13. október 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir um styrki úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla

{image.Description}

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla, sem er hluti af aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla.

Sjóðnum er ætlað að veita styrki til verkefna sem stuðla að nýsköpun, tækniþróun og þróun nýrra viðskiptaaðgerða á einkareknum fjölmiðlum. Úthlutanir úr sjóðnum verða annars vegar í formi verkefnastyrkja til stofnunar og þróunar nýrra fréttamiðla, og hins vegar til nýsköpunarverkefna innan starfandi fréttamiðla. Til úthlutunar árið 2026 verða 40 m.kr. að frádregnum umsýslukostnaði.

Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér reglur nr. 986/2026 um úthlutun styrkja úr sjóðnum og hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn.

Úthlutunarnefnd nýsköpunar- og þróunarsjóðs leggur mat á umsóknir sem skal skilað í gegnum vefgátt Rannís. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2026.