20. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið
Skráning hafin: Heilbrigðisþing um geðheilsu barna og ungmenna
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til árlegs heilbrigðisþings, fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi. „Það þarf þorp…“ er yfirskrift þingsins sem helgað verður áhrifaþáttum geðheilsu barna, lágþröskuldaþjónustu og nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu við börn. Opnað hefur verið vefsvæði með upplýsingum um þingið og þar er jafnframt tengill fyrir skráningu þátttöku.
Þingið verður haldið á Hótel Hilton við Suðurlandsbraut. Það hefst kl. 8.00 með léttri morgunhressingu en formleg dagskrá hefst kl. 08.30 með setningarávarpi heilbrigðisráðherra.