Mál nr. 454/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 454/2026

Miðvikudaginn 16. september 2026

A gegn Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með kæru, móttekinni 25. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 23. júní 2026 um að synja umsókn kæranda um örorkulífeyri.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um örorkulífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins með umsókn 11. apríl 2026. Með bréfi stofnunarinnar, dags. 23. júní 2026, var umsókn kæranda synjað á þeim forsendum að endurhæfing væri ekki fullreynd.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. júní 2026. Með bréfi, dags. 29. júní 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Athugasemdir bárust frá kæranda 29. júní 2026 og voru þær sendar Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi, úrskurðarnefndar, dags. 30. júní 2026. Viðbótargögn bárust frá kæranda 1. og 2. júlí 2026 og voru þau send Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. júlí 2026. Með bréfi, dags. 8. júlí 2026, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún send kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júlí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 13. og 17. júlí 2026 og voru þær sendar Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. júlí 2026. Viðbótargagn barst frá kæranda 2. september 2026 og var það sent Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. september 2026. Efnislegar athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram sú krafa að synjun Tryggingastofnunar ríkisins verði endurskoðuð. Kærandi hafi lagt sig allan fram við að sinna endurhæfingu, hann hafi sinnt vinnuprófunum og geti ekki meir. Hann geti ekki lengur unnið þrátt fyrir vilja, andleg og líkamleg heilsa komi í veg fyrir að hann geti sinnt heimilisstörfum og börnunum.

Málastjóri kæranda, hafi sagt að það væri ólíklegt að umsókn hans yrði synjað þar sem að það sjáist að hann hafi oft reynt endurhæfingu sem hafi í hvert skipti leitt til versnunar.

Kærandi hafi mjög ungur byrjað að reyna að deyfa vanlíðan sína. Kærandi hafi byrjað að reykja þegar hann hafi verið um 10 ára, um 12 ára aldur hafi hann byrjað að drekka áfengi í óhófi og hafi þá einnig byrjað í kannabisneyslu. Síðan hafi hann farið út í töflur, amfetamín og síðar kókaín. Kærandi skilji í dag að neyslan hafi verið leið til að flýja áföll, vanlíðan og erfiðar heimilisaðstæður. Í dag sé hann edrú og hafi unnið markvisst að bata.

Barnæska kæranda hafi einkennst af miklu ofbeldi og óöryggi. Hann hafi alist upp við ofbeldi af hálfu beggja foreldra, faðir hans hafi glímt við alvarlega áfengissýki og móðir við lyfjafíkn. Þá hafi kærandi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi sem barn og hafi verið lagður í mikið langvarandi einelti. Þetta hafi haft djúpstæð áhrif á geðheilsuna og hafi mótað líf hans.

Þrátt fyrir erfiða fortíð hafi kærandi alltaf viljað vinna og hafi byrjað að vinna um X ára, hann hafi unnið fjölmörg störf og hafi lokið meiraprófi árið X. Kærandi hafi ávallt reynt að standa sig á vinnumarkaðinum og þegar heilsan hafi versnað hafi hann samt haldið áfram að reyna þar til að það hafi ekki verið lengur mögulegt.

Kærandi glími við alvarlegan geðrænan og líkamlegan heilsuvanda.

Samkvæmt læknisvottorði hafi kærandi meðal annars verið greindur með ADHD, þunglyndi, kvíða, áfallastreitu og langvinna stoðkerfisverki. Auk þess glími hann við langvarandi bakverki, útbungun í lendhrygg, slitbreytingar, verki í ökkla sem hafi leitt til skurðaðgerðar og auk þess sé hann með daglega verki sem takmarki alla líkamlega getu.

Kærandi glími daglega við þunglyndi, mikinn kvíða, orkuleysi, svefnvandamál, einbeitingarerfiðleika, áfallaeinkenni, framtaksleysi og félagslega einangrun. Þessi einkenni hafi verið viðvarandi þrátt fyrir meðferð.

Stærsta áfall kæranda hafi verið þegar […] sem hafi haft gríðarleg áhrif á geðheilsu hans og líklega hafi hann aldrei náð að vinna almennilega úr þeirri sorg.

Kærandi hafi ekki gefist upp, hann hafi farið í endurhæfingu hjá VIRK, verið í sálfræðimeðferð, verið undir eftirliti geðlæknis, verið í lyfjameðferð og verið edrú í langan tíma og hafi lagt sig fram við að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Þrátt fyrir það hafi starfsgeta hans ekki aukist.

Læknisvottorð staðfesti óvinnufærni kærandi frá desember 2023 og að starfsgetan sé metin 10 af 100. Vottorðið staðfesti einnig að sjúkdómsgangur sé stöðugur, að heilsuvandi sé langvarandi, að hann búi við bæði alvarlegan geðrænan og líkamlegan heilsubrest og að langvarandi verkir og geðræn veikindi valdi verulegri skerðingu á starfsgetu.

Kærandi hafi alla tíð viljað vinna og hafi ítrekað reynt að komast aftur út á vinnumarkaðinn og hafi tekið þátt í allri þeirri endurhæfingu sem honum hafi staðið til boða. Þrátt fyrir vilja og viðleitni sýni læknisfræðileg gögn og reynsla hans að starfsgeta hans sé verulega skert.

Kærandi telji því að hann uppfylli lagaskilyrði fyrir örorkulífeyri og farið sé fram á að úrskurðarnefnd felli úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar og samþykki umsókn um örorkulífeyri.

Í athugasemdum kæranda frá 13. júlí 2026 kemur fram að í læknabréfi B, dags. 1. júlí 2026, hafi hann svarað öllum atriðum sem komi fram í synjunarbréfi Tryggingastofnunar.

Það hafi komið öllum sem kærandi þekki á óvart að honum hafi verið synjað um örorkulífeyri. Kærandi þekki fjölda fólks sem hafi fengið greiðslur strax frá 18 ára aldri

Kærandi sé ekki að sækjast eftir örorku vegna þess að hann nenni ekki að vinna, staðan sé sú að hann geti einfaldlega ekki unnið. Kærandi hafi tekið meirapróf, sem hafi kostað mjög mikið, en það sé ástríða hans að stunda akstur á stórum tækjum í öllum veðráttum og hafi hann verið eftirsóttur bílstjóri hér á Íslandi og víðar.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði synjun á umsókn um örorku- og hlutaörorkulífeyri.

Örorkulífeyrir greiðist samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Réttur til örorkulífeyris sé bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.

Í 1. mgr. 26. gr. laganna komi fram að Tryggingastofnun beri ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem sé forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Þó sé Tryggingastofnun heimilt að víkja frá skilyrði um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar. Í niðurstöðu matsins skuli koma fram hver geta viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði sé. Í 2. mgr. 26. gr. komi fram að áður en til samþætts  sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Þó sé Tryggingastofnun heimilt að víkja frá því skilyrði ef það sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.

Kveðið sé á um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 27. gr. laga um almannatryggingar. Í 1. mgr. komi fram:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.“

Samkvæmt 5. mgr. sé heimilt að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 60 mánuði, þó aðeins 12 mánuði í senn, með mögulegri framlengingu um allt að 24 mánuði í undantekningartilvikum eða í allt að þrjá mánuði eftir lok endurhæfingar  meðan beðið sé niðurstöðu sérfræðimats.

Nánar sé kveðið á um sjúkra- og endurhæfingarlífeyri í reglugerð nr. 933/2025.

Í 45. gr. laga um almannatryggingar sé meðal annars kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins skuli kynna sér aðstæður umsækjenda og greiðsluþega og gera þeim grein fyrir rétti þeirra samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum er stofnunin starfi eftir, reglugerðum settum á grundvelli laganna og starfsreglum stofnunarinnar. Við meðferð máls skuli staða og réttindi umsækjanda eða greiðsluþega skoðuð heildstætt. Stofnunin skuli jafnframt leiðbeina umsækjanda um réttarstöðu hans, um þau gögn sem þurfi að fylgja með umsókn og um framhald málsins og hafi því öllu verið sinnt í þessu máli.

Kærandi hafi lokið 31 mánuði á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum/endurhæfingarlífeyri á tímabilinu 1. apríl 2020 til 1. maí 2026.

Kærandi hafi sótt um örorku- og hlutaörorkulífeyri með umsókn 11. apríl 2026. Með henni hafi fylgt læknisvottorð, dags. 11. apríl 2026, þjónustulokaskýrsla, dags. 9. apríl 2026, sjálfsmat, dags. 3. júní 2026, og matskýrsla, dags. 18. júní 2026.

Tryggingastofnun hafi með bréfi, dags. 23. júní 2026, synjað umsókninni á þeim grundvelli að endurhæfing væri ekki fullreynd.

Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá sjúkdómsgreiningum sem tilgreindar eru í læknisvottorði, dags. 11. apríl 2026. Í vottorðinu komi fram að kærandi hafi nýlega lokið þjónustu hjá VIRK. Hann sé ekki talinn vera að færast nær vinnumarkaði og að mat læknis sé að frekari endurhæfing muni ekki skila árangri. Stöðugleika hafi verið náð og heilsubrestur sé talinn afleiðing veikinda. Ekki séu taldar líkur á breytingu á heilsufari. Í þeim hluta vottorðsins þar sem fjallað sé um líkamlegar og vitrænar skerðingar sé merkt við „á ekki við“ í öllum liðum.

Í þjónustulokaskýrslu frá VIRK komi fram að kærandi hafi verið í þjónustu hjá VIRK í 11 mánuði frá 12. maí 2025 til 9. apríl 2026. Í greinargerð Tryggingastofnuna er greint frá því sem fram kemur varðandi þjónustulok.

Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá því sem kemur fram í sjálfsmatslista kæranda, dags. 3. júní 2026, ásamt áliti fagaðili í matsskýrslu, dags. 18. júní 2026.

Tryggingastofnun ítreki að samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar sé stofnuninni heimilt að gera það að skilyrði fyrir örorkumati að umsækjandi gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar og viðeigandi endurhæfingu áður en til samþætts sérfræðimats komi.

Við mat á því hvort skilyrði séu uppfyllt leggi Tryggingastofnun sjálfstætt mat á öll fyrirliggjandi gögn. Horft sé meðal annars til sjúkdómsgreininga, heilsufarssögu, meðferðar og endurhæfingar sem umsækjandi hafi þegar lokið. Stofnunin sé því ekki bundin af mati eða niðurstöðu meðferðaraðila um örorku eða óvinnufærni heldur meti sjálfstætt hvort endurhæfing teljist fullreynd. Þá sé litið til þess hvort framlagðar upplýsingar séu studdar hlutlægum gögnum og hvort lýst skerðing samræmist öðrum upplýsingum um færni og daglegt líf umsækjanda.

Samkvæmt gögnum málsins glími kærandi við fjölþættan heilsubrest, meðal annars langvarandi bakverkjavanda, vefjagigt, þunglyndi, áfallastreituröskun, félagsfælni, ADHD og áráttu- og þráhyggjuröskun. Þá hafi kærandi verið í endurhæfingarúrræðum um árabil og hafi nýverið lokið þjónustu hjá VIRK. Af læknisvottorði verði ráðið að frekari endurhæfing sé ekki talin líkleg til árangurs og að stöðugleika hafi verið náð. Hins vegar liggi jafnframt fyrir mat óháðs matslæknis frá 18. júní 2026 þar sem komist sé að gagnstæðri niðurstöðu.

Í matsskýrslu matslæknis komi fram að kærandi sé á leið í aðgerð á vinstri ökkla og að áhrif þeirrar aðgerðar á starfsgetu liggi ekki enn fyrir. Þá telji matslæknir að síðasta endurhæfing hafi að mestu falist í vinnuprófun en ekki markvissri geðrænni meðferð eða skipulagðri sjúkraþjálfun vegna stoðkerfisvanda. Af gögnum málsins verði jafnframt ráðið að kærandi hafi tekið þátt í vinnuprófun á vegum VIRK en að henni hafi verið hætt þar sem hann hafi ekki ráðið við álagið vegna stoðkerfisverkja. Þá liggi fyrir að hann sé enn í uppvinnslu og meðferð vegna þeirra einkenna. Einnig liggi ekki fyrir að kærandi hafi notið þjónustu geðheilsuteymis þrátt fyrir verulegan geðrænan vanda. Með hliðsjón af ungum aldri kæranda, fyrirhugaðri aðgerð og þeim endurhæfingarúrræðum sem enn hafi ekki verið reynd með fullnægjandi hætti telji matslæknir að enn séu raunhæfir möguleikar til frekari endurhæfingar.

Þessi niðurstaða fái jafnframt stoð í fyrirliggjandi færnimati. Af því verði ráðið að kærandi búi við verulega skerðingu á ákveðnum sviðum, einkum þegar komi að því að takast á við streitu og annað andlegt álag, sem og að finna, halda og ljúka starfi, sinna launuðum störfum og viðhalda efnahagslegu sjálfstæði. Jafnframt sé hann talinn eiga við miðlungs vanda að stríða meðal annars við einbeitingu, lausn vandamála, ákvarðanatöku, framkvæmd verkefna, að fylgja dagskipulagi, starfsþjálfun og ýmsa þætti hreyfanleika. Á hinn bóginn sé skerðing á öðrum færnisviðum metin væg, svo sem við ávinnslu leikni, fínhreyfingar, göngu stuttra vegalengda, eigin umsjá og samskipti. Færnimatið lýsi því fjölþættri en breytilegri skerðingu á færni en gefi ekki tilefni til þeirrar ályktunar að starfsgeta kæranda sé endanlega metin til frambúðar eða að frekari endurhæfing sé útilokuð. Þvert á móti samrýmist niðurstöður færnimatsins mati matslæknis um að enn séu fyrir hendi raunhæfir möguleikar til frekari meðferðar og endurhæfingar.

Þrátt fyrir að kærandi búi við verulegan heilsubrest og hafi átt erfitt með þátttöku á vinnumarkaði, verði ekki litið fram hjá þeirri niðurstöðu matslæknis að færni hans geti aukist með frekari meðferð og endurhæfingu og að stöðugleika hafi ekki enn verið náð. Tryggingastofnun leggi verulegt vægi á þetta sérfræðimat, enda sé það byggt á heildstæðu mati á fyrirliggjandi gögnum og skoðun kæranda.

Að öllu framangreindu virtu telji Tryggingastofnun að endurhæfing kæranda sé ekki fullreynd að svo stöddu og því séu skilyrði ekki uppfyllt til að senda málið í samþætt sérfræðimat vegna örorku. Rétt sé að kærandi fullreyni frekari meðferð og endurhæfingu, meðal annars í kjölfar fyrirhugaðrar aðgerðar á ökkla.

Í því sambandi skuli þó áréttað að það sé ekki hlutverk Tryggingastofnunar að ákveða hvaða meðferðar- eða endurhæfingarúrræði skuli nýta, sú ábyrgð hvíli á meðferðarlæknum kæranda að vísa honum í þau úrræði sem teljist viðeigandi hverju sinni. Á meðan raunhæfir möguleikar til endurhæfingar séu enn fyrir hendi sé ekki tímabært að meta starfsgetu kæranda til 67 ára aldurs með örorkumati.

Að öllu framangreindu virtu sé það niðurstaða Tryggingastofnunar að endurhæfing kæranda sé ekki fullreynd. Kærandi hafi því ekki uppfyllt skilyrði 2. mgr. 26. gr. og 24. gr. um almannatryggingar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. júní 2026, þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort heimilt hafi verið að synja kæranda um örorkulífeyri samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar á þeim grundvelli að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd.

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar er réttur til örorkulífeyris bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.

Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem er forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Þór er Tryggingastofnun heimilt að víkja frá skilyrði um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar. Í 2. mgr. 26. gr. er tilgreint að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Tryggingastofnun er heimilt að víkja frá því skilyrði ef það er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.

Í 27. gr. laga um almannatryggingar er fjallað um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Svohljóðandi eru 1. og 5. mgr.:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til  virkni á vinnumarkaði, fær  viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing  af  sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.

[...]

Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 60 mánuði en þó að hámarki í 12 mánuði í senn. Heimilt er að framlengja greiðslutímabilið um allt að 24 mánuði ef um er að ræða einstakling í mjög viðkvæmri stöðu sem vegna fjölþætts vanda er  talinn þarfnast frekari  viðurkenndrar  meðferðar  eða  endurhæfingar. Þá er auk þess heimilt að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að þrjá mánuði eftir að endurhæfingu  lýkur, að því  tilskildu að greiðsluþegi sé  skráður í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun eða öðrum þjónustuaðila og samþætt sérfræðimat liggi ekki fyrir sem sýni getu til virkni á vinnumarkaði 50% eða minni.“

Í reglugerð nr. 933/2026 er fjallað nánar um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Fyrir liggur læknisvottorð B, dags. 11. apríl 2026, vegna umsóknar kæranda um örorkulífeyri, þar sem greint er frá sjúkdómsgreiningunum ótilgreindur bakverkur, ótilgreind geðlægðarlota, vefjagigt, ótilgreind áráttu- og þráhyggjuröskun, félagsfælni, streituröskun eftir áfall og truflun á virkni og athygli. Í vottorðinu kemur fram að kærandi sé óvinnufær.

Um lýsingu sjúkdómsgangs segir:

„Langvarandi bakverkir og andleg veikindi, áður verið í neyslu mikið og haft heilt yfir litla tengingu við vinnumarkað. Engin neysla frá 2020 og verið í endurhæfingarúrræðum að mestu frá 2020. Ég hitti A fyrst í desember 2024, þá var hann svo gott sem stjarfur orðinn af þunglyndi og vanlíðan og vonleysi með sjálfsvígshugsanir. Hann er miklu betri hvað það varðar í dag. A býr í leiguhúsnæði á C ásamt sambýliskonu sinni og X börnum. Hann hefur verið í endurhæfingarúrræðum stöðugt frá því hann varð edrú, nú síðast hjá Virk. Vann síðast hjá Den gafst upp vegna verkja. Vinnuprófanir hjá Virk enduðu á sama veg. Hann er með slitgigt í baki og hefur stöðuga verki niður í fætur. Einnig er útbungun á hryggjarlið sem hann óttast að verði að brjósklosi. A er í lítilli hreyfingu. Ekki í líkamsrækt, kostar of mikið segir hann. Labbar töluvert og nokkuð reglulega. Farinn að temja sér að labba meira með börnin. […] Edrú núna í X ár, áður vímuefnavandi.

Stærstu vandamál núna fyrir utan verkjavanda er andleysi og ánægjuleysi, framtaksleysi og tilgangsleysi.

Í nýlegu mati sálfræðings á HSN: "Þunglyndi, ofsakvíða, áráttu og þráhyggju, áfallastreituröskun, heilsukvíða og félagsfælni.".

A er, líkast til helst á grunni fyrri neyslu og áfalla, með slæma vefjagigt og á mörkum að geta kallast ME. Það eru viðvarandi verkir um allan skrokk, heilsulæsi dræmt. Mikil og viðvarandi þreyta, andleysi og uppgjöf. Sefur illa vegna verkja, örmagnast við litla áreynslu. Andleg vanlíðan margskonar og gríðarlegir verkir

Nýlega þjónustulok hjá Virk, er ekki að færast nær vinnumarkaði. Frekari endurhæfing mun að mati undirritaðs engu skila“

Í vottorðinu kemur fram að stöðugleika með tilliti til ICD greininga hafi verið náð og að ekki sé talið að færni geti aukist. Þá kemur fram að starfsgeta kæranda sé 10%.

Fyrir liggur læknisvottorð B, dags. 1. júlí 2026, þar sem segir:

„A er með öllu óvinnufær og engar líkur eru á að frekari endurhæfing muni skila honum vinnufærum. Hann hefur verið með losaralega tengingu alla tíð við vinnumarkaðinn. Verið að vinna mest við akstur og hefur aldrei ráðið við líkamlega erfiðari vinnu en það. Fyrst var hann í þjónustu Virk í 6 mán árið 2020. Náði að vinna með hléum eftir það en var aftur hjá Virk 2022-2023 í rúmt ár og svo aftur í 14 mán frá febrúar 2025. Útskrifaður úr Virk nú síðast í apríl. Til að halda vel utan um starfsendurhæfingu A var á sínum tíma óskað eftir einstaklingsmiðaðri þverfaglegri starfsendurhæfingu á vegum E í F, bæði 2020 og svo 2022-2023. A fór í fjölmörg úrræði á þeirra vegum sem nýttist honum misvel. Nú síðast lauk aðkomu Virk og starfsendurhæfingar G með vinnuprófun þar sem hann reyndi fyrir sér sem aðstoðarmaður […] sem hann réði engin vegin við vegna stoðkerfisverkja.

Hann hefur verið í endurhæfingarúrræðum stöðugt frá því hann varð edrú, nú síðast hjá Virk. Vann síðast hjá D en gafst upp vegna verkja. Vinnuprófanir hjá Virk enduðu á sama veg.

Heilsufarssaga hans hefur verið tíunduð í fyrri vottorðum, krónískir bakverkir, síþreyta, þunglyndi einbeitingarleysi, verkir í herðum og handleggjum. Þunglyndi, ofsakvíði, áráttu og þráhyggju- og áfallastreituröskun, heilsukvíði og félagsfælni. Þess utan hefur verið að há honum verulega verkur í vinstri ökkla, útlit sem samrýmist talocalcaneal coallition, og hann fór í aðgerð vegna þessa nú í júní.

Starfsgeta er engin og með öllu borin von að frekari endurhæfing breyti nokkru þar um, enda reynd öll þau úrræði sem í boði eru.“

ökkla og áhrif hennar á færni og starfsgetu liggja ekki enn fyrir. Jafnframt virðist síðasta endurhæfing hafa að mestu leyti falist í vinnuprófun en ekki markvissri meðferð eða þjálfun vegna þeirra geðrænu og líkamlegu þátta sem hafa hvað mest áhrif á starfsgetu hans. Ekki liggja fyrir upplýsingar um markvissa geðræna meðferð á síðasta endurhæfingartímabili né skipulagða sjúkraþjálfun vegna stoðkerfisvanda.

Með hliðsjón af ungum aldri umsækjanda, fyrri árangri af endurhæfingu þar sem honum tókst að snúa aftur til vinnu um tíma, fyrirhugaðri aðgerð og þeim endurhæfingarúrræðum sem enn hafa ekki verið reynd með fullnægjandi hætti (sjúkraþjálfun/geðheilsuteymi), er það mat undirritaðs að enn séu til staðar raunhæfir möguleikar til frekari endurhæfingar.

Endurhæfing telst ekki fullreynd að mati skoðunarlæknis.“

Í þjónustulokaskýrslu VIRK, dags. 9. apríl 2026, kemur fram að kærandi hafi verið í þjónustu þar í 11 mánuði frá 12. maí 2025 til 9. apríl 2026. Um þjónustuferil hjá ráðgjafa segir:

„A lauk nýverið þriggja vikna vinnuprufu sem X . Þótt honum hafi líkað sjálft starfið vel, þá reyndist það honum meira líkamlega krefjandi en hann hafði gert ráð fyrir. Hann segist hafa upplifað mikla þreytu og örmögnun ásamt mikla stoðkerfisverki sem hafði áhrif á getu hans til að sinna daglegu lífi fyirir utan vinnu, s.s heimilisstörf og að sinni börnum. Segir þetta ekki hafa haft góð áhrif á andlega líðan hans, sérstaklega þar sem ábyrgðin á heimilishaldi hefur að mestu leyti fallið á hlut eiginkonunnar.

A er í virku eftirliti hjá bæklunarlækni til að greina orsök verkja og skertrar starfsgetu. Staðan er eftirfarandi skv. upplýsingum frá A;

• Læknir hefur staðfest slitgigt í hnjám. Og vegna mikilla verkja í baki, er búið að bóka myndartöku þann 22 apríl, þar sem ástand baks verður metið.

• Myndataka á fæti sýndi vöxt í innanverðu öklabeini vinstra megin. En beðið er eftir frekari ráðleggingum frá lækni varðandi næstu skref. En A fékk tilvísun frá lækni í sjúkraþjálfun fyrir nokkru síðan og vinnur nú í því að finna lausan tíma hjá einhverjum sjúkraþjálfara.

• A á bókaðan tíma hjá lækni aftur í byrjun júní, þar sem væntanlega verður farið yfir niðurstöður rannsókna og vonar að tekin verður ákvörðun um næstu skref.

Vegna ofangreindra þátta og niðurstöðu vinnuprufunnar treystir A sér ekki til þátttöku á vinnumarkaði að svo stöddu. Í ljósi viðvarandi heilsubrests og takmarkaðrar starfsorku óskar hann eftir því að staða hans verði metin með tilliti til örorku.“

Í sjálfsmati vegna örorku, dags. 3. júní 2026, kemur fram að kærandi sé ekki á vinnumarkaði vegna heilsubrests eða fötlunar. Þá kemur fram að það sé mikilvægt fyrir hann að vera í vinnu. Kærandi telji hans helsta vanda sem leiði til óvinnufærni vera líkamleg veikindi, n.t.t. stoðkerfis- og gigtarvandamál, óútskýrður beinvöxtur í ökkla og andleg veikindi, þ.e. ADHD, þunglyndi kvíði, áfallastreituröskun, ofsakvíði og áráttu- og þráhyggjuröskun.

Fyrir liggur samþætt sérfræðimat frá fagaðilanum H lækni vegna viðtals, dags. 18. júní 2026. Þar kemur fram að rannsóknarspurningin sé að meta hvort endurhæfing sé fullreynd og ef svo er að rannsaka virkni á vinnumarkaði m.t.t. b- og d-þátta. Í áliti fagaðila segir í samantekt um niðurstöðu með tilliti til rannsóknarspurningar:

„Umsækjandi glímir við langvarandi geðrænan vanda, þar á meðal þunglyndi, kvíða, ADHD og áráttu- og þráhyggjueinkenni, auk stoðkerfisvanda, sérstaklega verki frá baki og vinstri ökkla. Vinnusaga er stopul sérstaklega frá 2020 og umsækjandi hefur tekið þátt í endurhæfingu í umtalsverðan tíma, þar á meðal þremur starfsendurhæfingarúrræðum frá árinu 2020.

Þrátt fyrir þetta telur matslæknir ekki hægt að segja að endurhæfing hafi verið fullreynd á þessu stigi. Umsækjandi er á leið í aðgerð á ökkla og áhrif hennar á færni og starfsgetu liggja ekki enn fyrir. Jafnframt virðist síðasta endurhæfing hafa að mestu leyti falist í vinnuprófun en ekki markvissri meðferð eða þjálfun vegna þeirra geðrænu og líkamlegu þátta sem hafa hvað mest áhrif á starfsgetu hans. Ekki liggja fyrir upplýsingar um markvissa geðræna meðferð á síðasta endurhæfingartímabili né skipulagða sjúkraþjálfun vegna stoðkerfisvanda.

Með hliðsjón af ungum aldri umsækjanda, fyrri árangri af endurhæfingu þar sem honum tókst að snúa aftur til vinnu um tíma, fyrirhugaðri aðgerð og þeim endurhæfingarúrræðum sem enn hafa ekki verið reynd með fullnægjandi hætti (t.d. sjúkraþjálfun/geðheilsuteymi), er það mat undirritaðs að enn séu til staðar raunhæfir möguleikar til frekari starfsendurhæfingar.

Endurhæfing telst því ekki fullreynd að mati skoðunarlæknis.“

Þá segir meðal annars svo í greinargerð fagaðilans:

„Glímir við blandaðan andlegan og líkamlegan heilsuvanda.

Andlegir þættir hafa spilað mikið inn í hans getu og hans vinnusaga er stopul.

Námserfiðleikar og vísað í I á unglingsárum. Hann hefur glímt við neysluvanda sem hafði mikil áhrif áður fyrr en verið edrú nú síðan 2020. Frá þeim tíma verið í endurhæfingarúrræðum í þrígang á vegum VIRK, náði á snúa tilbaka í vinnu eftir fyrri tvö skiptin. Eftir aðra endurhæfinguna þó stutt í vinnu. Í þriðju endurhæfingu fór hann í vinnuprufun á tveimur stöðum sem gekk ekki upp, ums sagðist ekki ráða við þetta og þessari tilraun lauk því.

Ums glímir við þunglyndi, kvíða þreytu og orkuleysi. Andleysi, tilgangsleysi og uppgjöf.

Svefn slakur. Úthald lélegt. Athyglisbrestur og kveðst gleyminn. Ums segir að sálfræðingur hafa talið hann á einhverfurófi en ekki er minnst á það í gögnum. Heilsukvíði og lélegt heilsulæsi. Þá er talað um áráttu og þráhyggjuvanda.

Stoðkerfisverkir eru víða og hefur verið rætt um vefjagigt við hann. Er greindur með slitgigt í baki og oft með verki. Hefur lent í nokkrum slysum, bílslys. Er með vandamál í vi ökkla sem háir honum, ofvöxtur í beini sem hefur áhrif á hreyfigetu og nefnir að þetta hafi gífurleg áhrif á sig. Til stendur að ums fari í aðgerð á morgun (19.6.26) - en þá að opna inn á ökklann og annað hvort verður meitlað af beininu eða ökklinn festur. Það er því óljóst hvernig staðan verður eftir þetta.

Ums talar um að andlega hliðin hafi lagast í endurhæfingu en að bakið hái sér mest og vi fótur.

Er endurhæfing fullreynd? Hefur síðan 2020 farið í gegnum endurhæfingu hjá VIRK þrívegis. Samtals fengið endurhæfingarlífeyri í 30 mánuði. Eftir 1.skiptið var hann talsvert á vinnumarkaði, en eftir annað skiptið skemur. Fór svo í stutta endurhæfingu sem lauk í vor. Þar reyndi hann vinnu á tveimur stöðum sem gekk ekki upp. Hefur ekki verið í sjúkraþjálfun síðan 2023. Var síðast í sálfræðimeðferð sem lauk um áramót 25/26. Ums segir lítið hafa komið út úr því og aðallega hafi það snúist um að ums fengi aftur ADHD lyf (sem hann fékk). Ums hefur ekki verið vísað í geðheilsuteymi en heimilislæknir nefnir það sem e-ð sem ætti etv að skoða.

Í endurhæfingarvottorði læknis ritað mars 2025 kemur fram að ums sé á miklu betri stað andlega en aðalvandinn séu verkir niður í fætur en glími líka við framtaks og tilgangsleysi, og sé með klínískt hamlandi þunglyndi. Læknirinn mat þá framtíðarvinnumöguleika góða. Þarna er líka minnst á geðheilsuteymi en að það úrræði hafi ekki verið nýtt vegna langs biðtíma.

Staðan í dag / hindranir / takmarkanir: Hvað líkamlega þætti varðar þá eru það verkir í baki og vi ökkla sem há ums mest. Síðan andleg vanlíðan, þunglyndi og framtaksleysi. Hefur sig ekki í nein verk. Nær ekki að vaska upp eða setja í vél þegar hann er hvað verstur.

Ums var áður að sinna X en getur það ekki lengur út af líkamlegum vandamálum. Hefur lokað sig af félagslega. Ums telur að ADHD meðferð sem hófst um haustið 2025 ekki hafa hjálpað.

Dæmigerður dagur: Vaknar oftast um 07 - vakinn af börnunum. Kveðst lengi að klæða sig út af stirðleika og verkjum. Eyðir síðan mestu hluta dagsins í að koma sér fyrir, á erfitt með að sitja, standa eða liggja lengi. Reynir að sinna heimilisverkum. Reynir að fara út að ganga en segir að hann þurfi að stoppa einu sinni á 10 min göngu vegna verkja. Fer í sund 1-2svar í viku en syndir ekki, er mest í heita og kalda pottinum og gufu.

Mat á vinnugetu: Metur hana sáralitla.

[…]

Líkamsskoðun: Meðalhæð og yfirþyngd. Húðflúr víða. Situr í viðtali í rúma 1klst. Situr á hæ rasskinn. Svolítið órólegur mótoriskt. Styður sig við stólarma og borð þegar hann rís á fætur. Mjög stirður við að beygja sig fram. Vöðvastyrkur í lagi. Taugaskoðun í lagi. Stirður við að krjúpa á hækjur sér. Við skoðun á vi ökkla ekki bólga, ekki marr við hreyfingar, þokkalegur hreyfanleiki.

Geðskoðun: Snyrtilegur, húðflúr á báðum handleggjum og höndum, […]. Myndar kontakt. Svolítið eldri að sjá en aldur segir til um. Virkar áttaður. Geðslag hlutlaust til vægt lækkað. Tal eðlilegt. Innsæi takmarkað í ástand sitt. Hugsanaferli eðlileg, ekki merki um geðrof.“

Meðal gagna málsins er greinargerð J sálfræðings, dags. 17. nóvember 2025, vegna greiningar á ADHD.

Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, leggur sjálfstætt mat á öll fyrirliggjandi gögn. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar skal endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd áður en til samþætts sérfræðimats kemur. Þá kemur fram í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 104/2024 að niðurstaða samþætts sérfræðimats gæti orðið sú að endurhæfing væri ekki talin vera fullreynd. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd. Þá var kæranda leiðbeint að fá ráðgjöf hjá þeim fagaðila sem þekkir best til hans heilsubrests til að leita ráðgjafar um þau endurhæfingarúrræði sem væru í boði.

Fyrir liggur að kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri á tímabilunum 1. apríl 2020 til 30. september 2020, 1. nóvember 2022 til 31. október 2023 og 1. apríl 2025 til 31. ágúst 2025 og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á tímabilinu 1. september 2025 til 30. apríl 2026 eða samtals í 31 mánuð. Í læknisvottorði B, dags. 11. apríl 2026, kemur fram það mat læknis að frekari endurhæfing muni engu skila. Í samþættu sérfræðimati frá fagaðilanum H, dags. 18. júní 2026, segir aftur á móti að kæranda hafi áður tekist að snúa aftur til vinnu um tíma eftir endurhæfingu og í ljósi fyrri árangurs, fyrirhugaðrar aðgerðar og þeirra endurhæfingarúrræða sem enn hafi ekki verið reynd með fullnægjandi hætti (t.d. sjúkraþjálfun/geðheilsuteymi), er það mat hans að enn séu til staðar raunhæfir möguleikar til frekari starfsendurhæfingar. Í þjónustulokaskýrslu VIRK, dags. 9. apríl 2026, kemur fram að kærandi treysti sér ekki til þátttöku á vinnumarkaði að svo stöddu.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ekki verði ráðið af upplýsingum í framangreindum gögnum að frekari endurhæfing, þar sem tekið er markvisst á vanda kæranda, geti ekki stuðlað að aukinni færni til atvinnuþátttöku. Úrskurðarnefndin lítur meðal annars til eðlis heilsufarsvanda kæranda og mikilvægi þess að endurhæfingarúrræði séu fullreynd áður en hugsanlegur réttur til örorkulífeyrisgreiðslna er metinn. Þá liggur fyrir að kærandi hefur fengið greiddan endurhæfingarlífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 31 mánuð en heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 84 mánuði samkvæmt 5. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar. Í ljósi framangreinds telur úrskurðarnefnd velferðarmála rétt að kærandi láti reyna frekar á endurhæfingu en til örorkumats kemur. Verður því ekki talið að skilyrði 2. mgr. 26. gr. laga nr. 100/2007 um að endurhæfing sé fullreynd sé uppfyllt.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. júní 2026, um að synja kæranda um örorkulífeyri.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um örorkulífeyri, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 
 

Var efnið hjálplegt?