27. maí 2024
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Barnamenningarsjóður styrkir 41 verkefni: Kraftmikið menningarár í vændum

{image.Description}
Birgir Ísleifur
Mikil gleði var í Safnahúsinu í gær þegar tilkynnt var um úthlutun úr Barnamenningarsjóði.

Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2024. Sjóðurinn styrkir 41 metnaðarfullt verkefni og er heildarupphæð úthlutunarinnar 102,4 milljónir króna. Alls bárust 117 umsóknir og var sótt um 383 milljónir króna. Úthlutun var tilkynnt við athöfn í Safnahúsinu á degi barnsins, sunnudaginn 26. maí 2024.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Guðný Hilmarsdóttir formaður stjórnar Barnamenningarsjóðs ávörpuðu gesti og greindu frá úthlutun. Kammersveit skipuð ungum listamönnum, þeim Sigrúnu Mörtu Arnaldsdóttur, Sólu Björnsdóttur og Sveindísi Eir Steinunnardóttur, lék tvö lög við góðar undirtektir.

„Það er blómlegt fram undan í barnamenningu og gleður mig ósegjanlega mikið að sjá hversu margar umsóknir bárust. Það segir okkur að efling ungra listhuga er eftirsóknarvert viðfangsefni hjá listafólkinu okkar sem lýsir metnaði fyrir skapandi framtíð landsins og það mun skila sér margfalt til baka til okkar allra. Því langar mig að þakka öllum þeim er sóttu um, fyrir hugmyndirnar og kraftinn því það er ekki alltaf auðsótt að koma hugmyndum í framkvæmd og það krefst eldmóðs sem er svo sannarlega til staðar hér,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Hæsta styrkinn 11,5 milljónir, fær Reykjavíkurborg í samstarfi við Akureyrar- og Ísafjarðarbæ fyrir Leikskólaverkefnið sem byggir á samstarfi leik- og tónlistarskóla í öllum þremur sveitarfélögunum. Nemendur í tónlistarskóla vinna með elstu börnum leikskóla og lýkur verkefninu með sameiginlegum lokatónleikum. Næsthæsta styrkinn, 6 milljónir, fær Vestfjarðarstofa fyrir barnamenningahátíð Vestfjarða, Púkann 2025, en hátíðin fer fram vítt og breitt um Vestfjarðakjálkann. Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknirnar og menningarmálaráðherra samþykkti tillögu stjórnar sjóðsins um úthlutun.

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins með ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Sjóðurinn var festur í sessi 23. maí 2023 með Þingsályktun um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024–2028.

Sjá nánar um verkefnin hér.

 


 

StyrkþegiHeiti verkefnisÚthlutun í kr.
ReykjavíkurborgLeikskólaverkefnið11.500.000
Vestfjarðastofa ses.Púkinn 20256.000.000
Listasafn ÍslandsStattu og vertu að steini!5.800.000
Austurbrú ses.Uppspretta5.000.000
ReykjanesbærVirkjun skapandi lista meðal barna í Reykjanesbæ5.000.000
Handbendi Brúðuleikhús ehf.Studio Handbendi4.860.000
Hringleikur - sirkuslistafélagSirkusinn og ég - Flipp Festival4.498.000
Listasafn ÁrnesingaHringrásir - list og vísindi4.000.000
ReykjavíkurborgBIG BANG tónlistarhátíð4.000.000
Afrika-Lole,áhugamannafélagFAR Fest Afríka Barnamenning 24 - 253.700.000
Trúðavaktin, félagasamtökTrúðavaktin, íslensku sjúkrahústrúðarnir3.665.000
Dansgarðurinn, félagDansfræðsludagar - Dans fyrir alla3.000.000
Reykjavík Dance Festival.Tilfinningaskólinn3.000.000
Heimili kvikmyndanna - Bíó Paradís ses.Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík3.000.000
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðumHvað er með ásum?3.000.000
DansverkstæðiðBarna- og fjölskyldudagskrá á Dansverkstæðinu3.000.000
Eva Rún ÞorgeirsdóttirSvakalega sögusmiðjan - raddir barna2.820.000
ReykjavíkurborgSögur - Verðlaunahátíð barnanna2.600.000
Tónlistarfélag ÁrbæjarUngir lagahöfundar - Lagasmíðabúðir í Tónhyl fyrir 16 - 18 ára2.295.000
Söngskólinn í ReykjavíkOliver! - hátíðaruppfærsla Ungdeildar Söngskólans í Reykjavík2.000.000
KópavogsbærTímamót og fögnuður. Raddir barna í Kópavogi1.725.000
Grunnskólinn á DrangsnesiGoðdalir - sviðslistasmiðja barna1.620.000
LungA-Listahátíð ungs fólks,ALLungA Ungar: Fjölskylduhátíð og listasmiðjur fyrir börn og ungmenni1.593.000
Kammerhópurinn Reykjavík-BarokkKrakkabarokk á ferð og flugi1.500.000
LanganesbyggðTungubrestur og listsköpun1.435.000
KópavogsbærFjölþjóðlegir tónleikar á Barnamenningarhátíð 2025 í Salnum.1.340.000
Minjasafn ReykjavíkurVaxtaverkir - sjónlýsingar og táknmálsleiðsögn1.060.000
Sumartónleikar SkálholtskirkjuBarnamenningarhátíð Sumartónleikanna í Skálholti1.000.000
Menningarfélagið Rebel RebelViðburðir fyrir börn á Hamraborg Festival 20241.000.000
Listahátíð í ReykjavíkYes Yes Yes975.000
KópavogsbærTogether. Fjöltyngdar listsmiðjur fyrir börn og fjölskyldur960.000
Kol og salt ehfFURÐUVERUR Í MYRKRINU800.000
KópavogsbærBlásum lífi í þjóðsögurnar663.000
Natalia Duarte JeremiasA moment of music with Natalia600.000
Norræna húsiðHvernig tala ég um bækur?  myndlestur, samtal og fræðsla560.000
Tónskáldafélag ÍslandsLúðrasveitargjörningur á Myrkum Músíkdögum530.000
Náttúruskólinn, félagasamtökBarnamenningardagurinn510.000
FjarðabyggðFjölbreyttar listasmiðjur fyrir börn í Fjarðabyggð500.000
Eva Rún SnorradóttirBýr barn hér?500.000
Alþjóðlega tónlistarakademian í HörpuHIMA 2024500.000
Emma Louise SandersonFjallabyggð Mural project and Children's Workshop300.000