27. október 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Leyfi sameinuð og afgreidd á innan við 18 mánuðum

{image.Description}
Gönguskarðsárvirkjun. Ljósmynd/Verkís

Virkjunarleyfi, nýtingarleyfi, starfsleyfi og heimild til breytingar á vatnshloti verða gefin út sem eitt leyfi hjá Umhverfis- og orkustofnun á innan við 18 mánuðum frá því að fullnægjandi umsókn berst. Þetta er á meðal breytinga sem lagðar eru til í frumvarpi Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem afgreitt var á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Markmið frumvarpsins er að liðka fyrir orkuframleiðslu, styðja við orkuskipti og innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að valdeflingu neytenda á raforkumarkaði þannig að almenningur og fyrirtæki geti framleitt, neytt, geymt og selt eigin endurnýjanlegu raforku í svokölluðum orkusamfélögum.

Með frumvarpinu eru stigin stærri skref til samþættingar á afgreiðslu virkjunarleyfis og annarra leyfa og heimilda sem virkjanaframkvæmdir kalla á en lágmarkskröfur tilskipunarinnar kveða á um. Með breytingunum verður hámarksmálsmeðferðartími stjórnvalda vegna veitingar virkjunarleyfis og tengdra leyfa í fyrsta skipti skýrlega bundinn í lög. Þetta er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðgerð nr. 2 í aðgerðaáætlun vegna atvinnustefnu Íslands þar sem lögð er áhersla á einfalda og skilvirka stjórnsýslu í orkumálum.

 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Við erum að taka regluverk orkumála rækilega í gegn. Þetta er enn eitt skrefið og rökrétt framhald af þeim breytingum sem við gerðum á síðasta þingi til þess að einfalda leyfisferla og auka skilvirkni. Næst kem ég inn með frumvörp sem miða að því að hraða uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa raforku og styrkja umhverfismatslöggjöfina. Sem fyrr gætum við þess í hvívetna að aukin skilvirkni sé ekki á kostnað vandaðrar málsmeðferðar, gagnsæis og almenningssamráðs.“