Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlanda um áhrif nýrrar tækni á börn og ungmenni
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sótti í dag fund forsætisráðherra Norðurlanda í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs sem fram fer í Helsinki í vikunni. Á fundinum var samþykkt yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlanda um áhrif nýrrar tækni á börn og ungmenni. Þar er lýst sameiginlegri afstöðu til snjalltækja, samfélagsmiðla og gervigreindar með áherslu á verja lífsgæði og heilsu barna og ungmenna í breyttum heimi.
„Ég fagna þeirri samstöðu sem birtist í yfirlýsingunni. Samspil snjalltækja, samfélagsmiðla og gervigreindar hefur þegar gjörbreytt heiminum sem börnin okkar alast upp í. Og við erum staðráðin í að grípa til þeirra aðgerða sem þarf til að tryggja lífsgæði þeirra og heilsu. Þar getum við haft áhrif og náð raunverulegum árangri með samstilltum þrýstingi á alþjóðavísu og með því að standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum. Til dæmis með reglum um samfélagsmiðla og aldursmörk, viðmiðum um skjátíma, símafríi í skólum, aðgerðum til að auka netöryggi og svo framvegis,“ segir forsætisráðherra.
„Við viljum nýta lýðræðið til að beina þróun þessarar nýju tækni í betri farveg í þágu almennings. Hér á Íslandi hefur átt sér stað vitundarvakning um þessi mál upp á síðkastið og ríkisstjórnin hefur ekki látið sitt eftir liggja. Mennta- og barnamálaráðherra kynnti nýverið drög að frumvarpi um aldursmörk fyrir börn á samfélagsmiðlum, sem var einmitt samþykkt af ríkisstjórn í dag, og reglugerð um símafrí í skólum hefur þegar tekið gildi. Það eru mikilvægt skref en við höfum einsett okkur að eiga frekara samráð og ganga í verkin í þessum efnum“ segir forsætisráðherra.
Hluti fundar forsætisráðherranna fór fram með þátttöku norrænna ungmenna og nemenda í alþjóðaskólanum í Helsinki og stýrðu ráðherrarnir hringborðssamtölum þar sem fram fóru líflegar umræður um afstöðu ungmennanna sjálfra til stafrænna miðla og helstu áskoranir sem þeim fylgja.
Á fundi sínum í morgun ræddu forsætisráðherrarnir jafnframt þá vinnu sem fram hefur farið um endurskoðun Helsingforssamningsins vegna þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja í Norðurlandasamstarfinu á jafnræðisgrundvelli. Á Íslandi hefur verið þverpólitísk samstaða um endurskoðun Helsingforssamningsins og markmiðið um aukið vægi Færeyja, Grænlands og Álandseyja í norrænu samstarfi. Á fundinum áréttaði forsætisráðherra afstöðu íslenskra stjórnvalda og hvatti til þess að viðundandi lausn yrði fundin varðandi þátttöku Grænlands, Færeyja og Álandseyja í samstarfinu.
Síðdegis í dag ávarpaði forsætisráðherra Norðurlandaráðsþingið í umræðum um öryggismál og áfallaþol á Norðurlöndunum. Sagði hún að á umliðnum mánuðum hefðu Norðurlöndin sýnt styrk og einingu á alþjóðasviðinu og óskaði Grænlendingum og Dönum til hamingju með nýgerðan samning landanna við Bandaríkin um öryggis- og varnarmál. Sagði hún að niðurstaðan hefði verið samningur sem styrki öryggi og varnir í okkar heimshluta. Þetta sagði hún mikilvægan árangur og að Norðurlöndin væru sterkari fyrir vikið á tímum ólgu í alþjóðamálum.
Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlanda
Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlanda - á ensku