Mál nr. 485/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 485/2026
Fimmtudaginn 27. ágúst 2026
A og B gegn Reykjavíkurborg
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 8. júlí 2026, kærðu A, og B, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 1. júlí 2026, um að synja umsókn þeirra um félagslegt leiguhúsnæði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 24. apríl 2026, sóttu kærendur um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 11. júní 2026, var umsókn kærenda synjað og var sú ákvörðun staðfest af áfrýjunarnefnd velferðarráðs 1. júlí 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. júlí 2026. Með bréfi, dags. 14. júlí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 17. júlí 2026 og var hún kynnt kærendum með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. júlí 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kærenda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærendur kæri ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar frá 1. júlí 2026 þar sem staðfest hafi verið synjun á umsókn þeirra um almennt félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavíkurborg. Kærendur óski eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála endurskoði ákvörðunina og felli hana úr gildi þannig að umsókn þeirra verði tekin til nýrrar meðferðar. Kærendur telji að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til fjölskylduaðstæðna þeirra, félagslegra aðstæðna, heilsufarslegra aðstæðna og húsnæðisþarfa fjölskyldunnar. Fjölskylda kærenda þurfi á stöðugu og öruggu húsnæði að halda. Í gögnum Reykjavíkurborgar komi fram að kærendur hafi fengið samtals 12 stig. Samkvæmt þeim reglum sem komi fram í ákvörðuninni virðist lágmarkið fyrir einstakling/hjón/sambúðarfólk vera 12 stig eða meira. Kærendur telji því að rökstuðningur fyrir synjuninni sé óljós og óski eftir því að úrskurðarnefndin fari sérstaklega yfir það hvers vegna umsókninni hafi verið synjað þrátt fyrir þessa stigagjöf. Kærendur óski einnig eftir því að tekið verði tillit til þess að ákvörðunin hafi mikil áhrif á stöðu fjölskyldu þeirra og möguleika þeirra til að tryggja þeim viðeigandi húsnæði á almennum markaði.
III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar
Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærendur séu hjón frá C X ára gamall maður og X ára gömul kona, sem þiggi bæði endurhæfingarlífeyri sér til framfærslu. Maðurinn hafi komið hingað til lands sem flóttamaður í júní 2022 og fengið konu sína og börn til sín í janúar 2023. Kærendur hafi fengið fjölþætta þjónustu frá komu sinni til landsins. Þau leigi húsnæði á almennum leigumarkaði og telji það ekki henta sér þar sem það sé of lítið fyrir fjölskylduna en um tveggja herbergja íbúð sé að ræða. Þá séu að þeirra sögn slæm loftgæði og mygla inni í íbúðinni.
Þann 24. apríl 2026 hafi kærendur sótt um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 11. júní 2026, hafi þeim verið tilkynnt að umsókn þeirra hefði verið synjað þar sem skilyrði 3. tölul. e. liðar 1. mgr. 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði hafi ekki verið uppfyllt. Samkvæmt framangreindu ákvæði þurfi kærendur að fá 13 stig til að uppfylla stigagjöf en þau hafi fengið 12 stig. Með tölvupósti hafi kærendur óskað eftir einu auka stigi hjá áfrýjunarnefnd til að uppfylla stigagjöf, sbr. e. lið 4. gr. reglnanna. Áfrýjunarnefnd velferðarmáls hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 1. júlí 2026 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:
„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun mat starfsmanna á Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar á stigagjöf vegna umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði og synjun umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði, sbr. e. lið 1. mgr. 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði.“
Kærendur hafi nú kært þá ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Um félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík gildi reglur sem samþykktar hafi verið í velferðarráði þann 13. mars 2019 og í borgarráði þann 2. maí 2019. Reglurnar hafi tekið gildi 1. júní 2019.
Í 2. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði komi fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Í 4. gr. reglnanna séu sett fram tiltekin skilyrði sem umsækjandi þurfi að uppfylla til að umsóknin taki gildi. Skilyrði 3. tölul. e. liðar 4. gr. reglna hafi ekki verið uppfyllt en þar sé kveðið á um að aðstæður einstaklings/hjóna/sambúðarfólks með tvö börn eða fleiri verði að vera metnar til 13 stiga eða meira.
Umsókn kærenda hafi verið metin á grundvelli framangreindra matsviðmiða og hafi niðurstaðan verið sú að kærendur hafi verið metin til 12 stiga. Sumir þættir séu ekki háðir mati, eins og staða og tekjur umsækjanda, en aðrir þættir séu háðir mati, svo sem húsnæðisstaða og félagslegur vandi umsækjanda.
Stig vegna lögheimilis í Reykjavík sé veitt ef umsækjandi hafi átt lögheimili í Reykjavík í meira en 12 mánuði. Kærendur hafi fengið eitt stig undir lögheimili í Reykjavík.
Stig vegna stöðu umsækjanda séu metin út frá aðstæðum umsækjanda og séu gefin núll eða tvö stig. Kærendur hafi fengið tvö stig og hafi verið metin undir matsviðmið: „76% öryrki eða fær greiddan endurhæfingarlífeyri.“ Ekki sé hægt að fá fleiri stig hvað þennan þátt varði.
Stig vegna stöðu maka séu metin út frá aðstæðum maka umsækjanda og séu gefin núll eða tvö stig. Kærendur hafi fengið tvö stig og fallið undir matsviðmið: „76% öryrki eða fær greiddan endurhæfingarlífeyri.“ Ekki sé hægt að fá fleiri stig hvað þennan þátt varði.
Stig vegna tekna séu metin út frá árstekjum umsækjanda. Kærendur hafi fengið núll stig vegna tekna á ársgrundvelli og falli undir matsviðmið: „Árstekjur eru yfir kr. 7.874.000.“ Mánaðarlegar tekjur kærenda séu 1.015.509 kr. og því yfir framangreindum viðmiðum.
Stig vegna barna séu veitt ef umsækjandi sé með reglulega umgengni við börnin sín eða sé með skráð lögheimili þeirra. Kærendur hafi fengið þrjú stig vegna barna og falli undir matsviðmið: „tvö börn með lögheimili hjá umsækjanda.“
Þættir er varði félagslegar aðstæður kærenda séu háðir mati. Stig fyrir húsnæðisstöðu umsækjenda séu metin út frá umfangi húsnæðisvanda og séu gefin núll, eitt, tvö eða þrjú stig. Kærendur hafi fengið núll stig og fallið undir matsviðmið: [„Öruggt húsnæði. Meira en sex mánuðir eftir af húsaleigusamningi. Húsnæðiskostnaður* að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi er lægri en 30% af heildartekjum heimilis (miðað er við brúttótekjur)“] Kærendur séu með ótímabundinn húsaleigusamning og greiði 29,8% af tekjum sínum í húsnæðiskostnað. Þau séu því í öruggu húsnæði og greiði ekki íþyngjandi leigukostnað. Ekki sé unnt að veita fleiri stig hvað þennan þátt varði.
Stig vegna sérstakra aðstæðna barna séu metin út frá umfangi vanda og séu gefin núll, eitt eða tvö stig. Kærendur hafi verið metin til núll stiga.
Stig vegna félagslegs vanda umsækjenda séu metin út frá umfangi vanda og séu gefin núll, tvö, fjögur, eða sex stig. Félagslegur vandi kærenda hafi verið metinn til fjögurra stiga og falli undir matsviðmið: „Umsækjandi glímir við fjölþættan vanda sem hefur afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu og/eða færni til að leigja á almennum markaði, þrátt fyrir stuðning félagsþjónustu eða annarra viðurkenndra aðila.“ Í þeim tilfellum þegar umsækjendur séu metnir til sex stiga vegna félagslegs vanda séu málefni barna umsækjanda til meðferðar hjá Barnavernd Reykjavíkur eða upp hafi komið skyndileg alvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu, þar með talið getu viðkomandi til að finna húsnæði samkvæmt mati ráðgjafa. Framangreint eigi ekki við um stöðu kærenda og því ekki heldur unnt að veita fleiri stig hvað þennan þátt varði.
Miðlægur húsnæðisfundur hafi ekki mælt með frekari stigagjöf þar sem stigagjöf kærenda samkvæmt matsviðmiði, sbr. fylgiskjal 1 með reglunum, hafi verið talin endurspegla stöðu umsækjanda. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því talið að staðfesta bæri niðurstöðu Suðurmiðstöðvar um 12 stig samkvæmt matsviðmiðum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði.
Rétt sé að geta þess að með notkun matsblaðsins sé leitast við að gæta jafnræðis meðal umsækjenda og veita þeim stig á grundvelli atriða sem séu nánar tilgreind í matsblaðinu og stigagjöf taki mið af aðstæðum viðkomandi. Það hafi því verið mat áfrýjunarnefndar velferðarráðs að ekki væri ástæða til að breyta fyrirliggjandi stigagjöf miðstöðvar með vísan til aðstæðna kærenda og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfest mat starfsmanna Suðurmiðstöðvar á stigagjöf, sbr. e. lið 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði.
Með vísan til alls framanritaðs verði að telja að framangreind ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn framangreindum reglum um félagslegt leiguhúsnæði né lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kærenda um félagslegt leiguhúsnæði. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði 3. tölul. e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði væri ekki uppfyllt.
Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr.
Í XII. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.
Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á húsnæðismálum einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.
Í reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 2. mgr. 2. gr. reglnanna kemur fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa. Í 4. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði samþykkt á biðlista og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a. til e. liðum 1. mgr. ákvæðisins.
Samkvæmt e. lið 4. gr. skulu umsóknir metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal nr. 1 með reglunum. Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skal umsækjandi vera metinn að lágmarki til 13 stiga þegar um er að ræða hjón með tvö börn eða fleiri líkt og á við í tilviki kærenda.
Í þeim þáttum matsins er varða lögheimili og stöðu umsækjanda fengu kærendur hámarksfjölda stiga sem í boði eru, eða samtals þrjú. Kærendur fengu tvö stig vegna stöðu maka þar sem þau fá bæði greiddan endurhæfingarlífeyri. Kærendur fengu ekkert stig fyrir tekjur á ársgrundvelli þar sem tekjur þeirra eru yfir 7.874.000 kr. Í þeim lið matsins sem varðar börn fengu kærendur þrjú stig þar sem þau eru með tvö börn. Húsnæðisstaða kærenda var réttilega metin til engra stiga sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við. Sú stigagjöf fellur undir matsviðmið: „Öruggt húsnæði. Meira en sex mánuðir eftir af húsaleigusamningi. Húsnæðiskostnaður* að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi er lægri en 30% af heildartekjum heimilis (miðað er við brúttótekjur)“. Til þess að hljóta fleiri stig vegna félagslegra aðstæðna, nánar tiltekið undir húsnæðisstöðu, þarf t.d. húsnæðiskostnaður að vera verulega íþyngjandi eða hærri en 30% af heildartekjum heimilis, að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi. Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur með ótímabundinn húsaleigusamning og greiða 29,8% af tekjum sínum í húsnæðiskostnað. Kærendur fengu ekkert stig undir liðnum sérstakar aðstæður barna. Í þeim lið er veitt eitt eða tvö stig ef réttur foreldra til umönnunarbóta hefur verið metinn af Tryggingastofnun ríkisins eða ef málefni barns eru til umfangsmikillar vinnslu í félags- og/eða skólaþjónustu á þjónustumiðstöð eða hjá öðrum viðurkenndum aðilum. Af gögnum málsins verður ekki séð að þær aðstæður eigi við um börn kærenda. Því er því ekki ástæða til að gera athugasemd við þá stigagjöf. Þá fengu kærendur fjögur stig fyrir félagslegan vanda sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við, enda verður að telja ljóst að aðrir liðir matsviðmiðsins sem gefa sex stig eigi ekki við um aðstæður þeirra.
Samkvæmt framangreindu var umsókn kærenda metin til 12 stiga og uppfylltu þau því ekki skilyrði 3. tölul. e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kærenda um félagslegt leiguhúsnæði.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 1. júlí 2026, um að synja umsókn A, og B, um félagslegt leiguhúsnæði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir