Mál nr. 433/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 433/2026

Miðvikudaginn 9. september 2026

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Unnþór Jónsson lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með kæru, móttekinni 16. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 22. apríl 2026 þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur var synjað.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins með umsókn 27. febrúar 2026. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 22. apríl 2026, var umsókn kæranda synjað á þeim forsendum að endurhæfing/viðurkennd meðferð væri ekki talin fullreynd.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. júní 2026. Með bréfi, dags. 1. júlí 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 20. júlí 2026, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. júlí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Enginn rökstuðningur fylgdi kæru en kærandi lagði fram ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. apríl 2026, þar sem umsókn kæranda um örorku var synjað á þeim forsendum að endurhæfing/viðurkennd meðferð væri ekki fullreynd.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði synjun á umsókn kæranda um örorku- og hlutaörorkulífeyri á þeim grundvelli að endurhæfing hafi ekki verið talin fullreynd.

Ágreiningur málsins lúti að því hvort kærandi eigi rétt á örorkulífeyri samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar.

Örorkulífeyrir greiðist samkvæmt 24. gr. laga um almannatryggingar. Réttur til örorkulífeyris sé bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.

Í 1. mgr. 26. gr. laganna komi fram að Tryggingastofnun beri ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem sé forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Þó sé heimilt að víkja frá skilyrði um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar. Í niðurstöðu matsins skuli koma fram hver geta viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði sé. Í 2. mgr. 26. gr. komi fram að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Þó sé Tryggingastofnun heimilt að víkja frá því skilyrði ef það sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.

Kveðið sé á um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 27. gr. um almannatryggingar. Í 1. mgr. komi fram:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.“

Nánar sé kveðið á um sjúkra- og endurhæfingarlífeyri í reglugerð nr. 933/2025 um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Í 45. gr. laga um almannatryggingar sé m.a. kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins skuli kynna sér aðstæður umsækjenda og greiðsluþega og gera þeim grein fyrir rétti þeirra samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum er stofnunin starfi eftir, reglugerðum settum á grundvelli laganna og starfsreglum stofnunarinnar. Við meðferð máls skuli staða og réttindi umsækjanda eða greiðsluþega skoðuð heildstætt. Stofnunin skuli jafnframt leiðbeina umsækjanda um réttarstöðu hans, um þau gögn sem þurfi að fylgja með umsókn og um framhald málsins og hafi því öllu verið sinnt í þessu máli.

Kærandi hafi lokið 13 mánuðum á endurhæfingarlífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.

Kærandi hafi sótt um örorkulífeyri með umsókn 27. febrúar 2026. Með henni hafi fylgt læknisvottorð, dags. 19. febrúar 2026, og sjálfsmat kæranda. Umsókninni hafi verið synjað með bréfi, dags. 22. apríl 2026.

Kærandi hafi sótt um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, með umsókn dags. 3. maí 2026. Ekki hafi verið tekin ákvörðun af Tryggingastofnun vegna umsóknarinnar.

Við mat á örorku sé stuðst við þau gögn sem berist stofnuninni.

Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá sjúkdómsgreiningum sem tilgreindar eru í læknisvottorði, dags. 19. febrúar 2026, ásamt upplýsingum um fyrri heilsufarssögu.

Um stöðugleika sjúkdóms segi í vottorðinu að ástand sveiflist og talið sé að færni geti aukist með tímanum. Í upplýsingum um líkamlega skerðingu hafi læknir merkt við mikla skerðingu vegna verkjatilfinningar og áreynsluþols, væga skerðingu vegna skynhrifa er tengist starfsemi hjarta- og æða- og öndunarkerfis og miðlungs skerðingu vegna hægðastarfsemi. Að öðru leyti sé ekki merkt við skerðingar eða merkt við að skerðingar eigi ekki við. Vegna vitrænna skerðinga hafi læknir merkt við mikla skerðingu vegna orkuhvatar og miðlungs skerðingu við hvatastjórn. Að öðru leyti hafi læknir merkt við enga skerðingu eða ekki við neitt vegna annarra skerðinga. Kærandi hafi skilað inn sjálfsmatslista.

Kæranda hafi verið synjað um örorku- og hlutaörorkulífeyri með bréfi, dags. 22. apríl 2026, á þeim grundvelli að endurhæfing hafi ekki verið talin fullreynd. Í bréfinu segi m.a.:

„Í fyrirliggjandi gögnum koma fram upplýsingar um vefjgigt, bipolar 2, áfallasteita og ME. Endurhæfing hefur farið fram hjá Virk og geðheilsuteymi, greiddar hafa verið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 13 mánuði. Í fyrirliggjandi gögnum kemur fram fram að beðið sé eftir tíma hjá sérfræðilæknum bæði hjarta- og ofnæmislækni. Fram kemur að færni getu aukist með tímanum og í ljósi heilsubrests og færnivanda er fyrirséð að endurhæfingu mun taka tíma.“

Eftir birtingu ákvörðunar Tryggingastofnunar hafi kærandi sent inn læknisvottorð vegna örorkumats. Það hafi ekki haft áhrif á ákvörðun stofnunarinnar.

Kærandi hafi sótt um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur með umsókn 3. maí 2026. Stofnunin hafi ekki tekið ákvörðun vegna þeirrar umsóknar.

Síðasta ákvörðun vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna hafi verið tekin 22. janúar 2026, sem hafi verið synjað. Meðfylgjandi þeirri umsókn hafi verið staðfesting á að hún hefði sótt um hjá VIRK, dags. 16. október 2025, læknisvottorð, dags. 10. október 2025, synjun VIRK, dags. 6. janúar 2026, staðfesting vegna heilsubrests, dags. 8. janúar 2026, ásamt staðfestingu á bið eftir viðurkenndri meðferð eða endurhæfingu, dags. 21. janúar 2026.

Með kæru hafi fylgt læknisvottorð, dags. 11. júní 2026, sem hafi þegar legið fyrir. Einnig hafi fylgt kæru yfirlit yfir greiðsludreifingu vegna kröfu í innheimtu hjá stofnuninni. Um sé að ræða kröfu vegna uppgjörs frá 2024. Ekki verði frekar litið til þess þar sem engin ákvörðun hafi verið tekin vegna kröfunnar síðan 15. maí 2025.

Tryggingastofnun ítreki að það sé heimilt að setja það skilyrði að umsækjandi um örorkulífeyri gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar og viðeigandi endurhæfingu áður en til samþætts sérfræðimats komi, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar.

Við mat á færniskerðingu leggi Tryggingastofnun sjálfstætt mat á framlagðar upplýsingar, þar sem m.a. sé horft til sjúkdómsgreininga, heilsufarssögu og upplýsinga um meðferðir og endurhæfingu sem kærandi hafi gengist undir. Tryggingastofnun sé því ekki bundin af ályktunum meðferðaraðila um meinta örorku eða óvinnufærni. Þá skipti máli hvort gögn séu rökstudd og frá hlutlausum aðilum, auk þess sem metið sé hvort lýst einkenni fái stoð í atvikum daglegs lífs og samrýmist því sem almennt gerist vegna sambærilegra áverka, sjúkdóma eða fötlunar.

Samkvæmt gögnum málsins glími kærandi við andlegan og líkamlegan vanda. Tryggingastofnun hafi synjað umsókn kæranda á þeim grundvelli að endurhæfing væri ekki fullreynd. Fram komi í gögnum málsins að talið væri að færni gæti aukist með tímanum og að beðið væri eftir tímum hjá sérfræðilæknum, bæði hjarta- og ofnæmislækni. Þá hafi kærandi einungis lokið 13 mánuðum af sjúkra- og endurhæfingargreiðslum en heimilt sé að klára allt að 84 mánuði ef skilyrði séu uppfyllt. Niðurstaða stofnunarinnar hafi því verið sú að geta til virkni á vinnumarkaði væri minni en 50%, en að meðferð eða endurhæfing væri hins vegar ekki fullreynd. Ekki sé talið af fyrirliggjandi gögnum að frekari endurhæfing geti ekki stuðlað að aukinni færni til atvinnuþátttöku.

Það sé því mat Tryggingastofnunar að kærandi uppfylli ekki skilyrði fyrir því að vera send í samþætt sérfræðimat að svo stöddu til þess að meta örorku, þar sem endurhæfing hafi ekki verið fullreynd og talið sé að enn sé hægt að vinna með heilsufarsvanda kæranda til þess að auka vinnuhæfni. Á þeim forsendum telji stofnunin það vera í fullu samræmi við gögn málsins að hafna örorkumati í tilviki kæranda að svo stöddu.

Í því sambandi skuli þó áréttað að það sé ekki hlutverk Tryggingastofnunar að leggja til meðferðar- eða endurhæfingarúrræði, heldur sé sú ábyrgð lögð á lækna kæranda, þ.e. að koma umsækjendum um sjúkra- og endurhæfingagreiðslur og/eða örorkulífeyri í viðeigandi endurhæfingarúrræði sem taki mið af vanda einstaklingsins hverju sinni.

Að öllu framangreindu virtu sé það niðurstaða Tryggingastofnunar að endurhæfing kæranda sé ekki fullreynd. Kærandi hafi því ekki uppfyllt skilyrði 2. mgr. 26. gr. og 24. gr. laga um almannatryggingar.

Mikilvægt sé að þeir einstaklingar sem mögulega geti endurheimt vinnuhæfni fullnýti þau endurhæfingarúrræði sem í boði séu áður en til örorkumats komi. Af gögnum málsins verði ekki ráðið að heilsufarsvandi kæranda sé þess eðlis að endurhæfing geti ekki komið að gagni. Með vísan til framangreinds hafi í samræmi við lög og fyrri úrskurðaframkvæmd umsókn kæranda um örorkulífeyri verið synjað. Tryggingastofnun fari því fram á að kærð ákvörðun verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. apríl 2026, þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort heimilt hafi verið að synja kæranda um örorkulífeyri samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 eða hlutaörorkulífeyri samkvæmt 25. gr. laganna á þeim grundvelli að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd.

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar er réttur til örorkulífeyris bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.

Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem er forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Í 2. mgr. 26. gr. er tilgreint að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Tryggingastofnun er heimilt að víkja frá því skilyrði ef það er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.

Í 27. gr. laga um almannatryggingar er fjallað um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Svohljóðandi eru 1. og 5. mgr.:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.

[…]

Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 60 mánuði en þó að hámarki í 12 mánuði í senn. Heimilt er að framlengja greiðslutímabilið um allt að 24 mánuði ef um er að ræða einstakling í mjög viðkvæmri stöðu sem vegna fjölþætts vanda er talinn þarfnast frekari viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar. Þá er auk þess heimilt að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að þrjá mánuði eftir að endurhæfingu lýkur, að því tilskildu að greiðsluþegi sé skráður í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun eða öðrum þjónustuaðila og samþætt sérfræðimat liggi ekki fyrir sem sýni getu til virkni á vinnumarkaði 50% eða minni.“

Í reglugerð nr. 933/2025 er fjallað nánar um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Í læknisvottorði B, dags. 19. febrúar 2026, vegna umsóknar kæranda um örorkulífeyri, er greint frá sjúkdómsgreiningunum þreytuheilkenni eftir veirusýkingu, vefjagigt, geðhvarfasýki, áfallastreituröskun og iðraólguheilkenni, blandað form. Um stöðugleika sjúkdómsgangs segir að ástand hennar sveiflist og þá kemur fram að talið sé að færni aukist með tímanum. Um fyrri heilsufarssögu segir:

„Greind með vefjagigt 2012, 2002 greind með bipolar 2 af geðlækni á stofu, fleiri áföll og áfallastreita ME greind 2025 á C í kjölfar covid , veiktist 2020 og aftur 2021 af covid. Irritable bowel“

Fyrir liggur læknabréf D, dags. 11. júní 2026, þar sem segir:

„Ég fæ að senda þér nótu okkar frá því í okt. mánuði og nú aftur frá því í dag varðandi hana A.

Við í C mátum það svo að hún væri með langvarandi einkenni eftir covid sem hún fékk árið 2020 og 2021. Málið er flóknara því hún er einnig með mygluóþol og vefjagigt og glútenóþol. Við metum stöðuna þannig að hún sé ekki hæf til vinnu eins og er. Endurhæfingarúrræði eru ólíklega að skila árangri hjá þessari konu. Við sendum því þér þetta bréf til stuðnings umsókn hennar um endurhæfingarlífeyri eða örorku. Var fyrir með vefjagigt, drómasýki og slæm migreniköst“

Einnig liggur fyrir göngudeildarnóta D læknis, dags. 11. júní 2026, þar sem segir:

„Ég vísa í bréf okkar frá því í okt. mánuði síðastliðnum þegar við sáum A síðast í myndsíma. Við töldum hana þá vera með langvarandi einkenni eftir covid sem hún fékk árið 2020 og svo aftur 2021.

Hún varð betri en ekki nema að litlu leyti. Hún byrjaði á hormónalyfi sem heitir Ryeqo og fann fyrir miklum mun en það var hún sett á vegna vöðvahnúts í legi. Orka hennar hafði verið um 20-30% en fór upp í 50-60%. Nú nýlega hrundi orka hennar hins vegar verulega og telur hún sig vera í örmögnunarkasti enn. Hún veit svo sem af hverju það er og það er það að hún fór fram úr sér og fór að gera aðeins of mikið. Það er svo sem ekki mikið sem hún getur gert án þess að lenda í þessum köstum.

Annað er nýtt sem við áttuðum okkur ekki alveg á þegar hún var hér í viðtalinu í okt. er að hún virðist vera með umhverfisveiki. Hún er með sögu um mygluveiki frá fyrir 15 árum og var þá með veruleg öndunarfæraeinkenni. Aftur lenti hún í mygluhúsnæði fyrir um X árum síðan. Nú er hún búin að sjá að ef hún er í […] upp á E að þá verður hún mun betri heldur en þegar hún er í íbúð sem hún leigir ásamt fleirum í F.

Annað sem kemur fram í sögunni er að hún var með sílikonpúða, þeir voru fjarlægðir 2011 en þurfti hún aftur að fara í aðgerð vegna sílikon sem var í eitlum. Hún varð ekki betri við að sílikonið fór. Þá hafði hún lent í umtalsverðum áföllum og er greind með vefjagigt. Hún er með glútenóþol. Melting er í álagi, ýmist hægðatregða eða niðurgangur.

Þá eru það verulegar fjárhagsáhyggjur. Hún hefur ekki fengið endurhæfingarlífeyri frá því í sept. mánuði síðastliðinn. Hún er að fá aðstoð frá F og nær það engan vegin fyrir framfærslu.

Þau lyf sem hún tekur eru:

-Phenergan

-Seloken eftir þörfum við hjartslætti

Finnur ekki að Seloken sé að bæta hennar einkenni að öðru leyti.

Henni var illa við LDNið sem við ráðlögðum henni en hún fékk kvíða og svaf illa en þetta voru ekki nema nokkur skipti sem hún tók það.

Við leggjum á ráðin. Við leggjum höfuðáherslu á að hún komi sér í húsnæði þar sem henni líði sem best og hugsanlega hluti af hennar myglueinkennum tengdum mygluóþoli. Sjálfsagt er hún einnig með langvarandi einkenni covid eins og við héldum fyrir ½ ári síðan. Hún er hins vegar óvinnufær eins og er þessi kona.

Við fáum því að senda bréf til tryggingaryfirlæknis til að styðja umsókn ykkar um örorku eða endurhæfingarlífeyri fyrir hana. Ef það verða erfiðleikar munu við bjóða henni að okkar félagsráðgjafi seti sig inn í málin.“

Einnig liggur fyrir göngudeildarnóta D, dags. 10. október 2025.

Meðal gagna málsins er bréf frá VIRK, dags. 6. janúar 2026, þar sem segir:

„Læknisfræðilegri greiningu/meðferð/endurhæfingu er ekki lokið

Niðurstaða VIRK er að einstaklingur hafi líklega þörf fyrir þjónustu á vegum: Heilbrigðiskerfisins

Beiðni um þverfaglega starfsendurhæfingu er vísað frá. Fram kemur í beiðni læknis og/eða í svörum einstaklings að uppvinnslu á líkamlegum veikindum og einkennum er ekki lokið og ekki hefur farið fram meðferð eða endurhæfing innan heilbrigðiskerfis við þeim veikindum. Eins og sjá má í eftirfarandi reglum VIRK um hverjir eiga rétt á þjónustu og helstu frávísunarástæður þarf að ljúka meðferð og/eða greiningu innan heilbrigðiskerfisins áður en starfsendurhæfing kemur til.“

Í staðfestingu á bið eftir viðurkenndri meðferð eða endurhæfingu, dags. 21. janúar 2026, segir:

„Bíður eftir tíma hjá sérfræðilækni í hjartalækningum v. ?POTS, bíður eftir tíma hjá ofnæmislækni þar sem A grunar að hún sé með MCAS einkenni.“

Í fyrirliggjandi sjálfsmati vegna örorku, dags. 27. febrúar 2026, kemur fram að kærandi hafi ekki verið á vinnumarkaði síðan X. Þá kemur fram að það sé mjög mikilvægt fyrir hana að vera í vinnu og að hún meti starfsgetu sína 30%. Þá kemur fram að kærandi telji sinn helsta vanda sem leiði til óvinnufærni vera að það hafi ekki fundist viðeigandi endurhæfingarúrræði eða að henni hafi verið hafnað.

Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, leggur sjálfstætt mat á öll fyrirliggjandi gögn. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar skal endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd áður en til samþætts sérfræðimats kemur. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd. Þá var kæranda leiðbeint að hún gæti átt rétt á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.

Fyrir liggur að kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. desember 2022 til 31. janúar 2023 og 1. nóvember 2024 til 31. ágúst 2025. Þá fékk kærandi greiddar og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september 2025 til 31. september 2025. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi meðal annars verið greind með þreytuheilkenni eftir veirusýkingu, vefjagigt, geðhvarfasýki, áfallastreituröskun og iðraólguheilkenni, blandað form. Í fyrrgreindu læknisvottorði B, dags. 19. febrúar 2026, kemur meðal annars fram að talið sé að færni geti aukist með tímanum. Í bréfi VIRK, dags. 6. janúar 2026, kemur fram að kærandi hafi líklega þörf fyrir þjónustu á vegum heilbrigðiskerfisins. Þá segir í læknabréfi D, dags. 11. júní 2026, að endurhæfingarúrræði séu ólíklega að skila árangri hjá kæranda.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ekki verði ráðið af upplýsingum í framangreindum gögnum að frekari endurhæfing geti ekki stuðlað að aukinni færni til atvinnuþátttöku. Þá liggur fyrir að kærandi hefur fengið greiddan endurhæfingarlífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 13 mánuði en heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 84 mánuði samkvæmt 5. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar. Í ljósi framangreinds telur úrskurðarnefnd velferðarmála rétt að kærandi láti reyna á frekari endurhæfingu áður en til örorkumats kemur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. apríl 2026, um að synja kæranda um örorkulífeyri.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um örorkulífeyri, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 
 
 
 
 
 
 

Var efnið hjálplegt?