Nýr fæðingarspítali opnaður í Malaví, stór áfangi í þróunarsamvinnu Íslands
Nýr og fullbúinn fæðingarspítali var formlega opnaður í Makanjira í Mangochi-héraði í Malaví á mánudag. Opnun sjúkrahússins er stór áfangi í þróunarsamvinnu Íslands og Malaví og mun bæta verulega aðgengi um 155.000 íbúa á þessu afskekkta svæði við austanvert Malaví-vatn að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, sérstaklega fyrir mæður og nýbura.
Ráðherra sveitastjórnarmála í Malaví, Dr. Ben Phiri, var viðstaddur opnun spítalans. Skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Þórarinna Söebech, var einnig á staðnum sem og tveir alþingismenn sem eiga sæti í þróunarsamvinnunefnd, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Ingvar Þóroddsson, en þeir eru í vinnuheimsókn í Malaví til að kynna sér árangur íslenskrar þróunarsamvinnu.
Sjúkrahúsið í Makanjira er byggt í samstarfi íslenskra og malavískra stjórnvalda undir héraðsverkefni Íslands í Mangochi-héraði. Framkvæmdir hafa staðið yfir í þrjú ár og hefur verkefnið verið umfangsmikið og krefjandi. Svæðið er mjög afskekkt og erfiðar aðstæður eru til framkvæmda. Héraðsstjórnin í Mangochi hefur leitt verkefnið í nánu samstarfi við íslenska sendiráðið í Lilongwe og fjölmarga aðra aðila sem komið hafa að undirbúningi, framkvæmdum og innkaupum á búnaði spítalans.
Sjúkrahúsið er fullbúið nauðsynlegum lækningatækjum og búnaði til að veita sérhæfða fæðingarþjónustu. Þetta er fyrsta heilbrigðisstofnunin á svæðinu sem getur sinnt bráðakeisaraskurðum og öðrum sérhæfðum aðgerðum vegna fylgikvilla á meðgöngu og í fæðingu. Þá verður spítalinn búinn sólarorkukerfi til að tryggja áreiðanlega raforku sem og sólardrifnu vatnskerfi.
Opnun sjúkrahússins er sérstaklega mikilvæg fyrir konur og börn á Makanjira svæðinu, þar sem aðgengi að sérhæfðri fæðingarþjónustu hefur verið takmarkað. Alls er reiknað með að um 6.700 fæðingar verði á sjúkrahúsinu ár hvert og í heildina mun spítalinn þjónusta 155.000 manns. Hingað til hafa konur sem hafa þurft á bráðaaðgerðum að halda orðið að ferðast langar vegalengdir til héraðshöfuðborgarinnar til að fá viðeigandi þjónustu, oft við mjög erfiðar aðstæður. Með tilkomu spítalans verður hægt að veita þessa lífsnauðsynlegu þjónustu nær heimabyggð.
Malaví hefur um langt árabil verið samstarfsland í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands en landið er eitt hið fátækasta í heimi. Ísland hefur stutt við uppbyggingu á grunnþjónustu á sviði heilbrigðisþjónustu, menntunar og vatns- og hreinlætismála auk sérstakrar áherslu á umhverfis- og loftslagsmál. Eru þessar áherslur í samræmi við stefnu um alþjóðalega þróunarsamvinnu Íslands sem Alþingi hefur samþykkt. Þá grundvallast þróunarsamvinnuverkefni Íslands á samþykktum fjárlögum.
„Opnun fæðingarspítalans í Makanjira er ein af stærri einstökum framkvæmdum í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands og skýrt dæmi um hvernig langtímasamstarf getur skilað áþreifanlegum árangri fyrir íbúa afskekktra byggða,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þetta er því stór stund í þróunarsamvinnu Íslands í Malaví og mikilvægur áfangi í því sameiginlega markmiði að bæta heilbrigðisþjónustu og tryggja mæðra- og ungbarnavernd. Um er að ræða áþreifanlegan og sýnilegan árangur af samstarfi íslenskra stjórnvalda við Malaví.“