýjar hönnunarlausnir við mat á endanlegu tilboði kæranda. Að auki hafi kærandi ákveðið að leggja einungis fram hluta þeirra skilagagna sem óskaði hafi verið eftir á þrepi 2, og yfirferð matsnefndar á tilboðum kæranda á því þrepi hafi þannig ekki miðast við sömu skilagögn og hafi legið fyrir við mat á endanlegu tilboði kæranda. Við skil endanlegra tilboða hafi kærandi þannig lagt fram í fyrsta sinn frá skilum á upphaflegu tilboði heildstæð skilagögn í samræmi við fyrirmæli útboðslýsingar. Í þessu sambandi benda varnaraðilar m.a. á að kærandi hafi ekki lagt fram svokölluð BIM-líkön með tilboðum sínum á öllum þrepum samkeppnisútboðsins.

Þá víkja varnaraðilar að einstökum athugasemdum kæranda við tilgreinda matsliði og svarar þeim með nokkuð ítarlegum hætti. Samandregið andmæla varnaraðilar sjónarmiðum kæranda um óskýrleika og annmarka á einkunnagjöf fyrir þá matsliði, og ítreka að þar sem kærandi hafi ekki á öllum stigum skilað BIM-líkani þá hafi matsnefndarmenn í sumum tilvikum verið að meta tillögu kæranda í fyrsta skipti heildstætt frá skilum á upphaflegu tilboði kæranda. Þá telji varnaraðilar að einkunn matsnefndarmanna fyrir þá matsliði hafi verið í samræmi við fyrirmæli útboðsgagna og að í athugasemdum kæranda hafi ekki verið sýnt fram á að mat þeirra fyrir þessa matsliði sé bersýnilega rangt.

 

IV

Íslenskir aðalverktakar hf. benda í greinargerð sinni í fyrsta lagi á að kærandi hafi í raun ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn kröfu sinnar að því er varðar leiðréttingu varnaraðila á heildartilboðsfjárhæð kæranda, enda hafi leiðréttingin ekki haft nein áhrif á röð bjóðenda í hinu kærða samkeppnisútboði. Því beri að vísa kærunni frá kærunefnd útboðsmála. Að auki virðist tilefni leiðréttingarinnar hafa verið verulegur óskýrleiki kæranda í tilboði hans, en bjóðendur beri ábyrgð á tilboðum sínum. Sé fyrir hendi óskýrleiki í tilboðum eða þeim skilað í ósamræmi við kröfur útboðsgagna þá beri bjóðendur sjálfir hallann af því. Meta beri slík tilboð ógild.

Í öðru lagi benda Íslenskir aðalverktakar hf. á að það hafi verið í síðasta lagi 17. mars 2026 sem kærandi vissi eða hafi mátt vita af þeirri ákvörðun sem hann telur hafa brotið gegn réttindum sínum, þ.e. sem fólst í mati á gæðum hönnunar tilboðs kæranda. Kærufrestur sé 20 dagar samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016, sem hafi runnið út 6. apríl 2026. Kæra málsins hafi hins vegar borist 18. júní 2026 og þá hafi kærufrestur vegna þessara atriða verið runninn út. Fyrir liggi að kærandi hafi beint kæru til kærunefndar útboðsmála 25. mars 2026, sbr. mál nr. 13/2026, þar sem kærandi hafi kært matsferlið og mat varnaraðila á því hvaða tilboð teldist hagstæðast. Telja Íslenskir aðalverktakar hf. að með kæru í máli þessu sé kærandi að kæra hina sömu athöfn á ný og með því bæta við röksemdum við fyrri málatilbúnað sinn og kæru, sem sé óheimilt samkvæmt 108. gr. laga nr. 120/2016.

Í þriðja lagi vísa Íslenskir aðalverktakar hf. til þeirra athugasemda sem kærandi gerir um efnishlið málsins, þ.e. um matsferlið og mat á tilboðum. Samandregið andmæla Íslenskir aðalverktakar hf. í fyrsta lagi að sameiginleg niðurstaða matsnefndarmanna hafi ekki endurspeglað raunverulegan mun á milli tilboða, í öðru lagi að hún hafi ekki endurspeglað eiginlegt mat þeirra og í þriðja lagi að endanlegt mat þeirra hafi ekki verið í samræmi við fyrra mat og viðræður við þátttakendur. Íslenskir aðalverktakar hf. andmæla einnig að það eigi undir valdsvið kærunefndar útboðsmála að meta sérfræðilega þætti af þessum toga eftir að mati á vegum kaupanda sé lokið, eða að málsmeðferð fyrir kærunefnd komi í stað matsferlis samkvæmt lögum nr. 120/2016. Varnaraðilar hafi viðhaft mjög ítarlega málsmeðferð sem hafi falist í virku samtali þátttakenda og kaupanda og við slíkar aðstæður hafi verið talið réttlætanlegt að huglægri afstöðu kaupanda sé gefið vægi við mat á tilboðum bjóðenda, sbr. m.a. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 28/2022. Ekki liggi annað fyrir í málinu en að matsferli varnaraðila hafi verið gagnsætt og að jafnræði hafi verið gætts. Því fari fjarri að hallað hafi á kæranda í stigagjöf matsnefndarmanna, en ljóst sé jafnframt að hvers kyns breytingar á stigagjöf kæranda myndu leiða af sér breytingar á stigagjöf Íslenskra aðalverktaka hf. sömuleiðis.

 

V

Kæra málsins hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laganna sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. laganna eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

Kærandi beindi upphaflega kæru til nefndarinnar vegna samkeppnisútboðsins 25. mars 2026, sbr. mál kærunefndar nr. 13/2026. Þar gerði kærandi kröfur í fimm liðum sem beindust að framkvæmd matsferlisins og annmörkum sem hann taldi á störfum matsnefndar vegna matsliða 1, 2, 3, 5, 6, 8, 11, 12, 15, 17, 18, 20, 23, 24, 25, 26, 27, 28, 29, 30, 31 og 32. Kærandi gerði ekki kröfu um stöðvun útboðsferlisins samkvæmt 110. gr. laga nr. 120/2016. Með þessari fyrri kæru rauf kærandi kærufrest 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 vegna þeirra atriða sem sú kæra beindist að.

Kærandi setti fram kæruna í þessu máli þegar varnaraðilar höfðu tekið ákvörðun um val á tilboðum. Sú kæra hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar en efni kærunnar beinist í verulegum atriðum að þeim sömu og fyrri kæra. Þannig vísar kærandi í kærunni til eldri kæru en kveðst leggja „áherslu á“ atriði sem hann tiltekur og varða matsliði 1, 2, 3, 6, 17, 24, 25, 31 og 32. Að auki hefur kærandi uppi málatilbúnað um breytingu varnaraðila á heildartilboðsfjárhæð kæranda í opnunarskýrslu 8. júní 2026. Við afmörkun kærufrests samkvæmt 1. mgr. 106. gr. vegna kærunnar hér verður miðað við að sá frestur hafi verið rofinn með fyrri kærunni vegna þeirra matsliða sem þar voru tilgreindir. Telst kærufrestur því hafa verið rofinn vegna kæruefna máls þessa 25. mars 2026 að öðru leyti en varðar málatilbúnað kæranda vegna opnunarskýrslunnar 8. júní 2026 og ákvörðunarinnar um val á tilboðum. Þar telst kærufrestur hafa verið rofinn við móttöku kærunnar í máli þessu 18. júní 2026.

Kærandi byggir mál sitt meðal annars á því að breyting sem varnaraðilar gerðu með leiðréttri opnunarskýrslu 8. júní 2026 á heildartilboðsfjárhæð kæranda hafi verið ólögmæt. Kæran hvað þetta varðar er fram komin innan kærufrests samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Verður því að leysa efnislega úr þessu atriði, en í útboðsskjali frá 15. desember 2025 kom fram í grein 1.1 að þátttakendur skyldu skila meðal annars útfylltri og undirritaðri magn- og verðskrá samkvæmt sniðmáti verkkaupa á fskj. 8 með útboðsgögnum. Engar frekari skýringar voru í skjalinu á því hvernig fylla skyldi út sniðmátið. Þá er ekki að sjá að slíkar skýringar hafi verið veittar í útboðslýsingunni sjálfri eins og hún hafði verið uppfærð við endanleg tilboð. Í samningsskilmálum sem voru hluti útboðsgagna kom fram, grein 9.5, að á meðal gagna sem þátttakendur skila með tilboðum sínum væri sundurliðuð magnskrá sem innihéldi „fullnægjandi magntölur“ vegna efnis- og tímanotkunar ásamt einingaverðum fyrir alla verkþætti. Þá sagði þar að í sniðmáti verkkaupa að magnskrá væri sérstakur flipi fyrir skráningu einingaverða fyrir mannafla og búnað vegna viðbótarverka. Í sniðmátinu var að finna sérstakt tilboðsblað, sundurliðað í 13 liði, sem aðilar skyldu undirrita. Þá var þar að finna tvö samantektarblöð auk 13 skjala sem skyldu fyllt út fyrir hvern og einn lið, en almennt höfðu bjóðendur val um sundurliðun tilboða sinna á hverju og einu hinna 13 skjala. Á skjali nr. 12 var þó frávik frá þessu en samkvæmt því skyldi þar koma fram sundurliðun á kostnaði vegna byggingarstjóra og trygginga vegna byggingarstjóra.

Að virtri framsetningu sniðmátsins og þeirra fyrirmæla sem birtust í útboðsgögnum um útfyllingu skjalsins verður að líta svo á að bjóðendur hafi notið ákveðins svigrúms við útfyllingu þess. Þannig höfðu þeir almennt val um hvernig sundurliðun var háttað innan liðanna 13 auk þess sem í útboðsgögnum voru ekki sérstakar leiðbeiningar eða viðmið um afmörkun þeirra undirliða sem fella skyldi undir hvern lið af þessum 13. Kærandi skilaði útfylltu og undirrituðu tilboðsblaði og kom þar skýrt fram að heildartilboðsfjárhæð hans væri 16.268.429.968 krónur. Jafnframt skilaði kærandi sniðmátinu útfylltu með samsvarandi hætti og birtist heildartilboðsfjárhæð í tilboðsblaði þar með sama hætti. Reitur fyrir stjórnunarkostnað, 12. liður, var óútfylltur en í flipa 12 kom fram að stjórnunarkostnaður verktaka væri innifalinn í aðstöðu verktaka. Því til samræmis birtist í flipa 2 liður 2.1.3. þar sem stjórnunarkostnaður var tiltekinn ásamt rekstri vinnusvæðis.

Að mati kærunefndar og sérfræðings hennar leikur ekki vafi á því að kostnaður vegna byggingarstjóra og trygginga byggingarstjóra hafi verið innifalinn í heildartilboðsfjárhæð kæranda. Af þeim sökum var engin ástæða fyrir varnaraðila að framkvæma þá leiðréttingu á tilboðsverðinu sem þeir gerðu. Þá er lagt til grundvallar að sú sundurliðun sem kærandi valdi tilboði sínu hafi almennt verið fullnægjandi og innan þeirra marka sem varnaraðilar máttu vænta miðað við kynntar forsendur í útboðslýsingu og verksamningi. Þá kom í skjali kæranda fram fjárhæð kostnaðar vegna byggingarstjóra og trygginga byggingastjóra og sérstaklega var tiltekið að hann væri innifalinn í aðstöðu verktaka, sem vísaði til sundurliðunar á flipa 2 og fjárhæðar sem fram kom í 2. tölulið á tilboðsblaði kæranda. Líta verður svo á að þetta hafi verið fullnægjandi og ekki gefið tilefni til hækkunar á tilboðsfjárhæð. Misræmið sem birtist í skjali kæranda var að finna í samantektarblaðinu „áætlun og framvinda“ og dálki undir fyrirsögninni „áætlun“ en ekki blöðum eða dálkum sem lýstu tilboðsfjárhæðunum sjálfum. Þá má ráða af verksamningi að tilgangur þessa þátta skjalsins hafi einkum verið að halda utan um verkframvindu og að mati sérfræðings nefndarinnar var frávik í „áætlun og framvindu“ blaðinu og „áætlunar“ dálki augljóst og auðveldlega lagfært til samræmis við heildartilboðsfjárhæðina. Þá þjónaði sniðmátið að mati sérfræðings nefndarinnar fyllilega þeim tilgangi sem miðað var við í verksamningnum þrátt fyrir umrætt frávik. Samkvæmt þessu öllu er miðað við á þessu stigi máls að tilboð kæranda hafi verið gilt og að varnaraðilum hafi verið óheimilt að lækka einkunn hans með því að bæta 45.857.600 krónum við heildartilboðsfjárhæðina, en það var sá kostnaður sem kærandi hafði tiltekið vegna byggingarstjóra og tryggingar vegna byggingarstjóra.

Sú lækkun um 0,1362 stig á einkunn kæranda sem varnaraðilar tóku ákvörðun um á þessum grundvelli átti samkvæmt því ekki rétt á sér. Þar sem munur á tilboðum í útboðinu var 0,6115 stig getur þessi lækkun ein og sér ekki leitt til þess að ákvörðun um val á tilboði teljist ógild. Kemur því til skoðunar málatilbúnaður kæranda sem varðar stigagjöf tilboðs hans fyrir gæði.

Hið kærða innkaupaferli er samkeppnisútboð, sbr. 36. gr. laga nr. 120/2016. Í því felst samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins að í útboðsgögnum skal tilgreina efni innkaupa ásamt lýsingu á þörfum kaupanda og þeim eiginleikum sem vörur, verk eða þjónusta skulu hafa. Einnig skuli koma fram hvaða lágmarkskröfur öll tilboð þurfi að uppfylla og tilgreina forsendur fyrir vali tilboðs. Þá segir í 3. mgr. að kaupandi skuli ræða við bjóðendur um öll tilboð þeirra, bæði upphaflegt tilboð og síðari tilboð, til að laga tilboð að þörfum kaupanda nema um endanleg tilboð í skilningi 6. mgr. sé að ræða. Ekki skuli semja um lágmarkskröfur og forsendur fyrir vali tilboðs. Í 4. mgr. er boðið að á meðan viðræðum standi skuli kaupandi tryggja að jafnræðis sé gætt milli þátttakenda og að ekki séu veittar upplýsingar sem gera stöðu ákveðinna þátttakenda betri en annarra. Kaupandi skuli upplýsa alla bjóðendur skriflega um hvers kyns breytingar á tæknilýsingum eða öðrum útboðsgögnum. Eftir slíkar breytingar skuli kaupandi veita bjóðendum nægilega langan frest til að breyta tilboðum sínum og leggja þau fram aftur, eins og við eigi. Í 6. mgr. segir að ef kaupandi hyggist ljúka samningaviðræðunum skuli það tilkynnt þeim bjóðendum sem eftir séu og settur sameiginlegur frestur til að leggja fram ný eða endurskoðuð tilboð. Kaupandi skuli gæta þess að tilboð sé í samræmi við lágmarkskröfur og skilyrði 1. mgr. 66. gr. Þá skuli kaupandi meta endanleg tilboð á grundvelli valforsendna og gera samning í samræmi við 5. mgr. 78. gr. og 79. til 81. gr.

Í samkeppnisútboði því sem hér um ræðir er ferli þess lýst í 3. kafla útboðslýsingar en í kafla 3.6.3 er störfum matsnefndar lýst sérstaklega. Þar kemur fram að matsnefndin taki til mats þau atriði sem gefin sé einkunn fyrir samkvæmt valforsendum útboðsins hvað varðar gæðamat. Muni þrír til sex matsnefndarmenn leggja mat á hvern lið að undanskildu atriði sem krefst útreikninga og mats á kolefnisspori. Við mat á kolefnisspori muni viðkomandi matsnefndarmaður fara yfir útreikninga þátttakenda og raunhæfni þeirra. Endanleg einkunn fyrir þann matsþátt ráðist af niðurstöðu matsnefndarmanns en ekki eigin útreikningum þátttakenda. Matsnefndarmenn muni jafnframt skrá niður athugasemdir sem þeir hafi við hverja tillögu við viðkomandi matslið. Enginn einn matsnefndarmaður fari yfir alla matsþætti. Við lok hverrar yfirferðar hittist matsnefndin, ræði matið í tengslum við hvern matslið í þriggja til sex manna hópum allt þar til yfirferð yfir öll matsatriði sé lokið. Hver matsnefndarmaður gefi svo sjálfstæða einkunn sem sé skráð og gildi meðaltal einkunna matsnefndarmanna sem lokaeinkunn fyrir hvern matslið. Í kafla 3.1 og 3.6.3 kemur svo fram hvernig afstaða matsnefndarmanna verði kynnt bjóðendum meðan á viðræðum stendur. Þannig segir í 3.6.3 að hver hópur matsnefndarmanna komi sér saman um hvaða athugasemdir verði kynntar viðkomandi þátttakanda. Þá segir í 3.1, um annað þrep, að þátttakendur verði ekki upplýstir um einkunnargjöf matsnefndar fyrr en niðurstaða varðandi endanleg tilboð liggi fyrir.

Í þessu fyrirkomulagi fólst að á meðan á viðræðum stæði og þegar aðilar legðu fram endanleg tilboð sín yrðu ýmis atriði sem varða afstöðu matsnefndarmanna bjóðendum óþekkt. Þeim yrði þannig ókunnugt um athugasemdir einstakra matsnefndarmanna og einkunnargjöf þeirra, bæði hvers fyrir sig og meðaltal einkunna. Þá fólst í þessu engin trygging þess að allar athugasemdir einstakra matsnefndarmanna kæmu fram í þeim umsögnum um einstaka matsliði sem kynntar yrðu bjóðendum og að ekki gæti orðið ákveðið misræmi í umsögnunum. Eins leiddi af þessu fyrirkomulagi tiltekið ógagnsæi og í þessu fólst að upplýsingar sem veittar yrðu í viðræðum aðila fælu ekki í sér vissu um hvernig endanleg tilboð yrðu metin. Þegar þetta fyrirkomulag var kynnt þátttakendum í samkeppnisútboðinu í öndverðu gerði enginn þeirra athugasemdir né var lögmæti fyrirkomulagsins dregið í efa. Kærufrestur vegna fyrirkomulagsins sem slíks var útrunninn þegar hann var rofinn samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Verður því ekki séð á þessu stigi máls að lögmæti fyrirkomulags þessa geti komið til skoðunar í málinu.

Þótt fyrirkomulagið sem slíkt komi samkvæmt þessu ekki til skoðunar vegna kærufrests stendur kærufrestur því ekki í vegi, líkt og að framan greinir, að fjallað verði um stigagjöf í þeim matsliðum sem kærandi beinir spjótum sínum að. Með stigagjöfinni í hinu umdeilda innkaupaferli var ætlun varnaraðila að velja fjárhagslega hagkvæmasta tilboðið á grundvelli besta hlutfalls á milli verðs og gæða, sbr. 3. tl. 1. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016. Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar útboðsmála hefur verið fjallað um til hverra atriða endurskoðun kærunefndarinnar tekur þegar tilboðum eru gefnar einkunnir fyrir gæði í samræmi við þetta. Byggist sú endurskoðun á athugun nefndarinnar á fram komnum tilboðum og matsgögnum. Sé um að ræða sérfræðilegt mat í höndum sérstakrar nefndar á vegum kaupanda sem unnið er til samræmis við fyrir fram skilgreint verklag hefur verið litið svo á að matsnefnd hafi hæfilegt svigrúm til mats. Komi þá einkunnagjöf ekki til endurskoðunar nema sýnt þyki að hún hafi verið andstæð jafnræði eða málefnalegum sjónarmiðum. Sjá hér til hliðsjónar úrskurði kærunefndar útboðsmála í málum nr. 34/2020, 28/2022 og 9/2023.

Eins og hér háttar til starfaði á vegum verkkaupa matsnefnd sem var skipuð fjölda sérfræðinga á þeim sviðum sem komu til mats. Af gögnum máls virðist mega ráða að nefndin hafi í öllum aðalatriðum starfað í samræmi við það fyrir fram skilgreinda verklag sem lýst var í útboðslýsingu, en frávik í fjölda matsnefndarmanna um einstaka liði teljast í þessu sambandi óveruleg. Sérfræðingur nefndarinnar hefur yfirfarið öll skjöl sem hafa verið lögð fyrir nefndina og sem varða störf matsnefndarmanna um þá matsliði sem kærandi beinir spjótum sínum að. Sérfræðingurinn hefur þar hvorki orðið þess var að hallað hafi á annan hvorn bjóðandann í ferlinu né að einkunnagjöf eða athugasemdir hafi að öðru leyti byggst á ómálefnalegum sjónarmiðum. Verður því stigagjöf matsnefndar fyrir gæði ekki dregin í efa eins og málið liggur fyrir á þessu stigi.

Eins og málið liggur fyrir á þessu stigi hafa því ekki verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum nr. 120/2016 sem leitt geta til ógildingar á ákvörðun varnaraðila um val á tilboði í hinu kærða samkeppnisútboði, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Krafa varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar, sem komst á með kæru í máli þessu, er því tekin til greina.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

 

Ákvörðunarorð

Aflétt er sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í samkeppnisútboði varnaraðila, Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna og Þjóðarhallarinnar ehf., nr. 22169 auðkennt „Samkeppnisútboð um byggingu Þjóðarhallar.“

 

Reykjavík, 10. júlí 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?