26. nóvember 2026 /

Mál nr. 22/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 17. september 2026

í máli nr. 22/2026:

Ístak hf.

gegn

Kópavogsbæ og

ÞG verktökum ehf.

 

Lykilorð

Samkeppnisviðræður. Gæðamat. Einkunnagjöf. Sérfræðingur. Valdsvið kærunefndar útboðsmála. Ákvörðun um val tilboðs felld úr gildi. Álit á skaðabótaskyldu. Málskostnaður.

Útdráttur

K boðaði til samkeppnisviðræðna í kjölfar forvals og óskaði eftir tilboðum í hönnun og byggingu áhorfendastúku með þjónustubyggingu við aðalvöll HK í Kópavogi. Samkeppnisviðræðurnar skyldu fara fram í fjórum þrepum, sem lýst var í útboðsgögnum. Eftir skil á upphaflegri tillögu myndi matsnefnd fara yfir tillögur þátttakenda og skila einkunn ásamt skriflegri umsögn. Viðræðunefnd K myndi kynna fyrir þátttakendum niðurstöðu og athugasemdir matsnefndar. Að því ferli loknu myndu þátttakendur skila endanlegri tillögu sinni. Samkvæmt valforsendum myndi gæðamat tillögu gilda 70% af lokaeinkunn og verð 30%. Nánar var fjallað um gæðamat og framkvæmd þess í útboðsgögnum og fylgiskjölum þess. K tilkynnti aðilum í apríl 2026 að ákveðið hefði verið að velja tilboð Þ, sem hefði fengið 78,56 í einkunn fyrir tillögu sína en Í hefði fengið 77,57 í einkunn. Í kærði þá ákvörðun til kærunefndar útboðsmála og byggði á því að K hefði lækkað einkunnagjöf sína fyrir mat á gæðum í lokatilboði félagsins með ólögmætum hætti. Vísaði Í til þess að það eina sem hefði breyst á milli tillagna hefði verið að Í hefði útfært viðkomandi liði í samræmi við ábendingar viðræðunefndar K. Auk þess byggði Í á að tilboð Þ hefði ekki uppfyllt tilteknar lágmarkskröfur í útboðsgögnum. Í niðurstöðu kærunefndar var tekið fram að fyrirkomulag K á viðræðunum hefði út af fyrir sig getað staðist en í því hafi falist viss skerðing á gagnsæi sem hefði fengist með afhendingu einkunna einstakra matsmanna. Sérstök ástæða hefði því verið til að vanda framsetningu athugasemda matsnefndar. Taldi kærunefndin að lýsing á matsferlinu í útboðslýsingu hefði verið almenns eðlis og lýsing á störfum matsmanna fámál, en hún hefði m.a. miðast við að skilað yrði einni umsögn fyrir tillögu þátttakenda fremur en mörgum mismunandi. Að þessu leyti hefðu umsagnir matsmanna ekki fylgt fyrirmælum útboðslýsingar. Þá hefði kærunefnd útboðsmála farið yfir og borið saman tillögur þátttakenda og væri það mat hennar að ekki fengist séð miðað við fyrirliggjandi rökstuðning að endanlegt tilboð Í hafi falið í sér lakari tillögu en upphafleg tillaga félagsins. Röksemdir fyrir þeim breytingum sem gerðar hefðu verið væru því ófullnægjandi og skorti rökræn tengsl við þær breytingar sem um ræddi. Hefði einkunnagjöf K fyrir tilboð Í í þeim matsliðum sem um ræddi ekki samrýmst 3. tl. 1. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Ákvörðun K um val á tilboði Þ hefði því ekki byggst á lögmætum grundvelli vegna þeirra annmarka sem hefðu verið á einkunnagjöf tilboðs Í. Kærunefndin tók fram að enginn aðila hefði krafðist þess að innkaupaferli K skyldi lýst ógilt frá upphafi, og af þeim sökum kæmi ekki til álita annað en að fella úr gildi ákvörðun K um að velja tilboð Þ og hafna tilboði Í. Þá féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu Í um álit á skaðabótaskyldu K vegna kostnaðar við að undirbúa endanlegt tilboð félagsins og taka þátt í hinu kærða innkaupaferli.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 27. apríl 2026 kærði Ístak hf. (hér eftir „kærandi“) innkaupaferli Kópavogsbæjar (hér eftir „varnaraðili“) nr. 2402380 auðkennt „Design and construction of a football stadium at Kórinn.“

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að velja tilboð ÞG verktaka ehf. og þar með hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Þess er einnig krafist að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda, nema afstaða til annarra krafna leiði til þess að það eigi ekki við. Auk þessa krefst kærandi málskostnaðar úr hendi varnaraðila. Kærandi krefst enn fremur að kærunefnd útboðsmála stöðvi samningsgerð varnaraðila með vísan til 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru þessari.

Varnaraðila og ÞG verktökum ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 13. maí 2026 að stöðvun samningsgerðar verði aflétt og að öllum kröfum kæranda verði hafnað.

ÞG verktakar ehf. krefjast þess í greinargerð sinni 12. maí 2026 að hafnað verði kröfum kæranda og að kærunefnd útboðsmála aflétti stöðvun samningsgerðar, en að auki að kæranda verði gert að greiða félaginu kostnað við að halda uppi vörnum í máli þessu.

Kærunefnd útboðsmála tilkynnti aðilum málsins með tölvupósti 28. apríl 2026 um að ákveðið hefði verið að kalla Ásmund Ingvarsson sem sérfræðing til ráðgjafar og aðstoðar nefndinni í málinu með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga nr. 120/2016. Aðilar málsins gerðu ekki athugasemd við það og var skipunarbréf hans undirritað 8. maí 2026 og fengu aðilar málsins afrit af því.

Með ákvörðun 26. maí 2026 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt.

Frekari athugasemdir frá varnaraðila og ÞG verktökum ehf. bárust kærunefnd útboðsmála 22. júní 2026.

Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar 7. júlí 2026.

 

I

Hið kærða innkaupaferli var auglýst í desember 2025. Samkvæmt grein 1.1 í útboðsskilmálum var um að ræða samkeppnisviðræður að undangengnu forvali í samræmi við 37. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Óskað væri eftir tillögum og tilboðum frá þeim þátttakendum sem valdir hefðu verið í kjölfar forvals fyrir samkeppnisviðræður. Í almennri lýsingu verksins í grein 1.1.1 í útboðsskilmálum kom fram að óskað væri eftir tilboðum í hönnun og byggingu áhorfendastúku með þjónustubyggingu sem skyldi vera á tveimur hæðum, fullbúnum upphituðum gervigrasvelli með vallarlýsingu og öllu sem því fylgi, við aðalvöll HK í Kórahverfi í Kópavogi. Samkeppnisviðræðurnar næðu yfir arkitektahönnun, verkfræðihönnun, uppsteypu á stúku og þjónustubyggingu, frágangi hennar að innan og utan, uppbyggingu á upphituðum gervigrasvelli með flóðlýsingu sem og frágangi lóðar umhverfis stúku og gervigrasvelli. Einnig kom fram að miðað væri við að neðri hluti hússins yrði staðsteyptir veggir, einangraðir að utan, með vind- og vatnsvarnarlagi og klæddir vandaðri plötuklæðningu úr málmi eða öðru slit- og álagssterku efni. Hluti steyptra veggja væru undir jarðvegi og skyldi meðhöndla þá með vatnsþéttilagi, einangrun og drenandi frágangi. Áhorfendastúkan skyldi hönnuð samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar, en í því fælist að hanna góðar lausnir með jafnrétti og vellíðan alls fólks í fyrirrúmi. Þá voru helstu verkþættir taldir upp í sömu grein útboðsskilmálum.

Í grein 1.1.4.1 og undirgreinum var fjallað um feril samkeppnisviðræðna og skil á tillögum og tilboði. Kom þar fram að samkeppnisviðræðunum yrði skipt upp í fjögur þrep og myndi verkkaupi einungis taka ákvörðun um val tilboðs eftir að þátttakendur hefðu lagt fram endanleg tilboð. Verkkaupi myndi kalla til matsnefnd og viðræðunefnd. Í fyrstu umferð samkeppnisviðræðnanna skyldu þátttakendur skila inn upphaflegri tillögu og verðtilboði undir nafnleynd. Matsnefnd myndi fara yfir tillögurnar og tilboðin og skila einkunn ásamt skriflegri umsögn um hverja tillögu sem kæmi til mats. Verðtilboðin kæmu ekki til mats á þessu stig, heldur yrðu einungis til hliðsjónar. Hver þátttakandi fengi afhenta umsögn um sína tillögu og stigagjöf. Viðræðunefnd verkkaupa myndi kynna nánar niðurstöður og athugasemdir matsnefndar fyrir hverjum þátttakenda fyrir sig. Í kjölfarið myndi viðræðunefnd eiga í viðræðum við þátttakendur með það að markmiði að skýra, þróa og aðlaga tillögur þátttakenda og kröfur verkkaupa þannig að samræmi myndi nást milli markmiða verkefnisins og tæknilegra og framkvæmdalegra lausna þátttakenda út frá umsögn matsnefndar. Einnig var tekið fram að viðræðurnar myndu byggja á umsögn matsnefndar og framkomnum athugasemdum og fara fram á grundvelli jafnræðis, þannig að allar breytingar á kröfum eða útfærslum væru kynntar öllum þátttakendum með sama hætti. Viðræðunefnd myndi ekki eiga sæti í matsnefnd. Þegar verkkaupi mæti að viðræðum væri lokið og ekki væri þörf á frekari viðræðum við þátttakendur myndi verkkaupi formlega loka samningaferlinu með tilkynningu og gefa út boð til þátttakenda um að leggja fram endanlegar tillögur ásamt verðtilboði.

Um val á tilboði var fjallað í kafla 1.3 í útboðsskilmálum og undirgreinum hans. Valforsendur komu fram í grein 1.3.1 og tekið fram að tilboð yrði valið á grundvelli hagkvæmasta tilboðs milli verðs og gæða, þar sem verð gildi 30% og mat á gæðum tillögu gildi 70%. Það tilboð sem fengi flest stig samanlagt fyrir mat á tillögum eftir yfirferð matsnefndar og verð eftir opnun tilboða yrði talið hagkvæmasta tilboðið.

Í grein 1.3.1.1 var fjallað um gæðamat tillögu. Gæðamati yrði skipt í þrjá hluta; í fyrsta lagi aðkoma – aðgengi og tengsl við nánasta umhverfi, sem gilti 21 stig; í öðru lagi húsnæði – innra skipulag, flæði og tengsl rýma, sem gilti 22 stig; og í þriðja lagi hagkvæmni – efnisval, tæknikerfi og umhverfis- og öryggisþætti, sem gilti 57 stig. Matsnefndin myndi yfirfara þessi atriði og gefa stig miðað við þær forsendum sem fram komu í matsblaði, sem fylgdi með útboðsgögnum. Stigagjöf var svo nánar útskýrð samkvæmt formúlu í sömu grein, auk þess sem matskvarði kom fram í greininni ásamt nánari útskýringum á hvernig lausn félli að kröfum útboðslýsingar.

Með útboðslýsingu fylgdi matstafla, þar sem framangreind matsatriði voru brotin niður á 24 liði. Liðurinn „Aðkoma“ var brotinn niður á 5 nánar tilgreinda liði. Í hverjum lið var að finna nánari skýringu á þeim atriðum sem leitað væri að ásamt vægi hvers liðar og hvaða gögnum þátttakendur skyldu skila. Matstöfluna myndi matsnefnd fylla út, þ.e. einkunnagjöf ásamt athugasemdum eða rökstuðningi hvers matsnefndarmanns.

Þá fylgdi með útboðsgögnum þarfa- og kröfulýsing. Að því er varðar ágreiningsefnið í máli þessu þá kom fram í grein 1.5.5.10, sem fjallaði um kröfur til einstakra rýma, að stigar og lyftuhús skyldu vera miðsvæðis og í góðum tengslum við miðkjarna og þannig að gott flæði væri um húsið. Stigi skyldi vera nægjanlega breiður til að anna þeirri umferð sem gera megi ráð fyrir og uppfylla reglugerðarkröfur. Koma skyldi fyrir öflugri lyftu af fullnægjandi stærð og með opnun fyrir sjúkrabörur.

Í grein 1.6.1 í þarfa- og kröfulýsingu, sem fjallaði um kröfur til byggingarhluta, kom fram að þök skyldu vera með dúk, annað hvort PVC eða asfaltpappa í yfirborði sem endanlegt vatnsvarnarlag. Að því er varðar byggingareðlisfræði þaka þá voru gerðar kröfur um lítið hallandi (halli >1:40) óloftræst þak með þurri einangrun. Ofan á burðarkerfið, talið innan frá og út, kæmi rakavörn, þ.e. asfaltdúkur, einangrun, vatnsvörn (t.d. PVC eða asfaltdúkur) og farg eða festing. Að auki voru gerðar kröfur til loftræstingu þaka. Tekið var fram að það væri á valdi verktaka að bjóða sem hagkvæmustu og bestu lausn í þessum efnum, sem skyldi þó hljóta samþykki verkkaupa. Hönnun þakfrágangs skyldi uppfylla allar almennar hönnunarreglur og viðeigandi staðla.

Í grein 1.6.6 í þarfa- og kröfulýsingu kom fram að innveggir skyldu vera ýmist steyptir eða hlaðnir, sléttir og lausir við misfellur í yfirborði, ýmist málaðir eða flísalagðir. Notast skyldi við viðurkennd málningarkerfi sem skyldu valin út frá starfsemi og álagi í viðkomandi rými, t.d. þar sem vænta megi álags vegna raka.

Tveir þátttakendur voru valdir til þátttöku í samkeppnisviðræðunum, annars vegar kærandi og hins vegar ÞG verktakar ehf. Á fyrsta stigi viðræðnanna fékk kærandi alls 14,26 stig fyrir fyrsta matsþáttinn, „Aðkoma“, og þar af 10,69 stig fyrir fyrstu þrjá liðina í þeim matsþætti. Í endanlegu tilboði fékk kærandi 13,51 stig fyrir sama matsþátt og þar af 9,19 fyrir fyrstu þrjá liðina í matsþættinum. ÞG verktakar ehf. fékk 9,19 stig fyrir fyrstu þrjá liðina í fyrsta matsþættinum og alls 13,32 stig í heild fyrir þann hluta matsþáttarins. Í seinni tillögu sinni fékk ÞG verktakar ehf. 10,88 stig fyrir fyrstu þrjá liðina og alls 15,38 stig í þessum matsþætti.

Í niðurstöðu innkaupaferlisins kom fram að tilboð kæranda hefði alls fengið 77,57 heildarstig en ÞG verktakar ehf. hefði fengið 78,56 heildarstig. Hinn 17. apríl 2026 tilkynnti varnaraðili bjóðendum að ákveðið hefði verið að velja tilboð ÞG verktaka ehf.

 

II

Kærandi byggir annars vegar á því að varnaraðili hafi lækkað einkunnagjöf sína fyrir mat á gæðum í tilboði kæranda með ólögmætum hætti og hins vegar byggir kærandi á því að tilboð ÞG verktaka ehf. hafi í nokkrum atriðum verið í ósamræmi við lágmarkskröfur og því hafi varnaraðila verið óheimilt að velja það. Bendir kærandi á að munur á stigagjöf í gæðamati hafi verið 1,5 stig kæranda í vil, en munur á heildarstigum hafi verið 0,99 stig ÞG verktökum ehf. í vil. Kæran lúti aðeins að einu atriði, þ.e. lækkun stigagjafar matsnefndar fyrir liði 1-3 í matsatriði 1 um aðkomu. Það matsatriði hafi vegið 21% og hæsta mögulega einkunn verið 21 stig. Kærandi hafi fengið 14,26 stig fyrir þetta matsatriði í fyrri tillögu sinni, og þar af 10,69 stig fyrir liði 1-3. Fyrir endanlegt tilboð hafi kærandi fengið 13,51 stig fyrir þetta matsatriði, og þar af 9,19 stig fyrir liði 1-3.

Kærandi bendir á að það sem hafi breyst milli upphaflegs tilboðs og endanlegs tilboðs hans hafi verið að kærandi hafi útfært viðkomandi liði í samræmi við ábendingar viðræðunefndar varnaraðila sem hafi byggt á endurgjöf matsnefndar. Í fundargerð frá 17. mars 2026 komi fram að arkitekt kæranda hafi upplýst að hann hefði nýjar teikningar og breytingar í samræmi við athugasemdir matsmanna og viðræðunefndar, sem hafi sýnt betri tengingar og hvernig allir göngustígar tengdust við Glódísartorg. Að öðru leyti hafi allar breytingar innanhúss verið gerðar eftir samræðufundi varnaraðila og kæranda, og tekið tillit til athugasemda á fyrri tillögu. Breytingar utanhúss hafi snúið að því að einfalda skyggni, fækka gólfsíðum gluggum að ósk varnaraðila og taka út hönnun á þeim svæðum sem ekki hafi tilheyrt verkefninu. Að öðru leyti hafi endanleg tillaga verið eins og upphafleg tillaga kæranda.

Kærandi telji að almennt megi gera ráð fyrir að einkunnir vegna liða þar sem ábendingum matsnefndar væri mætt myndu hækka milli tilboða, eða í versta falli haldist óbreyttar. Hefði einkunnagjöf fyrir þessa þrjá umþrættu liði haldist óbreytt milli tilboða hefði heildareinkunn fyrir matsatriði þetta verið 15,01 og kærandi hefði því fengið 50,67 stig fyrir gæði. Af þessu leiði að heildarstig tilboðs kæranda hefðu þá verið 78,63 stig og þar með hærra en tilboð ÞG verktaka ehf.

Kærandi telur að óheimilt sé að lækka einkunn tilboðs hans með þeim hætti sem varnaraðili hafi gert. Hvergi í lögum nr. 120/2016 eða í útboðsgögnum hafi verið gert ráð fyrir þeim möguleika að samkeppnisviðræður, sem hafi það að markmiði að breyta tillögum þátttakenda þannig að þær mæti þörfum kaupanda betur, leiði til verri stigagjafar við það að þörfum kaupanda sé betur mætt. Slík niðurstaða fari gegn 2. mgr. og 6. mgr. 37. gr. laga nr. 120/2016. Þá bendir kærandi á að kaupanda í opinberum innkaupum beri jafnframt að skilgreina forsendur fyrir mati tilboða skýrlega fyrirfram. Kaupandi skuli meta tilboð í samkeppnisviðræðum á grundvelli þeirra forsendna fyrir vali tilboðs sem hafi komið fram í upphaflegri útboðslýsingu eða útboðsgögnum, sbr. 8. mgr. 37. gr. laga nr. 120/2016. Betri lausn, sem mætir athugasemdum í samkeppnisviðræðum, geti eðli máls samkvæmt ekki fengið verri einkunn en fyrri lausn nema matsviðmiðum hafi verið breytt þannig að í bága fari við framangreint ákvæði sem og meginreglu um gagnsæi, sbr. 15. gr. laga nr. 120/2016. Slíkum matsforsendum megi ekki beita með handahófskenndum hætti, enda færi slíkt bæði gegn meginreglum 15. gr. laganna um gagnsæi og jafnræði. Það að einkunn hafi lækkað milli tilboða sýni að matsforsendum hafi verið beitt með handahófskenndum hætti.

Í þessu sambandi bendir kærandi einnig á 6. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016 og til athugasemda í frumvarpi til laganna þar sem komi skýrt fram að val á tilboðum verði að byggjast á upphaflegum valforsendum. Gæta verði þess vandlega að forsendum fyrir tilboðum sé ekki raskað svo gengið sé gegn jafnræði. Þá sé þessi krafa um hlutlægni og gagnsæi jafnframt áréttuð í yfirlýstum markmiðum laga nr. 120/2016. Telji kærandi ljóst að það að stigagjöf hans hafi verið lækkuð, eftir að hafa orðið við ábendingum varnaraðila um úrbætur, bendi til þess að mat kaupanda hafi verið ófyrirsjáanlegt og huglægt, sem brjóti gegn kröfum um gagnsæi og hlutlægni. Varnaraðili geti ekki án málefnalegra og fyrirfram gefinna hlutlægra raka breytt og lækkað stigagjöf sem áður hafði verið gefin í ferlinu. Í þessu sambandi vísar kærandi til forsendna í dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 366/2013 og til úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 3/2023.

Auk framangreinds byggir kærandi á því að annmarkar hafi verið á tilboði ÞG verktaka ehf. Í þessu sambandi vísar kærandi til liðar 1.5.5.10 í þarfa- og kröfulýsingu. Þar hafi komið fram að stigar og lyftuhús skyldu vera miðsvæðis og í góðum tengslum við miðkjarna og þannig að gott flæði væri um húsið. Í endanlegri tillögu ÞG verktaka ehf. sé þessari kröfu ekki fullnægt og vísar kærandi til myndar í tillögunni. Að auki telur kærandi að endanleg tillaga ÞG verktaka ehf. uppfylli ekki kröfur í grein 1.6.1. Félagið geri ráð fyrir þakhalla 1:40 en af því leiði að tilgreind aðalregnvörn skuli vera þakdúkur eða tvöfaldur pappi samkvæmt grein 10.5.4 í byggingarreglugerð. Af mynd í endanlegri tillögu ÞG verktaka ehf. megi sjá að ekki sé gert ráð fyrir þakdúk eða tvöföldum pappa, heldur trapisu samlokueiningum. Það telji kærandi ekki ná sama árangri hvað varði vatnsheldni og endingartíma og heill þakdúkur eða pappi. Megi því ætla að mikil hætta sé á uppsöfnun vatns og leka á samlokueiningum með þennan halla.

Þá vísar kærandi til þess að lausn ÞG verktaka ehf. virðist gera ráð fyrir léttum gipsveggjum, en slík lausn samrýmist ekki kröfu greinar 1.6.6 í þarfa- og kröfulýsingu sem hafi krafist þess að innveggir skyldu vera ýmist steyptir eða hlaðnir. Kærandi bendir á að íþróttamannvirki, og sérstaklega búningsklefar og gangar sem þurfi að þola mikið álag og raka, krefjist gegnheilla veggja sem þýði að þeir þurfi að vera steyptir eða hlaðnir. Loks bendir kærandi á að svo virðist sem tillaga ÞG verktaka ehf. kalli á breytingar á deiliskipulagi, en gert sé ráð fyrir innkeyrslu á miðri lóð á svæði sem deiliskipulag merkir undir annað. Í samkeppnisviðræðunum hafi varnaraðili tekið fram að einungis tvær ákvarðanir um leyfileg frávik frá deiliskipulagi, en þær hafi ekki lotið að aðkomu eða innkeyrslu. Að mati kæranda hafi allt framangreint leitt til þess að ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð ÞG verktaka ehf. hafi verið ólögmæt sem fella beri úr gildi.

Í lokaathugasemdum sínum andmælir kærandi þeim athugasemdum sem varnaraðili og ÞG verktakar ehf. hafi fært fram. Kærandi bendir á að kæran beinist að því hvernig gæðamat varnaraðila hafi verið framkvæmt, en það mat hafi lagt grundvöll að ákvörðun varnaraðila um val tilboðs ÞG verktaka ehf. og höfnun á tilboði kæranda. Sú ákvörðun hafi verið kærð innan lögbundins kærufrests. Þegar umsagnir matsmanna við mat á fyrri tillögu auk einkunna hafi legið fyrir hafi kæranda ekki getað verið ljóst hvernig framsetning þeirra myndi síðar hafa áhrif á hagsmuni hans, né að um brot væri að ræða. Það hafi ekki verið fyrr en endanleg ákvörðun varnaraðila hafi legið fyrir sem kæranda hafi orðið ljóst að framkvæmd gæðamatsins væri haldin annmörkum. Þau sjónarmið sem kærandi hafi haft uppi um framkvæmd matsins hafi verið hluti af rökstuðningi fyrir þeirri málsástæðu að endanlegt gæðamat varnaraðila hafi verið ólögmætt, ófyrirsjáanlegt og ómálefnalegt. Ákvörðun kærunefndarinnar hafi jafnframt byggt á samanburði sérfræðings hennar á upphaflegri og endanlegri tillögu kæranda, en sú umfjöllun lúti að endanlegu gæðamati varnaraðila og falli því óumdeilanlega innan kærufrests.

Kærandi andmælir því að kærunefnd útboðsmála hafi í ákvörðun sinni farið út fyrir heimildir sínar með hliðsjón af málsforræðisreglu lokamálsliðar 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016. Kæruefni málsins sé ákvörðun varnaraðila frá 17. apríl 2026 um að velja tilboð ÞG verktaka ehf. og hafna tilboði kæranda. Sú ákvörðun hafi byggt á gæðamati varnaraðila, þ.m.t. stigagjöf fyrir þá matsliði sem kærandi hafi tiltekið í kæru sinni. Umfjöllun kærunefndarinnar hafi lotið að þeim matsliðum. Þá hafi sérfræðingur kærunefndarinnar yfirfarið fyrri tillögu kæranda og borið hana saman við endanlegt tilboð kæranda, og það hafi verið mat hans að kærandi hafi að góðum vilja reynt að bregðast við umsögn matsnefndar um þau atriði sem kærandi geri ágreining um. Væri einnig vandséð að mati sérfræðingsins hvernig endanlegt tilboð kæranda geti talist fela í sér lakari tillögu en upphaflega tillaga kæranda þannig að hún hafi verðskuldað lakari einkunn. Sú umfjöllun falli óumdeilt innan þess kæruefnis sem lagt hafi verið fyrir nefndina. Þá verði að auki að hafa í huga tilgang lokamálsliðar 2. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016, sem fram komi í frumvarpi til laga nr. 64/2024, og bendir á að kærandi hafi hvorki breytt kröfugerð sinni né lagt fyrir kærunefndina nýtt kæruefni utan kærufrests. Þá hafi málsmeðferð kærunefndarinnar ekki dregist með neinum hætti. Kærandi vísar einnig til dóms Hæstaréttar Íslands nr. 458/2002, þar sem fjallað hafi verið um hugtakið kæruefni, auk álits umboðsmanns Alþingis í máli nr. 6340/2011.

Kærandi andmælir einnig að tillaga hans hafi tekið margvíslegum breytingum í viðræðuferlinu, þ. á m. að því er varðar matsliði 1-3. Tillagan hafi eðli máls samkvæmt tekið breytingum í viðræðuferlinu, en það sé eðli samkeppnisviðræðna að tillögur þátttakenda séu þróaðar og aðlagaðar með hliðsjón af ábendingum matsnefndar, tilmælum viðræðunefndar og þeim skýringum sem komi fram í ferlinu. Breytingarnar einar og sér verði hins vegar ekki lagðar til grundvallar lækkun einkunna. Það sem skipti máli sé hvort varnaraðili hafi sýnt fram á, með gagnsæjum og málefnalegum hætti, að tilteknar breytingar hafi gert lokatillögu kæranda lakari í þeim matsliðum sem kæran lúti að.

Að því er varðar tilvísun varnaraðila til fundargerðar frá 10. mars 2026 þá andmælir kærandi því að þær athugasemdir, um að tilteknar myndir af lóð væru útfærsla og hugmynd, geti réttlætt hina umdeildu lækkun. Varnaraðili slíti þessi ummæli úr samhengi og leggi til grundvallar sem sjálfstæða réttlætingu fyrir lækkun einkunna. Umfjöllunin í fundargerðinni hafi lotið að afmörkun framkvæmdasvæðis, ábyrgðarskiptingu verkkaupa og verktaka og því hvaða kostnaður væri innifalinn í tilboði. Þá hafi komið fram að viðræðunefnd hygðist gera breytingar á kröfulýsingu um ytra skipulag, meðal annars með því að falla frá tilteknum atriðum á lóðinni. Þá bendir kærandi á að umfjöllun varnaraðila í frekari athugasemdum hans hafi fyrst og fremst vísað almennt til matsfrelsis matsmanna og að einkunnagjöf þeirra hafi verið réttlætanleg. Slík almenn tilvísun leysi varnaraðila ekki undan þeirri skyldu að sýna fram á hvaða tilteknu breytingar á lokatillögu kæranda hafi leitt til lakara mats í hverjum matslið fyrir sig.

Kærandi byggir á því að niðurstaða varnaraðila hafi farið í bága við 2. og 6. mgr. 37. gr. laga nr. 120/2016 og að mat tilboða hafi ekki verið hagað í samræmi við 8. mgr. sömu greinar. Jafnframt hafi matið farið í bága við meginreglur 15. gr. sömu laga um gagnsæi og jafnræði, en auk þess vísar kærandi til 6. mgr. 79. gr. laganna, enda beri kaupanda að haga forsendum fyrir vali tilboðs þannig að þær tryggi virka samkeppni.

Þá bendir kærandi á að þótt kæran snúi aðallega að þremur matsliðum af 24 þá séu þeir nægjanlegir til að sýna fram á að annmarkar á gæðamati varnaraðila hafi haft áhrif á þann stigamun sem hafi grundvallað val varnaraðila á tilboði ÞG verktaka ehf. Þessir matsliðir sýni með skýrum hætti þann annmarka sem kæran byggi á, þ.e. að kærandi reyndi í góðri trú að aðlaga tillögu sína að athugasemdum matsnefndar og viðræðunefndar en hafi engu að síður verið lækkaður í einkunn í þeim sömu matsliðum. Slík niðurstaða geti ekki talist lögmæt, gagnsæ eða málefnaleg. Þótt kærandi hafi hækkað í öðrum matsliðum eða heildareinkunn kæranda hafi í einhverjum skilningi verið hærri í lokamati en við mat á fyrir tillögu breyti engu í þessu sambandi. Slík hækkun geti ekki réttlætt ólögmæta einkunn í öðrum matsliðum.

Kærandi vísar jafnframt til þess að tilgreindir annmarkar á mati varnaraðila hafi haft bein áhrif á niðurstöðu innkaupaferlisins og breyti engu í því sambandi hvort ÞG verktakar ehf. telji að sambærileg sjónarmið hafi einnig getað átt við um aðra matsliði eða annan þátttakanda. Ef gæðamat varnaraðila hafi verið haldið annmörkum verður sá annmarki ekki bættur með því að vísa til þess að hann hafi einnig kunnað að hafa áhrif á mat á öðrum þátttakanda.

Loks ítrekar kærandi að tillaga ÞG verktaka ehf. að því er varðar þakið hafi gert ráð fyrir annars konar lausn en hafi komið fram í útboðsgögnum, án þess að sýnt væri fram á með fullnægjandi hætti að sú lausn næði sama árangri og sú lausn sem kröfulýsingin hafi gert ráð fyrir. Ekki sé hægt að fallast á að unnt sé að vísa almennt til þess að verkið hafi verið á frumhönnunarstigi eða að endanleg hönnun verði síðar löguð að byggingarreglugerð. Ef bjóðandi kjósi að víkja frá þeirri lausn sem skýrt sé mælt fyrir um í útboðsgögnum þá beri honum að sýna fram á, með tilboði sínu, að sama árangri verði náð. Það verði ekki gert eftir á með almennri yfirlýsingu um að lausnin verði síðar útfærð þannig að hún standist kröfur. Það hafi einnig þýðingu fyrir samanburð tilboða, en leiða megi líkur að því að þetta hafi haft áhrif á verðtilboð bjóðenda, þ.e. að kærandi hafi miðað við lausn sem hafi uppfyllt kröfur verkkaupa en ÞG verktakar ehf. ekki með sama hætti. Sama eigi við um lausnina varðandi efnisval innveggja.

 

III

Varnaraðili byggir á því að einkunnagjöf hans í hinu kærða útboði hafi verið rétt og ákvörðun um val tilboðs ÞG verktaka ehf. hafi því verið rétt og lögmæt. Þá vísar varnaraðili til 2. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 þar sem fram komi heimild til handa kærunefnd útboðsmála að líta til þeirra einka- og almannahagsmuna sem í húfi séu og hvort þeir séu meiri eða minni en hagsmunir kæranda af því að viðhalda banni við samningsgerð. Áætlað upphaf samnings hafi verið 1. maí 2026 og nauðsynlegt sé að hefja verk og ná að klára ákveðnum áfanga fyrir veturinn. Telji varnaraðili að almannahagsmunir krefjist þess að stöðvun samningsgerðar verði aflétt. Þá leiki verulegur vafi á málsástæðum kæranda þannig að ekki séu meiri líkur en minni að ákvörðun varnaraðila teljist ólögmæt. Um sé að ræða tæplega tveggja milljarða króna samning sem hafi fylgt skipulögðu og ströngu innkaupaferli og verði því að telja það almannahagsmuni að framkvæmdir geti hafist í samræmi við áætlanir.

Varnaraðili heldur því fram að það sé rangt hjá kæranda að matsviðmiðunum hafi verið breytt, en allir skilmálar um valforsendur, matsnefnd, matsþætti, matsliði og matskvarða hafi verið óbreyttir frá því að útboðsskilmálar samkeppnisviðræðna hafi verið sendir þátttakendum 22. desember 2025.

Á fundum viðræðunefndar með kæranda hafi komið fram að myndir af lóð í tillögu kæranda væru aðeins útfærsla og hugmynd en ekki hluti af tillögu að því sem kærandi myndi framkvæma. Þá hafi kærandi staðfest að kostnaður verktaka af tillögum verktaka á lóð væri ekki innifalinn í verðtilboði hans, og í reynd hafi lóð og aðkoma að mannvirkinu verið mjög ólík milli tillagna kæranda. Það hafi verið margvíslegar breytingar gerðar á viðræðufundum sem hafi haft áhrif á útfærslur kæranda á aðkomu, aðgengi og tengsl við nánasta umhverfi.

Þá vísar varnaraðili til þess að í lokatillögu kæranda hafi verið fellt út úr texta atriði sem sneri að aðkomu neyðarbíla, bílastæði og afstöðumynd, að því er varðar tengingu við nærumhverfi, og virðist kærandi þannig gera ráð fyrir breytingu á aðkomu en á sama tíma byggi kærandi á því að matsmönnum hafi verið óheimilt að taka mið af útfærslu breytinga á einkunnum fyrir lokatillögu kæranda. Varnaraðili andmæli því að það sé veruleg athugasemd við niðurstöðu gæðamats að einkunn kæranda hafi aðeins verið 9,19 stig fyrir þrjá liði af 24 matsliðum í stað 10,69 stiga. Hið mikilvæga sé að sömu matsaðilar hafi metið báðar tillögur beggja bjóðenda og matsliðir og matskvarðar hafi verið þeir hinir sömu. Það sé ekkert í lögum nr. 120/2016 sem tryggi þátttakendum í samkeppnisviðræðum að þær leiði ávallt til hækkunar einkunna í gæðamati. Einkunnir í samkeppnisviðræðunum hafi verið samsettar mötum einstaklinga með dreifða þekkingu, reynslu og skoðanir á matsliðunum. Þannig séu auknar líkur á því að einkunn verði sanngjörn í samræmi við dreifða skoðun einstaklinga með ólík sjónarmið.

Að auki sé engin rökrétt lausn málsins fengin með því að taka þrjá matsliði af 24 og krefjast eingöngu endurskoðunar á þeim til hækkunar. Sumir matsliðir hafi hækkað milli tillaganna og aðrir hafi lækkað, en slíkt sé eðlilegt þegar mismunandi tillögur og útfærslur komi til mats. Ef fallist yrði á kröfur kæranda um endurskoðun og hækkun á völdum matsliðum kæranda, þá felist í því að endurskoða þyrfti alla matsliði beggja þátttakenda sem hafi lækkað milli mata. Til samræmis þyrfti jafnframt að endurskoða alla matsliði með tilliti til lækkunar ef einkunnir myndu hækka milli mata. Að teknu tilliti til jafnræðis og sanngirni þá sé ekkert sem bendi til þess að útfærsla kæranda leiði til þeirrar niðurstöðu að lokatillaga hans yrði metin með hærri lokaeinkunn en lokatillaga ÞG verktaka ehf.

Að því er varðar málsástæður kæranda um annmarka á tilboði ÞG verktaka ehf. þá vísar varnaraðili til þess að almennt hafi það ekki verið ætlun hans að krefjast tiltekinnar hönnunar, útlits eða þátta sem hafi átt að binda hendur hönnuða og verktaka heldur fyrst og fremst að gefa hönnuðum frelsi til eigin útfærslu á tveggja hæða þjónustubyggingu og stúku í tilteknum stærðarmörkum á tilteknum stað og tíma. Þannig hafi ekkert í kröfulýsingu gefið til kynna að stigi og lyftuhús skyldi eingöngu vera í eða sem næst rúmfræðilegri miðju mannvirkisins. Aðeins hafi komið fram í útboðsgögnum að lyfta og stigi skyldi vera miðsvæðis, en nákvæm staðsetning hafi ekki verið skilgreind á teikningu. Því hafi verið talsvert svigrúm til að hanna og skilgreina miðkjarna og staðsetja stiga og lyftu, en eina raunverulega takmörkunin hafi verið að lausnin myndi virka vel m.t.t. flæðis. Flæði var jafnframt hluti af gæðamati en það hafi ekki verið atriði til útilokunar á tillögu þátttakanda. Að auki bendir varnaraðili á að skilgreindur miðjukjarni á annarri hæðinni geti verið ólíkur skilgreindum miðjukjarna á fyrstu hæð, en eðli máls samkvæmt sé um að ræða ólíkar útfærslur hönnuða sem komi til mats.

Varnaraðili bendir auk þess á að matsmaður hafi óskað eftir nánari skýringum á þakhalla frá ÞG verktökum ehf. Í svari félagsins hafi komið fram að verktakinn hafi í sínum lausnum meðal annars miðað við framleiðandann Kingspan og með svari félagsins hafi fylgt tækniblað frá því fyrirtæki um þaksamlokueiningar sem verktakinn hafi talið henta fyrir þök með 2,5% halla til nánari skýringa á öðru tækniblaði. Í svarinu hafi einnig komið fram staðfesting ÞG verktaka ehf. á að þakhalli myndi í endanlegri hönnun og framkvæmd uppfylla öll skilyrði byggingareglugerðar. Í umsögn sérfróðs matsmanns um þetta atriði hafi komið fram að ekki væri sýnt fram á að þakhalli uppfyllti kröfur byggingareglugerðar en í tækniblaði samlokueininga væri kveðið á um að lágmarks 4° sem væri í samræmi við byggingareglugerð. Auk þess hafi þátttakandinn staðfest að þakhalli yrði aukinn til samræmis við kröfur byggingareglugerðar. ÞG verktakar ehf. hafi fengið 50 stig af 100 mögulegum fyrir þennan lið, sem þýði að matsmaður telji lausnina ekki að öllu leyti fullnægjandi en gangi þó upp að flestu leyti. Á þessu stigi hafi ekki verið um fullnaðarhönnun að ræða sem hægt sé að slá föstu að uppfylli ekki kröfur byggingareglugerðar. Matsviðmið varnaraðila gefi skýrlega til kynna að einstaka atriði geti eingöngu haft áhrif á einkunn í stað ógildi tillögunnar á þessu stigi. Þessu til viðbótar bendir varnaraðili á að tillaga kæranda hafi einnig verið haldin tilteknum annmörkum en hafi fengið 75 stig af 100 mögulegum.

Að því er varðar sjónarmið kæranda þess efnis að tillaga ÞG verktaka ehf. geri ráð fyrir léttum gipsveggjum þá bendir varnaraðili á að það sé ekkert útskýrt frekar í kærunni né vísað í það hvar það komi fram í tillögu félagsins. Athugasemd kæranda virðist því röng að þessu leyti eða byggð á misskilningi. Þá vísar varnaraðili til sjónarmiða kæranda um mögulegar breytingar á deiliskipulagi, en það hafi komið skýrlega fram í upphafi viðræðna að nauðsynlegt væri að gera deiliskipulagsbreytingu vegna hæða á ljósamöstrum keppnisvallarins. Útfærslur í báðum tillögum þátttakendanna hafi kallað á deiliskipulagsbreytingar og mátti báðum vera það ljóst.

Í frekari athugasemdum sínum bendir varnaraðili á að heimildir kærunefndar útboðsmála til að byggja ákvarðanir sínar á málsástæðum og sjónarmiðum sem málsaðilar hafi ekki haldið fram í málatilbúnaði sínum séu verulega takmarkaðar, sbr. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016, þar sem málsmeðferð nefndarinnar takmarkist við það kæruefni sem lagt sé fyrir hana. Kærunefndinni sé því óheimilt að víkka málið út að eigin frumkvæði og hefja sjálfstæða rannsókn á þáttum sem falla utan málatilbúnaðar kæranda. Í kæru málsins sé hvergi á það minnst að verktakar hafi einungis fengið fjórar umsagnir matsmanna en einungis meðaltal einkunna þeirra. Því síður sé minnst á það í kærunni að það fyrirkomulag hafi valdið kæranda vandræðum. Að auki hafi kærandi ekki byggt á því í málinu að það hafi verið annmarki á framkvæmd útboðsins að hann hafi ekki fengið einkunnir matsmanna fyrir fyrri tillögu sundurliðaðar. Kærunefndin hafi gengið lengra og byggt niðurstöðu sína ekki eingöngu á að þessum meintu annmörkum heldur hafi komist að þeirri niðurstöðu að vegna þeirra hafi einkunnagjöfin verið andstæð jafnræði eða málefnalegum sjónarmiðum. Telji varnaraðili því að kærunefndin hafi í ákvörðun sinni byggt á annmarka, sem ekki hafi verið byggt á í kæru, í andstöðu við málsforræðisreglu.

Þá ítrekar varnaraðili að sú framkvæmd, að skila til þátttakenda umsögnum hvers og eins matsmanns og meðaltali einkunna, hafi verið í samræmi við útboðsgögn. Þátttakendum hafi því verið vel kunnugt um fyrirkomulagið sem hafi verið gagnsætt, fyrirsjáanlegt og beitt með sama hætti fyrir báða þátttakendur. Fræðilega sé rétt hjá kærunefnd útboðsmála að það geti skipt máli hvaða einkunn fylgdi hvaða umsögn. Til að koma í veg fyrir óskýrleika og misskilning í öllu ferli samkeppnisviðræðnanna hafi viðræðunefnd ítrekað kallað eftir spurningum og ábendingum í viðræðuferlinu þar sem matsumsagnir matsmanna hafi að meginstefnu verið til umræðu. Sú tilhögun, að senda þátttakendum umsagnir fjögurra matsaðila og meðaltal einkunna en ekki sundurliðaðar einkunnir fyrir fyrri tillögu, hafi að mati varnaraðila ekki haft nein áhrif á jafnræði aðila, gagnsæi eða skýrleika. Kærandi hafi haft möguleika á að skýra frá áhyggjum sínum af þessum meinta annmarka og hefði kærandi þá samstundis fengið sundurliðaðar einkunnir matsmanna til glöggvunar. Kærandi hafi hins vegar ekki vakið máls á neinum vandkvæðum í útboðsferli, í viðræðuferli eða í kæruferli, en hann hafi haft upplýsingar um fyrirkomulagið frá útgáfu útboðsgagna þann 6. febrúar 2026. Þá hefði kærandi getað kært þetta fyrirkomulag til kærunefndar útboðsmála, sem hann hafi ekki gert. Telji varnaraðili það ekki benda til þess að kærandi hafi talið fyrirkomulagið í andstöðu við jafnræði, skýrleika eða málefnaleg sjónarmið. Ætti hinn meinti annmarki því ekki að leiða til endurskoðunar kærunefndar á sérfræðilegum mötum matsmanna.

Varnaraðili bendir að auki á að sú forsenda ákvörðunar kærunefndar útboðsmála frá 26. maí 2026, að endanlegt tilboð kæranda hafi fengið lakari einkunn en fyrri tillaga, sé röng. Í þeim efnum rekur varnaraðili annars vegar einkunnagjöf fyrir matsliði 1-11 og bendir á að meðaltal einkunna hafi hækkað fyrir fimm af þeim ellefu matsliðum, og einkunn hafi lækkað fyrir fjóra liði. Gæðamat á fyrri tillögu kæranda fyrir þessa ellefu liði hafi skilað 17,4125 stigum af heildarstigafjölda, sem sé það sama og gæðamat á seinni tillögu kæranda fyrir sömu ellefu matsliði. Að því er varðar matsliði 12-24 þá bendi varnaraðili á að einkunn kæranda hafi ekki lækkað milli tillagna, þvert á móti hafi einkunn kæranda hækkað fyrir níu af 12 matsliðum og staðið í stað í fjórum liðum. Gæðamat á fyrri tillögu kæranda fyrir þessa matsliði hafi skilað 18,2 stigum af heildarstigafjölda, en gæðamat á seinni tillögu kæranda fyrir sömu matsliði hafi skilað 32,2 stigum.

Því byggi varnaraðili á því að yfirferð sérfræðings kærunefndar útboðsmála á tillögu kæranda og samanburður hans við endanlegt tilboð kæranda sé í fullu samræmi við stigagjöf þeirra sérfræðinga sem varnaraðili hafi leitað til og val tilboðs hafi byggt á. Seinni tillaga kæranda hafi hvorki fengið né verðskuldað lakari einkunn en fyrri tillaga kæranda. Lækkun á fjórum matsliðum sé ekki nógu mikil til þess að einkunn fyrir gæði tillögunnar myndi lækka milli tillagna vegna þess að aðrir matsliðir hafi hækkað langt umfram það sem lækkun nam.

Telji kærunefndin að fyrirkomulag gæðamats hafi leitt til þess að einkunnagjöf fyrir tilboð kæranda samræmist ekki 3. tölul. 1. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016 þá telji varnaraðili rétt að líta til þess að umræddir liðir hafi verið metnir af fjórum matsmönnum varnaraðila og einum sérfræðingi kærunefndar útboðsmála. Þar sem þessir matsliðir lúti að notagildi, útliti og skipulagi séu þeir vart mælanlegir með hlutlægum mælikvörðum og því hafi varnaraðili notast við meðaltal fjögurra einstaklinga. Þá reifar varnaraðili einkunn og umsögn tiltekins matsmanns að því er varðar matslið 1 bæði í fyrri og seinni tillögu kæranda, og dregur saman að í seinni tillögu hafi ekki verið bætt úr tilteknum atriðum, sbr. umfjöllun í fundargerð 10. mars 2026. Í fundargerðinni hafi jafnframt komið fram hjá kæranda að myndir af lóð væru „bara útfærsla og hugmynd en ekki hluti af tillögu að því sem [kærandi] myndi framkvæma.“ Varnaraðili vísar jafnframt til einkunna fyrir matsliði 2, 3 og 11, en það eru þeir matsliðir sem lækkuðu hjá kæranda, að ekki sé réttlætanlegt að breyta eða gagnrýna mög matsmanna í þeim liðum, auk þess sem það hefði ekki áhrif á niðurstöðu vals tilboðs á grundvelli besta hlutfalls milli verðs og gæða þó svo að stig kæranda fyrir þennan matslið yrðu óbreytt milli tillagna.

 

IV

ÞG verktakar ehf. benda á að krafa kæranda um ógildingu ákvörðunar á lækkun þeirra eigin stigagjafar sé mjög óskýr og ætti í raun að vísa henni frá kærunefndinni. Krafan virðist tengjast, í það minnsta að hluta til, á breytingum sem gerðar hafi verið um djúpgáma. Sú breyting hafi verið gerð þann 10. mars 2026 og allir kærufrestir er varði þá breytingu séu löngu liðnir. Því ætti að hafna þessari málsástæðu.

Þá halda ÞG verktakar ehf. því fram að svo virðist sem kærandi hafi dregið úr tilboði sínu á samningsstigi, en þegar óskað hafi verið eftir staðfestingu kæranda á því að kostnaður á tillögum verktaka á lóð væri inni í því sem fram kæmi í tillögunni hafi kærandi ekki getað staðfest slíkt. Í fundargerð kæmi fram að myndir af lóð væru bara útfærsla og hugmynd en ekki hluti af tillögu af því sem verktaki myndi framkvæma. Því líti út fyrir að matsnefnd hafi í upphafi metið útlitslega þætti ytra skipulags sem ekki hafi staðið til hjá kæranda að framkvæma, og sé augljóst að slíkt geti leitt til breytinga á matsniðurstöðu.

Matsferlið á grundvelli a. liðar 3. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016 áskilji síður en svo að mat á gæðum sé einungis til hækkunar í samkeppnisviðræðum. Þvert á móti geti samkeppnisviðræður leitt til breytinga á verkandlagi, dregið úr gæðum, aukið gæði o.s.frv. Þannig geti mat á gæðum bæði leitt til hækkunar og lækkunar matsstiga. Þá benda ÞG verktakar ehf. á að heildareinkunn kæranda hafi hækkað töluvert í seinna matsferlinu, svo fleiri þættir hafi leitt til hækkunar eða lækkunar. Margar breytingar hafi átt sér stað í matsferlinu hjá báðum þátttakendum og útilokað sé að taka einhverja ákveðna liði út fyrir sviga og endurmeta þá. Ef það ætti yfir höfuð að fara fram eitthvað endurmat hjá kærunefnd útboðsmála þá þurfti að fara fram heildstætt mat á öllum liðum beggja þátttakenda.

Þá telur ÞG verktakar ehf. að fullyrðing kæranda um að stiga- og lyftuhús sé ekki í tengslum við miðkjarnann sé röng. Miðkjarni hússins sé forsalurinn og stigahús og lyfta sé beint við hliðina á því svæði. Það sé rangt hjá kæranda þótt stigahús og lyfta sé ekki í rúmfræðilegri miðju hússins. Þessi lausn ÞG verktaka ehf. hafi orðið til í viðræðum við verkkaupa á samningstíma, sem hafi kallað á breytingar á grunnmynd tillögunnar á bæði 1. og 2. hæð. Lausnin uppfylli bæði þarfa- og kröfulýsingu verksins og væntingar verkkaupa.

Að því er varðar lausn ÞG verktaka ehf. um þak byggingarinnar þá telji félagið óumdeilt að framboðin lausn þess uppfylli grein 1.6 í þarfa- og kröfulýsingu, svo lengi sem verkkaupi samþykki útfærsluna. Þá sé annað atriði hvort útfærslur samræmist kröfum byggingareglugerðar. Það þurfi að sjálfsögðu og augljóslega að vera þannig, enda þurfi allar framkvæmdir að uppfylla slíkrar opinberar kröfur og fá samþykki þar til bærra yfirvalda. Á hönnunar- og samningsstigi séu hins vegar engar reglur um að verkkaupi megi ekki semja við verktaka á grundvelli hönnunar sem sé ekki fullfrágengin. Hið kærða verk sé á frumhönnunarstigi og það eigi eftir að útfæra nánar fjölmörg atriði, þar á meðal þakfrágang. Þá liggi ekki fyrir að svo stöddu hvort byggingafulltrúi komi til með að samþykkja útfærslu ÞG verktaka ehf. óbreytta. Ef fallist yrði á málatilbúnað kæranda myndi það þýða að viðsemjendur í alútboðum þyrftu alltaf, áður en til samninga sé gengið, að fá fulla vissu fyrir því að viðeigandi útfærslur yrðu samþykktar af byggingarfulltrúum. Þá þyrfti að fullhanna verkefnin og skila teikningum inn til byggingarfulltrúa til samþykktar áður en gengið yrði til samninga. Slíkt myndi augljóslega ekki samrýmast tilgangi samkeppnisviðræðna.

ÞG verktakar ehf. benda á að útlit hússins sé útfært með þeim hætti að þakkantur hússins sé mjög hár og feli allan frágang við þakbrúnir. Það sé því án vandkvæða að velja aðrar útfærslur á þakfrágangi án þess að ásýnd hússins taki breytingum. Lausnirnar myndu innihalda aðrar einingar frá framleiðanda, og útlitið myndi halda sér.

Þá andmæla ÞG verktakar ehf. fullyrðingu kæranda þess efnis að gert sé ráð fyrir léttum gipsveggjum í tillögu félagsins. Engir slíkir veggir séu í tillögu félagsins. Plötuklæðningar úr gipsi séu ekki hluti af innveggjum og gipsplötuklæðningar séu einungis á völdum stöðum innan á útveggjum. Tillaga ÞG verktaka ehf. hvað varðar gæði innveggja fullnægi því öllum kröfum útboðsins og verkkaupa. Loks telur félagið að um misskilning sé að ræða að því varðar innkeyrslu á miðri lóð. Engin innkeyrsla sé að aðkomutorgi og sé aðkoman að torginu í samræmi við deiliskipulag.

Í frekari athugasemdum sínum vísa ÞG verktakar ehf. til þess að ákvörðun kærunefndar útboðsmála virðist byggja á því að annmarkar hafi verið á matsferli varnaraðila og séu annmarkarnir tilgreindir að dregið sé í efa að persónuleg viðhorf fjögurra matsnefndarmanna fullnægi kröfum sem gera verði til kaupanda, og það samræmist ekki útboðslýsingu að skilað sé fjórum mismunandi umsögnum. Þá hafi kærunefndin gert athugasemdir við að þátttakendur hafi ekki verið upplýstir um einkunnir að baki hverri umsögn fyrir sig. ÞG verktakar ehf. telja að kærufrestur að þessu leyti sé liðinn og benda á að í grein 1.1.4.1.1 í útboðsgögnum hafi komið fram að bjóðendur fengju eina einkunn, en síðar umsögn fyrir hverja tillögu. Það hafi bjóðendur fengið þó að umsögnin hafi eftir atvikum verið í fjórum liðum. Greinin segi ekki til um það hvernig uppsetning umsagnar yrði háttað. Hefðu bjóðendur haft athugasemdir við þetta fyrirkomulag hafi þeim borið að leggja þær fram, eftir atvikum með kæru til kærunefndar útboðsmála, innan 20 daga frá því að þeir hafi fengið matið til sín. Kærandi hafi ekki gert neinar athugasemdir innan kærufrests og hafi kærufrestur verið liðinn vegna þessa þegar kærandi lagði fram kæru í máli þessu 27. apríl 2026.

Það skipti einnig máli að kærandi hafi ekki gert þessar athugasemdir í kæru sinni, heldur hafi kærandi gert athugasemd við að einkunn hans hafi lækkað. Kærandi hafi ekki gert formlegar athugasemdir við meðferð málsins hjá varnaraðila. Þær röksemdir sem kærunefnd útboðsmála hafi byggt ákvörðun sína á hafi því verið bæði runnar út á kærufresti og ekki verið í samræmi við skýra málsforræðisreglu 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016.

Þá benda ÞG verktakar ehf. á að tilgangur samkeppnisviðræðna sé fyrst og fremst að aðlaga tillögu að óskum verkkaupa og ná fram hagræðingu. Matsferli á grundvelli a. liðar 3. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016 áskilur síðar en svo að mat á gæðum sé einungis til hækkunar í samkeppnisviðræðum, heldur þvert á móti geti samkeppnisviðræður leitt til breytinga á verkandlagi, dregið úr gæðum, aukið gæði o.s.frv. Þannig geti mat á gæðum leitt bæði til hækkunar og lækkunar matsstiga. Báðir bjóðendur í hinu kærða innkaupaferli hafi gert breytingar til hagræðingar, en slíkar breytingar geti eftir atvikum komið niður á lægra mati frá stigamatsgjafaraðilum. Í báðum tillögum hafi verið gefin lægri einkunn fyrir aðlögun göngu- og hjólastíga og staðsetningu djúpgáma, sem og að þessi þáttur hafi verið felldur út úr kostnaði. Þar af leiðandi hlyti einkunn í báðum tillögum að lækka.

Það sé ómögulegt og ómálefnalegt að taka einungis til endurskoðunar ákveðna tilgreinda liði hjá öðrum bjóðanda. Að sama skapi sé útilokað að kaupandi sé bundinn af lágmarkseinkunn í fyrri umferð. Gæti það leitt til þess að bjóðendur geti dregið úr tillögu sinni án þess að fá lækkun í einkunn. Þá taka ÞG verktakar ehf. fram að framsetning kaupanda í hinu kærða útboði hafi ekki raskað jafnræði milli bjóðenda, en bjóðendur hafi fengið umsagnir frá matsmönnum og einnig hafi farið fram fjöldi viðræðufunda. Bjóðendur hafi þannig fengið fulla vitneskju um hvernig mætti aðlaga tillögur sínar að þörfum verkkaupa og breyti þar engu um hvort einkunnagjöf einstakra matsmanna hafi verið birt bjóðendum eða ekki.

Teljist hinir meintu annmarkar sem hér séu til umfjöllunar hafa leitt til þess að brotið hafi verið á rétti kæranda sé augljóst að hið sama eigi við um ÞG verktaka ehf. Niðurstaða úrskurðar kærunefndar útboðsmála geti því aldrei verið með þeim hætti að ganga eigi framhjá hlutskarpasta aðila og semja við þann næsta, þ.e. kæranda. Telji kærunefnd útboðsmála ástæðu til þess að hlutast í málinu sé því eini möguleikinn að fella útboðið úr gildi, annað hvort frá því að forvali lauk eða frá upphafi.

Auk þessa benda VG verktakar ehf. á að tilboð kæranda hafi verið 11,5% yfir kostnaðaráætlun, en félagið hafi átt tilboð sem hafi verið 3,9% yfir kostnaðaráætlun. Það sé því ljóst að varnaraðili hafi fulla heimild til að hafna tilboði kæranda og því sé jafnframt óljóst hvort kærandi hafi lögvarða hagsmuni af kæru sinni umfram aðra verktaka á landinu.

 

V

A

ÞG verktakar ehf. krefjast frávísunar málsins á grundvelli þess að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 hafi verið runnin út við móttöku kærunnar. Byggja ÞG verktakar ehf. á því að í útboðsgögnum hafi komið fram í grein 1.1.4.1.1 að bjóðendur fái eina einkunn en síðar umsögn fyrir hverja tillögu. Ekkert komi fram um hvernig uppsetning umsagnar skyldi háttað. Leiða megi líkur að því að kærandi hafi fengið sitt mat í upphafi mars 2026. Kærufrestur hafi því runnið út í byrjun apríl, en kæra málsins hafi borist 27. apríl 2026.

Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kærunefnd útboðsmála hefur litið svo á að bjóðendur hafi skamman frest til þess að kynna sér útboðsgögn eftir að þau eru gerð aðgengileg og þar til kærufrestur vegna athugasemda sem varða efni þeirra byrjar að líða, sbr. úrskurði kærunefndar útboðsmála í málum nr. 21/2020 og 41/2020. Telji bjóðandi í opinber innkaupum tiltekinn skilmála útboðsgagna ólögmætan verður hann því að beina kæru til nefndarinnar innan kærufrests og getur ekki borið því við eftir opnun tilboða að víkja beri skilmálunum til hliðar, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 7/2021.

Ágreiningur málsins lýtur ekki að einkunnagjöf vegna mats á fyrri tillögu kæranda, sem afhent var í byrjun mars 2026, heldur að framkvæmd gæðamats varnaraðila. Nánar tiltekið gerir kærandi ágreining um hvernig umsagnir viðræðunefndar varnaraðila hafi leitt til þess að einkunn fyrir endanlega tillögu kæranda hafi getað lækkað frá því að kærandi lagði fram upphaflega tillögu sína. Eins og atvikum er hér háttað, og að virtum öllum gögnum málsins, er það mat kærunefndar útboðsmála að kæranda hafi ekki getað orðið ljósir þessir meintu annmarkar á framkvæmd gæðamatsins fyrr en endanleg ákvörðun varnaraðila um val tilboðs lá fyrir, sbr. til hliðsjónar Hrd. 366/2013.

Niðurstaða varnaraðila vegna gæðamats lokatillagna þátttakenda var kynnt þeim 10. apríl 2026, og tilkynnti varnaraðili þátttakendum 17. apríl 2026 um val á tilboði ÞG verktaka ehf. Kæra málsins barst kærunefnd útboðsmála 27. apríl 2026 og því innan þess kærufrests sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Er kröfu ÞG verktaka ehf., um að kærunni verði vísað frá kærunefnd útboðsmála á þessum grundvelli, því hafnað.

 

B

Hið kærða innkaupaferli eru samkeppnisviðræður, sbr. 37. gr. laga nr. 120/2016. Samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skulu valforsendur samkeppnisviðræðna byggjast á besta hlutfalli milli verðs og gæða í samræmi við 3. tl. 1. mgr. 79. gr. Samkvæmt 2. mgr. skulu í útboðsauglýsingu samkeppnisviðræðna koma fram þarfir og kröfur kaupanda. Þá skal kaupandi setja fram og skilgreina þær forsendur fyrir vali tilboðs sem ákveðnar hafa verið og setja leiðbeinandi tímaáætlun. Samkvæmt 3. mgr. skal kaupandi hefja viðræður við þátttakendur með það fyrir augum að slá föstu með hvaða hætti þörfum hans verður best fullnægt. Í þessum viðræðum er heimilt að ræða öll atriði samnings við útvalda þátttakendur. Samkvæmt 4. mgr. skal kaupandi meðan á viðræðum stendur tryggja að jafnræðis sé gætt meðal þátttakanda og að ekki séu veittar upplýsingar sem gera stöðu sumra þátttakenda betri en annarra. Samkvæmt 6. mgr. skal kaupandi að loknum viðræðum gefa þátttakendum kost á að leggja fram endanleg tilboð með hliðsjón af þeirri lausn eða lausnum sem kynntar hafa verið og skýrðar meðan á viðræðum stóð. Þessi tilboð skulu hafa að geyma öll þau atriði sem nauðsynleg eru til að hrinda samningi í framkvæmd. Þátttakendum skal vera heimilt að skýra, skilgreina og laga til tilboð sín eftir beiðni kaupanda.

Í samkeppnisviðræðum er svigrúm kaupanda til mats meira en í útboðum endranær. Að þessu leyti er heimilt í samkeppnisviðræðum að víkja í einhverjum mæli frá þeirri meginreglu að valforsendur skuli sniðnar þannig að hendur þess sem tilboð velur séu bundnar fyrir fram, í eins ríkum mæli og kostur er, við mat á hlutlægum forsendum og viðmiðunum sem sett hafa verið fram. Slík frávik verða þó að vera innan marka og bjóðendum verður að vera ljóst til hvers er ætlast af þeim og hvaða þættir muni skipta máli við mat á tilboðum þeirra. Sjá til hliðsjónar Hrd. 366/2013 og 1., 6. og 7. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016. Til að skýra þetta nánar fyrir bjóðendum í samkeppnisviðræðum eiga sér stað viðræður á milli kaupanda og bjóðanda sem hafa að markmiði að gera ákvörðun kaupanda um val tilboðs fyrirsjáanlegri en ella væri, sbr. 3. mgr. 37. gr. laga nr. 120/2016. Þannig geti bjóðendur öðlast nánari skilning á þeim sjónarmiðum kaupanda sem mestu ráða um mat á einstökum huglægum valforsendum og lagað tillögur sínar til samræmis. Er þannig til staðar viss tenging á milli þeirra krafna um fyrirsjáanlega beitingu valforsendna sem felast í 79. gr. laganna og þeirra krafna sem felast í 37. gr. um að bjóðendum séu veittar upplýsingar um hvernig þörfum kaupanda verður best mætt.

Í útboðslýsingu kom fram í ákvæði 1.1.4.1 að samkeppnisviðræðunum væri skipt upp í fjögur þrep, I til IV. Þá kom fram að varnaraðili myndi kalla til matsnefnd og viðræðunefnd. Í ákvæði 1.1.4.1.1 var fjallað um skil á tillögu og tilboði. Þar kom fram að þegar þátttakendur hefðu skilað tillögu og verðtilboði myndi matsnefnd fara yfir tillögurnar og tilboðin og skila einkunn ásamt skriflegri umsögn um hverja tillögu sem kemur til mats. Hver þátttakandi fengi síðan afhenta umsögn frá matsnefnd um sína tillögu og stigagjöf. Í ákvæði 1.1.4.1.2 kom svo fram að viðræðunefnd varnaraðila myndi kynna nánar niðurstöður og athugasemdir matsnefndar fyrir hverjum þátttakanda fyrir sig. Enginn í viðræðunefnd ætti sæti í matsnefnd. Viðræðunefnd myndi síðan í kjölfarið eiga í viðræðum við þátttakendur með það að markmiði að skýra, þróa og aðlaga tillögur þátttakenda og kröfur varnaraðila þannig að samræmi næðist út frá umsögn matsnefndar.

Þegar að þátttakendur í útboðinu höfðu skilað tillögum sínum voru þær til samræmis við ákvæði útboðslýsingarinnar sendar matsnefnd til yfirferðar. Í henni sátu fjórir aðilar, skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar, deildarstjóri íþróttadeildar bæjarins, byggingafræðingur hjá bænum og stjórnarmaður hjá HK. Af gögnum máls verður ráðið að matsnefndin fyllti út matsblað það sem vísað var til í útboðslýsingu, ákvæði 1.3.1. Það hafi þeir þó gert með þeim hætti að hver og einn matsmaður veitti sjálfstæða umsögn um hvern og einn matslið og gaf einkunn. Síðan hafi þátttakendur fengið afhent eintak af þessu blaði en þó þannig að þeir hafi einungis fengið meðaltal einkunnar einstakra matsmanna en ekki séð hvaða einkunn bjó að baki hverri umsögn fyrir sig. Þátttakendum hafi síðan gefist tækifæri til að bæta tillögur sínar áður en að endanlegu tilboði kom auk þess sem þeir gátu rætt við viðræðunefnd varnaraðila um þarfir hans.

Þetta fyrirkomulag gat út af fyrir sig staðist. Á hinn bóginn fólst í því viss skerðing á gagnsæi sem hefði fengist með afhendingu einkunna einstakra matsmanna. Af því leiddi að sérstök ástæða var til að vanda framsetningu athugasemda í því skyni að þær hefðu viðunandi leiðsagnargildi um þarfir varnaraðila við innkaupin. Bjóðendur sem höfðu ekki fulla vitneskju um einkunnargjöfina gátu á þessu stigi ekki áttað sig á því en svo virðist sem leiðsagnargildi umsagnanna, án vitneskju um einkunnargjöfina, hafi í reynd verið áfátt. Þetta sést af samanburði á einkunnum einstakra nefndarmanna og umsögnum þeirra. Hann gefur þannig til kynna að umsagnirnar hafi verið ófullnægjandi í vissum atriðum. Þannig segir til dæmis […][1]. Innbyrðis mikilvægi þeirra athugasemda sem fram komu var næsta því óljóst og af tölulegri einkunnargjöf að ráða má ráða að ávinningur af því að bregðast við athugasemdunum gat verið afar mismunandi.

Frá sjónarhóli bjóðanda var þó ekki unnt að átta sig á þessu þegar þeir fengu afhenta umsögn matsnefndar áður en lokatilboðum var skilað. Þess er þó að gæta að kaupandi hefur alla jafnan svigrúm til að meta hvaða upplýsingar bjóðendum eru látnar í té við aðstæður sem þessar. Með því er á hinn bóginn vikið frá meginreglu 15. gr. laga nr. 120/2016 um gagnsæi. Af þeim sökum þarf kaupandi sem hyggst takmarka aðgang bjóðenda að upplýsingum líkt og hér var gert að skilgreina þær takmarkanir í útboðslýsingu með viðhlítandi hætti ellegar setja þar fram viðeigandi viðvaranir um hvaða óvissa getur hlotist af. Hér háttar á hinn bóginn svo til að lýsing matsferlisins í útboðslýsingu var almenns eðlis og lýsing á störfum matsmanna var fámál. Þá miðaðist hún við að skilað yrði einni umsögn fremur en mörgum mismunandi. Útboðslýsingin sem slík gaf því ekki tilefni til að álykta fyrir fram um þá annmarka sem hér um ræðir.

Þegar bjóðendur hófu vinnu við lokatilboð sín höfðu þeir þannig takmarkaðar forsendur til að glöggva sig nánar á þessu eða hvernig þetta gæti síðar haft áhrif á hagsmuni þeirra. Þeir hlutu því að láta reyna á framhaldið og gera tilraunir til að bæta tilboð sín með hliðsjón af þeim athugasemdum sem fyrir lágu. Hlutskipti bjóðenda var að vísu í vissum skilningi jafnt hvað þetta varðaði. Þótt svo hafi verið breytir það þó ekki þeim annmarka sem er lýst hér að framan, en almennt verða jafnræðisreglur ekki skýrðar með þeim hætti að þær réttlæti að vikið sé frá þeim kröfum sem leiða af lögum.

Svo sem fyrr greinir var í hinu umdeilda innkaupaferli ætlun varnaraðila að velja fjárhagslega hagkvæmasta tilboðið á grundvelli besta hlutfalls á milli verðs og gæða, sbr. 3. tl. 1. mgr. 79. gr. Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar útboðsmála hefur verið fjallað um til hverra atriða endurskoðun kærunefndarinnar tekur þegar tilboðum eru gefnar einkunnir fyrir gæði í samræmi við þetta. Byggist sú endurskoðun á athugun nefndarinnar á fram komnum tilboðum og matsgögnum. Sé um að ræða sérfræðilegt mat í höndum sérstakrar nefndar á vegum kaupanda sem unnið er til samræmis við fyrir fram skilgreint verklag hefur verið litið svo á að matsnefnd hafi hæfilegt svigrúm til mats. Komi þá ekki til endurskoðunar nema sýnt þyki að einkunnagjöf hafi verið andstæð jafnræði eða málefnalegum sjónarmiðum. Sjá hér til hliðsjónar úrskurði kærunefndar útboðsmála í málum nr. 34/2020, 28/2022 og 9/2023.

Svo sem að framan greinir er það mat kærunefndar útboðsmála að annmarkar hafi verið á umsögnum nefndarmanna matsnefndar varnaraðila og kynningu þeirra fyrir þátttakendum. Umsagnirnar fylgdu ekki fyrirmælum greinar 1.1.4.1.1 í útboðsgögnum og engar sérstakar viðvaranir voru settar fram hvað þetta varðaði. Af því leiðir að það hæfilega svigrúm sem kaupandi nýtur alla jafnan þegar matsnefnd gefur tilboðum einkunnir er takmarkaðra en ella.

Sérfræðingur kærunefndar hefur yfirfarið tillögu kæranda og borið hana saman við endanlegt tilboð kæranda. Að hans mati fæst ekki annað séð miðað við fyrirliggjandi gögn en að í tilboðinu sé af góðum vilja reynt að bregðast við umsögn matsnefndar um matsliði þá sem kærandi gerir ágreining um. Ekki fæst séð miðað við fyrirliggjandi rökstuðning að endanlegt tilboð kæranda hafi falið í sér lakari tillögu en þá sem upphaflega var gerð þannig að verðskuldi lakari einkunn. Vekur reyndar eftirtekt að […][2]. Röksemdir fyrir þeim breytingum sem gerðar eru á einkunnum eru því ófullnægjandi og skortir rökræn tengsl við þær breytingar sem um ræðir. Samantekið fæst því ekki séð út frá matsgögnum og röksemdum nefndarmanna að endanleg tillaga hafi verið lakari en sú sem upphaflega var gerð hvað hin umdeildu atriði varðar.

Að mati kærunefndar útboðsmála og sérfræðings hennar má ætla að breytingarnar á einkunnagjöf kæranda hafi verið ófyrirsjáanlegar með hliðsjón af útboðsskilmálum og þeim gögnum sem kærandi fékk afhent um fyrri tillögu hans. Jafnframt hafi rökstuðningur fyrir breytingu einkunna með hliðsjón af fyrri umsögnum nefndarmanna verið ófullnægjandi og verulegum annmörkum háður. Með vísan til þessa verður því að telja að einkunnagjöf varnaraðila fyrir tilboð kæranda í matsliðum 1-3 í matsatriði 1 samrýmist ekki 3. tl. 1. mgr. 79. gr. laga nr. 120/2016. Þá er sá munur sem var á einkunnagjöf tillögunnar og tilboðsins nægjanlegur til að breyta röðun þeirra tilboða sem fram komu í innkaupaferlinu.

Á hinn bóginn er rétt að taka fram að málatilbúnaði kæranda sem lýtur að efnisvali og þakgerð í tilboði ÞG verktaka ehf. er hafnað. Að mati sérfræðings nefndarinnar er þar um að ræða atriði sem geta haft áhrif á einkunnargjöf og kunna jafnvel að hafa haft slík áhrif. Þau geta hins vegar ekki leitt til ógildis tilboðs ÞG verktaka ehf. Þegar upp er staðið er á ábyrgð bjóðanda að framkvæma verkið sem um ræðir í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar og aðrar faglegar kröfur og ekkert gefur til kynna að slíkt sé útilokað. Eins verður ekki séð að fram hafi komið með fortakslausum hætti að tillögur aðila mættu ekki gera ráð fyrir breytingum á deiliskipulagi á nánasta umhverfi lóðar. Þvert á móti hafi komið fram á viðræðufundum með bjóðendum í mars að óskað væri eftir tillögum um breytingar á deiliskipulaginu sem gætu hagnast verkefninu. Sú minni háttar breyting sem fram kemur í tillögu ÞG verktaka ehf. varðandi aðkomu að lóðinni getur því ekki leitt til ógildis tilboðs félagsins.

Niðurstaðan er því sú að útilokað er að slá föstu hvort tilboðið hefði orðið ofan á hefði réttilega verið staðið að innkaupaferlinu og mati tilboða aðila. Óhjákvæmilega hefði slíkt getað haft umtalsverð áhrif á einkunnargjöf beggja tilboða og þá ekki aðeins um þá matsþætti sem kærandi beinir spjótum sínum að heldur alla aðra matsþætti líka. Kærunefndin tekur því enga afstöðu til hvoru tilboðinu hefði verið rétt að taka, tilboði kæranda eða ÞG verktaka ehf. Til slíks hefur kærunefndin enga heimild en úrræði hennar takmarkast með þeim hætti sem fram kemur í 111. gr. laga nr. 120/2016. Hinu eina sem verður þannig slegið föstu er að sú ákvörðun að velja tilboð ÞG verktaka ehf. byggði ekki á lögmætum grundvelli vegna þeirra annmarka sem voru á einkunnargjöf tilboðs kæranda.

Rétt er að taka fram að enginn aðili máls þessa hefur krafist þess að innkaupaferli varnaraðila verði lýst ógilt frá upphafi. ÞG verktakar ehf. víkja að vísu að þessum möguleika í sjónarmiðum sínum en gera þó ekki kröfu um að þetta sé gert. Þess í stað láta þeir við sitja, líkt og varnaraðili gerir, að krefjast þess að kröfum kæranda verði hafnað. Af þeim sökum kemur ekki til álita að úrskurða um annað en þá kröfu kæranda að fella úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð ÞG verktaka ehf. og hafna tilboði kæranda. Af þeim ástæðum sem að framan eru raktar verður sú krafa tekin til greina, en er þá miðað við að innkaupaferlið hafi í sjálfu sér verið í lögmætu ferli þar til bjóðendur fengu afhentar athugasemdir nefndarmanna matsnefndar um fyrri tillögu þeirra. Kemur því í hlut varnaraðila í kjölfar úrskurðar þessa að taka ákvörðun um hvernig málinu verður framhaldið miðað við þá forsendu.

Vafalaust er að niðurstaða þessi rúmast innan málatilbúnaðar kæranda, sbr. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016 en málatilbúnaður kæranda miðast allur við að breytingarnar á einkunnargjöfinni frá fyrri tillögu og til endanlegrar tillögu hafi ekki staðist. Sú er einmitt niðurstaða kærunefndar þótt umfjöllun nefndarinnar sé ekki orðrétt sú sama og birtist í kæru eða að öðru leyti tekin beint eftir kæranda. Málatilbúnaði varnaraðila og hagsmunaaðila um að kærunefnd bresti vald til að taka afstöðu til þessa málatilbúnaðar á þeim forsendum sem lýst er hér að framan er hafnað.

 

C

Kærendur gera einnig kröfu um álit skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart sér samkvæmt 119. gr. laga nr. 120/2016. Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið.

Líkt og fram kemur hér að framan þá er það mat kærunefndar útboðsmála að annmarkar hafi verið á innkaupaferli varnaraðila frá þeim tíma sem umsagnir matsnefndarmanna voru afhentar án þeirra einkunna sem gefnar höfðu verið. Þótt engu verði slegið föstu um hvort velja hefði átt tilboð kæranda telst hann í öllu falli hafa átt raunhæfa möguleika á að verða valinn og möguleikar hans hafi skerst við brotið. Að því virtu er það mat kærunefndar útboðsmála að varnaraðili sé skaðabótaskyldur gagnvart kæranda vegna kostnaðar við að undirbúa endanlegt tilboð hans og taka þátt í hinu kærða innkaupaferli í tengslum við undirbúning þess.

Eftir framangreindum málsúrslitum verður fallist á kröfu kæranda um að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði.

 

Úrskurðarorð

Kröfu ÞG verktaka ehf., um frávísun kærunnar frá kærunefnd útboðsmála, er hafnað.

Felld er úr gildi ákvörðun varnaraðila, Kópavogsbæjar, um að velja tilboð ÞG verktaka ehf. í hinu kærða útboði.

Varnaraðili, Kópavogsbær, er skaðabótaskyldur gagnvart kæranda, Ístaki hf., vegna kostnaðar við að undirbúa endanlegt tilboð og taka þátt í hinu kærða innkaupaferli í tengslum við undirbúning þess.

Varnaraðili, Kópavogsbær, greiði kæranda, Ístaki hf., 1.750.000 krónur í málskostnað.

 

Reykjavík, 17. september 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

[1] Afmáð vegna trúnaðar.

[2] Afmáð vegna trúnaðar.

Var efnið hjálplegt?